Dagur - 14.02.1951, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 14. febrúar 1951
DAGUR
7
9<BSÖÚ<BS<BSÚtt<B5<HStStttt<BSftiSÚttiSÚÚÚ<HS«iS<BSiStS<BS<B5ÍBS)S<BSSBS<K
Stúlka
Vefnaðarvörur
Vöiujöfnun á vefnaðarvörum til félagsmanna vorra
í Akureyrardeild, gegn vörujöfnunarmiða 1950—1951,
reitur nr. 9, verður hagað þannig, meðan birgðir endast:
Mánudagur 19. febrúar, fél. nr. 1—140:
Kl. 9-10 nr. 1-20, kl. 10-11 nr. 21-40, kl. 11-12
nr. 41-60, kl. 14-15 nr. 61-80, kl. 15-16 nr. 81-100,
kl. 16-17 nr. 101-120, kl. 17-18 kl. 121-140.
Þriðjudagur 20. februar, fél. nr. 141—280: ■
Kl. 9-10 nr. 141-160, kl. 10-ll nr. 161-180, kl.
11-12 nr. 181-200, kl. 14-15 nr. 201-220, kl. 15-
16 nr. 221-240, kl. 16-17 nr. 241-260, kl. 17-18
261-280.
Miðvikudagur 21. febrúar, fél. nr. 281—420:
Kl. 9-10 nr. 281-500, kl. 10-11 nr. 501-320, kl.
11-12 nr. 321-340, kl. 14—15 nr. 341-360, kl. 15
-16 nr, 361-380, kl. 16-17 nr. 381-400, kl. 17—18
nr. 401-420.
Fimmtudaginn 22. febrúar, fél. nr. 421—560:
Kl. 9-10 nr. 421-440, kl. 10-11 nr. 441-460, kl.
11-12 nr. 461-480, kl. 14-15 nr. 481-500, kl. 15-
16 nr. 501-520, kl. 16-17 nr. 521-540, kl. 17-18
nr. 541-560.
Föstudagur 23. febrúar, fél. nr. 561—700:
Kl. 9-10 nr. 561-580, kl. 10-11 nr. 581-600, kl.
11-12 nr. 601-620, kl. 14—15 621-640, kl. 15-16
nr. 641-660, kl. 16-17 nr. 661-680, ld. 17-18 nr.
681-700.
Laugardagur 24. febr., fél. nr. 701—800:
Kl. 9-10 nr. 701-720, kl. 10-11 nr. 721-740, kl.
11-12 nr. 741-760, kl. 14—15 nr. 761-780, kl. 15-
16 nr. 781—800.
Önnur.félagsnúmer auglýst síðar.
Góðfúslega lvomið með umbúðir.
Vefnaðarvörudeild.
fcHStStKBSmWHStStStKHStStKHKHWSmStStSÚtKBStKK^^
Á mámidag:
Vandaðar, svartar KVEN-
KÁPUR, stærðir nr. 40, 42,
44 og 46.
Einnig víðir PEYSUFATA-
FRAKKAR, nr. 44.
Verzlun B. Laxdal.
Strigaskór
hvítur, með doppum, hefur
tapazt á leiðinni Bjarkastíg
—H afnarstræti. Vinsamleg-
ast skilist á afgr. Dags.
íslenzkir flókaskór
Skíðaskór
Skautaskór
Verkamannaskór
Skóbúð KEA
- Fokdreifar
(Framhgld af 4. síðu).
Einkennilegur fréttaflutningur.
FORSTJÓRI Vinnumiðlunar
skrifstofunnar hér er einnig
fréttaritari Alþýðublaðsins, Nú
um skeið hefur blað þetta birt
alleinkennilegar fréttir héðan frá
Akureyri frá þessum heimildar-
manni. A. m. k. tvisvar hefur
verið frá því skýrt, að nær því
„algert atvinnuleysi" væri hér á
Akureyri, nú síðast í sambandi
við þá frétt að 84 menn hafi verið
skráðir atvinnulausir hér á
Vinnumiðlunarskrifstofunni. Aft-
an í fréttina um skráninguna
hnýtti fréttaritarinn þeim upp-
lýsingum, að nær því algert at-
vinnuleysi væri hér, eftir að vera
búinn að segja að 84 væru at-
vinnulausir í 7000 manna bæ! —
Þetta er í meira lagi skrítin
fréttastarfsemi. Hvaða málstaður
uppsker ávöxt þeirrar iðju, að
ségja atvinnuástandið allt marg-
falt lakara en það er? Eða eru
menn hættir að skilja hvað orðið
atvinna merkir?
óskast frá 1. marz til 14.
maí.
Upplýsingar í síma 1437.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
2 vanar
línustúlkur
vantar við mótorbát. Gott
kaup.
Afgr. vísar :.
Tökum að okkur
hreingerningar og glugga-
hreinsun. — Leggjum til
fyrsta flokks efni og áhöld.
Vanir menn.
Sími 1959 kl. 4-7.
Rafha-ísskápur
til sölu. — Tilboð, merkt:
ísskápur, Jeggist inn á afgr.
Dags fyrir næstk. mánudag.
Fundið
Sonur minn fann 30. jan.
s. 1. vandað armbandsúr
-kárlm.) í óvanalegum um-
búðum. — Réttur eigandi
gefi sig fram ög gefi ná
nákvæma lýsingu á því
týnda, og sanni eignarheim-
ild sína, nú þegar.
Jón Antonsson.
Ráðskona
óskast. Lítið heimili.
Afgr. vísar á.
Stúlka óskast
til heimilisstarfa stuttan
tíma. — Upplýsingar í Eiðs
vallagötu 7, að austan.
Sími 1127.
Sníð
alls konar barnafatnað úr
gömlum og nýjum efnum.
Upplýsingar í Klapparstíg
5 (niðri).
Herbergi
Ungan, reglusaman mann
vantar herbergi nú þegar.
Afgr. vísar á.
Verzlunarpláss
Smáverzlunarpláss, á góð
um stað í bænum, til sölu
Afgr. vísar á.
Kirkjan. Messað á Akureyri kl.
2 e. h. — F. J. R.
Elliheimilið í Skjaldarvík vott-
ar hér með kvenfélaginu „Fram-
tíðin“ á Akureyri innilegustu
sakkir fyrir vinsamlega heim-
sókn og skemmtisamkomu með
fullkomnustu veitingum sl. laug-
ardag. Þetta þökkum við öll
hjartanlega og óskum félaginu
allra heilla. — F. h. Elliheimilis-
ins í Skjaldarvík. Stefán Jóns-
son.
Fimmtugur varð hinn 7. þ. m.
Sigurður Vilhjálmsson bóndi á
Brautarhóli, Svalbarðsströnd.
Morgunbláðið sagði frá því
með stórum fyrirsögnum nú á
dögunum, að það hefði verið
„nýr nýsköpunartogari“ frái
Þýzkalandi, sem strandaði við
Reykjanes fyrir nolckru. Af
þessu má ráða að Þjóðverjar
hafi líka átt sína nýsköpunar-
stjórn. En er þörf á að tala um
nýja „nýsköpun“ og er elcki
„nýsköpunar“skrafið allt komið
út í öfgar? Orðið er ljótt og í
rauninni endileysa.
Fíladelfía. Samkomur verða
haldnar í Verzlunarmannahús-
inu, Gránufélagsgötu 9 (neðri
hæð), sunnudaga kl. 8.30 e.'h.:
Alrnenn samkoma. — Fimmtu-
daga kl. 8.30 e. h.: Almenn sam-
koma. Allir velkomnir. — Og
sunnudagákólí hvern sunnudag
kl. 1.30 e. h. Öll börn velkomin.
Sjónarhæð. Sunnudagaskóli kl.
1 á sunnudögum. Álmenn sam-
koma kl. 5. Allir innilega vel-
komnir.
Æskan kallar: Ungt fólk ann-
ast samkomuna n.k. laugardags-
kvöld kl. 8.30 á Sjónarhæð. —
Unga fólkinu í bænum boðið að
koma. Alltaf mikilf söngur,, ,Vel-
komin!
I. O. G. T. Stúkan ísáfóld-
Fjallkonan nr. 1 heldur fund n.k.
mánudag, 19. febrúar, kl. 8.30 e.
h. í Skjaldborg. — DagSkrá:
Venjuleg fundarátörf. — Inntaka
nýira félaga. — Ymis félagsmál.
— Stutt erindi (E. K.). — Fram-
sóknarvist á eftir fundi. — Félag-
ar ei'u beðni ráð fjolménna. Nýir
félagar álltaf vélkomnir. Hafið
með ykkur spil.
Tímaritið Samvinnan, janúar-
hefti, er nýlega komið út. Með
þessu hefti verður sú breyting á
högum ritsins, að það flytur aftur
til Reykjavíkur frá Akureyri, þar
sem það hefur verið gefið út und-
anfarin fjögur ár undir Titstjórn
Hauks Snorrasonar, og tekur
Benedikt Gröndal, blaðamaður,
nú við ritstjórn þess.
Með þessu hefti hefst 45. ár-
gangur Samvinnunnar og hafa
verið gerðar á ritinu ýmsar út
litsbreytingar, en það verður
áfram í sama broti og kemur út
mánaðarlega.
Efni hins nýútkomna heftis er
meðal annars: Forsíðumynd af
Snorralíkneski Vigelands; rit-
stjórnargrein „Vopn, sem ekki
bíta“; grein um bændaför Ey-
firðinga 1950; smásaga eftir
Kathrine Mansfield; grein um
áburðarverksmiðjuna; um tví-
höfða kálf í Danmörku; heim-
sókn í sænskán samvinnugarð
eftir Guðmund Daníelsson, rit-
höfund; greinin Stríð eða frið-
ur 1951; Hugleiðingar um eld-
húsið; grein um Dwight D. Eis-
enhower; greinin Litið um öxl
■um miðja öld, og auk þess fréttir,
smælki og fleira. Samvinnan er
nú prentuð í Prentsmiðjunni
Eddu.
1. Ö. O. F. — Enginn spilafundur
í kvöld.
lé'éé'
Af A
Æskulýðsfélag
Akureyrár-
kirkju. Yngsta
deild: Fundur
n k. sunnudag
kl. 10.30 f. h.
Ljósberar. — Elzta deild, fundur
n.k. sunnuagdskvöld kl. 8.30 e. h.
— Gullbráarsveitin.
■Guðspekistúkan „Systkinahand-
ið“ heldur fund á venjulegum
stað þriðjudaginn 20. febrúar n.k.
Erindi: Karma (Eiríkur Sigurðs-
son). Kaffidi-ýkkj'a.
Föstuhugleiðing verður á
hverju miðvikudagskvöldi í Zíon
kl. 8.30. Takið passíusálmana
með. Séra Jóhann Hlíðar talar.
Allir velkomnir.
Zíon. Samkomur næstu viku.
Sunnudaginn kl. 10.30 f. h.:
Drengjafundur (eldri deild). Kl.
5,30 e. h.: Drengjafundur (yngiú
deild). Kl. 8.30 e. h.: Almenn
samkoma. — Þriðjud. kl. 8.30 e.
h.: Fundur fyrir telpur 7—13 ára.
Fimmtud. kl. 8.30: Fundur
fyrir ungar stúlkur.
Barnastúkan „Samúð“ nr. 102
heldur fund í Skjaldborg sunnu-
daginn 18. febrúar n.k. kl. 10 f. h.
Inntaka nýrra félaga. Framhalds-
sagan. Leiksýning o. fl.
Hjúskapur. Sunnudaginn 11.
febr. voru gefin saman í hjóna-
band ungfrú Rósfríður Kristín
Vilhjálmsdóttir, Akureyri, og
Hörður Garðarsson, Halldórs-
sonar oddvita á Rifkelsstöðum.
Vígslubiskup, séra Friðrik J.
Rafnar, gaf brúðhjónin saman.
Barnastúkan „Sakleysið" held-
ur fund í Skjaldborg næstkom-
andi sunnudag, 18. þ. m., kl. 1 e.
h. — nntaka nýrra félaga. — Til
skemmtunar verður upplestur,
söngur, leiksýning o. fl. — Kom-
ið á fund, mætið stundvíslega.
Gjáfir og áheit, sem borizt hafa
á árinu 1950 til nýrrar kirkju-
byggingar í Dalvík: Gjöf frá Ey-
vöru Stefánsdóttur kr. 30.00. —
Gjöf 'frá Tngigerði Jóhannsdótt-
ur, Torfnesi, tíl minningar um
Ingibjörgu Antonsdóttur, Dalvík,
kl. 300.00. — Áheit frá ónefndum
kr. 100.00. — Beztu þakkir. Söfn-
unarnefndin.
I sl. viku hófst útvarpsdag-
skráin svona eitt kvöldið:
Útvarp Reykjavík, dagskráin
hefst með því að leikinn verð-
ur harmonikkuvals, en síðan
sagðar þingfréttir!
Áheit á Strandarkirkju. Kr.
100.00 frá E. S. Mótt. á afgr.
Dags.
Frá Heimilisiðnaðafél. Norð-
urlands. N.k. sunnudag, 18. febr.,
verður höfð sýning frá sauma-
námskeiði félagsins og bókbands-
námskeiðinu, í Brokkugötu 3, frá
kl. 4—7 síðdegis. — Ráðgert er að
halda námskeiðunum áfram í
næstu viku, frá 23. febr. — Um-
sóknir í síma 1488.
Kvennadeild Slysavarnafélags
ÍSlands á Ákureýri héfur borizt
minningargjöf, kr. 2000.00. Er
hún til minningar um hjónin
Kristínu Magnúsdóttur og Jón
Gíslason bónda í Grímsgerði í
Fnjóskadal. Gjöf þessi er gefin af
börnum þeirra. Ætlast er til að
með gjöf þessari sé myndaður
sjóður, sem á sínum tíma verði
varið til kaupa á björgunarflug-
vél fyrir Norðurland og hafi hún
aðsetur á Akureyri. — Með
þökkum móttekið. Stjórnin