Dagur - 24.01.1951, Blaðsíða 1
Forustugreinin:
Umræður um utanríkis-
mál fyrir opnum tjöldum!
Dagu
Fimmta síðan:
Mestu raforkuframkvæmd-
ir á fslandi — greinargerð
fyrir lánsútboði.
úar 1951
Akurcyri, miðvikudaginn 24. janúar 1951
4. tbl.
Barátta gegn drepsóttum í Kóreu
Samcinuðu þjóðirnar liafa reynt að forða ]>ví að drepsóttir brytust út í
Kóreu. Hafa sérstakar sveitir lijúkrunamtanna með hemum tif dæmls bólu-
sctt almenning gegu bólusótt, kóleru, taugavciki og flciri sjúkdómum.
unglinga í bænursi fara í vöxf
Bifreiðarstjórar gabbaðir - foreldrar hvattir
til aukins eftirlits með börnum og unglmgum
Lögreglan skýrir blaðinu svo
frá, að nokkur brögð hafi verið
að því undaníarið, að hringt væri
á lcigubiíreiðastöðvar og bifreið-
ar gabbaðar út í bæ, en í flestum
tilfellum hafi þetta komizt upp og
liafi viðkomandi orðið að greiða
fyrir bílferðirnar.
Eru unglingar og aðrir, sem
kynu að hafa iðju þessa að
leik, alvarlega varaðir við að
halda því áfram.
Nú undanfarið hefur einnig
verið allmikið um það, að börn og
unglingar færu inn í íbúðir, oft-
ast ólæstar, og tækju í heimildar-
leysi peninga o. fl., jafnvel í all-
stórum stíl. í sambandi við rann-
sókn þessara mála hefur það oft
komið í Ijós, að unglingarnir hafi
tekið lykla úr hurðum og haft á
brott með sér. Er fólk því varað
við því, að skilja eftir ólæstar,
mannlausar íbúðir og að skilja
Gott heilsufar í
hæíiíim - engin
iuflúenza
Héraðslæknirinn sagði blaðinu
í gær, að heilsufar í bænum
mætti telja gott, mislingatilfelli
eru alls orðin þrjú, síðan um jól,
kíghósti hefur ekki komið upp
hér, og ekki heldvir inflúenza,
svo að vitað séi Vægt hvef er all-
útbreytt.
eftir lykla í hurðum, þar sem
enginn er nálægur. Einnig skýrði
lögreglan frá því, að töluverðu
af reiðhjólum hefði verið stolið
hér í bænum í haust og vetur og
að það hefði aðallega verið af
völdum unglinga um og innan
við fermingaraldur. í því sam
bandi vill lögreglan sérstaklega
biðja foreldra, ef þau verða þess
áskynja, að börn þeirra séu með
reiðhjól eða annan varning, sem
eigði er vitað hvaðan sé, að gera
henni aðvart eða koma mununum
til hennar.
Mislingar herja í
Bárðardal
Tveir bændur látnir -
margir veikir
Mislingar herja nú í Bárðardal
og eru skæðir. Liggja margir
veikir og þungt haldnir, en tveir
menn eru látnir eftir skamma
legu. Hermann Pálsson bóndi í
Iíiíðskógum lézt úr veikinni nú
fyrir skömmu. Hann var maður á
bezta aldri, rúmlega fimmtugur,
dugandi bóndi og vel metinn. Að-
faranótt sunnudagsins lézt Jónas
Baldursson í Lundarbreklcu úr
veikinni, ungur efnismaður,
kunnur utan héraðs og innan fyr-
ir forustu í félagsmálum og rit-
störf. Hans verður nánar getið í
blaðinu síðar.
Ræít um að útgerðarmenn fái 50% af gjaldeyri
,Harðbakur“ fékk
Mlfermi í fyrstu
Nýi togarinn „Harjðbakur" fór
í fyrstu veiðiförina 4. janúar og
kom hingað inn 20. þ. m. ineð
fullfermi. Höfðu gæftir verið
stirðar á miðunum. „Harðbakur"
sigldi samdægurs til Bretlands
með aflann og mun væntanlega
selja á morgun.
Fiskimjölsverksmiðjan bilaði.
Lítið varð úr fiskimjölsvinnslu
í þessari för, því að tætari fiski-
mjölsverksmiðjunnar bilaði
snemma í veiðiförinni og var
ekkert fiskimjöl unnið eftir það.
Fyrir dyrum stendur allveruleg
breyting á fyrirkomulagi verk-
smiðjunnar. Þykir það óhentugt
eins og það er nú og ekki til
frambúðar. Er verið að athuga
hvernig verksmiðjunni verður
haganlegast komið fyrir. Hefur
útbúnaður skipsins að þessu leyti
valdið nokkrum vonbrigðum hér.
Malaða kaffið f rá
Reykjavík kom á
undau kaffi-
skip
imi
Kaffiskipið Selfoss kom hér
seint á laugardag, en losun hófst
á mánudagsmorgun. Gott dæmi
um það, hvernig siglingum þessa
skips var hagað, er að kaffi það,
sem það flutti frá útlöndum til
Reykjavíkur snemma í mánuðin-
um, var komið brennt og malað í
vei-zlanir hér mörgum dögum áð-
ur en skipið lagðist að hafnar-
bakkanum hér og hóf að losa það
kaffimagn, sem hér fer í land.
Fyrir reykvískar kaffibrennslur
og kaffisala mun þetta hafa
reynzt haganlegt fyrirkomulag og
opnað þeim nýja markaðsmögu-
leika fyrir vöru sína, en aðrir
landsmenn sjá ekki hagræðið af
svona vöruflutningafyrirkomu-
lagi íi'emur en af sumum þeim
öðrum ráðstöfunum, sem Eim-
skip gerir nú í siglingamálunum
gpgnvart landsbyggðinni.
Dálítill afli í Eyia-
firði
Nokkrir trillubátar róa frá ver-
stöðvunum hér við fjörðinn og
afla síémilega hér innfjarðar. —
Talsvert af aflanum er smáýsa.
Líklegt að leyfður verði frjáls inn-
flutningur nokknrra vörotegimda
fyrir þennan gjaldeyri
Líklcgt var talið í Reykjavík í
gær, að í dag eða á morgun
mundi verða birt samkomulag
ríkisstjórnarinnar og útgerðar-
manna um rekstursgrundvöll
bátaflotans á komandi vertíð.
Aðalvertíð syðra er enn ekki
hafin, þótt komið sé þetta fram í
janúar, og hafa útvegsmenn víða
beðið þessara samninga og hald-
ið að sér höndum, en annars
staðar hafa bátar þegar hafið
róðra og hefur afli víðast hvar
verið ágætur.
Frjáls gjaldeyrir.
í gær hafði ekkei't verið birt op-
inberlega um samkomulag það,
sem í vændum er, en almennt
var talið að hér væri um að ræða
að láta útgerðarmenn fá til ráð-
stöfunar 50% af þeim gjaldeyri,
er bátarnir afla, og yi'ði leyfður
frjáls innflutningur á nokkrum
vörutegundum fyrir þennan-
gjaldeyri. Talið var að fiskverðið
mundi verða 95 aurar til sjó-
manna og kr. 1.07 til útgerðar-
manna. Krafa útvegsmanna var
upphaflega kr. 1.30 fyrir kg.
Vörur, sem ekki koma inn í
vísitöluna.
í sambandi við frjálsan inn-
flutning vörutegunda fyrir þann
gjaldeyri, sem útvegsmenn fá til
ráðstöfunar, hefur verið rætt um
þessar vörutegundir m. a.: pappír,
annan en blaðapappír, bifreiða-
og vélavarhl., bifreiðar, fatnað o.
fl. Yfirleitt mun hér vera um
vöruflokka að ræða, sem ekki
koma inn í vísitölugrundvöllinn.
Allt eru þetta lausafregnir, því
að engin opinber tilkynning hafði
verið birt um þessi mál síðdegis í
gær, en fréttamaður blaðsins í
Reykjavík taldi samt góðar.heim-
ildir fyrir því, að samkomulagið
grundvallaðist á þessum atriðum
í stórum dráttum. Mun þjóðin
væntanlega fá að heyra þennan
boðskap nú alveg á næstunni.
Góður afli.
Á meðan innbyrðis ósamkomu-
lag hefur varnað því að bátaflot-
inn hæfi róðra af kappi á vetrar-
vertíðinni, virðist þorskurinn
hafa gengið á miðin í rikum mæli,
því að þar sem róðrar eru hafnir,
hefur afli verið góður. Nokkrir
bátar róa nú frá Reykjavík,
Grindavík, Snæfellsneshöfnum og
frá Austfjarðahöfnum. Afli hefur
verið ágætur, allt að 20 lestir í
róðri hjá Austfjarðabátunum, en
eitthvað minna annars staðar. Er
útlitið talið heldur gott.
Staðfestingar beðið.
Meðan ekki liggja fyrir stað-
festar fregnir um lausn vanda-
máls bátaflotans, verður ekki
gerð nein tilraun til þess að meta
þá aðferð, sem um getur í lausa-
fregnum þeim, sem hér eru birt-
ar. En augljóst var hverjum
manni, að ekki kom til mála að
ríkisvaldið færi aftur inn á
ábyrgðar- og styrkjabrautina. —
Var löngu ljóst, að málið yrði
ekki leyst nema í einhverju sam-
bandi við gjaldeyrisöflun og sölu.
Munu fregnir þær, sem hér hafa
verið ræddar, því naumast koma
landsmönnum mjög á óvart.
Norski skíðakenn-
arinn kominn til
bæjarins
Norski skíðakennarinn, Jo-
hannes Tenman, kom til Akur-
eyrar sl. sunnudag og hefur haf-
ið kennslu. Skíðakennsla Ten-
mans verður tvíþætt, annai's veg-
ar skíðagöngukennsla fyrir byrj-
endur og þá, sem lengra eru
komnir og hins vegar liður í
þjálfun íslenzkra skíðagöngu-
manna og könnun á getu þeirra
vegna væntanlegrar þátttöku í
vetrar-Olympíuleikjunum í Osló
1952. f þeirri þjálfun, sem aðal-
lega fer fram á Akureyri, taka
þátt flestir af beztu skíðagöngu-
mönnum landsins, en eftir þeim
árangri, sem næst í vetur, verð-
ur mikið farið við val ísl. kepp-
enda á vetrarleikana í Osló í fehr.
1952. Frá Akureyri fer Tenman
til Mývatnssveitar, Siglufjarðar
og ísafjarðar.
SKÁKÞING NORÐLENDINGA
hefst eins og áður var auglýst
föstudaginn 26. þ. m. Þátttakend-
(ir gefi sig fram við stjórn Skák-
félags Akureyrar fyrir þann dag.
Ennfremur er í ráði að tefla sím-
skák við Olafsfjörð og Dalvík á
næstunni ef samband næst.