Dagur - 20.06.1951, Síða 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 20. júní 1951
Dagskrármál landbúnaðarins:
Votheysverlmn 1 gryf ju, gerðri
með jarðýtu
(Framhald).
Hér á eftir vil eg reyna að gefa
eins sanna og rétta skýrslu um
reynslu síðasta á?s eins og mér er
unnt um allt sem skiptir máli.
Eg tók fyrir nokkrum árum
síðan eyðikot til ábúðar. Hef síð-
an lagt vinhu og sparifé í undir-
búning undir búskap, og ætlaði
mér síðastliðið sumar að selja
hey til kaupa á byggingarefni.
Það tókst nokkurn veginn að
bjarga sæmilegu heyi á nýrækt-
inni og parti af gamla túninu og
koma því í geymslu á næsta bæ.
Úr því eyddi eg 7 vikum í fánýt-
ar tilraunir með að þurrka hey. í
byrjun september sá eg að það
var helber heimska að reyna að
þurrka og hugsa um heysölu og
lét jarðýtu 10. sept. moka 2 m.
djúpa og til jafnaðar 3 m. breiða
rás í malarhól. Kostnaður pr.
kýrfóður með þessari aðferð varð
innan við 30 kr. Átti þá til tals-
vert á grundum og framræstri
mýri af heyi, 2—3 vikna gömlu,
og lét það í gryjuna. Fór að slá
á nýræktinni, 2,4 ha., með orfi og
]já. Að mestu mjög grófgert,
vallarskriðið um mánaðamótin
ágúst—Æpt. Fluttr það í gryfjuna
með dráttarvélarkerru og reyndi
í hvívetna að fylgja leiðbeining-
um Breta, og gekk frá gryfjunni
24. sept., og átti þá ekki lengur
skap í mér til að eltast við
hrakningaföng á þúfnakollunum.
Votheystaðan reyndist í vetur
mjög þétt í sér, gulgræn á lit.
með veikan, súrsætan, þægilegan
keim.
Kýr átu um lengri ííma ein-
göngu vothey og varð gott af og
gátu auðsjáanlega mjólkað 11—
13 kg. á dag meðgjafarlaust. —
Kálfum var gefin nýmjólk í viku
tíma, ásamt undanrennu, lýsi,
fóðurbæti og steinefnum, og eft-
ir 14 daga vothey eftir vild og
reyndist vel.
Votheyið úr móheyjum reynd-
ist misjafnara. Þriggja vikna
gamalt hey úr votlendi, fram-
ræstu fyrir 4 árum síðan, reynd-
ist myglað til helminga, þó fannst
hrossum það étanlegt; hið
óskemmda átu kýr að mestu með
mat nú í vor og eg hef ástæðu til
að ætla, að ef eg hefði beitt sömu
vandvirkni við það eins og hitt
hefði allt orðið nothæft kúm í
harðindum, með mat. 7—14 daga
gamalt móhey á grundum reynd-
ist velverkað og betra fóður en
þurrhey af harðvellistúni, sem
tókst að hirða eftir geysimikla
fyrirhöfn, eftir mínu áliti ekki í
mjög slæmu ástandi. — Nokkrir
hestar af heyi skemmdust mest-
megnis vegna þess að eg áleit
fyrirfram að svo vildi fara og
var þess vegna ekki nógu vand-
virkur í haust og mistókst í vet-
ur. Allt þetta, bæði há og móheý,
var gras í ástandi, sem talið er
mjög örðugt að búa til sæmilegt
fóður úr. Hvað þá ef efnið hefði
verið fyrsta flokks. Aðalmótbár-
an gegn þessari aðferð vill að
h'kindum verða sú, að það sé örð-
ugt að ná votheyinu yfir vetur-
inn. Því verður bezt svarað með
að lýsa aðstöðu minni í vetur.
Áætlun mín var, sem fyrr er á
drepið, heysala og þurrheyið
komið í geymslu á næsta bæ áð-
ur en brautir gerðust ófærar
vegna vatns og umferðar, svo að
ómögulegt reyndist að koma hey
inu saman á einn stað í haust
ag hef þess vegna nú í vetur
flutt votheyið á sleða, ýmist
dregnum af hesti eða mér sjálf-
um, tveggja km. leið, og má álíta,
að það sé ekki frágangssök fyrir
sæmilega. hraustan mann tvisvar
í viku að fara dálítinn spöl, ef
þess gerist þörf vegna staðhátta,
til þess að ná í vothey, og að það
sé óþarfi mjög víða að kosta til
heygeymslu. Yfir veturinn er
verkminna og fljótlegra að stinga
vothey í gryfju og flytja 100 m.,
en stinga hey í hlöðu og láta í
poka og skríða með þá upp stiga
úr djúpri-hlöðu.
í vetur ritaði eg til dr. Robin-
son og spuroi um ýmislegt er mér
var á huldu viðvíkjandi þessari
aðferð og hann var svo vinsam-
legur 5. apríl síðastl., að leysa
úr spurningum mínum og láta
mér í té leiðbeíningar enska
landbúnaðarmólaráðuneytisins
um votheysgerð. Hann skrifaði
meðal annars, að þeir mæltu
mjög eindregið með skurðgryfjur
aðferðinni, er á vissum svæðum
hefði alveg .kami_ð j stað_ þurr-
heysverkunar og væri orðin mjög
vinsæl og dreifðist • stöðugt og
áleit það framtíðarlausn.. Þegár
eg í huga mínum reyni að melta
fróðleik .víðá að komnum um
votheysverkun, finnst mér hún
frekar auðskilin. Vanalega erú
vandamálin ekki jafn flókin óg'
erfið eíns'og áiTnars flókks „fag“--
menn vilja láta í veðri vaka og
bér 'fmnast niðurstoSuT énskrá.
bænda og vísindamanna í þjón-
ustu .þfeJrrá ReðE síiili ckjjj mjög'
frábri^ðnaiú reýnslú 'Ijölmargra
íslenzkra bænda. Oll geymsla
lífræn.na efna . byggist á því að
stöðvá niðurbiiof áamsettra' efna
í ósamsett, og í votheysverkun er
hægt að ná þéssú takmarki að
tvennum aðskildum leiðum,
drepa frumustarfsemina með
sýru. Fullkomnasta aðferðin um
þessa leið er prófessors Virtanens
með blöndu af brennisteinssýru
og saltsýru. Hin leiðin er að láta
lífsstarfssemina kafna sem fljót-
ast vegna súrefnisskorts. Bezta
aðferðin að ná þannig þessu
marki, eru gleraðir stálturnar
með nylonþaki og úttökutæki í
botninum og er grasinu hleypt í
hálfgert mauk með saxblásara.
(Framhald).
Tek að mér
að búa til, eftir pöntunum,
vei/.iumat, heita og kalda
rétti, smurt brauð, ábætis-
rétti <jg;]jess liáttar.
Hanne Þormar,
Lögbergsgötu 5.
Kvenfélagið „Iðunn“
í Hrafnagilshréppi lieldur
1) A N S L E I K í þingluisi
hreppsins laugardagnin 23.
júní, kl. 10 e. h.
Veitingar á staðnum.
Góð músík!
Vil'taka á leigu
Vör ub.íl
í 2 mánuði í sumar, til upp-
skipunar á síld við síldar-
söltunarstöð á Þórshöfn. —
Hefi vanan bilstjöra.
Guðmundur ]öru n dsson,
Sími 1645 og 1035.
í STUTTU MÁLI
MIKIL réttarhöld fara nú
framíDanmörk út af svonefnd
um „gjafabílum", en ýmsir
rnenn fengu bíla á þeim for-
sendum, að þeim hefðu verið
gefnir þeir af vinum erlendis.
Nú sannast að margir þessara
bíla voru keyptir á svörtum
markaði. Margir kunnir menn
í Danmörk hafa mátt svara til
saka í þessu efni að undan-
fömu.
★
BLAÐIÐ TELEGRAF i
Berlín skýrir frá því, að Pól-
veryar hafi nú breytt um nafn
á öllum brennivínstegundum
sínum „til þess að sanna ein-
lægan framfaravilja þjóðar-
innar“, eins og það heitir í op-
inberri tilkynningu. Nú geta
Pólverjar keypt Stalíns-
vodka, Bierut-líkjör, Molo-
toff-gin, Gottwald-koníak og
Mao-snaps!
★
RÚSSAR hafa bannað frí-
merkjaverðlista nokkurn. —
Ástæðan er, að þar er mynd
af rússnesku frímerki frá
1943, sem sýnir Stalín í félags-
skap með Roosevelt og
Churchill!
★
ERLENDIR ballettmeistarar
hafa nýlega gist Kaupmanna-
liöfn og kynnt sér danska kgl.
ballettinn. í blaðaviðtölum
hafa þeir rómað kunnátíu
Dana og sérstaklega hafa þeir
hrósað Friðbirni Björnssyni
ballett-dansara, scm nú er
orðin ein helzta „stjama“ kgl.
hallettsins.
★
SVÍAR hafa nýlega sent
nýtt frystiskip til Grænlands-
miða og á það að veiða þorsk
í botnvörpu. Gera þeir sér
miklar vonir um góða útkomu
á þessari útgerð.
★
DANIR hafa tilkynnt, að
þeir hyggist scgja upp samn-
ingnum um takmörkun fisk-
veiða í Norðursjó, frá 1946,
með því að í Ijós hafi komið
að Danir séu eina þjóðin, sem
hafi haldið samninginn og þeir
vilji ekki lengur vera „sorte-
per“. Veiðamar hafa mjög
aukizt síðan Þjóðverjar tóku
til við fiskveiðar aftur og hafa
þeir stóran flota jafnan úti, en
þeir voru ekki samningsaðilar
1946.
Brennimark
mitt er: I. Þ.
Ingimundur Þorst'einsson,
Dvergasteini,
Glæsibæjarhreppi.
Myndavél
tapaðist síðastl. sunnudag
nálægt Brekkugötu 47. —
Skilist vinsaml., gegn hind-
arlaunum, á afgr. Dags.
Jeppa-mótor
til sölu.
Sírni 1731.
Kvensloppar
Hvítir og rósóttir.
Vefnaðarvörudeild.
Nýkominn:
Skóáburður
Brúnn
Rauðnr
Svartur.
Skóbúð KEA
Nærfatnaður
kvenna og karla
Golt úrval.
Kvensloppar
Nýkomnir.
Sportskyrtur
Ódýrar.
Sængurvera-damask
Frakr. 26.15.
Ásbyrgi h.f.
Sveskjur
Döðlur
Niðursoðnir ávextir
Hafnarbúðin h.f.
Lyklakippa,
með festi, tapaðist. Vinsam-
legast skilist í Eiðsvallag. 8.
Sigtryggur Þorsleinsson.
Hálsmen
(hringur, skeifulagaður, m.
hjarta) tapaðist 17. júní frá
Sundlauginni út á íþrótta-
völl. Vinsaml. skilist, gegn
fundarlaunum, í Hlíðarg. 3.
Matborð,
úr eik (notað), ásamt stól-
um, til sölu með tækifæris-
verði.
Húsgagnavinnustofa
Haraldar I. Jónssonar,
Oddeyrargötu 19.
Sími 1793.
2 stofur til leigu
í nýju húsi. Aðgangur að
baði og síma, ef óskað er.
Aðgangur að eldhúsi getur
komið til greina.
Afgr. vísar á.
Ljáblöð
Norskir ljáir
Ljábrýni
Heykvíslar v
Garðkvíslar
Fjósrekur
Dráttarkeðjur
Hóffjaðrir.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
NAGLBÍTAR
RAFMAGNSTENGUR
KLÍPTENGUR
KLAUFHAMRAR
SKARAXIR
SLEGGJUSKÖFT
TOMMUSTOKKAR
tré og járn
HAKAR og HAKASKÖFT
RENNIBORIR
HJÓLSVEIFAR
KÚBEIN
PENSLAR
OLÍUBRÚSAR,
5,10 og 30 ltr. '
HVERFISTEINAR,
18” og 20”.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Snúningsvélar
MASSEY-HARRÍS
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Skilvindur,
75 ftr.
Stálstrokkar,
5 og 10 ltr.
Vattbotnar,
61Á”
Sendum gegn póstkröfu um
land allt.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Þeir,
sem pantað hafa hjá okkur
ljái í traktor-sláttuvélar, er
seldar voru hér 1949, vitji
Jreirra sem fyrst.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Þú, sem tókst
kvenhjólið
inni á lóðinni á Eyrar-
landsvegi 12, 17. júní,
gjörðu svo vel að skila
því þangað aftur.
Gólf klútar
nýkomnir.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvórudeild
og útibú.