Dagur - 31.10.1951, Page 1
12 SÍÐUR
Forustugreinin:
Efnahagsleg tengsl manna
við iðnaðinn — sérstaða
Akureyrar.
Sjöunda síðan:
Ýmislegt frá bæjarstjórn.
— Bréf um trygginamálin.
XXXIV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 31. október 1951
43. tbl.
Nýlega var hér í blaðinu skýrt frá því einstæða afreki unglinga í
Eyjafirði að koma upp 49 metra langri göngubrú á Eyjafjarðará
fyrir eigið fé, í frítíma sínum. Voru þarna að verki þeir Rafn og
• Jónssynir bónda Siggcirssonar í Hólum og Kristjón Oskars-
son í Hólakoti. — Myndin er af göngubrúnni.
Göngubrúin á Eyjafjarðará
75 prósenf bsfreiðafjóna vegna
évarkárni?
Tjónbætur ncnia 25 milljónum á 5 árum
Samkvæmt athugun, sem Sam-
vinnutryggingar hafa nýlega
gert, greiddit tryggingaféiögin
liér á Iandi um 25 milljónir króna
í bætur fyrir tjón á bifreiðum í
árekstrum síðastliðin fimm ár.
Athugun leiddi ennfremur í
ljós, að 75% þessara árekstra
varð af ýmsum orsökum, sem
ástæða er til að ætla, að komast
hefði mátt hjá með meiri varúð
og gætni við akstur. Hafa því
verið greiddar 18.500.000 krónur
á fimm árum vegna óvarkárni og
kæruleysis ökumanna, en auk
þess er mikið tjón á bifreiðum,
sem aldrei kom til kasta trygg-
ingafélaganna. Væri hægt að
draga úr þessum árekstrum,
mundi ekki aðeins mikil verð-
mæti, gjaldeyrir og fyrirhöfn
sparast, heldur mundu iðgjöld
bifreiðatrygginganna þá geta
lækkað verulega.
Fræðsla um tryggingastarfsemi.
Frá þessari athyglisverðu at-
hugun er skýrt í ritinu „Trygg-
ing“, sem Samvinnutryggingar
hafa gefið út, en það fjallar um
öryggis- og tryggingamál. Er það
tilgangur ritsins, sem dreift verð-
ur í stóru upplagi, að opna augu
manna fyrir auknu öryggi, og
sýna fram á, hvaða hlutverk
tryggingastarfsemi gegnir í nú-
tíma þjóðfélagi.
í ritinu er fyrst grein um stofn-
un og starf Samvinnutrygginga,
en félagið varð fimm óra á þessu
hausti, og er það nú þegar orðið
annað stærsta tryggingaféTag
landsins, en jafnframt li:3 cina,
sem starfar á samvinnugrund-
greitt 532.905 krónur í arð til
hinna tryggðu undanfarin tvö ár.
Orsakir árekstra.
Þá er í ritinu greinin um orsök
bifreiðaárekstra og eru í henni
margar fróðlegar upplýsingar, er
byggjast á reynslu bifreiðadeild-
ar félagsins, sem nú tryggir 3500
bifréiðar, eða þriðju hverju bif-
reið í landinu. Enn má nefna
greinina „Hvers vegna skyldi eg
líftryggja mig?“, þar sem rætt er
um helztu kosti og galla líftrygg-
inga og sýnt fram á þýðingu
þeirra fyrir einstaklinginn. Þá er
skýrt frá athyglisverðu máli
vegna bifreiðaáreksturs, sem
kom fyrir dómstóla hér, og er
lesandinn beðinn að dæma í mól-
inu eftir kunnáttu sinni á um-
ferðareglunum, en aftar í ritinu
er skýrt frá niðurstöðu dómstól-
anna. Þá er grein um endur-
tryggingar og skýrt frá gildi
þeirra, en þess má geta sem dæm
is, að einn nýsköpunartogari er
endurtryggður hjá 70—80 endur-
tryggjendum, og eru þessar
tryggingar flókið og alþjóðlegt
öryggiskerfi tryggingarfélaga. —
Að lokum er grein um dýrtíð og
brunatryggingar, og er þar rætt
um þörfina á því, að tryggingar-
upphæð á innbúi standi í eðli-
legu sambandi við raunverulegt
verð innbúsins á hverjum tíma,
ef tryggingin á að nægja til að
bæta tjón á því.
Rit þetta er prentað í Eddu í
þrem litum og hið snotrasta að
öllum frágangi. Samvinnutrygg-
ingar hafa áður gefið út bókina
„Oruggur akstur“ fyrir bifreiða-
velli. Hafa Samvinnutryggingar stjóra og bifreiðaeigendur.
Segja sjálfsMorð, slys, glæpi og hvers
kyiis kgahrot fara vaxandi — gera
kröfur.nm aS áfengislögimum verði
stranglega framfylgt
j IŒA eíiiir til fræðslu
l og skemmtifundar
\ á inorgiin
íj Kaupfélag Eyfirðinga held- l
I7' ur fræðslu- og skemnitifund $
fyrir félagsmenn í Akureyr- í
ardeild að Hótel KEA annað z
kvöld kl. 8.39. Þar flytur Jak- ?
ob Frímannsson forstj. ávarp, \
Ba'dvin Þ. Kristjánsson talar |
: um skattamálin, José Riba og >
I; Árni Ingimundarson leika létt 4
: ; lög og að iokum eru kvik-z
;; myndir, m. a. Sanmorræna z
samvinnukvikmyndin. — Fé- >
lagsmenn eru velkomnir á}
; fundinn, jjj
Hvassafell losar Iiér
900 lestir af kolnm
„Hvassafell“ kom hingað í gær
frá Póllandi, með kolafarm. Hér
á Akureyri losar skipið um 900
lestir, en afgang farmsins á ýms-
um höfnum norðanlands.
Ólafur Sigurðsson
læknir kominn til
bæjarins aftur
Ólafur Sigurðsson læknir opn-
ar lækningastofu hér í bænum á
ný á morgun, í Hafnarstræti 87
(áður afgr. Dags). Ólafur hefur
að undanförnu dvalið við fram-
haldsnám í Bretlandi.
Bærinn vill taka lán til
atvinnubótaf ram-
kvæmda
Um þessar mundir vinna um
70 menn hjá bænum og rafveit-
unni, en fé það, sem ætlað er til
framkvæmda er senn uppnotað,
hefur bæjari'áð ákveðið að reyna
að fá 200 þús. kr. bráðabirgðalán
til atvinnubótaframkvæmda. —
Ætlunin er að taka lán þetta upp
á fjárhagsáætlun næsta árs.
Bæjarverkstjóri sækir
um lausn frá starfi
Júníus Jónsson bæjarverkstjóri
hefur með bréfi sótt um lausn frá
starfi sínu frá næstk. áramótum.
Júníus hefur gegnt starfinu um
áratugi. Á bæjarráðsfundi var
samþykkt að auglýsa bæjarverk-
stjórastarfið laust til umsóknar
frá áramótum.
Bindindissamtökin í landinu
hafa gefið út „ávarp til þjóðar-
innar“ vegna ástands þess, sem
áfengissala ríkisins' og áfengis-
neyzla þjóðarinnar hafa’skapað,
og er þar dregin upp mynd af
ástandinu — hispurslausari og
um leið ógnarlegri en nokkru
sinni fyrr.
Fer naumast hjá því, að þetta
ávarp veki athygli allra hugsandi
manna. í því segir m. a. á þessa
leið:
Ljót lýsing.
„Áfengisaldan flæðii' um
byggðir og bæi landsins og veld-
ur víða neyðarástandi á meðal
manna.
Sökum ölvunar verða hér og
þar dauðaslys á götum bæjanna
og vegum landsins, menn
drukkna í höfnunum, finnast
liggjandi dánir hér og þar, detta
í húsum inni eða úti og bíða bana
af, sjálfsmorð eru mörg, sökum
ölvunar og óreglu, margir missa
heilsu, stöðu og eignir, alls konar
lagabrot og glæpir eru framdir af
ölvu.ðum mönnum, skemmtunum
og mannfundum er hleypt upp
af drukknum óspektalýð, og
mörg eru þau vandræði, sem
áefngisneyzlan skapar. Konur og
börn, foreldrar og aðrir ástvinir
standa ráðþrota gagnvart afleið-
ingum drykkjuskaparins, sem
er nú orðinn geigvænlegt þjóðar-
böl. — Allir landsmenn kannast
við þetta hörmungarástand.“
Stór orð.
„Ef til vill sýnir þó ekkert
betur, hvílík hyldýpis vanvirða
þetta er, en sú staðreynd, að nú
eru margár mæður á íslandi ,sem
vildu miklu fremur fylgja drengj
unum sínum til grafar, en horfa
upp á eymd þeirra og niðurlæg-
ingu, og vita það þó allir menn,
að flestar mæður elska börn sín
svo, að þær vilja öllu fyrir þau
fórna, og jafnvel lífinu, til þess að
sjá þeim borgið og geta varðveitt
líf þeirra og heilsu. Samt kjósa
þær dauða barna sinrtá fremur en
eymd áfengisneyzlunnar, svo
hatramt er slíkt böl.
Gegn þessu ófremdarástandi
verður þjóðin öll að rísa og
hrista af sér slíka vanvirðu ,og
finna hjálparráð handa þeim
möi’gu, sem hjálparþurfa eru.“
Kröfui' til ríki£-vald:ins.
„Gera verður þær skilyrðis-
lausu kröfur til ríkisstjórnar-
innar:
1. Að áfengislöggjöfinni sé
stranglega og undanbragðalaust
framfylgt, og þar með tekið fyrir
öll ólögleg vínveitingaleyfi.
2. Að lögum um meðferð ölv-
aðra manna og áfengissjúklinga
sé framfylgt, hjólparstöð sé kom-
ið upp í Reykjavík, og starfi við
hana læknar og sérstakir starfs-
men nríkis eða bæjar, er leið-
beini og aðstoði þá menn, sem
læknishjálparinnar njóta. Ríki og
bær komi tafarlaust upp drykkju
mannahælum, samkvæmt áfeng-
islöggjöfinni, og samkomulagi
þeirra á milli, svo að hjálparstöð-
in geti vistað þá menn á réttum
stað, er læknar telja að þurfi
hælisvistar.
3. Að fræðslustarfsemi um
skaðsemi áfengisneyzlunnar sé
aukin í öllum skólum og mennta-
stofnunu.m landsins, og auknir og
efldir þeir kraftar, er að bind-
indismálum vinna.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ölið.
„Véi' skorum á alla landsmenn
að snúast heilhuga til varnar
gegn voða áfengðisneyzlunnar,
áður en til enn frekari vandræða
kemur. Vér heitum á öll félaga-
samtök manna og alla dreng-
skaparmenn á meðal þjóðarinnar,
að taka höndum saman um öfluga
og markvissa sókn gegn áfengis-
neyzlu og áfengissölu, unz hvort
(Framhald á 5. síðu).
íhalclsflokkurimi
brezki lofaSi að tak-
marka fisklandanir
Úrslit brezku þingkosning-
anna í sl. viku (íhaldsfl. 321
þingsæti, Verkamannaflokk-
urinn 294, Frjálslyndi flokkur-
inn 6 og ýmsir flokkar 3) geta
orðið örlagarík fyrir fslend-
inga, ef sigurvegarinn hefst
handa um að framkvæma það
kosningaloforð sitt að tak-
marka verulega fisklandanir
erlendra skipa í brezkum
höfnum. Vonandi er þó, að
ekki verði úr slíkum aðgerð-
um og ríkisstjórn CHURC-
HILLS sýni íslendingum sömu
sanngirni og velvilja í þessum
efnum og ríkisstjórn ATT-
LEES gerði.