Dagur - 31.10.1951, Side 12
12
Daguk
Miðvikudaginn 31. október 1951
em eyja,
— segir leiðangur Paul Emile Victors
jökulliim allt að 3250 m. þykkur
Samkvæmt frásögn National-
tidende í Kaupmannahöfn sl.
miðvikudag, hefur einn vísinda-
mannanna, er tóku þátt í franska
Grænlandsleiðangrinum — undir
stjórn Paul Emile Victor — upp-
lýst, að e. t. v. sé það markverð-
asti árangur leiðangursins að
uppgötva, að Grænland sé ekki
stærsta eyja veraldar eins og
segir í landafræðikennslubókum,
heídur sé hér um þrjár eyjar að
ræða.
\UW\NAK
ÍSCORfiBy
WftO
CTRISTIAWHMT3-------».______
^HOlSTEINBORo ^NOERlböiSUAK
SuKkcrTDRpen
/tOOTWAO ^V*****™
FlSK2lnís',CT
Fredtrikshaat)
ilviQtut
AJUllANEKAAB
Na"°naiiK'lwí(APF74avEt
Teikningin sýnir hvernig Græn-
land cr skipt í þrjár eyjar skv.
kenningum Victor-leiðangursins.
Leiðangursmenn telja sig geta
sannað að gjár miklar gangi í
gegnum landið undir jöklinum
og séu 300—400 m. undir sjávar-
máli. Hér er í fyrsta lagi um að
ræða gjá, sem gengur úr Jakobs-
firði á vesturströndinni til Score-
bysunds á austúrströndinni, ca.
400 m. lægri en hafflöturinn, og í
öðru lagi aðra gjá, enn dýpri —
undir jöklinum, frá Christians-
haab til Kangerlugssak — yfir
þvert landið.
Fyrri kenningar.
í tilefni þessara fregna frá
franska leiðangrinum, sneri hið
danska blað sér til hins kunna
danska jarðfræðings Noe-Ny-
gaard (sem kunnur er hér á
landi eins og Paul Emile Victor)
og spurði um álit hans. Segir
Noe-Nygaard á þessa leið:
— Kenningin um að Grænland
sé ekki samfellt land ,er ekki ný,
en hún hefur aldrei verið sönn-
uð. í fyrri kenningum hefur ver-
ið gizkað á, að Diskó-flói væri
upphaf að einni gjánni þvert yfir
landið. Ekki vil eg að svo kcmnu
máli fullyrða neitt um sannleiks-
gildi fregnanna af uppgötvunum
Victor-leiðangursins; vafalaust
verða niðurstöðurnar birtar í bók
eða á vísindamannaþingi.
Jökulþykktin allt að 3250 m.
Paul Emile Victor er sjálfur
fyrir nokkru kominn heim til
Frakklands til þess að vinna úr
vísindalegum árangri leiðangurs-
ins, en 26 meðlimir leiðangursins
fóru nú á dögunum um Godt-
haab^ á heimleið. Leiðangurs.t
menn mældu jökulþykktina og
fundu mesta þykkt 3250 metra.
Við mælingarnar voru notuð
bergmálstæki af sömu gerð og
þau er notuð voru til mælinganna
á Vatnajökli sl. vor, og að þeim
unnu m. a. frönsku vísindamenn-
irnir, sem tóku þátt í íslenzk-
franska leiðangrinum á Vatna-
jökli, en hinn nafnkunnasti
þeirra hrapaði í gjá í Grænlands-
jökli í sumar og fórst þar.
Nýi „Þór“ í heimsókn
Nýja varðskipið „Þór“ kom hér
á mánudaginn og var hér þann
dag. Skoðaði fjöldi manna skipið
og leizt það hinn glæsilegasti far-
kostur og mikill styrkur land-
helgisgæzlunni.
1
Umskipun Mýgrjóts j
frá Grænlandi á ;
Akurevri
•/
Fyrirspurnir liafa borizt;
bæjarstjórn — m. a. með;
milligöngu danska ræðis-
mannsins hér — um viðhorf
og möguleika bæjarins til þess
að vcrða umskipunarhöfn fyr-
ir blýgrjót, er Danir hyggjast
vinna á Grænlandi á námu-
svæðum þeim, er dr. Lauge
Koch fann þar fyrir fáum ár-
um. Hugmyndin er að flytja
blýgrjótið á smáskipum til ís-
lenzkrar hafnar vegna erfiðra
liafnarskilyrða á Grænlandi,
en stór flutningaskip hlaði
síðan hér og flytji hráefnið til
kaupcnda báðum megin Atl-
antshafs. Hér virðizt um mál
að ræða, sem athuga ber vel
og ekki er ólíklegt að geti
haft atvinnulega og efnahags-
lega þýðingu fyrir bæinn. —
Vonandi verður ekki lagzt á
málið af bæjaryfirvöldunum.
Ýmis önnur bæjarfélög norð-
anlands og vestanlands munu
hafa áhuga fyrir málinu.
Enn er heslur fýndur á öræfunum
Leitarieiðangur í októberbyrjim bar ekki
árangur - getur Dýraveriidunarfélagið bjálpað?
í sept. í haust, um svipað leyti
og Stefán Steinþórsson og hans
félagar sóttu hestinn suður í
Jökuldal, fór ungur maður,
Hreinn Gunnarsson, Tjörnum í
Eyjafirði, skemmtiferð suður að
Geldingsá, þar sem sæluhúsið
„Gráni“ stendur.
Hugðist liann dvelja þar um
nóttina, en einhverra orsaka
vegna, lagði þann upp heim sam-
dægurs. Þegar hann var kominn
norður undir svonefndan Urðar-
vatnaás, ætlaði hann að hafa
hestaskipti, en grá hryssa, sem
hann reið, var lítið tamin og
stygg, spretti hann af henni
hnakknum, en gætti þess ekki, að
taka tauminn niður af makkan-
um. En á meðan hann var að
reiðtygja hitt hrossið, hljóp
hryssan frá honum út í myrkrið.
Hljóp hann á eftir henni, en náði
henni ekki, þegar hann kom til
baka á þann stað, sem hnakk-
hesturinn átti að vera, var hann
horfinn, leitaði hann um stund,
en fann hvorugt hrossanna, sneri
síðan við suður að sæluhúsinu
„Grána“ og lét þar fyrirberast
um nóttina.
Fann hnakkhestinn en hryss-an
var horfin.
Morguninn eftir leitaði hann
hrossanna, fann hnakkhestinn
norðan til á Vatnahjalla, þá á
réttum vegi norður af, taldi hann
þá miklar líkur til að Grána væri
komin heim, en svo var ekki, og
hefur ekkert til hennar spurzt
síðan, þrátt fyrir mikla leit suður
um fjallbrúnir.
Leitaö um öræfin í október.
Síðasta leitin var gerð 1.—2.
okt. Fóru þeir suður og austur á
öræfin og vestur að Geldingsá
Jón Hjálmarsson bóndi í Vill-
ingadal og Sigtryggur Aðal-
steinsson á Jórunnarstöðum, en
urðu einskis varir. Þó sáu þeir
slóð eftir einn hest liggja í aust-
urátt, framan við öll daladrög, í
stefnu á Bleiksmýrardalsbrún.
Ekki hefur enn verið ieitað til
Dýraverndunarfélagsins hér á
Akureyri, en líklega mundi það
vilja veita einhverja hjálp, t. d.
láta leita úr flugvél áður en
snjóalög leggjast yfir. Er sorglegt
til þess að vita, ef hryssan verður
hungurmorða einhvers staðar héi
á fjallabrúnunum, þegar vetrar
að.
r
Askell Snorrason
fleiri til Moskvu
o
„Menningarfulltrúar“ eru um
það bil að leggja upp héðan til
Rússlands, í ltynnisför á vegum
MÍR, hliðstæðri þeirri, sem farin
var sl. ár. í hinni nýju „sendi-
nefnd“ er Áskell Snorrason tón-
skáld hér í bæ, Jon Magnússon
fréttastjóri íslenzka ríkisútvarps-
ins, Bolli Thoroddsen verkfræð-
ingur, Sigvaldi Thordarson arki-
tekt og Arnfinnur Jónsson
barnaskólastjóri.
r
Ovíst hvort bifreiðaveFkstæðið
Þórshamar verður eeidurbyggf
Milljónatjón í bmnanum sl. fimmiudagsmorgim
Enn mun ekki lokið rannsókn
vegna ctórbrunans á bifreiöa-
verkstæöinu Þórshamri hér í bæ
sl. fimmíudagsmorgun, en ekkert
mun upplýst um eldsupptökin.
Munu raímagnsleiðslur hafa ver-
ið í góðu lagi, cnda nýlegar.
Eins líkleg skýring brunans og
hver önnur er, að innbrot hafi
verið framið í verkstæðið um
nóttina og hafi þjófar kveikt eld-
inn viljandi eða óviljandi, en allt
eru þetta ágizkanir einar.
Mikil eyðilegging.
Eldsins varð vart um kl. 5,15 á
fimmtudagsmorguninn og var
slökkviliðið þegar kallað út. En
eldurinn breyddist óðfluga út og
varð ekki við hann ráðið. Brann
þarna allt, sem brunnið gat og
féll þak hússins, en bílar, vélar,
áhöld og tæki eyðilögðust ger-
samlega. Um kl. 7 var þarna orð-
ið milljónatjón. Þegar inn í rúst-
irnar varð loksins komizt, kom í
ijós, að bókstaflega allt, sem í
verkstæðinu var, hafði eyðilagzt,
þ .á. m. 9 bílar og ein loftpressa,
mótorar margs konar og vinnu-
vélar. Svo og allur varahlutalag-
er fyrirtaekisins. Smurningsstöð
verktsæðisins, vestan aðalvinnu-
salsins, slapp þó, en er óstarfhæf,
því að mótor tengdur henni
brann.
Bílarnir óvátryggðir.
Aðeins einn bílanna, sem á
verkstæðinu voru, mun hafa ver-
ið vátryggður, bíll Ragnars
Bollasonar á Stórhamri, fyrir 40
þús. kr. hjá Samvinnutrygging-
um, og er sú upphæð þó hvergi
nærri fullar bætur fyrir bílinn.
Jón Olafss. frá Gilsá missti þarna
mjólkurfl.bíl. Steinsteypuverkst.
Akureyrar vörubíl, Samband
nautgr.ræktarfélaga Eyjafjarðar
jeppa, Norðurleið h.f. póstflutn-
ingabíl (enginn póstur var í
honum og eru sögur um það til-
hæfulausar). Loks var þarna
yfirbyggð herbifreið, skagfirzk,
og tveir fólksbílar, annan eign
Hans Þorsteinssonar BSO hér í
bæ, en hinn Vilhelm Þórhallsson,
Finnastöðum við Grenivík.
Húsið lágt tryggt.
Húsið var í skyldutryggingu
hjá Brunabótafélagi íslands, lágt
tryggt miðað við núverandi verð-
lag, en vélar, áhöld og lager
tryggt hjá Almennum trygging-
um h.f. Þetta fyrirtæki mun hafa
verið einn aðaleigandi hluta-
félagsins Þórshamars, en aðrir
hluthafar ýmsir kunnir bæjar-
menn. í stjórn eru Stefón Árna-
son, framkv.stj., Jakob Karlsson
afgr.m. og Gísli Olafsson varð-
stjóri. Framkvæmdastjóri er
Kjartan Jóhannsson.
Þórshamar var búinn ágætum
tækjum til bifreiða- og vélavið-
gerða og hafði verið lagt kapp á
Málverkasýnmg
Carðars Loftssonar
Garðar Loftsson listmálari
opnaði málverkasýningu að Hó-
tel KEA sl. laugardag og sýnir
þar 30 olíumálverk og 60 vatns-
litamyndir. Er hér um athyglis-
verða sýningu að ræða. Sýningin
er opin a. m. k. þessa viku.
að búa verkstæðið sem bezt á
síðustu árum.
Ai’t óvíst um endurhyggingu.
Fastir starfsmenn á Þórshamri
eru 21 og liafði þeim ekki verið
sagt upp í gær, en allt er í óvissu
um, hvort ráðizt verður í endur-
byggingu verkstæðisins, enda
mun langt í land að tión þetta
verði upp gert að fullu. Er hætt
við að stór hópur manna missi
atvinnu vegna brunans, og er það
eitt alvarlegt áfall.
Emi 5ÖÖ þúsimd til
nýja sjúkrahússins
Á fjárlagafrv. því fyrir árið
1952, sem lagt hefur verið fyrir
Alþingi, er gert ráð fyrir 500 þús.
kr. fjáiíramlagi ríkisins til nýja
sjúkrahússins hér, og er það
sama upphæð og í ár, en í reynd-
inni minni styrkur til spítalans
en áður, sökum vaxandi dýrtíð-
ar. Er þess að vænta að Alþingi
hækki þessa upphæð verulega.
Um þörfina á auknu sjúkrarúmi
verður ekki deilt og óhyggilegt
að láta milljónirnar, sem búið er
að festa í nýbyggingunni, öllu
lengur óarðbæra í húsi, sem að
engu gagni kemur heilbrigðis-
málum þjóðarinnar.
Heimavistarhúsið liggur
undir skemmdum.
Brynleifur Tobiasson, settur
skólameistari, segir í grein í
Mbl. í gær, að hið nýja heima-
vistarhús M. A,- liggi undir
skemmdum, ef *"ekki verður
gengið frá byggingunni að utan,
en til þess að fullgera hana mun
skorta bæði leyfi Fjárhagsráðs og
fé frá Alþingi. Skorar Brynleifur
á Alþingi að veita a. m. k. 500
þús. kr. til hússins á frjárl. 1952.
Sjötugur í fyrradag
í fyrradag varð Jón St. Melstað
bóndi á Hallgilsstöðum sjötugur.
Jón er Húnvetningur, en hefur
eytt mestum hluta ævinnar —
eftir nokkurra ára námsdvöl í
Noregi — hér í Eyjaíirði. Á Hall-
gilsstöðum hefur Jón búið lengi
og gert þar miklar uinbætur. —
Þessa ágæta bónda og síglaða
heiðui‘manns verður nánar getið
hér í biaðinu síðar.