Dagur - 26.07.1950, Page 2

Dagur - 26.07.1950, Page 2
D A G U R Miðvikudaginn 26. júlí 1950 Bílar eða brauð ? AUICNING BILAFLOTANS! Það er mikið ritað og rætt um allan þann bílaflota, sem þræðir vegakerfi landsins á degi hverjum. Þeir, sem ekki eiga bíla, langar eðlilega til Jiess. LTinir eiga ekki nógu fíha bíla og þurfa að skiþta um löngu áður eri nauðsýn ber til. Bifreiðár eru áreiðanlega mjög nauðsynleg tæki í hverju landi, sem hefur fullkomið vegákerfi og fjar- lægðir til stytta á þann liátt. HaH- dór okkar Kiljan sagði að visu ýmislegt ljótt um íslenzka vegi. En hánii er nú skáld og þau glcyma stundum að greina milli skáldskap- ar veruleika. Eu vegakerfi okkar er það full- komið og fjarlægðir svo miklar, að án bifreiða af ýmsum gerðum, get- uiu við ekki verið. Hins vegar má' svo greina milli jieirra nauðsynlegu og lúxusbílanna. Fjiildi bifreiða er talinn svo mikill húr á landi, að aðeins Bandáríkin taka okkur þár hlutfallslega fram. Við ltöfum sem sé okkar nýsköp- un á bílaflotanum, ek'k i siður en skipaflotanum! Það var eitt al upp- sláttarefnum stjórnarinnar, sem skapaði nýja sköpun, að lofa öllum landsmönnum fínum bílum. Það voru gefiu út innflutuingsleyfi fyr- ir -hundruð eða jafnvel þúsund bíla. En hver hefur sinn drösul að draga. Svo fór um stjórnina, sem tók við á cftir: Þá lágu fyrir hundr- uð leyfa, sem ennþá hefur ekki tek- izt að lullnægja. Ég þekki mann, sent fckk leyfi fyrir jeppa á sínum tíma. Hann er búinn að greiða bíl- inn fvrir tveimur árum. En tækið er bara ókomið ennþá. ÞAÐ KOSTAR GJATDEYRI AÐ EIGA BÍI'.A Lúxusbílar eru mjög dýrir. Það kostar því stóran péning fyrir þjóð- iii’a í góðum gjaldeyri, doilurum og sterlingspundum, káupin á öllum þeim aragrúa af óþörfum lúxusbíl- um, sem nú hafa verið fluttir inn. En það er ekki einungis gjaldeyris- írekt að kaupa bílaná. Viðhald þéirrá og rekstur kostá tugmilljónir árlega. Það j>arf ógrynnin <>11 af benzíni og olíurn handa ölltpn j>essr um fjölda. Svo og varahluti, hjól- barða og annað viðhald. Það eru ótrúlegar upphæðir í góðunt gjald- eyri, sem þarf árlegá til reksturs hinna óþörfu bíla. HVER VAR AÐ TALA UM SPARNAÐ? Ýmsir þeir, sem ræða fjálglega um sparnað og ráðdeildarsemi, og hvetja almenning til þess, að aka í glænýjum bílum um borg og bý og kaupa jafnvel nýja. Þeim er ekki sútriúm hverjúm nóg að eiga trausta og góða bíla. Þeir verða að eiga ennþá nýrri og fínni bíl en ná- granninn. Þegar hégómagirndin á- samt viljaleysi til sjálfsafneitunar kemur fram hjá sparnaðarpostulun- um, er engtn von til J>ess, að jteir séu tekriir.álvarlega. Skömmtúninni er ermþá haldið átram á ýmsum nauðsynjavörum, svo sent sykri. Af öörum er lítið úrval og jafnvel skortur. Það er haft íyrir satt. áð penisillin og önnur lyf hafi verið af skornum skammti, vegna gjald- eyrisskorts. En á sama tíma, sem jjjóðinni eru skönimtuð klæði og jafnvel lyf, streyma lúxusbílar af gerðinni 1950 inn í landið. Osam- ræmið er æpandi og þer vott um slðleýsí. Og það sem er alvarlegast og sýtiir virðingarleysi fyrir rétti og skyldu er jtað, að suntir jteir, sem sinna ýmsum ábyrgðarsúiríum fyrir land og jjjóð, ganga á undan eða réttara sagt ferðast á undan í dúnmjúkuin lúxu-sbílum. Þeir nota aðstöðu sína til jtess að afla mun- aðarins, meðan hinum er skamrnt- að. Þeir skapa fordæmi um eyðslu. Það er tekið eftir þessúm möiiriúm; ]>að virðist fjarri jieim að feta í fótspor merkra ráðámarina í ná- grannaliindunum, sem ekki geta leyft sér slíkt. ÉNGA NÝJA LÚXÚSBÍLA INN í LANDIÐ, MEÐAN SKÖMMT- UN NAUÐSYNJA VARIR OG SKORTÚR ER Á GJALDEYRI Það væri engin ástæða til að æðr- ast út af bílainnflutningnum, ef nægur gjaldeyrir væri til. Að sjálf- sögðu væri ntönnum ]>á í sjálfsvald sett um ráðstiifun eigna sinna. En það hlvtur að vera líferni um efni frant, ]>egar Iúxusbílar eru keyptir inn í landið fyrir gjaldeyri, sem ætti að nota til káupa á lyfjum og brauði handa laridsmöririum. Þess vegna er j>að krafa jrjóðarinnar, að slíkum innflutnngi sé tafarlaust hætt. T. Á. 37 námsmeyjar brautskráðar frá Laugalandi Laugalandsskóla vár sagt upp 15. júni síðástliðinn. 37 náms- meyjar höfðu stundað nám í sltólanum yfir veturinn. Sýning á handavinnu námsmeyja var sunnudaginn 11. júní og sótti hana um þúsund manns af Ak- ureyri og úr nágrenni. Hæstu einkunn á burtfararprófi hlaut Sigríður Löve úr Reykjavík, en hún hlaut aðaleinkunnina 9.24. Dvalarkostnáður var kr. 9.40 á dag. - - • Þessar námsmeyjar útskrifuð- ust úr skólanum; I STUTTU MALI NORSK BLÖÐ hcrma, að þátttaka Norðriianria í síldveið- unum við ísland sé 10% minni cn í fyrra, og þáttaka Svía 25% iriiririi. Ségja blÖðin þetta st'afa af því að fslendingar færðu út lándhelgi síria fyrir Norður- landi og hafi þannig útilokað útlendinga frá góðuin síldar- miðum. 4 ÍSLENZKAR flugvélar hafa að undanförnu haldið uppi birgða- og mannaflutningum til Grænlands, á vegum leiðangurs Frakkans Paul Victor og leið- angurs danska vísindamanns- ins Lauge Koch. Loftleiðir hafa annast flug til Frakkans og notað til þess Skymaster-flug- vél, en Flugfélag íslands hefur flutt Dani til Ella. Ö norðan Scorebysunds á Grænlandi, en þar er bækistöð danska leið- angursins. Flugfélag íslands hefur sent Catalinaflugbáta í 4 leiðangra til Ella Ö. Flugstjór- ar hafa verið Anton Axelsson og Jón Jónsson. Er þetta fyrsta millilandaflug Jóns sem flug- stjóra. Jón Jónss-on stýrði lengi Grummanflugbát félagsins á Akure.vrar-Siglufjarðar leið- inni, en varð flugstjóra á Cata- lina - flugbátum í ágúst í fyrra og hefur flogið þeim síðan. * SÍLDARBRÆÐSLUSKIPIÐ Hæringur liggur nú austan Langancss og tekur síld úr síldveiðiskipum þar. Skipið mun hafa bækistöð í Seyðis- firði í sumar. * BÆJARSTJÓRNIN liefur. að tillögu bæjarráðs og bæjar- gjaldkera, samþykkt að fella niður ógoldin útsvör og önnur bæjargjöld, frá árunum 1945— 1948, samtals um 4(1 þús. kr. -k TVÆR KENNARASTÖÐUR við barnaskólann hér eru aug- lýstar lausar til umsóknar. Aðalbjörg Guðmundsdóttir, Litla-Hamri, Eyf. Aðalbjörg Jónsdóttir, Yzta-Hvammi, S.-Þing. Áslaug Kristjánsdóttir, Þingeyri. Ásta Björnsdóttir, Kópaskeri. Dísa Sigfúsdóttir, Þórshöfn. Dorothea Daníelsdóttir, Akureyri. Guðný Sveinbj. Sigurðardóttir, Miðhúsum, S.-Múl. Guðríður Magnúsdóttir, Mjóafirði. Guðrún Kristjánsdóttir, Hellu, Eyf. Halldóra Hartmannsdóttir, Olafsfirði. Halldóra Sigurbjarnardóttir, Gilsárteigi, S.-Múl. Hildigunnur Kristinsdóttir, Dalvík. Hjördís Magnúsdóttir, Vestmannaeyjum. Hrafnhildur Sigurðardóttir, Neskaupstað, Norðfirði. Hrönn Kristinsdóttir, Melgerði, Glerárþqrpi. Hrefna Maríasdóttir, Flateyri. Ingveldur Þórarinsdóttir, Krossdal, N.-Þing. Jóna Kristjana Guðmundsdóttir, Vestmannaeyjum. Karitas Kristinsdóttir, Dalvík. Kristín Kristinsdóttir, Dalvík. Lilja Randversdótitr, Melgerði, Eyjaf. Margrét Aðalsteinsdóttir, Flögu, Eyjaf. Martha Svavarsdóttir, Laugarnesi, Skag. Olöf Árnadóttir, Neskaupstað, Norðf. Ólöf Hannesdóttir, Neskaupstað, Norðf. Rósfríður Vilhjálmsdóttir, Akureyri. Sesselja Helgadóttir, Ólafsfirði. Sigríður Bjarnadóttir, Vestmannaeyjum. Sigríður Eymundsdóttir, Flögu, Skriðdal. Sigríðúr Löve, Reykjavík. Sigrún Aðalsteinsdóttir, Vaðbrekku, Jökuldal. Sigrún Sveinsdóttir, Vestmannaeyjum. Steinunn Gísladóttir, Sámsstöðum, Eyjaf. Vilborg Axelsdóttir, Hjalteyri. Þorbjörg Kristjánsdóttir, Þingeyri. Þorbjörg Þorgrímsdóttir, Presthólum. Þórunn Þorsteinsdóttir, Efstakoti, Eyjaf. TVÖ KVÆÐI Flutt í veizlu, er frú Ingigerður Nyberg og Jónas Baldursson liéldu að lieimili sínu, Lundar- brekku í Bárðardal, en þá var liðið misseri frá því er þau vígð- ust í hjónaband í Uppsáladóm- kirkju í Svíþjóð. ÁSTARKVÆÐI. Ennþá skapast ævintýri, um það lífið vitni ber. íslands sonur, sveinninn pmði, sænskri gyðju tengdur er. Djörf hin glaða, glæsta meyja gullna lærdómshlekki sleit. Knýttist helgum kærleiksbönd- um, kona varð í frónskri sveit. Ástin kveikti elda bjarta, árdagssólin brosti rjóð. Fljótsins harpa söng og seiddi, svanir hvítir hófu ljóð. Bóndinn sænska brúði kyssti, brann í hjörtum logi skær. Sumarfögur sveitin stráði sunnugeislum fjær og nær. Það er sælt að ciga eldinn, æskuglaðan viljaþrótt. Geta frjáls um fjöllin klifið, fagra drauma þangað sótt. — Bóndinn leiddi brúði unga, benti á fjöllin traustri hönd. „Við skulum,“ kvað hann, „geiglaus ganga glöð um brattans óskalönd.“ Heill sé okkar hrausta bróður, heiðursfrú og grænum dal. Hér á landnámsbýli björtu blessist allt, sem koma skal. Lifi og dafni lífsins gróður, ljómi gæfusólin heit. Hljómi og ómi harpan sterka hrein og skær í miðri sveit. II. AÐ LUNDARBREKKU 4. júlí 1950. Hér vil eg glaður hefja ljóð, hörpuna mína taka. Meðan hin bjarta gcislaglóð glitrar á fjallsins klaka. Seint fer í háttinn sólin rjóð, svanir á heiði kvaka. Skrautlega búast grösin góð, gaman er þá að vaka. , Ævintýranna undralönd ennþá í dölum ljórria. hamingjudísir hnýta bönd, heillandi söngvar óma. — Maerin frá sænskri sólskins- strönd svífur hér meðal blóma. Bóridánum góða, glæsta hönd gaf hún með fremd og sónia. Þrátt fyrir mennt og ættlarids óm óðal hér vill hún þiggja. Fjállanna háa helgidóm hraustum er gott að byggja. Sveitin hið glæsta sænska blóm sér vill með ástúð trýggja. Kveður með skærumhörpuhljóm: hér skulu rætur liggja. Fögur er sveitin, væn og víð, voldugir straumar líða. Skrúð er í grænni skógarhlíð, skjól er í lundum víða. Æskunnar þróttur ár og síð cflist í dalnum fríða. Voryrkjumannsins væg og stríð verkefni göfug bíða. KÁRI TRYGGVASON. Halldór Ólafsson oddviti Amarnesshrepps, SEXTUGUR. Heiðursmaður, heill sé þér. Lífsins sanna sumargleði situr fast í þínu geði. Hagvön þar hún orðin er. Jafnt hvern dag sem kólgukveld, hjá þér ætíð vill' hún vera, vegférð þína slétta gera, glæða hjá þér æskueld. Þín sál er vél af guði gerð. Vannst þér snémma virðing sanna, vinsældir í hugum manna. Sextíu ár riieð sæmd þú berð. Þegar vetur þreytir flug vakir hjá þér vorið bjarta, vermir þína sál og hjarta, gcfur þér hinn glaða hug. Á þyrnivegi varinstu margt. Byrði lífsins braut þig eigi. Bognar lítt þótt halli degi. Bjartsýni þig brestur vart. El' það vissa, — ofar grun: Sorgin fékk ci á þér unnið af því margt er í þig spunnið það, sem gerir gæfumun. Þú hefur gengið beina braut, og til baka aldrei sriúið; ei frá þínum skyldum flúið, ávallt stór í þinni þraut. Á bjargi hefurðu byggt þitt hús. Eigi hér til einskis lifað. Orð í bergið getáð skrifað. Ætíð verið vökufus. Æsku þinnar sumársól eigi er sigin eriri að viði, eins þótt straumur tímans niði. Anda þinn hér aldrei kól. Gengur þú á gæfu fund hljóður, en þó hress í spori. Hjartað glatt og ríkt af þori reynist bezt á stærstri stund. Strítt hefur þú og starfað vel; verndað oft hinn veika gróður; verið drengur sannur, góður, átt hið bjarta bróðurþel. Þekkir margan þreytudag. Á það vil eg mega minna, að margir njóta verka þinna. Þau hafa vitnað þér í liag. Stríð þú erin og starfa meir. Settu markið miklu liærra, margt þitt sporið verði stærra. Góður orðstír aldrei deyr. Allt, sem lífið á til bezt fylgi þér á fögrum vegi fram að þínum liinzta degi. þangað til að sól er sezt. S. Sv. lil sölu í Hríseyjargötu 14. Sími 1695.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.