Dagur - 03.05.1951, Page 8
8
Baguk
Fimmtudaginn 3. maí 1951
30 iðnnemar brautskráðir úr
Iðnskéla Akureyrar sl. föstudag
Geirs G. Þormars minnzt við skólauppsögn
4 verkalýðsfélög bæjarins hafa
ss|t upp kaupsaswiingum
frá 1. júní
Iðnskólanum á Akureyri var
slitið sl. föstudag. 30 iðnnemar —
allir úr 4. bekk skólans — stóð
ust burtfararprófið og fengu
brottfararskírteini sín afhcnt við
þetta tækifæri.
Alls höfðu 110 nemendur ver-
ið skráðir til náms í skólanum á
þessu skólaári, en 102 nemendur
þreyttu próf. Hæstar einkunnit'
hlutu þeir Kristján Árnason,
rennismiður, I. ág. 9,25, og
Blængur Grímsson, húsasmiður,
I. ág. 9,18, og voru þeir báðir í
hópi brautskráðra nemenda. —
Verðlaun fyrir bezta iðnteikn-
ingu, er gerð var í skólanum á
þessu skólaári, hlaut Ingvi Rafn
Jóhannsson, rafvirki, en viður-
Brottskráðir iðnnemar
úr Iðnskóla Akureyrar
vorið 1951
1. Blængur Grímsson, húsasm.,
I. ág. 9.18.
2. Eggert Ól. Jónsson, rifvirki,
II. 7 15. -
3. Einar Valmundsson, húsg.sm.,
II. 7.15.
4. Guðbrandur Sigurgeirsson,
húsg.sm., II. 7.05.
5. Guðjón Hreinn Daníelsson,
húsasm., I. 7.58.
6. Guðlaugur Þórhallsson,
húsasm., I. 8.19.
7. Guðm. Bjarnar Stefánsson,
bakari, III. 5.52.
8. Guðmundur Valdimarsson,
húsasm., I. 7.57.
9. Gunnar Dúi Júlíusson, mál-
ari, II. 6.73.
10. Gunnl. Búi Sveinsson, vél-
virki, II. 6.60.
11. Gunnl. Tr. Jóhannsson, raf-
vélavirki, I. 7.45.
12. Helgi Indriðason, rafvirki
(nokkur hluti prófsins tekinn
1948), III. 5.44.
13. Hörður Jörundsson, málari,
II. 6.98.
14. Ingólfur Ólafsson, klæðskeri,
I. 7.45.
15. Ingvi Rafn Jóhannsson, raf-
virki I. 8.77.
16. Jón Aðalsteinn Jóhannesson,
járnsm., 7.83.
17. Jón Eggert Hvanndal. prent-
myndasm., III. 5.80.
18. Jón Þór Haraldsson, vélvirki,
I. 8.62.
19. Kári Bragi Jónsson, prentari,
II. 6.75.
20. Kristján Árnason, rennism., I.
ág. 9.25.
21. Margrét Albertsdóttir, gull-
sm., I. 8.15.
22. Samúel Hörður Gíslason,
húsg.sm., II. 7.17.
23. Sigurður Bárðarson, bifvéla-
virki, I. 7.57.
24. Sigurður Bl. Jónsson, bakari,
III. 5.83.
25. Skúli H. Flosason, rnálari, I.
8.10.
26. Stefán Bryngeir Einarsson.
múrari, III. 5.62.
27. Stefán Stefánsson, ketil- og
plötusm., II. 6.87.
28. Svavar Jóhannesson, hús-
gagnasm., I. 8.70.
29. Svavar Ottesen, prentari, I.
8.25.
30. Þór Steinberg Pálsson, húsa-
sm., III. 5.88.
kenningu fyrir bezta fríhendis-
teikningu hlaut Hörður Jörunds-
son, málari, og luku þeir einnig
báðir burtfararprófi í þetta sinn.
Fyrra sunnudag var í skóla-
hús opin almenningi sýning á
teikningum nemenda — bæði frí-
hendisteikningum, teikniskrift,
flatarteikningum, rúmteikning-
um og iðnteikningum allra iðn-
greina.
Geirs Þormars minnzt.
í upphafi skólaslitaræðu sinnar
minntist skólastjóri Iðnskólans,
Jóhann Frímann, maklega og lof-
samlega Geirs G. Þormars, tré-
skurðarmeistara, er látizt hafði í
sjúkrahúsi í Reykjavík laust eftir
hádegi daginn áður, en Þormar
hafði um margra ára skeið kennt
um og var þar starfandi kennari,
er hann á útmánuðum í vetur
kenndi fyrst sjúkdóms þess, sem
dró hann svo skjótlega til dauða.
Naut Þormar ávallt mikilla vin-
sælda nemenda sinna og sám-
kennara.
Skíðamót Norðurlands
1951
Um næstu helgi, laugardag og
sunnudag, fer fram hér á Akur-
eyri hið fyrsta Skíðamót Norð-
lendinga. Búizt er við mjög
spennandi keppni, þar sem flest-
ir beztu skíðamenn Norðlend-
inga verða meðal þátttakenda,
svo sem ívar Stefánsson, Jónas
Ásgeirsson, Haraldur Pálsson,
Ásgrímur Stefánsson, Guðmund-
ur Árnason, og Akureyringarnir
Magnús Brynjólfsson og Guðm.
Guðmundsson.
Á laugardaginn kl. 8.30 e. h. fer
fram 4x5 km. boðganga.
Sunnudaginn kl. 10.30 f. h. held-
ur mótið áfram með svigi í C-fl.
karla og kl. 1 e. h. svig í B-fl. og
kl. 2 e. h. svig í A-fl., kl. 4 fer
fram stökk á stökkbrautinni við
Miðhúsaklappii'. Svigið mun fara
fram í brekkunni neðan við
Fálkafell. Á mánudaginn mun 18
km. ganga fara fram, brautin
hefur ekki endanlega verið
ákveðin, en mun að öllum lík-
indum fara fram í námunda við
bæinn og þannig aö sem flestum
gefist kostur á að fylgjast með
keppninni. Akureyringar eru
hvattir til að nota þetta ágæta
tækifæri til að sjá spennandi og
skemmtilega keppni.
Það er ekki endanlega ákveðið
ennþá, hve margii- utanbæjar-
kependur verða, en fullvíst er,
að keppendur koma frá Siglu-
fii'ði og Húsavík. Þá munu og
Þingeyingar utan Húsavíkur
mæta, svo og Fljótamenn úr
Skagafirði.
Látinn forvígismaður
Nýlega er látinn í Bandaríkjun-
um Arthur H. yandenberg þing-
maður, einn af forustumönnum
Repúblikana og helzti áhrifa-
maður þeirra í utanríkismálum
um langt skeið. Studdi hann
Truman forseta dyggilega í stofn-
un Marshalláætlunarinnar og
Atlantshafsbandalagsins. Vand-
enberg var áður einangrunar-
sinni, en snerist hugur á stríðs-
árunum.
Álftin í fuglatjörninni
búin að verpa!
Kristján Geirmundsson sagði
blaðinu frá því í gær, að álftin í
fuglatjörninni væri búin að verpa
og bað blaðið fyrir skilaboð til
barnanna að ónáða álftina ekki,
þar sem hún situr á egginu (það
var aðeins eitt er síðast fréttist,
en von á fleirum!) ,í hólma, er
Kristján og Finnur Árnason
gerðu í skyndi úti í tjörninni fyr-
ir hana og vörðu með vírneti til
þess að verja rottunum aðgang,
en þær sóttu mjög á hreiðrið í
fyrra. Bæjarbúar munu fylgjast
af áhuga með því, hvort álftinni
tekst að unga út í ár — í fyrra
tókst það ekki.
Aflaleysi í Húsavík
- betri liorfur til
landsins
Fréttaritari blaðsins í Húsavík
símar, að þar hafi verið hæg hláka
að undanförnu og sé jörð allvíða
komin upp og horfur betri til
landsins en áður var. Aflaleysi er
á línu á Húsavíkurbátu, en sæmi-
legur afli í botnvörpu. Kaupfélag
Þingeyinga kaupir nú hrogn af
fiskimönnum og gefur 3 kr. áætl-
unarverð fyrir kg. — A föstudag-
inn var efndu Páll H. Jónsson á
Laugum og Stefán Þ. Jónsson frá
Ondólfsstöðum til söngskemmtun-
ar í Húsavík, og var þeim félög-
um vel fagnað. Ágóðinn af sam-
komunni rennur í ferðasjóð Kan-
tötukórs Akureyrar.
Nú um mánaðamótin sögðu 4
stærstu verlýðsfélög bæjarins
upp kaup- og kjarasamningum
sínum við atvinnurekendur og
íalla samningarnir úr gildi hinn
1. júní næstk.
Þessi félög eru: Verkamanna-
félag Akureyrarkaupstaðar, Bíl-
stjórafélag Akureyrar, Iðja, félag
verksmiðjufólks og Verkakvenna
félagið Eining. Boðað hefur ver-
ið til sameiginlegs fundar stjórna
allra verklýðsfélaga bæjarins til
Barnakór Akureyrar,
en svo er nefndur skólakór barna
skólans, hélt samsöng í Samkomu-
húsinu s.l. sunnudag. Á söngskránni
voru 18 lög, bæði innlend og út-
lend, og varð hann að endurtaka
sum lögin. Kórinn hefir áður sung-
ið í vetur í sambandi við árs-
skemmtun barnanna, og því hefir
fjöldi manns heyrt hann syngja,
svo að það kann að afsaka, að
fremur var fámennt á þessum sam-
söng. En kórinn á skilið að á hann
sé hlustað, því að hann er prýði-
lega þjálfaður. Söngstjórinn, Björg-
vin Jörgensson kennari, hefir lagt
mikla áherzlu á að þjálfa raddir
barnanna og fága, sníða af misfell-
ur og fella rödd við rödd, svo að
nálega er sem allar raddir komi úr
einum og sama hálsi. Þetta er mik-
ið verk og vandasamt, reynir á
skilning, þolinmæði og smekkvísi.
En þetta má segja, að Björgvin
kennara hafi vel tekizt. Má að
vísu búast við að sumum finnist
þrótt vanta í sönginn, og raunar
ekki öruggt um, að maður sakni
hans sums staðar. En allt hitt er
þó meira um vert í barnasöng, og
börnunum mikilsvert, að raddir
þeirra séu verndaðar fyrir of mik-
illi áreynslu á þessum viðkvæma
aldri. Þetta skilur söngstjórinn, og
er það vel.
Hafi Björgvin og börnin beztu
þökk fyrir góða skemmtun.
þess að ræða „sameiginlegar að-
gerðir og samstarf félaganna í
væntanlegri kjarabaráttu," eins
og stendur í ályktun fundarboð-
enda um þetta efni, en fundur
þessi verður haldinn fyrir frum-
kvæði trúnaðarmannaráðs Verka
mannafélagsins og Bílstjóra-
félagsins.
KRON seldi fyrir
22 millj. kr.
Aðalfundi KRON í Reykjavík
er nýlega lokið. Vörusala félags-
ins varð rösklega 22 millj. króna
og hafði aukizt að krónutali um
röskar 5 millj. Tekjuafgangur á
árinu varð 197.512.83 og var hann
allur lagður í varasjóð.
Snjóa leysir ört
í Eyjafirði
Blíðviðri hefur hér um slóðir
síðustu daga og leysir snjóa ört.
Er víðast komin góð jörð og sums
staðar er orðið því sem næst autt
á stórum svæðurh. Þessi bati er
nú orðinn það mikill og lang-
vinnur, að segja má að vel sé nú
séð fram úr harðindunum.
Maður drukknar
í fyrradag ætluðu tveir menn.
að róa kringum Vestmannaeyjar
á kajökum, að gamni sínu. Er
þeir voru komnir gegnt Stór-
höfða, kom á móti vestan ylgja
og hvolfdi þá öðrum bátnum. —
Bj örgunarbelti var í honum og
náði maðurinn því, en ekki tókst
þeiin félögum að rétta bátinn eða
ausa hann. Ætlaði hinn þá að
draga manninn í björgunarbelt-
inu í land, en gat það ekki. Sneri
hann þá til lands að sækja hjálp.
Eftir 2 klst. náðu bátar frá kaup-
staðnum á slysstaðinn, en þá var
maðurinn í björgunarbeltinu lát-
inn. Hann hét Grétar Karlsson,
vélstjóri, 19 ára að aldri.
„jökulfeir4 komið hingað
f fyrrakvöld sigldi „Jökulfell“, hið nýja og vandaða frystiskip SÍS,
hér inn á höfnina. f gær losaði það timbur hér. Bæjarmönniun
virtist skinið fagurt og vel búið.