Dagur - 24.11.1950, Blaðsíða 1

Dagur - 24.11.1950, Blaðsíða 1
Póstkröfur fyrir árgjaldi blaðs ins hafa verið sendar til ým- issa póststöðva. Munið að viija þeirra! XXXIU. órg. Akureyri, föstudaginn 24. nóvember 1950 50. tbl. Efri mynd: Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, í ræðustól. Flutti hann skörulegt og skemmtilegt erindi um starf flokksins og stjórnmálaviðhorfið. — Neðri mynd: Dagskrámefnd flokksþingsins að störfum að Hó tel Borg: Talið frá vinstri: Guð- brandur Magnússon, Sigtryggur Klemenzson og Vilhjálmur Árnas. Ríkisstjórnin veitir leyfi til kaupa á endurvarpsstöð á Akureyri Stöðin þegar pöntuð hjá Marconifélaginu í London Útvarpsstjóri skýrði blaðinu frá því á mánudagiún, að hann hefði þá um daginn gengið frá því að panta hina fyrirhuguðu endurvarpsstöð, sem setja ó upp hér í bænum. Hefði ríkisstjórnin þá fyrir skömmu afgreitt málið á þann hátt, að mæla með því að nauð- synleg leyfi yrðu veitt til kaup- anna, en eins og áður er frá skýrt hér í blaðinu, vísaði Fjárhagsráð málinu til ríkisstjórnarinnar á sl. vori og kvaðst ekki mundi veita leyfi nema ríkisstjórnin mælti með því, vegna hins erfiða gjald- eyrisástands. Hagkvæm kjör hjá Marconi- félaginu. Maiconifélagið í London hafði boðið útvarpinu góð kjör. Kaup- verð stöðvarinnar, sem er um 14.500 sterlingspund, á að greiðast á 4 árum, en vextir verða 3%. Stöð þessi er 5 kw. og mun hún gjörbreyta aðstöðu manna hér um slóðir til að hlýða á Ríkisút- varpið og útiloka þær leiðu trufl- anir frá Lulea-stöðinni í Svíþjóð, sem útvarpshlustendur hér um slóðir verða nú að þola. í annan stað er koma þessarar stöðvar fyrsta skrefið til þess að unnt sé að hefja útvarp héðan og fella inn í heildardagskrá útvarpsins. Er þess og að vænta, að sú hlið málsins verði athuguð, því að slík starfsemi hér mundi mikils- verður liður til uppörvunar fyrir allt félags- óg menningarlíf, og að auki Vferði til þess að auka fjölbreytni í heildardagskrá Rík- isútvarpsins. Stöðin væntanlega sett ofan við bæ. Líklegt er að hin fyrirhugaða stöð komizt upp á næsta ári. Mun hún væntanlega verða sett ofan við bæinn. Hefur útvarpið þegar fengið vilyrði bæjarstjórnar fyr- ir lóðir undir nauðsyn- sóknar- i lyrraaag Flokksþingið gerði markverðar álykt- um mikilvægustu dagskfármál Níunda flokksþing Framsóknarmanna var sett að Hótel Borg í Reykjavík sl. föstudag og lauk þinginu á miðvikudagskvöld, með skilnaðarhófi þingfulltrúa. Þetta er fjölmennasta flokksþing, sem Framsóknarmenn hafa haldið. Sóttu þingið um 400 fulltrúar og gest- ir hvaðanæfa af landinu. Er nú mikill þróttur í öllu starfi flokksins og hafa mörg flokksfélögin eflzt mjög síðan síðasta flokksþing var haldið. Er einkum ábcrandi, hversu flokksstarfsemi ungra Fram- sóknarmanna hefur eflzt. Áttu félög ungra manna nú marga fulltrúa. Útgerðarfélagið ákveður togara- kaupiu Stjórn Útgerðarfélags Akur- eyringa h.f. samþykkti nú fyrir nokkrum dögum að taka tilboði rikisstjórnarinnar um að kaupa einn af hinum nýju togurum frá Bretlandi, með smávægilegri breytingu þó á tilboðinu, sem ekki er gert ráð fyrir að verði til fyrirstöðu. Vitaskuld er þetta tilboð þvi skilyrði háð, að félaginu takist að hafa fé handbært til kaupanna. Það mál stóð þannig í gær, að verulega skorti á að félagið hefði fengið þær 400 þús. kr. í auknu hlutafé, sem það þarf á að halda og heldur hlutafjársöfnuninni áfram. Er þess fastlega vænzt að þeir bæjarmenn, sem nokkur tök hafa á því að kaupa hlutabréf, geri það nú þegar. Skrifstofa fé- lagsins tekur á móti hlutafjár- framlögum alla daga. Nýja skipið í desember. Fyrsta skipið, sem tilbúið verður af þeim 10, sem í smíðum eru, fer reynsluför nú um helg- ina, en hið næsta um mánaða- mótin, og er þess vænzt, að Út- gerðarfélagið fái það skip, ef kaupin takast. Ætti það þá að geta komið til landsins fyrir eða um jól. Ákveðið er að Sæmund- ur Auðunss-on, skipstjóri á Kald- bak, verði skipstjóri á hinu nýja skipi, en ekki er ráðið, hver tek- ur við Kaldbak, ef þessar ráða- gerðir ná fram að ganga. f STUTTU MÁLI 22. ÞING Alþýðusambands íslands stendur yfir í Reykja- vík þessa dagara. Þingið sitja 280 fulltrúar frá 139 sam- bandsfélögum. Lýðræðissinn- ar eru í miklum meirihluta á þinginu, hafa 176 fulltrúa. -K SAMNINGAR hafa tekizt með Sjómannafél. Akureyrar og togaraútgerðinni hér um kaup og kjör á ísfisk- og salt- fiskveiðum. Samþykktu sjó- menn fyrri sáttatillögu nú óbreytta, með 29 atkv. gegn 3. legar byggingar — Útvarps- hlustendur hér um slóðir fagna því að mál þetta er þannig komið á rekspöl. Hefur útvarpsstjórinn lagt kapp á að koma málinu í höfn og notið til þess stuðnings góðra manna, m. a. þingmanns kaupstaðarins. Þá hafa og blöðin hér stutt málið og bæjarstjórnin. Fyrsta fundardaginn flutti Her- mann Jónasson, formaður flokks- ins, ýtarlegt erindi um störf flokksins frá síðasta flokksþingi og stjórnmálaviðhorfið í dag og fóru síðan fram fjörugar umræð- ur um það. Kom þar glöggt fram, að forustumenn flokksins njóta mikils trausts og að flokkurinn er nú samhentari og sterkari en nokkru sinni fyrr. Á laugardag- inn flutti svo Eysteinn Jónsson, ritari flokksins, erindi um flokks- starfið og þann dag voru umræð- ur um það. Síðdegis á laugardag hófust nefndastörf og störfuðu nefndir þann dag og sunnudag- inn, en á mánudag hófust um- ræður um nefndarálit og lauk þeim á miðvikudag. — Margar markverðar ályktanir um lands- mál voru gerðar á þinginu og var stefna flokksins mörkuð um næstu framtíð. Má í því sambandi nefna, að flokkurinn lýsti afstöðu til stjórnarskrármálsins. Hér fara á eftir stjórnmálayfirlýsingar flokksþingsins og ályktun í stjórnarskrármálinu. Frá öðrum ályktunum verður síðar gyeint í blaðinu. Almenn yfirlýsing um stjórnmálastefnu F ramsóknarf lokksins i. Framsóknarflokkurinn lítur svo á, að andlegt og efnahagslegt frelsi og bróðurleg samvinna ein- staklinganna sé meginskilyrði fyrir eðlilegum þroska þeirra og undirstaða lýðræðisins í landinu. Hann vill því efla þá stjórnar- háttu og styrkja þá hagþróun og þau rekstrarkerfi, sem að þessu miða. Samkvæmt starfi sínu og stefnu er hann flokkur frjálslyndra fé- lagshyggjumanna, sem meta gildi framleiðslunnar og styðja vilja hvers konar framfarir í menningu og lífskjörum þjóðarinnar. Nú, sem fyrr, vekur hann sér- staka athygli á þjóðfélagslegri nauðsyn þess, að leggja því fólki lið í lífsbaráttunni, sem innir af hendi það hlutverk, að byggja landið sem víðast og nytja gæði lands og sjávar og helga þannig þann rétt, sem landnámsmenn unnu til handa þjóðinni í önd- verðu. II. Framsóknarflokkurinn vill, að sem flestir landsmenn séu beinir þátttakendur í framleiðslustarf- inu, og að þeim, sem það stunda, sé tryggt sannvirði vinnu sinnar, enda séu kjör þeirra svo góð, að þau störf verði eftirsóknarverð. Flokknum er ljóst, að vinnandi fólk, bæði í sveit og við sjó, hafi sameiginlegra hagsmuna að gæta og leggur áherzlu á vinsamlegt samstarf og gagnkvæman skiln- ing þessara aðila. III. Framsóknarflokkurinn telur, að þjóðfélaginu beri að vinna að því, að lífskjör landsmanna verði sem jöfnust og komið verði í veg fyrir óhóflega eyðslu á hvaða sviði sem er, enda lítur hann svo á, að óhófleg notkun fjármuna, hvort sem eytt er af eigin fé eða opin- beru, sé eitt af helztu meinum þjóðfélagsins, og gefi tilefni til réttmætrar óánægju hjá þeim, sem gætilega fara með fjármuni. Telur flokkurinn lausn þessa vandamáls undir því komna' að þjóðinni takizt að auka vinnuaf- köst sín og framleiðslu og koma við almennum sparnaði. Hann leggur áherzlu á nauðsyn þess, að allt vinnufært fólk hafi með höndum nytsöm störf og þá sér- staklega, að ekki skorti vinnuafl til framleiðslustarfa. Hann telur óhjákvæmilegt, að öll þjóðin geri sér grein fyrir því, að ekki er hægt að tryggja einstaklingunum betri lífskjör en þjóðartekjurnar í raunverulegum verðmætum leyfa á hverjum tíma, og það er því sameiginlegt hagsmunamál allra, að þær verði sern mestar. (Framhald á 8. síðu.)

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.