Dagur - 24.01.1951, Blaðsíða 8
8
Dagur
Miðvikudaginn 24. janúar 1951
Flugvélar lentu 859 sinnum í Eyja-
firði á s. I. ári
Mikil nauðsyn að byggja nýjan flug-
völl sunnan Akureyrar
Á sl. ári lentu flugvélar 8591
sinnum hér á PolHnum og á Mel-
gerðisflugvelli. Dró þó verkfall
flugvirkja á sl. vori mjög úr flug-
ferðum um tíma og hefði þessi
tala áreiðanlega orðið miklu
hærri, ef allt hefði verið með
eðlilegum hætti.
Árið 1949 voru lendingarnar
samtals 1086. Þessar tölur sýna
glöggt, hversu stór liður flugið er
orðið í samgöngumálum bæjar og
héraðs, og þegar veðurl. er einsog
nú hefur verið um skeið,sjámenn
og betur en ella, hvers virði flug-
ferðirnar eru. Nú eru landleiðir
allar tepptar, siglingar strjálar, en
flugvélar koma hér hvern dag,
sem veður leyfir, flytja póst og
farþega og rjúfa einangrunina,
sem bær og hérað annars væru í,
til mikilla þæginda og hagræðis
fyrir allan atvinnurekstur hér um
slóðir og íbúana í heild.
Nýr flugvöllur nauðsyn.
Miklir erfiðleikar eru á því um
þessar mundir að halda opinni
öruggri leið á flugvöllinn á Mel-
gerði, en lendingar á Pollinum
eru löngum ómögulegar vegna
ísa. Þar að auki er sú staðreynd,
að Melgerðisflugvöllur er mjög
lélegur orðinn, og verður ekki
nothæfur til frambúðar nema
með stórfelldri viðgerð, sem kosta
mundi mikið fé. Er árlega hent
tugum þúsunda til viðgerðar á
vellinum, en þar er tjaldað til
einnar nætur í senn, og ekki
tryggð nein lausn á flugvallar-
málinu í heild. Fyrir löngu er
samkomulag um það í milli sér-
fræðinga og flugmálastjórnarinn-
ar að nýr flugvöllur fyrir Akur-
eyri og héraðið sé hin mesta
nauðsyn, og hafa rannsóknir leitt
í Ijós að völlurinn muni vel settur
í Eyjafj.árhólmum, hér sunnan
við bæinn. Flugvallargerð þar er
að vísu kostnaðarsöm, en vel
framkvæmanleg að áliti sérfræð-
inga. Mælingar hafa verið gerðar
og allt til reiðu að liefja verkið
nema það, að fé hefur enn ekki
verið veitt til þess.
Tvær milljónir til flugvallanna.
Á fjárlögum yfirstandandi árs
munu tvær milljónir króna ætl-
aðar til flugvallanna. Nokkuð' er
því fé mun ganga til að greiða
skuldir flugvallanna í Vestmanna
eyjum, Sauðárkróki og víðar, en
annað til nýbygginga. Vafasamt
er talið, að verkið hér muni haf-
ið fyrr en fyrir liggja a. m. k. 500
þús. kr. til að vinna fyrir. Sú
spurning vaknar því, hvort bæj-
arfélagið geti ekki greitt fyrir því
að verkið verði hafið með því að
leggja fram eitthvert fé, sem lán,
til bráðabirgða, eins og Vest-
mannaeyjar og Sauðárkrókur
munu hafa gert til þess að hrinda
flugvallarmálum sínum af stað.
Það hlýtur að vera kappsmál fyr-
ir Akureyri að koma flugvallar-
málinu áleiðis hið allra fyrsta, og
virðist auðsætt, að bæjaryfir-
völdin eigi að vinna að því eftir
því sem unnt er. Er þess að
vænta, að flugvallarmálið verði
tekið til rækilegrar athugunar í
bæjarstjórninni fyrir vorið, því
að ef ekki sjást veruleg merki
áhuga hér fyrir flugvallarmálinu
er eins líklegt, að allt það fé, sem
til flugvallanna verður varið á
þessu ári, lendi annars staðar, og
þannig tefjist framkvæmdirnar
hér enn meira en orðið er.
ar í Lauga-
skóla
Þrátt fyrir varúðarráðstanir til
þess að forðast mislingafaraldur
þann, sem nú gengur um Þing-
eyjársýslu, hefur veikin nú kom-
ið upp í Laugaskóla, en þar er
fjöldi manns móttækilegur fyrir
veikina. Veldur þetta skólastarf
inu öllu hinum mestu erfiðleik-
um. Ekki munu þó margir hafa
veikzt enn sem komið er.
Yfirmaður kínverska
hersins
SKÁKKEPPNI.
Hinn 19. janúar sl. kepptu Odd-
eyringar gegn lnnbæingum og
Érekkubúum. Skipt var um
Brekkugötu. Leikar fóru nú
þannig að þeir síðarnefndu unnu
með TV2 vinning gegn 4V2. Tvær
skákir fóru í bið.
Færeyingar fiattu út sjávarafurðir
fyrir 74.1 milljón króna á s. 1. ári
Saltfiskur um 8af útflutningsverðmætinu
Útflutningur Færeyinga á ár-
inu 1950 nam 74,1 millj. danskra
króna, eða sem svarar 180 millj.
ísl. króna. Er þetta um 2 millj.
kr. lægri upphæð en árið á und-
an. Saltfiskur, blautur og þurrk-
aður, var um 80% af útflutnings-
verðmætinu, ísfiskframleiðslan
minnkaði verulega, en hvalveiði
jókst. Spánvei-jar voru stærsti
kaupandi fisks af Færeyingum á
sl. ári, keyptu 12000 tonn, ítalía
11900 tonn, Grikkland 4700 tonn,
Portúgal 1900 tönn, Bretland
1300 tonn og Danmörk 2200 tonn.
Mjólkurflutniugarair ganga nú
Iiindrunarlaust - mjólkin flutt
sjóveg frá Balvík
Vegurinn i Höfðaliverfi opnaður í gær
Chu Teh heitir yfirmaður alls
herafla hins kommúnistíska Kína
veldis, og undir hann heyra herir
þeir, sem innrásina gerðu í Kór-
eu, þótt hann sé þar ekki sjálfur
til stjórnar. Pekingstjórnin hefur
nú sent Sameinuðu þjóðunum
nýja tillögu um lausn Kóreu-
málsins og vill hún koma á sjö-
velda ráðstefnu um Asíumál, alla
erlenda heri burt úr Kóreu, sæti
Kína hjá S. Þ. og yfirráð yfir
Formósu. Þessi tillaga er nú til
athugunar í Lake Success.
Ekki hefur snjóað neitt teljandi
þessa síðustu viku og má heita að
sæmilegt akfæri sé um héraðið
og ganga mjólkurflutningar
hindrunarlaust.
Færi er þó víða erfitt. Vegur-
inn til Dalvíkur er þó ófær og er
mjólkin flutt hingað sjóveg. f gær
var unnið að því að opna veginn
í Höfðahverfi og var búizt við að
hann mundi fær allt að Laufási í
dag. Munu þá mjólkurflutningar
aftur hefjast reglulega úr Höfða-
hverfi landleiðina.
Fágætur sauðburður
Hinn 21. þ. m. skeði það á
Helgustöðum í Saurbæjarhreppi,-
að gimbur á fyrsta ári bar full-
aldra lambi. Lambið er hr-útúr á
stærð við meðal tvílembing og vel
sprækt. Mun það vera fátítt að
gimbrar beri um þetta leyti árs.
Gimbur þessi mun vera keypt
hjá Eiríki Skaftasyni bónda á
Stórahamri.
Hafa komið fram skemmdir
i karfafiökunum, sem send
voru til Ámeríku ?
Varasamt að frysta margra daga gamlan fislc
Þrálátur orðrómur er uppi um
það, að óvænlega horfi nú með
hinn nýfundna karfamarkað í
Bandaríkjunum og sé ástæðan sú,
að verulegar skemmdir hafi
komið fram í einhverju af því
magni, sem búið er að senda á
markaðinn.
Ekki hefur blaðið getað fengið
þessar fregnir staðfestar, en því
miður eru miklar líkur til að þær
séu á rökum reistar.
i
Of gamall fiskur.
Ástæðan til skemmdanna er
talin sú, að karfinn hafi verið
orðinn of gamall er hann var tek-
inn til flökunar. Eins og kunnugt
er hafa sunnlenzk frystihús flak-
að heila togarafarma, eftir
margra daga útivist togaranna, og
Kommúnistar héldu
völdunum með 8 atkv.
meirihluta
Úrslit í kosningu stjórnar og
trúnaðarráðs V erkamannaf élags
Akureyrarkaupstaðar urðu þau,
að kommúnistar héldu völdunum
með 8 atkvæða meirihluta. Er
það langminnsti meirihluti, sem
þeir hafa nokkru sinni haft. Listi
þeirra fékk 177 atkv., en listi
lýðræðissinna 169 atkv. 13 seðlar
I voru auðir og ógildir. Á kjörskrá
' voru 416, en 369 kusu.
þótti ýmsum, sem við fiskverk-
un fást, þegar óráðlega að farið.
í þessu sambandi má minna á, að
þær tilraunir, sem gerðar voru
hér nyrðra, til að flaka karfa og
frysta fyrir Ameríkumarkað
voru bundnar við nýjan fisk, þ.
e. þann fisk, sem togararnir
veiddu síðast í hverjum túr og
var á þilfari við hingaðkomuna.
Reyndist þessi fiskur og ágætlegá
er á markaðinn kom ,eins og áð-
ur er greint frá hér í blaðinu.
Alvarlegt mál.
Ef þessar fregnir reynast rétt-
ar, er hér um alvarlegt mál að
ræða. Ekki aðeins vegna þess
tjóns, sem útflytjendur verða fyr-
ir. Hitt er þyngra á metunum, að
þetta hlýtur að draga dilk á eftir
sér fyrir framtíðina og spilla mjög
áliti þessarar vöru vestan hafs.
í gær var suðaustan stormur og
frostlaust. Hefur snjór sjatnað
talsvert í frostleysunum undan-
farna daga, en haglaust er þó enn
víðast hvar.
Dalvíkingar Iiafa
sóU nin einii
tögara
Mikill áhugi er fyrir því í Dal-
vík, að einn hinna nýju togara
verði gerður þaðan út. — Var
nýlega haldinn borgarafundur
um málið, og þar samþykkt að
sækja um einn hinna nýju togara
til ríkisstjórnarinnar, og kosin
frámkvæmdanefnd til þess að
vinna að framgangi málsins. í
henni éiga sæti: Tryggvi Jónsson,
frystihússtjóri, foiTnaður, Páll
Friðfinnsson, útgerðarmaður,
Björgvin Jónsson ,skipstjóri, Lár-
us Frímannsson, formaður verk-
lýðsfélagsins, Sigtýr Sigurðsson,
formaður bíltstjórafélagsins, Jón
Stefánsson, trésmíðameistari, og
Jónmundur Zóphoníasson, bóndi.
Hlutafélagsfyrirkomulag er fyr-
ii'hugað. Þegar er hafin söfnun
hlutafjárloforða, og hefur gengið
greiðlega. Nokkur vafi er þó tal-
inn leika á því að Dalvíkingar
geti fengið togarann, þótt fé sé
fyrir hendi. Liggja þegar fyrir
margar umsóknir um nýju tog-
arana. Þremur hefur þegar verið
ráðstafað, til Akureyrar, Hafnar-
fjarðar og Patreksfjarðar, og af
þeim 7, sem eftir eru, mun Rvík
ætla sér 5.
Mikil Iiarðindi iim
Þiiigeyjarþing
Mikil harðindi eru í Þingeyj-
arsýslu, - og -telja menn að ekki
hafi komið eins langvinnur harð-
indakafli sl. þrjátíu ár. 1 Norð-
ursýslunni hefur fé staðið á gjöf
fullan mánuð. Snjór er mikill og
jafnfallinn. Samgöngur á landi
eru mjög erfiðar, því að vegir eru
ófærir með öllu. Hefur reynzt
erfitt að koma fóðurbæti til
bænda frá Kópaskeri.
Sigvaldi Þorsteinsson
kaupmaður látinn
Síðastl. föstudag andaðist ai
heimili sínu í Ordrup í Danmöi'I
Sigvaldi E. S. Þorsteinsson, kaup-
maður, 77 ára að aldri. Sigvald
Þorsteinsson dvaldi mestan hlutí
ævinnar hér á Akureyri og ral
hér verzlun um langan aldur
sem kunnugt er. Líkami han:
verður brendur og askan verðui
síðan flutt hingað til Akureyrar
til greftrunar.
íbúð,
tvö til þrjú herbcrgi og eld-
hús, óskast til leigu nú þeg-
ar eða í vor.
GEIR S. BJÖRNSSON.
Símar: 1945 og 1370.
Snjókeðjur
teknar upp í dag.
Bílasalan h.f.