Dagur - 26.04.1950, Blaðsíða 8
8
Bagxjk
Miðvikudaginn 26. apríl 1949
Ársfundur Mjólkursamlags KEA
Mjólkursamlaginu er stjórnað af dugnaði
og framsýni
Ársfundur Mjólkursamlags KEA
■var haldinn hér á Akureyri
þriðjudaginn 18. þ. m.
Bændur í héraðinu hafa jafnap
talið ársfund Mjólkursamlagsins
vera talsverðan viðburð, og hafa
þessir fundir alltaf verið vel sótt-
ir og svo var ein'nig að þessu sinni.
Fundinn sátu, auk stjórnar og
framkvæmdastjóra 132 fulltrúar
mjólkúrframleiðenda úr 11 fé-
lagsdeildum og ennfremur all-
margt annarra fundargesta.
Mjólkursamlagsstjóri, Jónas
Ki'istjánsson, skýrði frá starfi
samlagsins á liðnu ári og lagði
fram reikninga þess. Skýrsla
þessi var öll hin fróðlegasta og
sýndi meðal annars, að mjólkur-
framleiðslan er sívaxandi í hér-
aðinu. Mjólkin er nú orðin aðal-
framleiðsluvara flestra bænda,
enda hefur sauðfjárræktin dregizt
saman vegna sauðfjárveikinnar
og niðurskurðar sauðfjárins á
undanförnum árum.
Mjólkui-magnið, sem Samlag-
inu hafði borizt á liðnu ári var
samtals 7.176.218 ltr. og hafði
aukist um rúmlega hálfa milljón
ltr. á árinu, eða um 8.20%. —
Fitumagn mjólkurinnar hafði
einnig aukizt að meðaltali og var
3.617%. — Af hinu samanlagða
mjólkurmagni hafði 34% selzt
sem neyzlumjólk, en 66% af
mjólkurmagninu hafði verið tek-
ið til smjör og skyrgerðar. — í
þessu sambandi benti samlags-
stjóri á, að þessi söluhlutföll væru
miklum mun óhagstæðari hér
heldur en t. d. á mjólkursamsölu-
svæði Reykjavíkur og Hafnar-
fjarðar, en þar fer um 70% af
mjólkurmagninu til beinnar
neyzlu, en hin 30% að mestu
leyti til í'jóma- og skyrfram-
leiðslu, enda hafa mjólkursam-
lögin í nágrenni Reykjavíkur
getað greitt hærra verð fyrir
mjólkina til framleiðenda en hér
hefur jafnan verið hægt að greiða,
og eru líkur til að slíkt hlutfall
haldist enn um sinn, þar sem
neyzlumjólkui'þörf Reykjavíkul'
er sívaxandi.
Samkvæmt endanlegu reikn
ingsuppgjöri Samlagsins, var
meðalverð mjólkurinnar til fram-
leiðenda sl. ár samtals 163 aurar
á lítra. Frá þessu verði dregst
flutningskostnaður mjólkurinnar
frá framleiðendum til mjólkur-
stöðvarinnar.
í ræðu sinni benti samlags-
stjórinn meðal annars á, að vegna
hinnar síaulinu mjólkurfram-
leiðslu í Eyjafirði væri mikil
nauðsyn á, að hraða ýmsum
framkvæmdum Samlagsins að því
er snertir byggingar og' aukinn
vélaútbúnað þess, til þess
að geta hagnýtt framleiðslu þess
betur og bætt hana. Slíkar fram-
kvæmdir kosta á þessum tímum
mikið fé, en það útheimtir einnig
fullan skilning og stuðning jafnt
framleiðendanna sem ríkisvalds-
ins ,en eins og kunnugt er verð-
ur engum slíkum aðgerðum þok-
að áfram nerpa með margs konar
leyfisveitingum frá hinu opin-
bera. — Þá væri og full nauðsyn
til, að ríkisvaldið, þrátt fyrir erf-
iðleika í gjaldeyrismálum, héldi
áfram stuðningi sínum við rækt-
Frá Fegrunarfélaginu
Á síðastliðnu ári samþykkti
Fegrunarfélag Akureyrar að hafa
forgöngu um það að fá gert af frú
Margrethe Schiöth brjóstlíkan, er
síðan yrði sett á þar til valin stað
í Listigarði Akureyrar, en eins og
kunnugt er, hefir frú Schiöth ver-
ið kjörin heiðursborgari Akur-
eyrar fyrir hið frábæra starf, sem
hún hefir unnið fyrir Listigarð-
inn, sem af innlendum jafnt sem
erlendum mönnum er talinn höf-
uðprýði' bæjarins.
Fegrunarfélagið kaus nefnd til
að starfa að þessu máli, og er
‘nefndin frétti, að til bæjarinsværi
fluttur myndlistamaðurinn Jónas
Jakobsson, kom hún að máli við
hann og fékk hann til að hefja
þegar mótun líkansins og var
þessu harðað enn meir, vegna þess
að til Reykjavíkur er kominn
maður, sem fær er um að gera
málmsteypu af frummyndinni.
Sl. mánudag var blaðamönnum
boðið að skoða umrætt brjóstlík-
an, sem nú stendur sem næst full-
gert á vinnustofu listamannsins í
Strandgötu 23. Er líkan þetta hið
myndarlegasta og virðist lista-
manninum hafa tekizt mjög vel
með verk þetta. Nú er tilætlunin
að fá gerða málmsfeypu af lista-
verkinu í næsta mánuði og er
vonandi að það verk takist einnig
vel. Vafalaust munu bæjarbúar
fagna þessari framtakssemi Fegr-
unarfélagsins og vill blaðið
hvetja þá til að veita félaginu ör-
uggt brautargengi í þessu máli
sem öðrum.
Ætlunin er að frjáls fjárfram-
lög bæjarbúa stuðli að því að
gera kleift að koma þessu menn-
ingarmáli í höfn. Blöðin, ásamt
nefndinni, munu taka við fram-
lögum til styrktar þessu málefni.
Sápuverksmiðjan Sjöfn brennur
un og endurbyggingu sveitanna,
því að þjóðinni mundi liggja
meira á því að rækta landið held-
ur en að auka togaraflotann, eins
og nú er. — Þörf landbúnaðarins
fyrir byggingu og rekstri áburð-
arvei’ksmiðju í landinu sjálfu er
mikil, með því mundi rælctunar-
málunum og landbúnaðarfram-
leiðslunni í heild verða veitt
meira öryggi. Bændum, og öðr-
um þeim, sem fullan skilning
hafa á knýjandi þörf landbúnað-
arins fyrir aukinni grasrækt og
matjurtarækt, ber skylda til að
beita áhrifum sínum á ríkisvaldið
til þess að afla þessari skoðun
nægilegs þingfylgis, svo að bygg-
ing áburðarverksmiðju hér á
landi megi hefjast sem allra fyrst.
Á fundinum flutti Olafur Jóns-
son búnaðarráðunautur erindi, er
vakti úskipta athygli og ánægju
fundarmanna. Þá voru og rædd
ýms áhuga- og menningarmál, er
mj ólkurframleiðsluna áhrærir.
Lýður Sigtryggsson
harmonikusnillingur efnir til
kveðjuhljómleika ásamt áttmenn-
ingunum úr Geysi á föstudags-
kvöldið kl. 9 í Nýja-Bíó. Lýður
er senn á förum úr bænum
áleiðis til Oslo, en þar er hann
nú búsettur. Blaðið hafði aðeins
tal af honum. Eins og kunnugt er
var hann harmonikumeistari
Norðurlanda árið 1946. Var hon-
um dæmdur sigur í Norður-
landakeppninni það ár í Stokk-
hólmi. Hann hefur ferðast mikið
um Norðurlönd og komið mjög
víða fram. Alls staðar hefur hann
hlotið mjög góða dóma, enda er
snilli hans viðburgðið. Er í sann-
leika sagt unun að hlýða á leik
hans. Er það óvenjugóð land-
kynning, þegar Lýður Sigtryggs-
son kemur opinberlega fram utan
lands. Þetta er seinasta tækifæri
fyrir Akureyringa að hlýða á leik
hans. Áttmenningarnir úr Geysi
munu syngja einsöngva, tví-
söngva og kvartetta.
Eldsupptök og slökkvistarf.
Á sjötta tímanum á laugardags-
morgun varð elds vart í ketilhúsi
verksmiðjunnar. Þegar slökkvi-
liðsstjóri kom á vettvang, laust
fyrir kl. 6, var ketilhúsið alveg
brunnið. Um morguninn var blíða
logn og bezta veður, svo að eld-
urinn breiddist tiltölulega hægt
út. Mjög var vatnslítið í vatns-
kerfi bæjarins, enda erfitt að
tengja nægilega margar bruna-
slöngur við vatn, vegna þess, hve
fáir vatnshanar eru þarna nærri.
Það þurfti því að leggja slöngur
Hátíðisdagiir verklýðs-
samtakanna
1. maí er alþjóðlegur baráttu-
dagur verkalýðshreyfingarinnar.
Hér á landi hafa verkalýðssam-
tökin staðið fyrir hátíðarhöldum
í þeim tilgangi að treysta raðir
sínai- í baráttu fyrir bættum kjör-
um og auknum mannréttindum
og til þess að fagna unnum sigr-
um. Umbótasinnuð öfl í þjóðfé-
laginu meta baráttu þessa að
verðleikum og fagna hverjum á-
fanga á leið til betra lífs og auk-
innar velmegunar.
alla leið niður í sjó, og voru þær
alls um 1500 m. að lengd. Af þessu
varð talsverð töf, sem olli því, að
eldurinn fékk svigrúm til að
mag'nast og breiðast út. Svo fór
að hvessa af suðri á áttunda tím-
anum.
Um 9 leytið var búið að lama
svo eldinn, að fært þótti inn í
húsið. En fyrstu 4 mennirnir, sem
fóru inn urðu fyrir gaseitrun frá
klórflösku, sem hafði sprungið
inni, og veiktust svo að þeir urðu
að mestu að hætta slökkvistarf-
inq. Læknis þurfti að leita handa
tveimur þeirra, þeim Ásgeiri
Halldórssyni og Oddi Kristjáns-
syni, sem var mjög hætt kominn.
Torveldaði þetta mjög slökkvi-
starfið. Þurfti þá helzt að rjúfa
þakið til þess að komast að eld-
inum, þar sem leiðin inn í húsið
var ófær. Er þetta að mestu leyti
frásögn slökkviliðsstjóra, Eggerts
Melsteð. Telur hann ólíklegt, að
hægt hefði verið að bjarga efri
hæð hússins, enda þótt nægilegt
vatn hefði verið til staðar.
Tjónið.
Efri hæð hússins brann alveg,
en rannsóknarstofunni ásamt
neðri hæðinni og geymsluskúr
bak við verksmiðjuhúsið varð
bjargað. En allt er þetta mikið
skemmt áf reyk og vatni. Annars
er, að svo komnu máli, erfitt að
greina frá tjóninu. Hið beina tjón
er mjög mikið. En hitt er e. t. v.
ennþá bagalegra, að verksmiðjan
hefur séð landinu utan Reykja-
víkur fyrir hreinlætisvörum. —
Stöðvun framleiðslunnar er því
mjög tilfinnanleg. Verksmiðju-
húsið var vátryggt hjá Bruna-
bótafélagi íslands og vélar og
vörur hjá Samvinnutryggingum.
Uppbyggingu verður hraðað.
Fréttamaður blaðsins hitti Jak-
ob Frímannsson, framkvæmdastj.,
KEA að máli og sagði hann, að
öll áherzla yrði lögð á að byggja
verksmiðjuna upp hið allra
fyrsta. Gerir hann sér vonir um,
að það taki ekki mjög lang'an
tíma, þar til eitthvað er hægt að
setja í gang aftur. Eins og kunn-
ugt er, er verksmiðjan eign Kaup
félags Eyfirðinga og Sambands
íslenzkra samvinnufélaga.
Kollwitz-sýningin
Á mánudaginn var opnuð í kapellunni sýning á myndum þýzku
listakonunnar Kiithe Kollwitz. Á sýningunni eru 79 myndir. Lista-
konan sótti mjög viöfangsefni úr lífi og striti alþýðufólks. Hér birtist
ein myndanna, sem er sjálfsmynd.