Dagur - 27.02.1952, Page 1
Nú eru síðustu forvöð að ná
í miða í happdrætti Tímans.
Dregið á laugardag!
Kaupsýslu- og iðnaðarmenn!
Fleiri Akureyringar og Ey-
firðingar lesa auglýsingar
í Degi en í noldtru öðru
blaði.
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 27. febrúar 1952
9. tbL
Öskudaguriiin - dagur Akureyrarbarnanna er í dag
I dag eru öskudagurinn og honum fylgir sérkennilcgt hátíðahald Akureyrarbarna, að slá kötiinn úr
tunnunni, ganga síðan um göturnar í alls konar grímubúningum og syngja fyrir gesti og gangandi. —
Þessi siður mun vera kominn hingað frá Danmörk fyrir langa löngu, en mun óvíða þekkjast á íslandi
nema hér. Myndimar hér að ofan eru frá öskudeginum í fyrra. T. v. ,,par“ á Akureyrargötu, í hátíða-
klæðum, en myndin t. h. sýnir hver varð árangurinn, er einn hópurinn kom á afgreiðslu flugfélagsins
og vildi leigja flugvél með því að ekki var hægt að fara hinn venjulega leiðangur á bíl í Kristnes! Var
málinu bjargað með því að farin var skemmtiferð um PoIIinn á afgreiðslubát Flugfélags íslands. —
Nauðsynlegt að efla samgöngur á sjó
yfir vetnsrmánuðina og taka nýjum
tökum vetrarsamgöngur yfir
Vaðlaheiði
Eyfirðingar og Þingeyingar eru
nágrannar og héruð þeirra meðal
fjölmennusto- og byggilegustu
sveita Iandsins. Kaupstaðarnir
Húsavík og Akureyri eru báðir í
vexti. En meirihluta ársins eru
lítil samskipti milli þessara bæja
og héraða.
Samgöngur á sjó í milli kaup-
staðanna og á landi í milli hérað-
anna, eru gersamlega óviðunandi
og hafa alls ekki fylgt þeirri þró-
un, sem orðið hefur í saingöngu-
málum landsins yfirleitt.
Mánaðarbið.
Á þessum vetri hafa fýrirtæki
hér á Akureyri, sem þurft hafa
að koma vörum austur, getað
komið þeim frá sér að meðaltali
einu sinni í mánuði. Húsvíkingar,
sem áttu erindi að rækja hér á
Akureyri í janúar, máttu bíða frá
2. janúar til 29. janúar til þess að
fá ferð hingað. Landpóstur flytur
póst hér yfir Vaðlaheiði einu
sinni í viku að jafnaði, en vöru-
flutningar verða að fara fram á
sjó mestan hluta ársins. Vaðla-
heiði er lokuð bifreiðaumferð frá
haustdögum og fram á vor eða
sumar, enda þótt unnið sé að
snjóruðningi á vegum fyrir stórfé
í öðrum landshlutum. Þetta
ástand er til mikils óhagræðis og
tjóns fyrir íbúa héraðanna og
kaupstaðanna og er tímabært
orðið fyrir bæði héruðin að hefja
sókn að því marki, að fá einangr-
uniimi aflétt og koma á traustu
og öruggu sambandi allt árið. —
Þetta er hægt og vel framkvæm-
anlegt í öllu venjulegu árferði. En
til þess að koma bættu skipulagi
á, þarf samstillt átak af hálfu
beggja héraðanna. Vafalaust
skortir ekki áhuga fyrir málinu
meðal íbúanna, en forustuhlut-
verk ættu bæjarstjómimar hér
og í Húsavík að hafa.
(Framhald á 8. síðu).
Sparisjóður Akur-
eyrar gefur 20 þús.
til sjúkraliússins
Sparisjóður Akureyrar er 20
ára um þessar mundir, stofn-
aður af nokkrum áhugamöim-
um í bænum upp úr Sparisjóði
Norðuramtsins. — Aðalfundur
sjóðsins var haldinn sl. mánu-
dagskvöld og var þar sam-
þykkt tillaga frá stjórninni um
að sjóðurinn gæfi 20 þús. kr.
til nýja sjúkrahússins. Hagur
sjóðsins er góður, varasjóður
rösklega hálf millj. króna. —
Formaður sjóðsstjórnarinnar
frá byrjun hefur verið O. C.
Thorarensen Iyfsali hér í bæ.
LoftÍeiðir selja flugvél
til Spánar
Douglasflugvél Loftleiða h.f.
mun í dag leggja upp frá Reykja-
vík til Madrid á Spáni og er haft
fyrir satt að búið sé að selja vél-
ina þangað. Er svo að sjá af þess-
um tíðindum og öðrum úr heimi
flugmálanna, að Loftleiðir séu að
hætta öllu innanlandsflugi og
kannske allri starfrækslu?
Munið happdrætti Tímans, dreg-
ið á laugardag. Síðustu forvöð að
ná í miða. Fást á skrifstofu Dags,
hjá gjaldkeri KEA og víðar hér
í bæ og sveit. — Látið ekki happ
úr hendi sleppa!
Almenn fjársöfnnn verðnr hér í bæ
um helgina og í hverjnm hreppi í sýsl-
um Norðurlands á næstunni
Lokasóknin í bygging unýja fjórðungssjúkrahússins hér á Akur-
eyri hefst um n.k. lielgi, er gengið verður fyrir hvers manns dyr hér
í bænum með tilmælum mn að menn gefi sem svarar einu dagkaupí
til þessa mikla nauðsynjamáls eða að öðru leyti eftir efnum og
ástæðum. Sams konar tilmæli eru og send öllum Norðlendingum, og
öðrum, sem ávarpið sjá og vilja styðja málið.
Verða hreppstjórum í öllum hreppum fjórðungsins sendir fjár-
söfnunarlistar strax nú næstu daga og er þess vænst að þeir gerizt
forgöngumenn málsins og geri heyrinkunnugt ávarpið í hreppunum
og veiti því annað liðsinni.
Bygginganefnd spítalans og nokkrir aðrir stuðningsmenn þessa
máls skýrðu blaðamönnum hér frá þessum fyrirætlunum sl. mánu-
dag og hafði Guðm. Karl Pétursson yfirlæknir orð fyrir nefndinni
og greindi frá því hvar nú væri komið málum í byggingasögu spítal-
ans og nokkurt átak þyrfti til að ljúka byggingunni. Birti hann þar
og eftirfarandi
Ávarp til Norðlencliiiga
Hin nýja fjórðungssjúkrahússbygging á Akureyri er nú komin svc
langt á veg, að vonir standa til þess, að hún verði tekin í notkun.
seint á þessu ári.
Öllum má þegar ljóst vera, hvílík nauðsyn er á, að hægt verði að
flytja sjúklingana, og starfsemina fyrir þá, úr hinum gömlu, þröngu
og algjörlega ófullnægjandi vistarverum í hið nýja, veglega hús, sem
risið er ofar á brekkunni.
En til þess að svo megi verða, vantar mikið fjármagn. — Þess
vegna þarf enn nýtt og sameinað átak allra, sem geta veitt aðstoð
sína, svo að vonir manna megi rætast í þessu máli.
Margar veglegar og stórar fórnir hafa þegar verið færðar, bæði af
einstaklingum og félögum. Er ávarpi þessu ekki beint til þeirra fyrst
og ’fremst, heldur hinna, sem enn kunna að eiga eftir að koma með
sinn skerf.
Vér lítum svo á, að blessun fylgi því að fá tækifæri til þess að
leggja stein í þá b^ggingu, sem um ár og aldir á eftir að ala önn fyrir
hinum sjúku og særðu. — Þetta tækifæri er nú í höndum vorum.
Hjálpin er brýn, svo að fullgera megi hið nýja sjúkrahús. — Tak-
markið er, að það taki til starfa, áður en þetta ár er á enda runnið.
Það tekzt, ef sérhver af oss gerir skyldu sína.
Fjárhagsörðugleikar mega því ekki tefja framgang þessa aðkall-
andi máls meira en orðið er. — Framlag vort fer auðvitað eftir því,
sem hverjum finnst réttast, en vér bendum á, að ef hver vinnandi
maður legði það af mörkum, er svaracji dagkaupi af mánaðarlaunum.
sínum, myndu vonir manná ekki bregðast varðandi það, sem eftir á
að vinnast, í hinni nýju byggingu.
Á Akureyri mun verða efnt til almennrar fjársöfnunar sunnu-
daginn 2. marz næstkomandi.
Sveitarstjórnir og félög í hreppúm Norðlendingafjórðungs eru
beðin að hafa forgöngu um f jársöfnun innan síns hrepps.
Akureyri, 22. febrúar 1952,
Guðm. Karl. Pétursson, yfirlæknir. Friðrik J. Rafnar, vígslubiskup.
Pétur Sigurgeirsson, sóknarprestui'. Gunnar Jónsson, spítalaráðsm.
—- í bygginganefnd sjúkrahússins: Steinn Steinsen. Jakob Frí-
mannsson. Stefán Ág. Kristjánsson. Guðmundur Magnússon. Óskar
Gíslason. — Sigurður M. Heigason, form. Alþýðufl.fél. Ak. Jóhann
Frímann, form. Framsóknarfél. Ak. Karl Friðriksson, form. Sjálf-
stæðisfélags Akureyrar. Sigurður Róbertsson, form. Sósíalistaflokks
Akureyrar. Jón Ingimarsson, form. „Iðju“. Vigfús Þ. Jónsson, form.
Iðnrekendafél. Bjarni Halldórsson, form. Starfm.fél. Akureyrar,
Vigfús L. Friðriksson, form. Iðnaðarmannafél. Akureyrar. Jón Pét-
ursson, form. Bílstjórafél. Akureyrar. Gísli Konráðsson, ritari Ut-
gerðarmannafélags Akureyrar. Stefán Reykjalín, form. Bygginga-
meistarafélags Akureyrar. Björn Jónsson, form. Vei'kamannafélags
Akureyrarkaupstaðar. Tómas Björnsson, form. Verzlunarmannafél,
Akureyrar. Jóhann Þorkelsson, varaform. Læknafélags Akureyrar.
Jón M. Ámason, form. Vélstjórafélags Akureyrar. Þorsteinn Stef-
ánsson, form. Skipstjórafélags AkurGyrar. Elísabet Eiríksdóttir,
form. Verkakvenriafél. „Eining". Lórenz Halldórsson, varaform. Sjó-
mannafél. AkuTeyrar. Magnús Albertsson, vai'aform. Trésm.fél. Ak.
Sverrir Ragnars, formaður Vinnuveitendafélags Akureyrar.