Dagur - 06.09.1950, Blaðsíða 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 6. september 1950
;ýS$5$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$$»
DAGUR
Ritstjóri: Haukur Snorrason.
Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta:
Erlingur Davíðsson
Skrifstofa i Hafnarstræti 87 — Sími II66
Blaðið kemur út á liverjum miðvikudegi.
Árgangurinn kostar kr. 25.00
Gjalddagi cr 1. júlí.
PRENTVERK ODDS BJÖRNSSONAR H.F.
Haustkauptíðin er að hverfa
TIL SKAMMS TÍMA þótti það sjálfsagður sið-
ur í bæ og sveit, að birgja heimilin upp af mat-
föngum og öðrum vistum að haustinu. Haust-
kauptíðin var þá einn mesti annatími verzlana.
Kaupstaðabúar og bændur drógu að sér föng til
vetrarins. Þótti þá enginn búnaður, sem ekki
átti nægar vistir til margra mánaða. Þessi bú-
mannsháttur hefur verið á undanhaldi nú um
nokkurra ára skeið. Greiðar samgöngur í hin-
um þéttbýlli sveitahéruðum hafa af eðlilegum á-
stæðum dregið úr þörf bænda fyrir birgðasöfn-
un. Menn panta nú vörur úr kaupstaðnum eftir
hendinni. Með þeim hætti eiga menn fremur kost
nýmetis en áður var, en að öðru leyti er vafa-
samt að þetta. sé framför. Birgðir heimilanna eru
mikils virði á óvissum tíma. Nú eru þær óvíða
til. Nú hin síðari ár hefur birgðasöfnunn ekki
átt sér stað, hvorki hjá verzlunum né heimilum.
Ef samgöngur við útlönd teppast, þótt ekki væri
nema nokkra mánuði, eða ísar lokuðu höfnum
hér norðanlands, mundi skapast hér sannkallað
neyðarástand. Innflutningsmálunum hefur verið
hagað þannig, að sáralitlar birgðir nauðsynleg-
asta varnings eru til í landinu. Birgðasöfnun
heimilanna verður enn óverulegri þegar þess er
gætt, að nú kaupa kaupstaðabúar miklu minna
af innlendum matvælum til vetrarins í haust-
kauptíðinni en áður var. Kjötið er keypt dag-
lega í kjötbúðunum, einnig kartöflurnar o. s. frv.
Af þessum breyttu búskaparháttum mikils fjölda
kaupstaðarbúa leiðir svo aftur á móti, að verzl-
anir, sem þessar vörur bjóða, eru í sífelldum
vandræðum með geymslupláss, verða að ráðast í
að byggja dýr geymsluhús og stofna til ýmiss
konar aukakostnaðar af því að of lítið af vörun-
um selzt, þegar í haustkauptíðinni. Hvernig stend-
ur á þessu og hvað er hægt að gera til þess að
örva menn til þess að kaupa hæfilegt magn inn-
lendra vara til vetrarforða?
ÞAÐ ER ALVEG VAFALAUST, að afskipti
ríkisvaldsins af verðlagi landbúnaðarafurða, hafa
haft veruleg áhrif til þess að draga úr viðskipt-
unum á haustkauptíðinni. Glíma ríkisstjórna fyrr
og síðar við vísitöluna hefur skapað mikla óvissu
um öll verðlagsmál. A. m. k. tvisvar hafa neyt-
endur í kaupstöðum rekið sig á þá staðreynd, að
þegar sláturtíð hefur verið um það bil hálfnuð,
hefur komið tilkynning frá ríkisvaldinu um nið-
urgreiðslu á sláturafurðum. Utkoman hefur ver-
ið sú, að þeir sem keyptu vörurnar fyrri hluta
sláturtíðar hafa goldið hærra verð en hinir, sem
síðar keyptu. Heildarútkoma af þessari ráðs-
mennsku er sú, að kaupstaðabúar halda áð sér
höndum og kaupa ekki vörurnar í haustkaup-
tíðinni af ótta við að ráðstafanír ríkisvaldsins
síðar komi þeim í koll og hafi af þeim þann á-
vinning fyrir einstaklinginn, sem niðurgreiðsla
á neyzluvörum hefur í för með sér. Sama er upp
á teningnum með sölu kartaflna. Verðlag þess-
arar vöru er í óvissu alveg fram undir vetur.
Fyrstu uppskerunni er haldið í óeðlilega háu
verði, svo háu, að hún gengur ekki út. Almenn-
ingur veit ekki, hvenær haustverðskráningin
kemur og bíður þess og birgir sig ekki upp.
Kartöflugeymslur eru fáar og smáar víðast hvar
á markaðsstöðum. Þegar, er uppskera hefst, skap-
ast geymsluvandræði nær alls staðar og af þeim
tilkostnaður, sem kemur fram-
leiðendum í koll. Það er mikil
nauðsyn að skapa meiri festu í
þessum afurðasölumálum öllum,
og stuðla að því, að heimilin eign-
ist birgðir innlendra matvæla að
haustinu. Það dregur úr kostnaði,
auðveldar geymslu og er auk þess
nokkur trygging fyrir þjóðfélagið
í heild, ef óvænt tíðindi skyldi
bera að höndum.
SAMTÖK FRAMLEIÐENDA
þyrftu að gefa þessu máli gaum,
Það er tjón fyrir þá og fyrir neyt-
endur, að hin langvarandi óvissa
skuli ríkja í verðlagsmálum land-
búnaðarafurða. Þessi óvissa tor-
veldar viðskipti og eykur kostn-
að. Það þarf að hætta þeim sið,
að geyma ákvarðanir í þessum
verðlagsmálum alveg fram á síð-
ustu stund heldur skapa festu í
þeim það snemma, að kaupstaða-
búar geti gengið að því þegar er
uppskera og slátrun hefjast, að
birgja sig upp með þau matvæli,
sem jafnan hefur verið siður að
kaupa til vetrarins. Það er til hags
fyrir bæði neytendur og fram-
leiðendur að örva viðskipi á haust
kauptíðinni. Opinber afskipti hafa
torveldað þessi viðskipti á liðnum
árum, og horfur eru á því,
að svo verði enn. Þegar eru fyr-
irsjáanleg vandræði að geyma
kartöflur á flestum markaðsstöð-
um, en engin merki sjást enn að
haustverðlag þeirra verði ákveðið
svo að sala til heimilanna í kaup-
stöðum geti hafist í stórum stíl.
S ásiður, að geyma ákvarðanir í
verðlagsmálum fram á haust-
kauptíð ,er til tjóns fyrir alla
aðila.
FOKDREIFAR
Skógurinn í heiðinni
ÞEGAR MENN AKA yfir Vaðla-
heiði nú á þessu sumri, blasir við
þeim sýn, sem er nýstárleg. í
heiðarbrekkunni hér gegnt bæn-
um, er risinn vísir að fögrum
skógi. Þarna sést árangurinn af
starfi Skógræktarfélags Eyfirð-
inga og þeirra manna, sem hafa
lagt meira af mörkum til skóg-
ræktarmálanna en falleg orð og
góðan hug. Hvort tveggja er að
vísu gott, en lyftir ekki þungu
hlassi. Eg hef oft skrifað um
þessi mál hér í þessum dálkum.
Eg skal ekki gera neina tilraun
til þess að meta hvort það hefur
orðið að gagni eða ekki, og ég
er manna fúsastur til að viður-
kenna, að slíkar hugleiðingar ná
skammt. Það er starfið, sem
unnið er, sem gildir. Sem betur
fer, höfum við átt marga menn,
sem hafa ekki aðeins talað um
skógræktarmál, heldur líka
starfað að þeim. Þeir eru ekki
margir, en verk þeirra bera á-
vöxt, fegurri og glæsilegri en
verk flestra annarra. Eg held að
Akureyringar geri sér það ekki
ljóst, hvers virði það er þeim og
þessu bæjarfélagi, að hafist var
handa um skógræktina hér hand-
an við pollinn. Menn hugsa sem
svo, að laufskógur hérna megin
í hlíðinni sé fagur draumur, en
ólíklegur til að rætast. Þannig
munu flestir hafa hugsað á liðn-
um árum. En það gerist erfitt
fyrir þá nú, að halda í þennan
hugsanaþráð. Því að skógurinn
teygir sig nú upp úr heiðinni.
Hann er þegar orðinn augnayndi
vegfarenda um Vaðlaheiðarveg
og það er ekki nema tímaspurs-
mál þangað til hann verður orð-
inn augnayndi bæjarmanna
hérna megin Pollsins. Menn geta
verið öruggir um að, að frístund-
irnar, sem þeir verja til skógar-
starfs, gufa ekki upp í himin-
hvolfið og verða að engu, eins
og svo margar aðrar. Eftir nokkur
ár sér skógræktarmaðurinn á-
rangur af starfi sínu og sá árang-
ur veitir honum margföld laun
fyrir erfiði sitt. Sá árangur, sem
Skógræktarfélag Eyfirðinga hef-
ur náð hér í Vaðlaheiðinni, ætti
að vera hvatning til allra borgara
þessa bæjar að gerast virkir liðs-
menn í þeirri fylkingu, sem er
að reyna að klæða landið. Þessi
árangur ætti líka að verða til
þess að glæða áhuga uppalenda,
skólamanna og annarra, sem um
málefni æskumannanna fjalla,
fyrir skógræktarstarfi. Það er
alveg vafalaust, að sá skóli er
ekki til í þessu landi, að hann
hafi ekki efni á því að nemendur
hans verji nokkrum dagsverkum
til skóggræðslu. Sú námsgrein er
heldur ekki til að hún megi ekki
við því, að nemendur verji nokkr-
um hluta af áætluðum kennslu-
tíma til jafn þjóðnýts starfs. Það
er furðulegt, að enda þótt löngu
sé sannað, hverjum árangri má
ná með skóggræðslustarfi, skuli
skólar landsins ekki fyrir löngu,
af sjálfsdáðum, hafa tekið að sér
að græða landspildur. Þeir hafa
vinnuaflið og þeir hafa ótal
möguleika til þess að safna því
fé, sem til þarf, með frjálsum
samskotum, með skemmtistarfi
og með því að leita til einstakl-
inga og stofnana, sem gjarna
vilja styðja þetta mál, en hafa
ekki tækifæri til þess að gera það
með vinnu. Athugaleysi skóla-
manna fyrir skógrækt er eitt
átakanlegasta dæmið um þann
menningardoða, sem langskóla-
námið, við núverandi kringum-
stæður, setur í mannfólkið.
Skógræktarfélagið er fámennt.
Það er raunalegur vottur um
skilningsleysi manna á þessum
viðfangsefnum, að Skógræktar-
félag Eyfirðinga skuli enn í dag
vera fámennt félag og fátækt.
Eðlilegt væri, að það væri í senn
fjölmennt og ríkt. Félagið er fá-
tækt af því að því stendur fá-
mennur hópur áhugamanna, sem
sér verkefni blasa við hvarvetna
og hefur hug á að taka þau til
úrlausnar hraðar en fjárhagur-
inn leyfir. Ef almennur áhugi
væri fyrir skógrækt, og menn,
sem ekki vilja Ieggja af mörkum
persónulegt starf til þess að gera
landið fegurra og betra, er við
skilum því til barna okkar, en
það var, er við tókum við því,
vildu þó leggja það á sig að ger-
ast skógræktarfélagar, og greiða
árgjöld sín til starfseminnar, væri
í merkum áfanga náð. Þá mundu
samtök almennings skapa það
fjármagn, sem þarf, til þess að
lyfta meira en smáhlössum. En
þessu er ekki þannig farið. Allt
of mörg lesum við um skógrækt
og sjáum árangurinn af starfinu,
en hugsum sem svo, að við get-
um ekkert til málanna lagt.
Mikill misskilningur.
Þetta er hinn stóri misskiln-
ingur. Aðeins með því að vera
félagi í skógræktarfélaginu,
leggjum við hönd á plóginn. Við
gerumst þá líka þátttakendur í
því starfi, að vernda skógarleyf-
ar og þann gróður, sem fórn-
fúst starf margra hefur kómið á
legg. Og þennan verndaráhuga
skortir víða, jafnvel þar sem sízt
skyldi. Skógræktarstjórnin sagði
(Framh. á 5. síðu.)
Örlítið um hausttízkuna
Við konurnar höfum alltaf gaman af að
fylgjast með því nýjasta í heimi tízkunnar,
DÓtt okkur falli ekki ævinlega allt sem bezt,
sem þar er á boðstólum. Það er annars ein-
kennilegt, hve fljótar við erum að tileinka
okkur eitt og annað úr þeim furðulega heimi,
og hve smekkur okkar virðist breytast með
tízkunni. Ég minnist þess t. d., hve ljót mér
pótti nýja tízkan hér um árið, þegar allt
síkkaði, og ég var ekki ein um það. Mörgum
konum fannst hin nýja sídd svo ljót, að þær
sóru og sárt við lögðu, að þær myndu aldrei
klæðast slíkum fatnaði. En hver varð raun-
in? Áður en við höfðum áttað okkur á því,
vorum við farnar að ganga í síðari fötum,
og allt í einu fundust okkur stuttir kjólar og
stuttar kápur óþolandi og ósmekklegar. Tízk-
an virðist því töluvert máttug, hvort sem við
viljum kannast við það eða ekki.
Háfur og jaJckar.
Mér hafa nýlega borizt nokkur erlend tízku-
blöð, og lesendum kennadálksins til gamans
ætla ég að minnast á eitt og annað, sem mér
fannst áberandi á nokkrum sviðum kven-
klæðnaðarins, og þá aðallega það, sem mér
þótti skemmtilegt og hagkvæmt.
Stuttjákkar eru mjög í tízku, bæði með
víðu og þröngu baki. Sumir eru með hálf-
löngum ermum {‘i/4 lengdar), með stórum
uppslögum, og eru háir hanzkar notaðir við
slíkar ermar. Vetrarjakkarnir eru með stó-
um skinnkrögum, og sumir hafa skinn á erm-
um. Slíka stuttjakka ætti að vera tiltölulega
auðvelt að gera úr gömlum kápum, og mætti
nota það, sem neðan af kemur, í uppslög og
kraga. Jakkarnir eru notaðir við allavega pils
og kjóla, og eru því mjög hagkvæmir.
Annað fyrirbæri mjög áberandi eru húfur
í stað hatta. Að sjálfsögðu er mikið um hatta
af ýmsum gerðum, en húfur virðast vera mjög
vinsælar. Hér er um að ræða bæði venjulegar
„alpahúfur“ og ýmsar aðrar gerðir, bæði úr
flók^, flaueli, rússkinni o. fl. þess háttar. Húf-
urnar eru einfaldar í sniði og fara vel við
hið stutta og slétta hár, sem ennþá virðist
vera í algleymingi. Laghend kona getur áreið-
anlega saumað sér sjálf húfur til þess að nota
daglega. Með því sparar hún margar krónur
og er þar að auki „hámóðins“ í höfuðbúnaði.
Köflótt efni og fellingar.
Köflótt efni hafa alltaf annað slagið stung-
ið upp kollinum, en áraskipti hafa verið á vin-
sældum þeirra, eins og öðru. Nú virðast þau
í algleymingi og í allt notuð. Svo var að
minnsta kosti að sjá í einu blaðanna, en þar
voru bæði kjólar og kápur köflóttar, blússur
og pils, treflar og húfur og mikið af köflótt-
um jökkum. En köflóttu efnin eru alltaf not-
uð með einlitum efnum, og þannig fara þau
bezt. í fyrrnefndu blaði voru næstum allar
tízkumyndir eitthvað köfló.ttar, en venju-
lega voru ekki nema ein eða tvær flíkur þann-
ig á sömu konunni, og þá úr sama efni, en ein-
litt með úr lit, sem fór vel við. Þá má nefna
fellingar og „pliseringar“ á pilsum og einnig
á herðaslögum á kjólum, en nokkuð virðist
vera af þeim. Uppslög á kjólermum, hvort
sem þær eru stuttar eða langar, eru mikið
notuð, en kragar sýnast mér af öllum gerð-
um, allt frá háum, kínverskum og niður í
sjalkraga og víða kraga, sem ná út af öxum.
»
Nýjar gerðir nylonsokka.
Ég frétti nýlega eftir konu, sem var að
koma heim úr ferð frá Sviss, að nýjasta gerð
nylonsokka þar í landi væri þannig gerð, að
sjalkraga og víða kraga, sem ná út af öxlum.
(Framhald á 7. síðu.)