Dagur - 04.05.1950, Page 7
Fimmíudaginn 4. maí 1950
D A G U R
7
LEIKFÉLAG AKUREYRAR:
„UPPSTIGNING” - Siónleikur eftir Sigurð Nordal
- Leikstjóri: ÁGÚST KVARAN
í formála að fyrsta þætti sjón-
leiks þessa segir prófessor Nordal
m. a., að leiknum sé ætlað að
Uregða upp mynd af hinum „ei-
lífa smábæ“. f leiknum er lögð
áherzla á að draga fram hið skop-
lega í fari og hugsunarhætti smá-
borgarans, og er það oftast vel
gert og smekklega, þótt með
nokkrum ólíkindum sé sums
staðar í 1. þætti. Sumir aðrir höf-
undar, sem tekið hafa smáborg-
arann til meðferðar á leiksviðinu,
hafa lagt meiri áherzlu á hið
mannlega í fari hans. Það gerir
t. d. Thornton Wilde í sjónleikn-
um „Our Town“. Sjónleikur
Nordals er að þessu leyti nei-
kvæður, en leikrit Wilders já-
kvætt. En báðir höfundar bregða
fyrir sig nýstárlegri leiksviðs-
tækni, ef svo má kalla, og í báð-
um sjónleikjum er leiðsviðsstjór-
inn talsverð persóna og spjallar
sitt hvað við áhorfendur um list-
ina að lifa.
En þótt fleiri smábæir vildu
vera „Our Town“ en Knarrar-
eyri, er víst, að þeir eiga allir
sameiginlega hið skoplega og
smáborgaralega, og hið mannlega,
og sjálfsagt getur hver „eilífur
smábær“ séð sjálfan sig í spegli
prófessörs Nordals að talsverðu
leyti og hver smáborgari og
draumskáld kannast við sitt um-
hverfi.
f „Úppstigningu“ er margt mjög
skemmtilegt og viturlegt sagt um
listina og lífið. f fyrstu þremur
þáttum leiksins er brugðið upp
svipmynd af lífi og hugsunar-
hætti betri borgaranna í smábæ
á Suðurlandi, sem er að reyna að
verða meira en smábær. Prestur-
inn á staðnum — ungur maður og
sigldur — reynir að telja sjálfum
sér trú um að hann sé að sigrast
á umhverfinu og andrúmsloftinu
og þess megnugur að skapa
ódauðlegt listaverk. En hann er
í rauninni ekki annað en eitt af
draumskáldunum, sem svo víða
lifa, og ekki sízt á íslandi, og
listaverkið verður aldrei meira
en óljós hugarsmíð. Leikurinn
leiðir prestinn að loltum inn í
kirkjuna til þess að vígja altaris-
töflu í amerískum ramma, en áð-
ur hefur höfundur leitt hann í þá
öruggu höfn að verða tengdason-
ur aðalburgeiss bæjarins og
verðandi agitator fyrir þing-
mennskudrauma hans. Þar með
er leiknum raunar lokið. En inn
í þessa hversdagslegu atburði
þeytir höfundur fyrri hluta fjórða
þáttar, þar sem hann leiðir prest-
inn upp á fjall þess draums, að
hann sé, þrátt fyrir allt, frjáls
maður og skáld, og lætur hann
þar gera uppreisn gegn umhverf-
inu og andrúmsloftinu og þylja
hugsanir sínar og drauma fyrir
áhorfendum, en hæstvirtur h'öf-
undur og leiksviðsstjórinn leggja
nokkur orð í belg um hlutverk
hans og lífstilgang. Þessi uppá-
finning höfundar er skemmtileg
og enda mjög margt vel sagt í
„fjallræðunni" og allnöpur ádeila
verkum, sem honum hefur verið
trúað fyrir til þessa. Rödd Guð-
er hún og hittir í mark á stund- | mundar er þróttmikil og karl-
um a. m. k. Mönnum geðjast samt, mannleg, en hann má samt gæta
misjafnlega að þessu uppátæki og
þykir sumum leikurinn „falla“ á
því og verða risminni undir lok-
in en vænta mátti. Má það e. t. v.
til sanns vegar færa, en óneitan-
lega er hér um skemmtilega og
íhugunarverða nýjung að ræða á
íslenzku leiksviði, og þrátt fyrir
hana leiðir höfundur prestinn í
þá höfn, sem var hans líklegasta
sín að framsögnin verði ekki
óskýr. Löng eintöl, sbr. fjallsen-
una, hvetja til flýtis, en það má
ekki koma niður á skýrri og
skiljanlegri framsögn. Skorti
nokkuð á að þess væri nægilega
gætt í fyrri hluta 4. þáttar.
Tvö önnur aðalhlutverk leiks-
ins eru Jóhanna Einars, listmál-
ari, leikin af Matthildi Sveinsdótt
Úr öðrum þætti „Uppstigningar“. Jóhanna Einars listmálari (Matt-
hildur Sveinsdóttir) og séra Helgi (Guðmundur Gunnarsson). —
kennslukönu. Gerfi hennar er
mjög gott og hún veldur hlut-
verkirru yfirleitt vel. Má þó ekki
gera meira að því að gera frk.
Johnson áfkáralega.
Öll þessi aðalhlutverk má kalla
vel sýnd og gerðarlega og þótt
sumum finnist að eitt og annað
mætti betur fara hér og þar,
breytir það ekki þeifri staðréynd,
að þai-na er vel verið að verki og
ber leikurum — og þó e. t. y. ekki
síður leikstjóra — þakkir að
gjalda fyrir frammistöðuna.
Hið sama má raunar segja um
minni hlutverkin. Frú Sigríður
Pálína Jónsdóttir leikur frú Da-
víðsson, ýkjulaust og smekklega,
Harald Davíðsson konsúl, mann
hennar, leikur Þórir Guðjónsson
og tekst honum ágætlega að leiða
fram á senuna broddborgarann í
smábænum, útgerðarmanninn
með þingmanninn í maganum.
Dóttur þeirra hjóna, Ingibjörgu
(Dúllu) Davíðsen, leikur frk.
Bergrés Jóhannesdóttir, hinn
efnilegi nýliði úr „Piltur og
stúlka“. Hlutverkið er lítið og
krefst ekki tilþrifa. Það verður
heldur ekki stórt í höndum frk.
Bergrósai', eo áferöargott. Ásþjörn
Baldvinsson lækni leikur Skjöld-
ur Hlíðar; er
Og ekki' ýkja
og eðlilegasta landtaka, eins og
allt er í pottinn búið.
Frumsýning Leikfélags Akur-
eyrar á þessu athýglisverða leik-
riti sl. laugardagskvöld, var
skemmtilegur viðburður og fé-
laginu til sóma. Félagið hafði
fengið Ágúst Kvaran til þess að
hafa á hendi leikstjórn. Bar sýn-
ing þess og ljósan vott, að þar
hefur kunnáttumaður um fjallað.
Sýningin er í heild smekkleg,
hröð og lifandi og frammistaða
leikenda í heild góð. Hefur leik-
stjórinn augsýnilega lagt mikla
alúð við sviðsetningu leiksins, í
smáu sem stóru, og verður ekki
annað sagt, en að heildarsvipur
leiksýningarinnar sé mjög góður,
þótt ytri aðstæður séu harla ó-
fullkomnar í leikhúsinu hér, sem
raunar er þó ekki leikhús nema
að öðrum þræði, því miður.
Aðalhlutverkið, hinn draum
lynda, veikgeðja — og þó mann-
lega — prest, leikur Guðmundur
Gunnarsson. Hlutverkið er víða
mjög erfitt — t. d. fjall-senan
en Guðmundur skilar þvi mjög
smekklega og viðkunnanlega og
leikur hans er víða með ágætum
Höfundur leggur honum í munn
margar skemmtilegar setningar,
kryddaðar þun'um humor, og
Guðmundi er sérstaklega lagið að
gera þeim góð skil. Þetta mun
vera mesta hlutverk, sem Guð-
mundur hefur tekið að sér, og um
leik hans í heild má segja, að
hann vex með aukinni ábyrgð, er
traustur og öruggur leikari, sem
nær allgóðum tökum á þeim hlut-
ur, og frú Baldvinsson, sem
Björg Baldvinsdóttir leikur.
Bæði þessi hlutverlc krefjast
góðra leikkrafta til þess að missa
eigi marks, og má segja það báð-
um leikkonunum til hróss, að þær
uppfylla þessa meginkröfu. Björg
Baldvinsdóttir sýnir hina Ox-
ford-menntuðu læknisfrú á mjög
aðlaðandi hátt og með skemmti-
legum tilþrifum á stundum. Frúin
er glæsikona og nokkui' heims-
borgari og útlit, fas og látbragð
Bjargar er með þeim hætti, að
það fellur vel við hlutverkið og
vel í geð leikhússgesta. Hlutverk
Matthildar Sveinsdóttur er all-
erfitt, en það er vel af hendi
leyst. Leikur hennar vekur
hvergi vonbrigði og víða í leikn-
um, t. d. í svefnherbergissenunni
er leikur hennar ágætur og laus
við þann leiðinlega dilettantisma,
sem of oft er til sýnis á fjölunum
hér.
Fjórða mesta hlutverk leiksins
er frú Skagalín, hin stranga og
siðavanda húsmóðir og frænka
Helga prests. Frú Jónína Þor-
steinsdóttir leikur þessa sóma-
konu. Frú Jónína er þegar nokk-
uð leiksviðsvön hér og hefur tek-
ið verulegan þátt í leikstarfsemi
bæjarins á liðnum árum. í þessu
hlutverki nær frúin sér í fyrsta
sinn verulega vel niðri, ef svo má
segja, leikur frú Skagalín af
skörungsskap og smekkvísi og er
að mínum dómi lang bezta hlut-
verk hennar til þessa.
Frk. Margrét Steingrímsdóttir
leikur frk. Johnson, hina vind-
þornuðu amerísk-menntuðu
það lítið hlutverk
erfitt, enda sóma-
samlega með það farið. Kolbein
Halldórsson listmálara leikur
Vignir Guðmundsson. Manni
þykir hinn frægi málari næsta
unglegur, en að pðgy leyti er hér
sem annars staðar allvel leikið,
og enda þótt ekki . sé: neinn
„glans“ á þessu hlutverki eða
hinum smærri hlutverkum yfir
leitt, ér allt slétt,pg fellt pg sting
ur a. m. k. ekki í augun. Þá leik
ur Stefán Jónsson Hæstyirtan
höfund og Jóhann Ogmundsson
leikhússtjórann, er hvort tveggja
mjÖg sómasamlega af hendi leyst.
Loks leikur María Sigurðardóttir
þjónustustúlku.
Leiktjöldin eru mjög smekk-
lega gerð af Hauki Stefánssyni.
Leiksviðsstjóri er Stefán Hall-
dórsson og má þakka honum að
senuskiptingar ganga óvenju
fljótt og greiðlega. Ljósameistari
er Guðjón Eymundsson. Búninga
annast Signý Sigmundsdóttir og
hárgreiðslu María Sigurðardóttir,
Á undan leiknum lék frk. Ruth
Hermanns einleik á fiðlu og setti
það hátíðasvip á þessa frumsýn
ingu. Húsfyllir var og leikurum
og leikstjóra ágætlega fagnað
Það leikur ekki á tveim tung-
um, að sýning Leikfélagsins
þessum all-nýstárlega sjónleik
heppnaðist vel og varð leikhús-
gestum til ánægju og andlegrar
upplyftingar. Er hvort tveggja
að hæstvirtur höfundur, Sigurður
Nordal prófessor, hefir fengið fé-
laginu í hendur skemmtilegt og
uppörvandi viðfangsefni, og leik
stjórinn, Ágúst Kvaran, hefur
kunnað tökin á verkefninu og
þeim starfskröftum, sem hér er
völ á. Sýningin á „Uppstigningu“
er allgott sýnishorn þess, hvað
hér er hægt að gera á leiksviðinu,
þótt ófullkomið sé, ef vel er vand-
að til stórra atriða og smárra, og
góður listamaður f jallar um verk-
efnin og leiðbeinir leikendum.
Vonandi er, að þessi sigur Leik-
félagsins yfir erfiðum aðstæðum
stuðli að því, að að því ráði verði
nú horfið, að gera samkomuhúss-
salinn hér að leikhúsi, með þeim
búnaði, sem slík stofnun krefst.
Allt of lengi hefur verið látið
dragast að gera verulegar endur-
bætur á leiksalnum og aðbúð
leikara og áhorfenda. Það er
engan veginn ofvaxið getu bæj-
arfélagsins að gera hér nauðsyn-
lega bragarbót á. Eftir er að
reyna, hvort það er enn ofviða
skilningi og áhuga valdamanna í
bænum. Og innan tíðar munu
gestir frá þjóðleikhúsinu auka
fjölbreytnina >. leikhúslífi bæjar-
ins. Það er naumast í samræmi
við íslenzka gestrisni að bjóða
aeim upp á samkomuhússsalinn
óbreyttan, enda þótt við höfum
nú um langa stund látið hann
nægja fyrir heimamenn. Sýning-
in á „Uppstigningu" er þó enn
ein sönnun þess, að sá kotungs-
bragur er þeim alls ekki samboð-
H. Sn.
Nýtt! Nýtt!
Flóru-Konfekt
Framleitt úr úrvals efnum.
Fæst í öskjum á kr. 18.40
og pokum á kr. 7.35.
Reynið þetta ágceta konfek't.
Nýlenduvörudeild,
og útibú.
Riklingur
Höfum fengið mjög góð-
an vestfirzkan steinbíts-
rikling.
Kjötbúð KEA.
Nýkomið
HRÍSGRJÓN
HRÍSMJÖL
HEILHVEITI
Nýlenduvörudeild
og útibú.
=>1