Dagur - 03.05.1951, Blaðsíða 2
2
D A G U R
Fimmtudaginn 3. maí 1951
Orygg*
Viðsjár miklar eru nú um gjör-
vallan heim. Það verður að teljast
tvísýnt, hvort friðaröflin'og hinar
frjálsu þjóðir heims standast of-
beldisárásir og friðrof einræðis-
ins, sem nú kemur fram í tvö-
földum styrkleika, miðað við ein-
ræði Hitlers. Það er allra veðra
von og þegar barizt heiftarlega.
Enginn getur nú sagt um það með
nokkurri vissu, hvort Kóreu-
styrjöldin, brennipunktur heims-
viðburðanna, breiðist út. Þess
vegna er full ástæða til, að við
íslendingar gerum okkur ein-
hverja grein fyrir okkar eigin
aðstöðu. Við erum ekki lengur
afskekktir og óbultir, vegna
heimsdeilumálanna. Við höfum
skyndilega færst inn á vettvang
alþjóðamála.
Hinn alþjóðlegi kommúnismi
ógnar friðinum.
Það er sorgleg staðreynd, að
Sovét-Rússland, sem var eitt af
frumstofnríkjum Sameinuðu
þjóðanna, skuli nú styrkja árás-
araðila austur í Kóreu í baráttu
gegn Sameinuðu þjóðunum.
Framkoma öll og liáttsemi þessa
stórveldis á sviði alþjóðamála
hefur nú fyllilega opnað augun á
ráðamönnum hinna frjálsu þjóða,
þannig að þær hafa hafið skipu-
legar aðgerðir í þeim tilgangi að
hindra árás á þær sjálfar, árás
sem óumflýjanlega myndi leiða
til nýrrar ægilegrar heimsstyrj-
aldar.
Varnarvarzlan er bezta vömin.
Þegar ófriður hefur brotizt út,
er ekki annað fyrir hendi en að
sigra, því að hlutskipti hins
sigraða ófriðaraðila er ekki eftir-
sóknarvert. En allir, sem hafa lif-
að eina eða tvær heimsstyrjaldir,
munu af fremsta megni stuðl'a að
því að koma í veg fyrir stríð. Það
er þessi stefna, sem er ríkjandi
meðal hinna frjálsu lýðræðis-
ríkja. Og nú er svo komið, að
erfit er að standa hjá. En hvernig
er háttað aðstöðu og öryggi ís-
lands?
Norður-Atlantshafssamningur-
inn.
30. marz 1949 samþykkti Al-
þingi íslendinga þingsályktun,
þar sem ríkisstjórninni var falið
að, gerast stofnaðili fyirr íslands
hönd, að samningi Norður-Atl-
antshafsríkjanna. Og 24. ágúst
1949 gekk hann í gildi.
• Tvíþættur tilgangur.
Varnarvarzlan er merkasti
þáttur þessa sáttmála. Aðilar
hans lýsa að nýju yfir tryggð
sinni við markmið og meginregl-
ur sáttmála Sameinuðu þjóðanna
og ósk sinni um að lifa í friði við
' allar þjóðir. Þeir eru staðráðnir
í því að varðveita frelsi þjóða
sinna, ' sameiginlega arfleifð
þeirra og menningu, er hvíla á
meginreglum lýðræðis, einstakl-
ingsfrelsis, lögum og rétti. Þeir
ákváðu því með sáttmála þessum
að taka höndum saman um sam-
eiginlegar varnir og varðveizlu
friðar og öryggis.
íslands
Aðilarnir takast á hendur, svo
sem segir í sáttmála hinna Sam-
einuðu þjóða, að leysa hvers
konar milliríkja deilumál, sem
þeir kunna að lenda í, á friðsam-
legan hátt, þannig að alþjóðafriði,
öryggi og réttlæti sé eigi stofnað
í hættu, og að beita ekki hótun-
um né valdi í milliríkjaskiptum
á nokkurn þann hátt, sem ósam-
rýmanlegur er markmiðum Sam-
eihuðu þjóðanna.
í því skyni að ná betur mark-
miðum samnings þessa, munu að-
ilarnir hver um sig og í samein-
ingu, með stöðugum og virkum
eigin átökum og gagnkvæmri að-
stoð, varðveita og efla möguleika
hvers um sig og allra í senn til
þess að standast vopnaða árás.
Efnahagssamvinnan er annar
merkur þáttur þessa. sáttmála.
Aðilar hans munu gera sér far
um að komast hjá árekstrum í
efnahagslegum milliríkjavið-
skiptum sínum og hvetja til efna-
hagssamvinnu sín á milli.
Fyrirvari og sérstaða íslands.
Eins og öllum er kunnugt hafa
íslendingar mikla sgrstöðu, sem
aðili ,Norð ur - Atlantshaf ssáttmál -
aSs. Þeir hafa engan her og litla
sem enga möguleika, á _því að
koma upp her. Þeir eru fáir og
smáir, miðað við önnur þátttöku-
ríki. Þess vegna var sá fyrirvari
gerður af hálfu Islands við undir-
ritun sáttmálans, að aðstaða þess
væri þannig, að ekki væri unnt
að veita aðra aðstoð en á borð
við þá, sem veitt var í seinustu
styrjöld með hersetu erlends
setuliðs í landinu. Á friðartímum
komi slíkt eigi til.
Með aðild að Atlantshafssátt-
málanum hafa íslendingar skipað
sér í sveit hinna frjálsu lýðræðis-
þjóða. Vopnuð árás á ísland jafn-
gildir árás á England, Frakk-
land, Bandaríki Norður-Amer-
íku og aðra samningsaðila. Ef
slík vopnuð árás verður gerð á
eitthvert þátttökuríki, munu þau
í samræmi við rétt þann til eigin
varnar og sameiginlegrar varnar,
sem viðurkenndur er í sáttmála
Sameinuðu þjóðanna, aðstoða
þann aðila, sem ráðizt er á. Eng-
inn vafi er á því, að hefði Þýzka-
land vitað það, þegar innrásin
var gerð í Danmörk og Noreg í
seinasta stríði, að það hefði þýtt
þátttöku Bandaríkja Norður-
Ameríku, hefði verið hikað við
þær aðgerðir.
Hvað er að gerast í
öryggismálum þjóðarinnar?
Margir eru þeirrar skoðunar,
að algert varnarleysi landsins
kunni að vera viðsjárvert á slík-
um róstutímum og nú eru. Sein-
ustu dagar og atburðir hafa fæit
mönnum heim sanninn um, að
stórkostleg átök fara nú fram í
heiminum um stefnur og starfs-
aðferðir. Það er því vissulega
von, að alþjóð Vilj i vita og fylgj-
ast með því, ef unnt er, hvað sé
að gerast í öryggismálum lands
og þjóðar.
Norskt blað hefur það eftir
umboðsmanni Hvals h.f. í Nor-
egi, að hið íslenzka hvalveiði-
félag hafi nú sett „hina fjpra
hvalveiðibáta sína, Whale I—
IV undir íslenzkt flagg“. Blað
í Sandefjord í Noregi hefur
flutt fregn um að Hvalur h. f.
muni ekki ætla að ráða Norð-
menn til veiðanna, en hinn
norski umboðsmaður félagsins
segir í þessu bíaðaviðtali, að
þetta muni ranghermt, og
muni a. m. k. skytturnar verða
nörskar framvegis, en annars
muni Hvalur h.f. sjálfsagt vilja
nota íslenzkan vinnukraft, eft-
ir því sem við verður komið.
• eru
b b'
Höfum fyrirliggjandi:
GRÆNAR RAUNIR, lieilar
og liálfar, í dósurn, pökkum
og lausri vigt.
GULAR BAUNIR, heilar og
O
hálfar, í pökkum og lausri
vigt.
SOYJABAUNIR, í lausri
vigt.
MARROW BEANS í pk.
BABY LIMA BEANS í pk.
LENTILS, í pökkum.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlend uvöru deildi n
og útihú.
Segldúkur
Nr. 6, 7 og 8
Kaupfélag Eyfirðinga
Vefnaðarvörudeild.
vantar til að keyra mjólkurbíl úr fremri hluta
Saurbæjarhrepps, frá 1. júní n. k. til 1. júní 1952.
Tilboðuin sé skilað til stjórnar Mjólkurflutn-
ingafélags Saurbæjarhrepps fyrir 14. maí n. k.
Flutninganefndin.
Nýjar fegundir af kvenskóm!
I STUTTU MALI
Einn bæjarfulltrúum í bæn-
um Truman í Texasfylki í
Bandaríkjunum, hefur flutt
tillögu um að breyta nafni
bæjarins í Mac Arthur.
Moskvuútvarpið sagði frá
því nú fyrir nokkrum dögum,
að Rússar hefðu lokið síðustu
5 ára áætlun sinni, og sé iðn-
aðarframleiðsla landsins nú
orðin 73% meiri en hún
1940. f tilkynningu þessari var
staðfest, að mikið af þunga-
iðnaði landsins sé nú staðsett í
Síbiríu, Transkákasíu og Mið-
asíu.
Vinnubuxur
Verð írá kr. 78.00
Kaupfélag Eyfirðinga,
Vefnaðarvörudeild.
Nokkur herbergi
til leigu frá 15. maí í Hafn
arstræti 100 (Gullfoss).
Upplýsingar gefur
Þorsteinn M. Jónsson.
Mótorhjól
til sölu. — Til sýnis í kvöld
og annað kvöld.
Upplýsingar í síma 1638,
mill 8 og 9 e. h.
Bátavél
Ný Universal, 4 cylindra
bátavél, 16—24 hestöfl, ti
siilu.
Allir kvenskórnir, sem á myndinni sjást, eru
nýjar tegundir, sem verksmiðjan er nýlega
byrjuð að vinna.
Iðunnar kvenskór eru smekklegustu, sterk-
ustu en þó ódýrustu kvenskórnir, sein nú eru
til sölu á íslenzkum markaði.
Gangið í Iðunnar-skóm — það er trygging
fyrir vellíðan.
Skiimaverksmiðjan ÍÐUNN
— Skógerðin. —