Dagur - 04.05.1950, Blaðsíða 12
12
Daguk
Fimmtudaginn 4. maí 1950
Landsíminn stórhækkar þjónusfu-
gjöld fyrirvara- og skýringarlaust
Ríkisstofnun á varhugaverðri braut
Sjálfvirka símstöðin tekur til
starfa í júníbyrjun
1000 númer þegar seld - Uppsetningargjald
nýrra síma 1100 krónur!
Nú um mánaðamótin tilkynnti
Landsíminn enn einu sinni stóra
hækkun á gjaldskrá sinni fyrir-
vara- og skýringalaust, eins og
þessarar ríkisstofnunar er siður.
Nemur hækkun þessi á annað
hundrað prósent á einum lið, en
annars yfirleitt 30—40%. Þessi
nýja hækkun kemur sérlega illa
og óréttlátlega niður á Akureyr-
ingum með'því að hér stendur nú
fyrir dyrum að taka í notkun
nokkur hundruð nýja síma er
sjálfvirka stöðin kemst í gang um
næstk. mánaðamót.
Hinir nýju símanotendur verða
nú að greiða 1100 krónur í upp-
setningargjald, í stað þess, sem
ætlað var að það yrði um 700 kr.
eins og í Reykjavík. Gjaldið var
440 krónur hér fyrir þessa breyt-
ingu og nemur þessi hækkun því
á annað hundrað prósent.
Landsíminn mun útskýra
hækkanir þessar með því að
viðhalds- og efniskostnáður
hafi stórhækkað. Þess ber þó að
gæta, að efni til uppsetningar
tækjanna hér er fyrir löngu
komið og uppsett. Sýnist furðu-
leg ósvífni að gera mönnum hér
nú að greiða okurgjald fyrir
uppsetningu tækja, sem þegar
er að mestu lokið við að setja
upp.
Ríkisstofnun á hálum vegi.
í augum leikmanna vekur það
oft hina mestu furðu, hversu lítið
samræmi virðist vera í stefnu
ríkisvaldsins sjálfs, þ. e. ríkis-
stjórnar og Alþingis, og sumra
ríkisstofnana hins vegar.
Þessi síðasta aðgerð Landsím-
ans er gott dæmi um þetta. Ríkis-
stjórnin og Alþingi hafa talið
þjóðinni trú um að reynt yrði að
sporna við öllum ónauðsynlegum
verðhækkunum og vinna að því
að aukning dýrtíðar yrði sem
allra minnst.vegna hinnar nýju
gengisskráningar. Á sama tíma,
sem þessar yfirlýsingar eru látn-
ar út ganga birtir ein ríkisstofn-
un, sem annast veigamikla þjón-
ustu fyrir almenning, tilskipun
um stórkostlega verðhækkun á
innlendri þjónustu. Erlend þjón-
usta var áður hækkuð í verði, og
var það raunar eðlileg hækkun.
En ekki verður séð að þessi mikla
hækkun á innlendri þjónustu nú
þegar sé réttlætanleg, jafnvel þótt
efnis- og viðhaldskostnaður sím-
ans hækki vegna gengisfallsins.
Dæmi um það er uppsetning
símatækjanna hér á Akureyri,
sem nú á að kosta 1100 krónur
vegn þessarar tilskipunar, en
reiknað hafði verið með að mundi
kosti 700 kr. á símanotanda. Þessi
þjónusta er þegar að verulegu
leyti af hendi leyst og tækin upp-
sett og það þegar fyrir gengisfell-
inguna. Slíkur kostnaður getur
ekki hækkað þegar í stað vegna
gengisfalls með eðlilegum hætti.
Hitt er annað mál, hvað ríkis-
stofnanir og embættismenn þeirra
ætla að þeir geti boðið almenn-
ingi í skjóli einokunaraðstöðu
sinnar og valda.
Það er sannast sagna, að ríkis-
stofnun þessi er þama komin út
á hála braut og aðgerðir sem þess
ar hljóta að hafa í för með sér
varanlegt tjón fyrir þá yfirlýstu
stefnu ríkisvaldsins að vinna gegn
aukningu dýrtíðar. Það verður
erfiður leikur fyrir valdamenn
þjóðarinnar að koma til almenn-
ings og brýna hann að krefjast
ekki stórhækkaðs kaupgjalds
vegna aukinna útgjalda . heimil-
anna, þegar stofnanir ríkisins
leyfa, sér að ganga á undan og
gefa öllum yfirlýsingum og góð-
um óskum þessara sömu valda-
manna langt nef og hækka gjald-
skrár fyrir almenna innanlands-
þjónUstu svo gífurlega, að full-
komna ósvífni má kalla.
Mönnum er að vonum spurn:
Er þetta háttalag samþykkt af
ríkisstjórninni í heild? Eða eru
ríkisstofnanir orðnar þau ríkí í
ríkinu, að þær geti farið sínu
fram, þvert ofan í hag þjóðarbú-
skaparins í heild og almennt rétf-
læti?
Nýja gjaldskráin.
Eftir nýju gjaldskránni kostar
venjulegt samtal við Reykjavík
10 krónur, og ef að venju fer, og
menn þurfa að fá sæmilega skjóta
afgreiðslu, verða þeir að greiða
30 krónur fyrir hraðsamtal. Ligg-
ur næni að ætla, að Landsíminn
né nú kominn að því marki, að
lögmálið um minnkándi afrakstur
af slíkum ráðstöfunum taki að
gera vart við sig.
Aðrar hækkanir eru:
Símtöl 25—100 km. kostuðu
3.50, kosta nú kr. 4,00.
Símtöl 100—225 km. kostuðu
4.50, kosta nú kr. 6,00.
Símtöl 225—350 km. kostuðu
6,00, kosta nú kr. 8,00.
Símtöl 350 og yfir kostuðu 7—8
kr., kista nú kr. 10,00.
Afnotagjald hér verður nú 180
kr. á ársfjórðungi fyrir einkasíma,
var kr. 137,50. Verzlunar- og at-
vinnusímaafgjald verður 290,00
kr. á ársfjórðungi, en var kr.
206,25. Símskeytagjöld og öll
önnur þjónusta hækkar einnig að
sama skapi.
Norski sjávarútvegurinn
pg blöðin
Nýlega bauð norska sjávarút-
vegsmálaráðuneytið 8 blaða-
mönnum til Lofóten til þess að sjá
þar með eigin augum fiskveiðarn-
ar og kynna sér viðhorf sjó-
manna og útgerðarmanna. Hafa
ýtarlegar greinar um málefni
sjávarútvegsins birzt í norskum
blöðum eftir þessa för.
í ándstöðu við Truraan
Jaines Byrnes, fyrrv. utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, er nú
kominn fram á svið stjómmál-
anna á ný. Hefur hann boðið sig
fram til fylkisstjóra í Georgíu. —
Byrnes er í Demókrataflokknum,
en fylgir Suðurríkjademókrötum
að málum og er nú í andstöðu
við Truman forseta.
Ferðafélagið setur upp
útsýnisskífu í Hamar-
kotsklöppuin
í ársriti Ferðafélags Akureyrar,
„Ferðum“ er greint frá því að fé-
lagið sé að láta setja upp útsýnis-
skífu á Hamarkotsklöppum hér
ofan við bæinn. Var skífan tilbú-
in á sl. hausti og gerður undir
hana fótstallur. Verður hún sett
upp nú næstu daga.
1 þessu hefti „Ferða“ eru af-
mælisljóð til Þorst. Þorsteinsson-
ar, framkv.stj. félagsins, grein um
vegagerð og húsabyggingu fé-
lagsins eftir Þorst. Þorsteinsson,
„Gleymd villa“, eftir Þormóð
Sveinsson, þá er birt ferðaáætlun
félagsins í sumar, mynd af útsýn-
isskífunni o. fl.
Bærinn kaupir jarðýtu
Akureyrarbær hefur nú loks-
ins fengið leyfi til að kaupa jarð-
ýtu, 40 hestöfl að stærð. Kostar
hún 120—130 þús. kr. og verður
greidd með Marshall-fé.
Þrjú SÍS-skip Jiér
í vikuniti
Þrjú flutningaskip á vegum
Sambands ísl. samvinnufélaga
losa hér vörur í þessari viku. —
„Hvassafell" var væntanlegt
hingað beint frá Cadiz á Spáni
með saltfarm í gær. Skipið losar
mest allan farminn hér við Eyja-
fjarðarhafnir. Norska skipið
„Vardal“ er væntanlegt nú í vik-
unni með kolafarm frá Stettin til
KEA. Þá kemur enska skipið
,,Reykjanes“ hingað með sykur.
Skipið flutti sykurfarm frá Pól-
landi til SÍS og hefur að undan-
förnu losað sunnanlands.
Dagur átti í gær tal við Gunnar
Schram símstjóra og T. Haarde
símaverkfræðing imi sjálfvirku
stöðina hér, en uppsetningu
hennar er nú lokið fyrir nokkru
og alllangt komið að setja nýju
símatækin upp í húsum í bænum.
Þeir skýrðu blaðinu svo frá,
að nýja stöðin mundi taka til
starfa hinn 3. júní næstk. Stöðin
sjálf er þegar fullbúin og -nú er
unnið að því að koma nýju síma-
tækjunum fyrir og setja upp síma
hjá nýjum símanotendum. í nýju
stöðinni eru alls 1000 númer, en
hér voru áður í notkun 660 núm-
er. Þessi 1000 númer eru þegar
seld og mUnu færri fá síma en
vilja, enda þótt það sé dýrt spaug
fyrir menn að panta sér síma nú.
Samkvæmt hinni nýju gjaldskrá
símans (sem er sérstaklega rædd
annars staðar í blaðinu), verður
uppsetningagjaldið 1100 krónur,
en afnotagjaldið 180 krónur á
ársfjórðungi. Þurfa menn því að
snara út 1280 krónum jafnskjótt
og síminn er uppsettur. Þeir, sem
hafa síma nú, þurfa ekki að greiða
sérstakt uppsetningargjald fyrir
nýja símann.
1000 númera stækkun tæknilega
auðveld.
Er hin nýja 1000 númera sjálf-
virka stöð tekur til starfa, verður
Fiskimjölsvinnsla mun hefjast
í Krossanesi nú upp úr helginni,
að því er Hallgrímur Björnsson
verksmiðjustjóri skýrði blaðinu
frá í gær. Verksmiðjan hefur
veitt móttöku tveimur togara-
förnuun af vinnslufiski. „Sval-
bakur“ landaði um 190 tonnum,
en „Kaldbakur um 150 tonnum í
fyrradag.
Bæði skipin eru nú á veiðum.
Verksmiðjustjórinn sagði að
unnið mundi í vöktum og mundu
um 15 menn á vakt. Afköst verk-
smiðjunnar eru áætluð að geta
orðið allt að 300 tonnum á sólar-
hring, en ekki verður þó um það
sagt með vissu fyrr en vinnsla er
hafin og nokkur reynsla fengin.
Erfiðleikar við löndun.
Nokkrir erfiðleikar urðu á því
að landa aflanum úr ,,Svalbak“
nú á dögunum með löndunar-
tækjum verksmiðjunnar. Skipið
hafði mikið af karfa og allstórum
fiski og reyndist ekki unnt að
landa honum með tækjunum. Var
hún þegar of lítil fyrir bæinn.
Ekki verður unnt að láta menn
fá síma eftir þörfum, þar sem 1000
númerin eru þegar öll seld. Hins
vegar er tæknilega auðvelt að
stækka stöðina um 1000 númer,
og eru húsakynni fyrir hendi fyr-
ir slíka aukningu. Ekki mun þó
ráðlegt að reikna með því að sú
aukning verði gerð fljótlega. Hve-
nær í þær framkvæmdir verður
ráðist veltur á fjárhag símans,
gjaldeyrisástæðum þjóðarinnar o.
fl.
Leiðbeiningar með nýju
áhöldunum.
Með nýju símatækjunum, sem
nú er verið að setja upp, fylgir
leiðbeiningai-miði, þar sem greint
er frá því, hvemig menn eiga að
tengja hina nýju síma er stöðin
tekur til starfa. Landsíminn mun
síðan láta taka gömlu tækin. —
Gömlu símaborðin í stöðinni hér
verða flutt til Reykjavíkur til
viðgerðar og síðan verða þau
væntanlega notuð úti um landið,
þar sem þörfin er mest. Nú vinna
13 stúlkur á bæjai'símanum fyrir
utan viðgerðarmenn. Á hinni
nýju stöð munu vinna 2 vélaverð-
ir. fyrir utan viðgerðarmenn og
eftirlitsmenn.
(Framhald á 11. síðu).
horfið að því ráði að aka farmin-
um í bílum frá Oddeyrartanga í
Krossanes. Aftur á móti gekk
greiðlega að landa afla Kaldbaks
í fyrradag. Var það smærri fisk-
ur. Unnið er nú að lagfæringu á
löndunartækjunum, svo að þau
geti hindrunarlaust landað fiski
úr skipunum.
Innan skamms verða állir Ak-
ureyrartogararnir farnir að veiða
fisk til vinnslu í Krossanesi. „Jör-
undur“ er nú í Bretlandsferð, en
mun hefja veiðar þegar eftir
heimkomuna. Veruleg atvinnu-
aukning er að þessum fram-
kvæmdum öllum í bænum. Það
hefur mikla þýðingu, að Krossa-
nes tekur til starfa svo snemma
árs, þá er og talsverð vinna við
löndun fisksins, svo og við salt-
fisk úr togurunum, en bezta hluta
aflans salta skipsmenn um borð.
Vonandi er að þessar fram-
kvæmdir eigi eftir að reynast
happasælar fyrir togaraútgerðina,
Krossanes og bæjarfélagið í
heild.
Fiskmjölsviimsla hefst í Krossa-
nesi upp úr helginni
Tveir togarafarmar komnir á land