Dagur - 04.05.1950, Blaðsíða 11
Fimmtudaginn 4. maí 1950
D AGUR
11
Aðalmndur Kaupfélags Eyfirðiiiga
(Framhald af 1. síðu).
um og áhöldum, í von um að það
geti eitthvað rétt hluta fyrirtæk-
isins.
Sala landbúnaðar- og sjávaraf-
urða hefur gengið fremur greið-
lega. Þó varð félagið að liggja
með meirihlutann af hraðfryst-
húsaframleiðslunni fram á haust.
Engar skemmdir urðu þó á þess-
ari framleiðslu, en vaxtatap mjög
tilfinnanlegt fyrir rekstur frysti-
húsanna.
Félagið hefur, eins og undan-
farin ár, keypt föstu verði fisk,
innlagðan á hraðfrystihúsin.
Sömuleiðis hefur það keypt
nautakjöt, egg.í smjör og ýmsar
aðrar afurðir innlagðar í kjöt-
búðina. Aðrar landbúnaðaraf-
urðir, svo sem kjöt, gærur, mjólk,
ull og húðir, hefur það tekið í
umboðssölu. Á sama hátt hefur
það tekið lýsi og saltfisk til sölu-
meðferðar."
Ástæður félagsmanna batna.
í skýrslunni er ennfremur
greint frá því, að ástæður félags-
manna gagnvart félaginu hafi
batnað á árinu um kr. 1.250.643.00.
Inneignir þeirra námu við árslok
kr. 22.482.369.00, en skuldir kr.
290.273.00. IniVéign í innlánsdeild
hefur hækkað um 475 þús. kr. á
árinu og var við árslok hátt á
þrettóndu milljón króna. í stofn-
sjóði voru í ársljök kr. 4.078.052.07.
Greitt var úr'sjóðnum á árinu
voru lán til vegagerðar í Svarf-
aðardalshreppi. Vegna synjunar
á fjárfestingarbeiðnum félagsins
var lítið um byggingafram-
kvæmdir á árinu.
Tillögur til aðalfundar.
Stjórn og endurskoðendur
leggja eftirfarandi tillögur fyrir
aðalfundinn:
1. Af innstæðu lyfjabúðarinnar
greiðist 10% arður til félags-
manna af þeim lýfjakaupum,
er þeir greiða sjálfir.
2. Fundurinn felur stjórninni að
ákveða endanlegt verð á kjöti
og gærum, innlögðum á árinu
1949 og á ull, innlagðri 1948 og
1949, þegar séð verður hvað
félagið fær endanlega fyrir
þessar vörur.
3. Fundurinn staðfestir ákvörð-
un félagsstjórnar og ársfund-
ar Mjólkursamlagsins um að
greiða samlagsmönnum upp-
bót á innlagða mjólk á árinu
1949, 43 aura á lítra. Þar af
greiðist IV2 eyrir á lítra í sam-
lagsstofnsjóð innleggjenda, og
41V2 eyrir í viðskiptareikninga
þeirra.
Nánar verður greint frá störf-
um aðalfundar KEA í næsta tbl.
- Fokdreifar
(Framh. af 6. síðu).
Fimmtugur:
Valtýr Þorsteinsson,
ú tgerðarmaður
Fyrra sunnudag varð Valtýr
Þorsteinsson útgerðarmaður hér
í bæ fimmtugur. Valtýr er Ey-
firðingur, ættaður frá Litlu-Há-
mundarstöðum á Árskóg'sströnd.
Hann rak lengi búskap og útgerð
að Rauðuvík, en fluttist hingað til
bæjarins fyrir nokkrum árum.
Valtýr hóf snemma útgerð og
hefur nú hin síðari ár verið í hópi
athafnasömustu útgerðarmanna
hér um slóðir. Hann hefur lótið
til sín taka í félagsmálum og op-
in.berum málum, bæði meðan
hann dvaldi í Rauðuvík og eftir
að hann fluttist hingað til bæjar-
ins, er mjög vel að sér um allt er
lýtur að útgerð og hagnýtingu
sjávarafurða. Á sl. óri fór hann
kynnisför til Noregs og Dan-
merkur, fyrir tilstuðlan Físki-
málanefndar, til þess að kynna
sér vetrarsíldveiðar Dana og
Norðmanna.
Á afmælisdaginn var mjög gest-
kvæmt á heimili Valtýs Þor-
steinssonar. Heimsóttu hann vin-
ir og samstarfsmenn héðan úr
'bænum og færðu honum árnað-
aróskir og gjafir.
- Sjálfvirka símstöðin
(Framhald af 12. síðu).
1949 til 111 manna samtals kr.
66.177.88. Á árinu 1949 úthlutaði
félagið 334 þús. krónum til fé-
lagsmanna sinna, af ágóðaskyld-
um vörum 302 þús. kr., af brauð
um 18 þús. og lyfjum 14 þús. kr.
Fjölgun félagsmanna.
í árslok voru 5023 félagsmenn
í KEA. í félagið gengu 384 menn
á árinu, en úr því 220. Aðalfélag-
ar eru 4834, en aukafélagar 190.
Stærsta deild félagsins er Akur-
eyrardeild með 2154 félagsmenn
og 72 fulltrúa á aðalfundi.
Helztu framkvæmdir.
í skýrslu stjórnarinnar er greint
frá helztu framkvæmdum félags-
ins á árinu 1949 og er þetta helzt:
Keyptur var 1/3 hluti í þvotta-
húsinu Mjöll, Akureyri. Félagið
átti áður 2/3 hluta. Gengið var
frá samningum um skiptingu úti-
búsins í Olafsfirði og varð það
sjálfstæ'tt kaupfélag á árinu. Veitt
sér smáleyfi laust fyrir áramót-
in. í janúar þurfti að senda leyfið
suður til þess að fá þau fram-
lengd. Sú reisa stóð í mánuð.
Þegar leyfið kom endurnýjað úr
þeirri ferð var svo komið, að
bankarnir séu hilla undir gengis-
fellinguna og vildu ekki yfirfæra.
Leið svo fram yfir gengisfall. Þá
þurfti að senda leyfið suður til
þess að fá viðbót vegna gengis-
fallsins. Er leyfið nýlega komið úr
þeirri reisu og nokkur von til að
það fáist endanlega innleyst í
bankanum áður en langt um líð-
ur. Slík dæmi munu mörg. Er
hægt að hugsa sér hlálegra fyrir-
komulag en þetta? En fram til
þessa hefur landstjórnin dauf-
heyrzt við öllum kröfum um að
leyfi séu afgreidd í hverjum
landsfjórðungi. Þetta skipulag
þykir af einhverjum ástæðum
hentugra.
Sumarið komið
í gær brá til sunnanáttar og
hlýviðris, eftir hina langvarandi
norðaustanátt og kuldakast.
800 símtöl innifalin í
afnotagjaldinu.
Afnotagjaldið fyrir nýja símann
verður 180 krónur á ársfjórðungi
fyríf einkasíma, en 290 krónur
fyrir verzlunarsíma, samkvæmt
hinni nýju gjaldaskrá. Fyrir þetta
afnotagjald mega menn tala inn-
anbæjar 800 símtöl á ársfjórð-
ungi, en verða að greiða 20 aura
fyrir hvert samtal, sem fram yfir
er. Sjálfvirka stöðin telur sam-
tölin hjá hverju númeri. Á hinni
nýju stöð verður lægsta númer
1000. Hækka öll númer um 1000.
Símanúmer Dags er t. d. 166 nú,
en verður 1166 o. s. frv.
Fullkomnar vélar.
Sjálfvirku símavélarnar eru
smíðaðar af sænska firmanu L.
M. Eriksen í Stokkhólmi. Er það
sama firmað og smíðaði sjálfvirka
kerfið í Reykjavík. Þetta firma er
mjög þekkt og hefur orð fyrir
vandaða framleiðslu. Símakerfi
þess eru mjög útbreidd í Svíþjóð
og Noregi og í fleiri löndum, að
því er T. Haarde vei-kfræðingur
skýrði frá. Er því full ástæða til
þess að vænta þess að nýja stöðin
hér reynist vel og vissulega mun
hún verða til stórra þæginda fyr-
ir bæjarbúa.
| TÓMAS ÁRNASON I
I Múljlutni) 1 gss krifstofa l
[ Hafnarstræti 93, 4. Iiæð. i
| Símar 443, G28.
Gróandi jörð
<i>
(Framhald af 2. síðu).
sjós og lan'ds — verður að víta harðlega. Ungt fólk þarf að fyll-
ast hugsjónum, sem ræðst á og útilokar allan mannleysuhátt.
Sú útilokun yrði brúin til vaxandi menningar og gengis þjóð-
inni. Fólk með þær hugsjónir á að hafa orðið, í dag og á
morgun. Það yrði vorkoma nýs tímabils, nýtt líf inn í þjóðar-
sálina.
í harðindunum síðastliðið var unnu bændur hér og búalið
margt 18 tíma í sólarhring, dag eftir dag og viku eftir viku, til
að bjarga lambfénu og öðru þvi, sem harðindin ætluðu um
koll að keyra. Þetta blessað fólk sýndi hetjudáð, sem er vel
þess verð að um sé getið. í þeim lcrafíi felst sú seigla, sem
byggja má á bjóðarheill.
iMimtiimiiiu*
UK BÆ OG BYGGÐ
Messað í Akureyrarkirkju n.k.
sunnudag kl. 5 e. h. — P. S.
Vinnustofusjóði Kristneshælis
hefur borizt gjöf að Upphæð kr.
2500.00 til ríiinningar um Jóna-
sínu Helgadóttur frá börnum
hennar. Beztu þakkir. Jónas
Rafnar.
Dánardægnr. Á mánudaginn
lézt hér í bænum Kristján Magn-
ússon verkamaður, vel kynntur
dugnaðarmaður.
Frá Leikfélagi Akureyrar. —
Næsta sýningar á „Uppstigningu"
verða á laugardags- og sunnu-
dagskvöld. Aðgöngumiðasala í
Samkomuíiúsinu leikdagana kl.
2—4. Pöntunum veitt móttaka
hjá Birni Sigmundssyni.
Hjúskapur. Þann 30. f. m. voru
gefin saman í Akureyrarkirkju
Anton- Kristjánsson, skrifstofu-
piáður hjá KEA, og Esther Jó-
hannsdóttir. —- Heimili ungu
hjónanna er að Þingvallastræti
32, Akureyri.
Hjúskapur. 30. f. m. voru gef-
in saman í hjónaband af séra
Jakob Jónssyni í Reykjavík,
ungfrú Nanna Nachtglaas og
Snorri Snorrason, flugmaður,
námsstjóra Sigfússonar.
Frá Tóvinnuskólanum á i Sval-
Harði. ;Ve|naðarnámskeið, byrjar
um næstu helgi.
„Hvassafell“ kom frá Cadiz á
Spáni í gær óg hófst uppskipun á
saltfarmi skipsins þegar.
„Jörundur“ er nú í söluferð til
Bretlands með ísfisk.
Afli togbátanna hér fyrir Norð-
urlandi hefur verið allgóður að
undanförnu.
Ferðaáætlun Ferðafélags Ak-
ureyrar í sumar, er þannig: 7.
maí: Gengið á Kerlingu. 29. maí:
Hringférð suður um Eyjafiörð.
3.—4. júní: Gengið á Torfufells-
hnjúk. 11. júní: Farið til Hríseyj-
ar. 16. júní: Vegavinna í Arnar-
staðatungum. 18. júní: Flugferð
yfir Oskju, Brúaröræfi, Snæfell,
Hornafjörð, Kirkjubæjarklaustur,
um Vestmannaeyjar til Keflavík-
ur. 24.-25. júní: Vegavinna í
Arnarstaðatungum. 1.—2. júlí:
Hólar—Siglufjörður. 7.—12. júlí:
Þingvellir. 15.—16. júlí: Vega-
vinna í Hafrárdal. 15.—19. júlí:
Austurlandsferð. 22.—23. júlí:
Vegavinna á Vatnahjalla. 28.—30.
júní: Laugarfell. 4.—7. ágúst:
Hvannalindir. 11.—14. ágúst:
Laugafell—Vonarskarð. 18.—20.
ágúst: Laugafell—Hofsjökull. 26.
—27. ágúst: Út í Fjörðu. 2.—3.
sept.: Laugafell—Gráni. 10. sept.:
Hraunnsvatn.
f
Aðalfundur KantÖtukors Ák-
ureyrar verður haldinn í kapellu
Akureyrkirkju kl. 8.30 e. h. mið-
♦ikudaginn 10. maí.
Sjónarhíæð. Sunnudagaskóli kl.
1. Almenn samkoma kl. 5 á
sunnudögum. Allir velkomnir.
2Eskúlýðssamkoma næstk. laug-
ardagskvöld kl. 8.30. Allt ungt
fólk velkomið — og eldra líka. —
Sæmuiid'ur G. Jóhannésson, >
Hjálpræðisherinn, Strandg. 19B.
Almennar samkomur. Föstudag
og sunnudag kl. 8.30. Á sunnu-
daginn stjórnar og talar unga
fólkið, Söngur og hljóðfæraslátt-
ur. Allir velkomnir. — Mánudag,
8. maí, kl. 4: Heimilasambandið
(seinasti fundur). — Fyrir börn:
Miðvikudag kl. 6: Kærleiks-
bandið. Sunnudag kl. 2: Sunnu-
daga skóli.
Fíládelfía. Samkomur verða í
Verzlunarmannahúsinu, Gránu-
félagsgötu 9: Á fimmtudag 4. maí
kl. 8.30 e. h., almenn samkoma. Á
þeirri sarhkomu tala þær Kristín
Sæmunds og Charlotte Rist. —
Á sunnudag 7. maí: Sunnudaga-
'skóli kl. Í.3 Oe. h. (Skólaslit). Al-
menn samkoma kl. 8.30 e. h.
Söngúr og hljóðfæraleikur. Allir
velkomnir.
Samkomur í kristniboðshúsinu
Zíon næstu viku. Sunnudag kl.
8.30 e. h.: Fórnarsamkoma. —
Miðvikudag kl. 8.30 e. h.: Biblíu-
lestur og bænastund. Séra Jó-
hann Hlíðar talar. Aílir velkomn-
ir.
Kvennadeild SlysaVarnafélags-
ins á Akureyri hefur ákveðið að
athuga möguleika á stofnun
kvennadeildar í Ongulsstaða-
hreppi, í þinghúsi hreppsins,
þriðjudaginn 9. maí, kl. 2.30 e. h.
Óskað eftir að konur mæti vel.
Kvennadeild Slysavarnafélags
Islands, Akureyri, heldur fund í
Lóni, fimmtudaginn 4. maí kl. 8.30
e. h. — Mörg áríðandi múl á dag-
ski’á. Einnig segja fulltrúar frétt-
ir af Landsþinginu. Stjórnin.
I. O. O. F. — 1315581/-* — O.
Sunnudaga-
skóli Akur-
eyrarkirkju,
verður á
sunnudaginn
kemur (7. maí) kl. 10.30 f. h. —
7—13 ára börn í kirkjunni, en 5—
6 ára börn í kapellunni. Bekkjar-
stjórar! Mætið kl. 10 f. h. — For-
eldrar eru vinsamlega beðnir um
að benda bönunum á þessa aug-
lýsingu.
St. Ísafold-Fjallkonan ’nr. 1
heldur fund í Skjaldborg mánud.
8. maí kl. 8.30. — Fundarefní:
VeVnjuleg fundarstörf. — Inn-
taka nýliða. — Kosning fulltrúa á
Stórstúkuþing og Umdæmis-
stúkuþing. — Mælt með umboðs-
mönnum. — Lesið stúkublaðið.
Framsóknarvist. Síðasta Fram-
sóknarvist að sinni er að Hótel
KEA á sunnudagskvöldið kl.
8.30.
Kollwitz-sýningin
var fásótt
Sýning á teikningum þýzku
listakonunnar Kathe Kollwitz var
í kirkjukapellunni hér í sl. viku.
Þessi listakona, sem lézt í stríðs-
lokin, er heimskunn fyrir teikn-
ingar sínar og hefur sýning þessi
farið víða um lönd og hvarvetna
vakið mikla athygli. Sýningin í
kapellunni hér var þvi miður fá-
sótt. Alls sóttu hana á annað
hundrað manns. Er illa farið að
bæjarbúar skuli ekki hafa veitt
henni meiri athygli. Þarna var
ágæt list sýnd. Svona léleg að-
sókn að ágætri sýningu getur
orðið til þess að draga kjark úr
listamönnum að koma hingað
rrfeð listaverkasýningar í fram-
tíðinni.