Dagur - 24.11.1950, Page 8
8
Baguk
Föstudaginn 24. nóvember 1950
Myndin er frá fundarsalnum að Hótel Borg í Reykjavík s. 1. föstudag. Fundarstjórinn, Jörundur
Brynjólfsson alþm. í ræðustól. Fulltrúarnir rúmuðust ekki í „gyllta salnum“ á hótelinu og voru öll
hliðarherbergi full. Þetta er fjölmennasta flokksþing Framsóknarmanna.
- Sfjórnmálðyfirlýsing og stjórnarskrármálið
Þjóðverjar nota víxilstraum við
fiskveiðar sínar í Horðursjó
Þessi veiðiaðferð er bönnuð i Norður-
sjávarsamningnum - gremja fiski-
manna á Norðurlöndum mikil
Kaupmannahöfn í nóv.
Framhald af 1. síðu.
Hann vill vekja athygli almenn-
ings á því, að peningatekjur, sem
ekki byggjast á framleiðslu raun-
verulegra verðmæta, eru falskar
og koma engum að gagni, en miða
að því að auka verðbólguna í
landinu, og að eina ráðið til að
bæta lífskjör þjóðarinnar í heild
er að auka þau verðmæti, sem
þjóðin eignast með vinnu sinni.
Jafnframt telur hann nauðsyn-
legt, að þjóðin geri sér grein fyrir
þeirri almennu lífskjararýrnun,
sem fram hlýtur að koma hverju
sinni, ef nauðsynleg störf falla
niður um lengri eða skemmri
tíma. En af þessum ástæðum tel-
ur hann aðkallandi, að fundin
verði varanleg úrræði til að
ltoma í veg fyrir atvinnuleysi og
stöðvun vinnu vegna kaupdeilna,
og að þjóðin öll, og þó einkum
hin uppvaxandi kynslóð leggi
stund á að auka þekkingu sína og
skilning á lögmálum atvinnulífs
og fjármála í nútíma þjóðfélagi.
IV.
Framsóknarflokkurinn telur að
vinna beri gegn því af alefli, að
„Geysir“ syngur
í kvöld
Karlakórinn Geysir heldur
söngskemmtun í Nýja-Bíó næstk.
föstudagskvöld. Er þetta í fyrsta
skipti á vetrinum, sem kórinn
lætur til sín heyra. Söngskráin
verður að þessu sinni að mestu
leyti hin sama og kórinn flutti á
sl. vori, en þá vannst ekki tími til
að halda nema eina söngskemmt-
um vegna landsm. karlakóranna
í Reykjavík og undirbúnings
undir Noregsför, sem kórinn
hafði fyrirhugað, en varð að
hætta við sökum þess, að honum
var synjað um gjaldeyrisleyfi.
Einsöngvarar verða að þessu
sinni Hermann Stefánsson og
Kiistinn Þorsteinsson, undiileik
annast Árni Ingimundarson. Hinn
góðkunni söngstjóri, Ingimundur
Árnason, hefur stjórnað kórnum
frá stofnun hans, en á þessum
vetri er kórinn 28 ára.
efnahagur landsmanna verði svo
misjafn, að þjóðin skiptist í auð-
menn og öreiga, þar sem slíkt
ástand truflar þroska þjóðarinnar
og getur haft í för með sér stétt-
arbaráttu, sem stofnar öryggi
landsmsmna í hættu. Flokkurinn
er þess vegna mótfallinn því, að
umráð yfir framleiðslutækjum
landsins og viðskiptum safnist á
hendur fárra einstaklinga. Einnig
er hann því andvígur, að ríkis-
rekstur verði aukinn frá því sem
nú er, nema sérstakar ástsðður
séu fyrir hendi. Hann telur æski-
legt, að verzlun landsmanna
komist yfirleitt í hendur sam-
vinnufélaga og sömuleiðis meg-
inættir þeirrar starfsemi, er að
því miðar að gera afurðir undir-
stöðuatvinnuveganna markaðs-
hæfar. Annan atvinnqrekstur tel-
ur hann rétt að hafa í höndum
einstaklinga, samvinnufélaga eða
bæjar- og sveitarfélaga eftir því
sem ástæður leyfa, eða bezt hent-
ar hverju sinni.
V.
Framsóknarflokkurinn lítur svo
á, að heimilið sé sú stofnun í
þjóðfé’laginu, sem mest áhrif hef-
ur á þroska þjóðarinnar og fram-
tíð. Hann leggur því áherzlu á, að
heimilunum séu sköpuð sem bezt
skilyrði og jöfnust um land allt.
Hann telur mikils um vert, að
heilbrigt jafnvægi skapist í bú-
setu landsmanna og hættulegt, að
meginhluti þjóðarinnar safnist
saman í einum eða fáum stórbæj-
um.
VI.
Framsóknarflokkurinn leggur
sem fyrr ríka áherzlu á, að staðið
sé fast á verði um lýðræðið í
landinu og stjórnarfarslegt sjálf-
stæði þjóðarinnar. en unnið gegn
erlendri ásælni og áróðri. Hann
telur sér skylt að berjast gegn
hvers konar öfgastefnum, sem
vilja kollvarpa núverandi þjóð-
skipulagi með ofbeldi og bylting-
um. Hann lýstir sig eindregið
fylgjandi samtökum þjóða til
varðveizlu friðar og öryggis í
heiminum, en telur eðlilegt að
nánust samvinna sé við þær
þjóðir, sem vilja efla lýðræðið og
viðurkenna rétt smáþjóðanna.
Stjórnarskrármálið
Níunda flokksþing Framsókn-
armanna leggur á það áherzlu, að
hraðað sé setningu nýrrar stjórn-
arskrár. Telur flokksþingið, að
hina nýju stjórnarskrá eigi að
byggja á eftirtöldum grundvall-
aratriðum:
1. Framkvæmlarvald og löggjaf-
arvald verði aðskilið meira en
nú er, og skipi þjóðkjörinn for-
seti stjórn ríkisins, hafi Al-
þingi eigi myndað stjórn mán-
uði eftir að ríkisstjórn hefur
verið veitt lausn.
2. Allir þingmenn verði kjör-
dæmakosnir. Kjördæmaskip-
unin taki eðlilegt tillit til sér-
stöðu dreifbýlisins.
3. Skipun æðsta dómstóls þjóðar-
innar verði ákveðin í stjórnar-
skránni.
4. Héruðin njóti meiri sjálfstjórn
ar en nú er.
Sérstaða þeirra verði ákveðin
í stjórnarskránni.
Níunda flokksþing Framsókn-
armanna skorar á Alþingi að gera
þá breytingu á gildandi stjórnar-
skrá, að ný stjórnarskrá skuli
samþykkt á sérstöku stjórnlaga-
þingi og síðan borin undir þjóð-
aratkvæði.
Flokksþingið telur eðlilegt, að
kosið verði í einmenningskjör-
dæmum til stjórnlagaþingsins.
Til tíðinda heftir nú dregið á
kærleiksheimili Ríkisútvarpsins í
Reykjavík. Skrifstofustjóri út-
varpsráðs* Helgi Hjörvar, hefur í
blaðagreinum og í bæklingi bor-
ið Jónas Þorbergsson útvarps-
stjóra þungunt sökum, m. a. að
hafa dregið sér fé útvarpsins,
þegið mútur o. s. frv., Útvarps-
stjóri hefur aftur á móti lýst því
í hréfi til menntamálaráðherra,
að Helgi Iljörvar hafi haldið uppi
„ofsóknartilburðum“ gegn sér í 18
ár, og baðst útvarpsstjóri þess, að
rannsókn væri látin fara fram
Útlit er fyrir að fiskveiðar í
Vestúrhafinu og Norðursjó verði
minni í ár en nokkru sinni fyrr,
og ekki farið dult með að aðal-
ástæðan sé offiski og ránfiski
eftirstríðsáranna. Þetta mál allt
hefur vakið aukna athygli nú upp
á síðkastið vegna þeirrar ákvörð-
unar vesturþýzkra stjórnarvalda
að stöðva fyrirvaralaust allan
innflutning á dönskunt fiski.
Ástæðan til þessarar ákvörðun-
ar ekki alveg ljós, en gefið hefur
verið í skyn að gjaldeyris-
vandræðf og hið almenna fjár-
hagsástand valdi. En það fer
samt ekki hjá því að menn hug-
leiði aðrar ástæður, og þá fyrst
og fremst þá, að Þjóðverjar hafa
nú eftir stríðið haft tækifæri til
þess að útbúa fiskiskip sín með
þeim hætti, að þeim hefur nú
tekizt að afla mest alls þess fisks,
sem þeir þurfa. Það er löngu
kunnugt að fiskistofninn í Vest-
urhafi og Norðursjó er í hættu
f rá útrýmingarfiskveiðum, ef
ekki verður gripið til sérstakra
ráðstafana til að vernda ungfisk-
inn. Þar ofan á bætist það, að nú
er vitað að Þjóðverjar lama fisk-
inn með því að nota rafmagns-
straum við veiðar sínar.
Fleiri þúsund volta straumur.
Vitað er, að þýzk fiskiskip, sem
sækja á þessi mið, hafa víxl-
straumsmótora, sem framleiða
fleiri þúsund volt, og er það
nægilegur styrkleiki til þess að
lama fiskinn á margra sjómílna
svæði. Slíkar aðferðir eru bann-
aðar í Norðursjávarsamþykkt-
inni, sem Þjóðverjar hafa bara
ekki gerzt aðilar að og láta sér í
vegna ásakana Hjörvars, og
kvaðst fús að víkja úr embætti
meðan á rannsókn stæði. Hefur
menntamálaráðherra nú ákveðið
að láta slíka rannsókn fara fram
og hefur dómsmálaráðuneytið
falið Vald. Stefánss. sakadómara
að framkvæma hana. Jafnframt
voru þeii' báðir, Helgi Hjörvar og
Jónas Þorbergsson, látnir víkja
frá störfum á meðan, en Sigurði
Þórðarsyni, skrifstofustjóra út-
varpsins falið að gegna embætti
útvarpsstjóra á meðan.
léttu rúmi liggja, þótt rafmagns-
veiðar þeiria eyðileggi rauð-
sprettuseyði þau, sem Danir hafa
með miklum kostriaði sleppt í
Norðursjó í sumar. Eru nú uppi
háværár raddir um að Þjpðverjar
verði að gerast aðilar að Norður-
sjávarsamþykktinni, svo að unnt
reynist að stöðva þetta óheyrilega
ránfiski, sem getur gert óbætan-
legt tjón á næstunni.
Miklar fiskveiðar Þjóðverja.
1. október veiddu Þjóðverjar
mikið fiskmagn í Norðursjó, Bar-
entshafi og á íslandsmiðum. f
höfnunum Kiel, Bremerhaven,
Cuxhaven og Hamborg var land-
að 48.575.397 kg. af fiski, sem
seldist fyrir 17.535.074 D.mörk.
Leiðrétting
í frásögn Dags 8. þ. m. um sjó-
tjón ó m.s. Sæfinni á leið til
Bretlands, var svo til orða tekið,
að skipið hefði brotnað á báðum
hliðum og lúukarmur losnað.
Komið hefði alvarlegur leki að
skipinu. Skipið er nú komið heim
fyrir nokkru og hefur blaðið
fengið upplýst, að fyrrgreind frá-
sögn er ekki alls kostar rátt. —
Ekkert brotnaði á skipinu.
\
LÖGGÆZLUMENN af Akra
nesi fundu nýlega allmikið af
smyglvarningi í bifreið, er
þeir stöðvuðu í Hrútafirði. —
Var bifreiðin á leið til Borð-
eyrar og virðist hafa verið í
söluferð til Norðurlands með
varninginn. Það var trúnaðar-
ntaður verðgæzlustjóra á
Blönduósi, sem varð til þess
að upplýsa smyglmál þetta.
Hvernig er fjárstjóm útvarpsins.
Þessi mál öll hafa vakið mikla
athygli og eru mikið rædd manna
á meðal um land allt. Skrif þau,
sem þegar hafa birzt um málið,
fyrir utan fyrrnefnd skrif Helga
Hjörvar, þ. á. m. greinargerð frá
„tónlistardeild“ útvarpsins, sem
birtist í dagblaði í höfuðstaðnum
á dögunum, gefa tilefni til þess
að menn óski að fá nánari upp-
lýsingar um fjármálastjórn út-
varpsins í heild og starfsmanna-
hald. Er þess að vænta, að rann-
sókn sú, sem nú fer fram, leiði
í ljós hið sanna í málum þessura
öllum og að niðurstöður hennaf
veiti ýmis konar upplýsingar um
starfshætti stofnunar þessar, sem
almenningi voru ókunnar með
öllu áður en skrif þessi hófust,
og vill nú gjarnan fá nánari upp-
lýsingar um. Dagur mun reyna að
fylgjast með þessu máli og birta
helztu upplýsingar, sem fram
kunna að koma, er tækifæri gefst.
I
Miklar viðsjár í Ríkisútvarpinu
Skrifstofiistjóri útvarpsráðs og út-
varpsstjórinn deila hart