Dagur - 24.01.1951, Blaðsíða 7

Dagur - 24.01.1951, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 24. janúar 1951 D A G U R 7 SIGURÐUR RINGSTED í Sigtúni UR BÆ OG BYGGÐ „Að heilsast og kveðjast hér um fáa daga, að hryggjast og gleðjast, það er lífsins saga.“ Oft finnst manni ótrúlega skammt milli lífs og dauða. í dag hittast tveir vinir og gleðjast, — á morgun stendur annar yfir and- vana líki hins. Ekki grunaði mig, er Sigurður Ringsted kvaddi mig, 30. nóvem- ber s. 1. með sínu hlýja handtaki, brosmildur og spaugandi, að hann myndi fáum klukkustundum síð- ar verða liðið lík. — En þann- ig verður ætíð óráðin gátan um lífið og dauðann, og líklega er það ein mesta gæfa mannanna. l'.g ætla mér ekki þá dul að skrifa eftirmæli um Sigurð Ring- sted. Til þess er ég enginn maður, en mig langar að leggja lítið blað við leiði horfins vinar og heiðurs- I manns. Hér starfaði með okkur óvenju fjölhæfur og heilsteyptur maður, drenglyndur, traustur og trúr og hvers manns hugljúfi. Allir sem til þekktu minnast hins hógværa glaðlyndis og spaugs hans, sem hreif bæði unga og gamla. Alls staðar þar sem Sigurður kom var gleði og fjör fallega og prúðmann- lega fram sett. Sigurður var formaður á bát- um og stýrimaður um margra ára skeið, og aflamaður og sjómaður ágætur, enda skorti ekki áræði, athygli né hagsýni. Mun hann oft hafa komizt í krappan dans við Ægi, en jafnan bar hann sigur úr bítum. Hef ég aldrei heyrt, að hlekkzt hafi á bát eða skipi, sem hann stjórnaði. Sigurður var sela- og hnýsu- skytta með afbrigðum svo víða fór orð af, enda þótti ungum mönnum fýsilegt að fá skiprúm hjá honum á hinum svo kölluðu selatúrum, hér á árum áður. Var þá oft björgulegt í bát, þegar komið var heim. Sjómannslífið var Sigurði í blóð borið, — að þreyta fang við Ægi og sigra, með sívökulu auga og styrkri hönd, það var hans yndi, og þó aldurinn færðist yfir og líkamsþrekið farið að bila, var hann samt hinn sterki og trausti, sem allir báru traust til. Sigurður eignaðist hina ágæt- ustu konu, Guðríði Gunnarsdótt- ur, systur hinna alkunnu Höfða- bræðra yngri. Heimili þeirra var rómað fyrir gestrisni, menningar- og myndarbrag. Þau eignuðust myndai'leg og mannvænleg börn, en elzta son sínn, Guðmund, misstu þau uppkominn. Var þeim mikill harmur að sjá á bak hin- um unga og efnilega manni, sem lífið virtist brosa við, því Guð- mundur sálugi var hvers manns hugljúfi, framsækinn og dugleg- ur. Sigurður og Guðríður voru hluttakendur í útgerð þeirri er þeir Höfðabræður ráku, ásamt venzlafólki sínu frá Kljáströnd. Var þá björgulegt um að litast á þessum slóðum, og mikið at- hafnalíf, þar sem margt fólk hafði atvinnu sína. Við Höfða- stekk var þá talið ágætasta báta- lægi. En smám saman dróst út- gerðin saman. Athafnamennirn- ir voru kallaðir til annarrar veru, hinum megin við tjaldið, eða fluttu burtu, en Fnjóská fyllti smátt og smátt hina góðu höfn á Höfðastekk, með framburði sín- um, svo nú eru orðin sandrif, og grynningar þar sem áður var fært allstórum bátum. Útgerðin hélt þó áfram éPn um skeið á Kljá- strönd, þó sandrifið stækkaði ár frá ári. Voru það einkum tveir mótorbátar sem haldið var út þaðan eftir að útgerðin lagðist niður á Höfðastekk og áttu þeir mágar Sigurður og Ólafur Gunn- arsson annan. En að lokum voru bátarnir seldir, húsin rifin en náttúruöflin halda áfram að afmá öll merki um athafnir fólksins á þessum stöðum. En alltaf héldu þeir mágar, Sigurður og Ólafur, tryggð við Ströndina sína, og bjuggu í gamla Sigtúni ásamt fjölskyldum sínum. Hefir líklega verið fábreytilegt á stundum nú á síðari árum eftir að börnin voru farin að heiman, en því ánægju- legra, þegar þau komu heim, er þau áttu frí frá störfum eða skól- um, því alltaf halda þau tryggð við gamla æskuheimilið. Þarna lifðu og störfuðu tvær fjölskyldur sem ein, og börn beggja eins og einn systkinahóp- ur — fagur vottur um heilsteypt og traust sálarlíf og mun Sigurð- ur vissulega hafa átt sinn þátt þar um. Starf Sigurðar var víðar en á sjónum. í fjöldamörg ár gegndi hann ábyrgðarmiklu starfi fyrir sveit sína sem gjaldkeri Spari- sjóðs Höfðhverfinga. Starf þetta rækti hann af sérstakri trú og skyldurækni, og átti þó við erfið skilyrði að búa, nú á síðari ár- um, þar sem Sparisjóðurinn var fjarri heimili hans, og því erfiða leið að fara í vetrarhörkum og hríð. En tryggðin við starfið yfir- steig alla erfiðleika, því ekki voru launin freistandi, enda var Sig- urður einn þeirra manna, sem vinna af trú en ekki vegna pen- inga. Og svo kemur hinzta gangan í þágu skyldunnar. Aldurhniginn maður leggur frá heimili sínu í ljótu útliti, um hávetur og vondu færi til að gegna skyldustarfinu. Og þegar starfinu er lokið, get- ur enginn aftrað honum frá að fara heim aftur, þrátt fyrir það þótt þá sé komið eitt þeirra verstu veðra, sem íslenzkur vetur hefir uppá að bjóða. Nei, heim skal halda — heim í gamla Sigtún þar sem hann fann hamingjuna við hlið elskulegrar konu og barna. Enginn veit baráttu hins reynda og prúða manns við veðurofsann. Líklega hefur dauðinn komið allt í einu eins og mildur og góður vin ur; þegar þrekið, sem aldrei bliaði áður, var þrotið. — Lítinn spöl frá góða gamla heimilinu finna leitarmenn hann örendan. Var hann þá sýnilega á réttri leið, er kraftarnir þrutu. Á sinni síðustu göngu hélt hann stefnunni heim. Við, sem eftir lifum, þökkum NYKOMIÐ! Soyabaunir Heilhveiti Flórsykur Kaffi, óbrennt Kartöflumjöl Púðursykur, Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvdrudeildin og útibú. Harðiiskur, barinn, ópakkaður, ávallt fyrirliggjandi. Kaupfélag Eyfirðinga Nýlenduvörudeild og útibú. Súpujurtir nýkomnar. Kjötbúð KEA Húfur Enskar húfur Skíðahúfur Skinnhúfur Vefnaðarvörudeild Undirföt Náttkiólar Nærföt Vefnaðarvörudeild — Stjórnarstefnan og vöruskorturinn. . . . (Framhald af 2. síðu). En það er ekki nægilegt að auka sparnað á rekstri þjóðarbúsins, þótt það sé nauðsynlegt, ekki sízt vegna fordæmis fyrir alþjóð, einnig verður almenningur að taka höndum saman um sparnað, til þess að eyða vöruskorti. Þá er hin hlið málsins, að auka 1 hvers konar afköst, bæði til að fullnægja inlendum markaði, sem er beinn gjaldeyrissparnaður, og til að selja meiri verðmæti úr landi til að auka heinar gjaldeyr- istekjur. Það er leiðin til að þola afnám Marshallhjálpaiinnar, án þess að algjör vöruskortur haldi innreið sína. störfin hans — þökkum fyrir góð- an dreng og biðjum þess að ljós minninganna megi lýsa og fegra ófarna ævidaga eiginkonu hans, þar til þau aftur hittast á æðra lífssviði. Sveitungi Frá Sjúkrahúsi Akureyrar. — I Fyrirspurnum um líðan sjúklinga er svarað í síma 1031 kl. 10—111 árd. og 7—7.30 síðd. Fíladelfía. Samkomur verða haldnar í Verzlunarmannahús- inu, Gránufélagsgötu 9 (neðri hæo). sunnudaga kl. 8.30 e. h.: Almenn samkoma. — Fimmtu- daga kl. 8.30 e. h.: Almenn sam- koma. Allir velkomnir. — Og sunnudagakóli hvern sunnudag kl. 1.30 e. h. Öll börn velkomin. Hjónaefni. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína ungfrú Jó- hanna Pálmadóttir, skrifstofu- stúlka S. A., og Matthías Einars- son á togaranum Svalbak. Brúðkaup. Þann 19. jan. síðastl. voru gefin saman í hjónaband ungfrú Heiður Jóhannesdóttir og Áki Sigurðsson, bílaviðgerðar- maður. — Brúðkaupið fór fram á heimili þeirra, Ægisgötu 8, Ak- ureyri. Sjónarhæð. Sunnudagaskóli kl. - og almenn samkomá kl. 5 á sunnudagum. Allir velkomnir. Æskulýðssamkoma, sem ungt fólk annast, verður að Sjónarhæð n.k. laugardagskvöld kl. 8.30. — Öllu ungu fólki hjartanlega boðið að heyra vitnisburðinn um Krist. Látinn er að Stóru-Hámundar- stöðum á Árskógsströnd Davíð Sigurðsson fyrrum hreppstjóri, á 79. aldursári. Hann andáðist 21. þ. m. Látin er hér í bæ frú Fríðrika F r iðriksdóttir verzl unarst j óri, eftir langvarandi ■ vanheilsu. Frú Friðrika var ötull og hagsýnn verzlunarstjóri og vel látin af öll- um, er henni kynntust. Fimmtugur varð sl. sunnudag Jónas Thordarsen bókari hjá KEA. Sjötugur varð sl. mánudag Benedikt Steingrímsson, hafnar- vörður. Látinn er hér í bænum Stein- dór Jóhannesson, járnsmiður, Strandgötu 51, kunnur borgari og mikils metinn iðnaðarmaður. — Hann verður jarðsunginn næstk. laugardag. Vinningar í happdrætti Guð- spekifélags íslands, er dregið var í 20. des. 1950. — 1. 4104. — 2. 1148. — 3. 3547. — 4. 3648. — 5. 400. — 6. 122. — 7. 3654. — 8. 265. — 9. 782. — 10. 1071. — 11. 503, — 12. 1930. — 13. 1943. — 14. 4549 I. O. G. T. — Stúkan ísafold- Fjallkonan heldur fund næstk. mánudagskvöld, 29. jan., kl. 8.30 síðd. — Fundarefni: Inntaka nýrra félaga. — Skýrslur emb- ættismanna. — Vígsla embætits- manna. — Ymis mál. — Til skemmtunar: Þættir úr bæjarlíf- inu, samfelld dagskrá o. fl. Nán- ar auglýst á götunum. Félagar, vanrækið ekki að koma á fund- inn. Nýir félagar alltaf velkomn- ir. I. O. O. F. — Rbst. 2 Au. 99124314 —. Messað kl. 2 e. li. í Glerárþorpi og kl. 5 e. h. í Akureyrarkirkju. Dagur Biblíufélagsins. — (P. S.). Sunnudaga- skóli Akur- eyrarkirkju er á sunnu- daginn kemur kl. 10.30 f. h. — 5—6 ára börn í kapellunni, 7—13 ára börn í kirkjunni. — Bekkjarstjórar, mætið kl. 10. — Munið efíir að fá bibl íumy ndabækurnar. Æskulýðsfélag nC) Akureyrar- kirkju. — Mið- deild, f undur n. k. sunnud., 28. janúar, kl. 8.30 e. h. — Lyngbúar. Áheit á Strandarkirkju. Kr. 10 fi'á ónefndum. tÁrshátíð félagsins vei'ður nð Hótel KEA laugai'daginn 27. janú- ar n.k. kl. 8.30 e. h. — Áskriftai'listi liggur frammi í Bókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f. til föstudags 26. janúar. Áheit á Akureyrarkirkju. Kr. 100.00 frá J. Á. og kr. 25.00 frá sjómanni. Þakkir Á. R. Zíon. Samkomur næstu viku. Sunnudaginn kl. 10.30 f. h.: Sunnudagaskóli. KI. 2 e. h.: Drengjafundur (eldri deild). Kl. 5.30 e. h.: Drengjafundur (yngfi deild). Kl. 8.30 e. h.: Almenn samkoma. — Þi'iðjud. kl. 5.30 e. h.: Fundur fyrir telpur 7—13 ára. — Miðvikudag kl. 8.30 e. h.: Biblíulestui'. — Fimmtudag kl. 8.30 e. h.: Fundur fyrir ungar stúlkui'. MÓÐIR, KONA, MEYJA. (Fx-amhald af 4. síðu). og hugtökum viðskiptalífsins um kaup og sölu. Rétt verður að teljast að leyfa börnunum að taka að sér fyrir peninga þau verk í heimilinu, sem annars hefði þurft að kaupa utan að komandi vmnuafl til að vinna.“ Höfundur nefnir síðan nokkur verkefni og segir síðan, að jafn- framt því, sem við greiðum barn- inu fyrir unnið vei'k, vei'ðum við að krefjast sömu nákvæmni og stundvísi af því og áður var ki'af- izt fyrir sömu greiðslu. „Að greiða barni minna en öðrum fyrir sömu afköst, er lítilfjörleg gróðatilraun.“ Foreldrar! Skrifið kvennadálk- inum um reynslu ykkar í þessum efnum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.