Dagur - 20.06.1951, Page 1
Akureyringar! Áskrift að
DEGI er nauðsyn fyrir hvert
heimili. Hringið í síma 1166.
Dagujr
Fimmta síðan:
Tilstandið með „lúður-
þeytara upprisunnar“,
dæmi um persónudýrk-
un kommúnista.
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 20. júní 1951
25. tbl.
Kanfötukór Akureyrar hlauf
önnur verðSaun á norræna
söngmótinu í Stokkhólmi
Ágætir blaðadómar um söng kórsins
Kantötukór Akureyrar hefur
gert landi og þ;'óð mikinn sóma
með frammistöðu sinni á norr-
æna söngmótinu í Stokkhólmi. —
Hlaut kórinn 2. verðlaun í þjóð-
laga keppninni svokölluðu, en
sænskur kór mmi hafa hlotið
fyrstu verðlaun.
Tóku margir kórar með sam-
tals mörg hundruð söngmönn-
um þátt í keppni þessari. Kórinn
söng þarna íslenzk þjóðlög undir
«tjórn Áskels Jónssonar.
Dagur íslands á norræna söng-
mótinu var þjóðhátíðardagurinn
17. júní og söng kórinn þá þætti
úr „Strengleikum“ Björgvins
Guðmundssonar í Konserthúsinu
í Stokkhólmi, undir stjórn tón-
skáldsins, og tók síðan þátt í úti-
söng á Skansinum og í Haga.
í fréttaskeyti til Dags frá
Stokkhólmi, sem sent var seint
á sunnudagskvöld, segir að
þjóðhátíðardags í%lands hafi
verið minnzt með glæsilegum
hætti af kórnum. Iilaut hann
ágætar móttökur á konseriin-
um í Konserthuset og á Stad-
ion fór fram íslandshylling við
Listdanssýnin<r hér
j v
á morgun
Listdanssýningu ætla þær Sig-
ríður Ármann, Sif Þórz og Elly
Þorláksson frá Reykjavík að hafa
hér í Samlcomuhúshinu næstk.
fimmtudagskvöld 21. þessa mán.
Listakonur þessar eru taldar
beztar í sinni grein á íslandi, og
hafa 2 þær fyrsttöldu haft dans-
sýningar hér í bænum áður við
mikið lof og góða aðsókn og eru
því bæjarbúum að góðu kunnar.
Hafa listakonurnar í hyggju að
hafa sýningar á Húsavík og ef
til vill Dalvík.
Vinsæll Húsvíkingur
sjötugur
Hinn 17. þ. m. varð Hjalti 111-
ugason, fyrrum veitingamaður í
Húsavík, sjötugur. Fjöldi manna
heimsótti hann þann dag, enda
njóla þau hjón, Ása Stefánsdóttir
frá Ondólfsstöðum og Hjalti, al-
mennra vinsælda í Húsavík og
héraðinu. Þennan dag giftu sig
tveir synir þeirra hjóna og skírð-
ur var sonarsonur þeirra, og var
þessi dagur því margíuldur há-
tíðisdagur fyrir þau.
mikinn fögnuð. Ummæli gagn-
rýnenda urn söng kórsins hal'a
verið lofsamleg. — í öðru
fréttaskeyti til blaðsins, frá
Stokkliólmi á mánudaginn,
segir, að kórinn fái afbragðs
dóma fyrir söng sinn á þjóðhá-
tíðardaginn, sé vel samsunginn
og æfður, tóngæði góð og frísk
legur og eðlilegur blær á
söngnum.
Blaðið væntir þess að geta inn-
an tíðar greint frá söngförinni, en
henni er ekki lokið þótt söng-
mótinu sé slitið og ferðast kórinn
nú um Svíþjóð og heldur hljóm-
leika. En þegar er séð, að för
kórsins verður öllum, er að henni
standa til sóma og sæmdar fyrir
land og þjóð.
Er slíkt fagnaðarefni öllum
góðum íslendingum og þo eink-
um Akureyringum, sem sam-
gleðjast forustumönnum kórsins
og söngmönnum öllum.
6000 flugferðir
Hátíðaliiildin 17. júní
samkvæmt áætlnn
Hátíðahöldin hér á þjóðhá-
tíðardaginn fóru fram sam-
kvæmt áætlun og auglýstri
dagskrá og tók fjölmenni þátt
í þeim, enda var veður gott
allan daginn, sólskin en frem-
ur kalt í veðri. Um kvöldið var
dansað á Ráðhústorgi og tók
fjöldi manna þátt í þeirri
skemmtun.
Sænskur rithöfundur
og myndatökumaður
væntanlegur hingað
Kominn er hingað til lands
sænski blaðamaðurinn og ljós-
myndarinn Jöran Forslund frá
sænska samvinnublaðinu Vi. Er
hann einn af ritstjórum þessa
stærsta og víðlesnasta vikublaðs
Svíþjóðar og kunnur maður fyrir
greinar sínar og myndir .Fors-
lund kemur hingað til að kynna
sér íslenzka samvinnustarfsemi
og skrifa um ísland fyrir Vi. —
Hann er væntanlegur hingað til
Akureyrar í næstu viku.
Akureyri-Reykjavík
á vegum Flugfélags Islands
Bæjarráð Akureyrar færir félaginu þakkir
og árnaðaróskir
49 stúdentar brautskráðir frá
Menntaskólanum á Ákureyri
Skólaslit fóru fram 17. júní
Síðastl. sunnudag var Mennta-
skólanum á Akureyri sagt upp í
hátíðasal skólans að viðstöddu
fjölmenni.
Skólameistari Þórarinn Bjtirnsson á-
varpáði samkomuna og banð sérstak-
lcga velkomna 10 ára stúdenta, sem
fjölmennt höfðtt til athafnarinnar. I’á
skýrði hann frá skólastarfinu, cr verið
hatði með svipuðu móti og undanfar-
ið. f miðskóladeild voru í!9 nemendur,
en alls í skólanum 318 nemendur. 6.5
ncmendur gengu undir landspróf, þar
af 5 utanskóla, og hltitu 33 framhalds-
einkunn. Sttidentsprófi lnkii 49, 30 úr
máladeild, en 19 úr starðlra'ðideild.
Af stúdentunum voru 16 konnr. Ha-sta
cinkunn við landspróf hlaut Gísli Sig-
freðsson, Lögmannshllð við Akureyri,
8.91, gefið eftir einkiinnasliganum 0—
10, en ha-slu einktinn við slúdentspróf
hlaut Guðm. Eggertsson, máladeild,
7.30. gelið eftir Örstedseinkunnastiga.
Að lokinni skýrsiu skólamcistara af-
hendi hann stúdentunum prófskír-
teini. cn síðan kvaddi sér hljóðs Jó-
hanncs Elíasson, lögfræðingur, og af-
hcnti skólanum að gjöf frá 10 ára stúd-
enlum málverk af frú Halldóru Ólafs-
dóttur, gert af syni hennar, örlygi Sig-
urðssyni, listmálara.
Loks ávarpaði skólameistari hina
nýju stúdenta sérstaklcga með stuttri
ra’ðu.
Skólameistarafrú Margrét Eiríks-
dóttir annaðist söngstjórn við skóla-
slitin.
I-lér fara á eftir einkunnir hinna
brautskráðu stúdenta:
-Máladeild:
Aldís Friðriksson, S.-Þing. I. 7.16
Anna M. Þórisdóttir, S.-Þing. I. 7,23
Ágúst Þorleifsson, Ef. E 6.05
Árni Sigurösson. N.-Þing. I, 6.70
Björn Jónsson, Skag. 1. 7.06
Bryndís Jakobsdóttir, Ak. I. 6.22
Guðrivundur Eggertsson. Mýr. f. 7.30
Guðrún Bjcirnsdóttir, Ak. I. 6.11
Gunnl. Tr. Skaftason, Sigluf. E 6.05
Gyða Stefánsdóltir, Rvík I. 6.17
Haraldur Bcssason. Skag. E 7.02
Helgi Hjálmsson, Rvík E 6.16
Hinrik Aðalsteinsson, Sigluf. I. 6.41
Hólmfr. Sigurðard., N.-Í>ing. I. 6.20
Ingi Helgason, Skag. I. 6.35
Ingólfur Guðmundsson, Árn. I. 6.43
Jóhanna Jónasdóttir, Ak. I. 6.79
Jón S. Arnþórsson, Ak. II. 5.59
Jón Ben. Ásmnndsson, Mýr, II. 4.86
Jón Eriðriksson, Skag. I. 6.01
Magnús Stefánsson, Mýr. I. 7.04
Margrét Eggertsdóttir, Skag. II. 5.95
Málfr. Guðmtlndsd., N.-Þing. I. 6.16
ólöf Pálsdóttir, Árn. E 6.41
Soffía Georgsdóttir, Sighif. I. 6.44
Solveig Kolheinsdóttir, Skag. I. 6.-41
Stefán Jónsson, Hún. I. 6.92
Þórunn Sigurbjörnsdóttir, Ef. 1. 6.62
Þórunn Þórarinsdóttir, Rvfk E 6.76
SI re rö fr/röideild:
Björn Þórhallsson N.-Þing. T. 7.07
Bragi Jónsson, Sigluf. I. 7.09
Guðmundur ö. Árnason, Ak. II. 5.23
Guðni Ágústsson,- Rang. I. 6.98
Gunnlaugur Björnsson, Rvik II. 5.13
Hermann Pálsson, S.-Múl. II. 5.30
Hjalti Jónasson, S.-Þing. II. 5.80
Ingi Kristinsson, S.-Þing. I. 6.29
Jóhanna Þórgeirsdóttir. Akran. II. 5.26
Knútur Bjiirnsson. Hafnarf. II. 5.91
Kristinn Sigurðsson, Kcflavík I. 6.44
Lárns Hclgason, Gullbr. I. 7.00
ölafur Björgólfsson, Rvík II. 4.54
Sigurður V. Hallsson. Ak. I. 633
Sigurður Helgason, Gullhr. I. 7.19
Solveig Arnórsdóttir, S.-Þing. 1. 6„37
Stefán Már Ingólfsson, Seyðisf. I. 6.0.3
Sverrir Hermannsson. ísaf. I. 6.32
Valgarð Björnssóii, Skag. . I. 6.00
Nú um miðjan mánuðinn fór
flugvél frá Flugfélagi fslands
6000. ferðina milli Akureyrar og
Reykjavíkur, og hefur þessa
áfanga verið minnzt bæði hér
nyrðra og í Reykjavík. M. a. hef-
ur bæjarráð Akureyrar sent
Flugfélagi íslands ávarp og
þakkað fyrir brautryðjandastarf
þess á sviði flugmálanna og hina
miklu samgöngubót, sem flugið
hefur orðið fyrir Akureyri.
Þá bauð stjórn Flugfélags ís-
lands bæjarstjórninni hér og
blaðamönnum í skemmtilega
flugferð sl. mánudagskvöld, í til-
efni þessa áfanga í flugmálunum.
Af hálfu félagsins voru í för
þessari framkvæmdastjórinn,
Orn O. Johnsen, Jóhannes
Snorrason yfirflugmaður, Hilm-
ar Sigurðsson skrifstofustjóri og
Kristinn Jónsson framkvæmda-
stjóri félagsins hér á Akureyri.
Flugstj.' var Gunnar Frederiksen.
Var flogið til Fagurhólsmýrar og
síðan austur um land og heim
aftur. Á Fagurhólsmýri þágu
gestirnir ágætar veitingar félags-
ins og þar fluttu ræður Orn Ó.
Johnsen, framkvæmdastjóri fé-
lagsins, sem minntist brautryðj-
andastarfs Akureyringa í flug-
málunum, en þeir stofnuðu Flug-
félag Akureyrar h.f., sem var
undanfari Flugfélags íslands,
Þorst. M. Jónsson, forseti bæjar-
stjórnar og settitr bæjarstjóri,
Jakob Frímannsson, fram-
kvæmdastjóri og bæjai'fulltrúi,
og Sigurður Arason bóndi á Fag-
urhólsmýri, er lýsti Oræfa-
sveitinni og minnti á atriði úr
sögu hennai'.
Varð förin skemmtileg og lær-
dómsrík fyrir norðanmennina.
Ávarp bæjarráðs.
í ávarpi bæjarráðs Akureyrar,
er það sendi Flugfélagi íslands á
þessum tímamótum, er minnt á
þýðingu flugsins fyrir þetta hér-
að og þá miklu og dýrmætu sam-
göngubót, sem orðin er með
hinni ágætu flugþjónustu. Segir
svo í ávarpinu:
„Frá örófi alda hefur mennina
dreymt um að sigrast á torfærum
láðs og lagar og svífa eins og
fuglinn fljúgandi um blá heið-
loftin. Þegar guðir norrænna
manna efndu til samkeppni um
merkasta grip allrar veraldar,
var ein dýrasta smíðin fljúgandi
göltur. Svo lengi hefur loftþráin
blundað í brjóstum mannanna.
Nú hefur draumurinn rætzt, og
við fljúgum hraðar en fuglinn um
lönd og hþf,
íslendingar eru fáir og ein-
angraðir. Vegleysur og víðátta
hafa löngum verið okkur harð-
snúinn fjötur um fót. Með braut-
ryðjandastarfi sínu hefui' Flug-
félag íslands framar öllum öðr-
um leyst þjóðina úr læðingi ein-
angrunar og fáskiptis. Öll þjóðin
fagnar undrum loftsiglinganna,
en engir hafa ríkari ástæðu til að
gleðjast yfir þeim og þakka þau
en við Norðlendingar. Ufið ís-
hafið og norrænn vetur eru harð
býlir nágrannar og varna okkur
oft vegarins um land og sjó, þeg-
ar mest á ríður.
Því færir Bæjarráð Akureyrar
og Akureyirngar allir Flugfélagi
íslands kærar þakkir á ^iessum
minjadegi .Flugvélar þess hafa
svifið sex þúsund sinnum milli
höfuðstaðarins og Akureyrar,
flutt sjúka menn, er leituðu líkn-
ar og bata, flýtt áríðandi ferðum
starfandi manna og borið farang-
ur og bréf, er mörgum urðu au-
fúsugestir.
í nafni Akureyrar þakkar bæj-
arráðið stjórn Flugfélagsins,
framkvæmdastjórn, áhöfnum
flugvélanna og starfsmönnum
öllum ómetanlegan þátt þeirra í
að skapa góðar og greiðar sam-
göngur milli bæjarins og fjar-
lægra staða.
Heilög gæfan vaki hvarvetna
yfir íslenzkum flugvélum og leiði
þær heilar heim yfir lönd og
höf.“
P<;ter Scott hrifinn af
fuglalífinu á Mývatni
Brezki fuglafræðingurinn og
listmálarinn Peter Scott, sonur
pólfarans heimskunna, dvaldi sl.
viku í Mývatnssveit við athug-
anir á fuglalífinu þar og fór hér
um bæinn á mánudaginn á suð-
urleið. Hann sagði blaðinu, að
hann teldi Mývatn einhverja dá-
samlegustu andaparadís verald-
ar og kvað dvölina þar hafa orðið
sér lærdómsríka og ógleyman-
lega. Scott hafði meðferðis
nokkrar endur, er hann fangaði
og hyggst flytja til Bretlands. —
Innan tíðar leggur hann af stað í
öræfaferð til rannsókna á lifnað-
arháttum heiðagæsarinnar ásamt
dr. Finni Guðmundssyni, og
hyggst dvelja í óbyggðum fram í
ágúst. Ætlunin er að merkja
mikið af gæsum.
Bannað að aka sjó
á göturnar!
Bæjarráð hefur lagt fyrir bæj-
arverkfræðinginn að láta fram-
vegis vökva götur bæjarins með
vatni en ekki sjó. Munu bifreiða-
eigendur fagna þessari röggsemi
bæjarráðs.