Dagur - 19.03.1952, Side 7

Dagur - 19.03.1952, Side 7
DAGUR 7 Mið'vikudaginn 19. marz 1952 Vetrarleið um Yaðlalieiði Eftir Jón Kr. Kristjánsson á Víðivöllum Hin síðustu ár hefur verið lagt ae meira og meira kapp á það, að halda þjóðveginum milli Eeykja- víkur og Akureyrar opnumríyrir hílaumferð allan veturinn, eftir því sem mögulegt hefur reynzt. Þrátt fyrir bættar- samgöngur á sjó og í lofti, hefur brýn nauðsyn þótt til að einnig landleiðin væri fær sem oftast. Flutningaþörf yfir Vaðlaheiði. Um lágsveitir Þingeyjarsýslu austan Vaðlaheiðar, úr Ljósa- vatnsskarði til Húsavíkur, er nú víðast góður vegur, svo að ekki vantar nema herzlumuninn til þess að sú leið verði jafnfær öðr- um lágsveitavegum norðanlands á vetrum. Og þegar vegurinn um Tjörnes verður fullgerður, opnast vetrarleiðin einnig allt til Kópa- skers, og lengra austur smátt og smátt. — Það er því fullkomlega eðlilegt, að rætt sé um það með æ meiri alvöru og þunga, hve gjörsamlega óviðunandi ástand ríkir varðandi vetrarferðir um Vaðlaheiði. Á sama tíma og bílar bruna hindrunarlaust um allt Suðvesturland, norður til Akur- eyrar, og um Suður-Þingeyjar- sýslu austan Vaðlaheiðar, líða fleiri mánuðir svo að yfirVaðla- heiði fæst naumast troðin slóð fyrir jeppa, nema það kosti mikl- ar og margþættar umræður, og að þeir, sem augljóst er að þurfa aðgerðarinnar við — kannske í lífsnauðsyn — greiði kostnaðinn að meira eða minna leyti. — Að sjálfsögðu kemur þetta harðast niður á Fnjóskdælingum. Þeir, einir allra, er hafa aðalþjóðleið Norðurlands þvert um sveit 'sína, þurfa yfir slíkan fjallveg að sækja að höfn og verzlunarstað. Til Akureyrar þarf læknis að leita og þangað þarf sjúklingum að koma. Yfir heiðina þarf að flytja alla þuhgavöru úr kaupstað, og sömuleiðis smjör bænda hálft ár- ið, þótt næstu sveitir, bæði að austan og vestan komi mjólk sinni á markað oftast nær. Hagsmunir Akureyringa og Þingeyinga. En þó er ekki í þessu tilfelli um hagsmuni eins sveitarfélags að ræða. Leiðir Þingeyinga og Hús- víkinga liggja mjög vestur yfir Vaðlaheiði. Þeir, sem lengra ætla eh til Akureyrar, þurfa fyrst þangað, ef þeir t. d. vilja fá-flug- ferð eða far með langferðabíl til Reykjavíkur. Mikil og marghátt- uð menningar- og verzlunarsam- bönd hafa alltaf verið milli Þing- eyinga og Akureyringa, og svo mun lengi verða. Og það er mikið tjón fyrir báða aðila, að sam- gönguhindranir torveldi að þau viðskipti geti farið eðlilega fram. Ekki er heldur auðmetið hvílíkur fjárhagslegur hnekkir samgöngu- örðugleikar þessir eru fyrir Ak- ureyrarbæ sérstaklega, þar sem sífelldar mannaferðir og vöru- flutningar þurfa að eiga sér stað milli bæjarins og raforkustöðvar- innar við Laxá. Af framangreindum ástæðum og fleirum verður nú þegar að hefja sókn til úrbóta á því vand- ræða- og ófremdarástandi, sem nú ríkir í þessu máli. — Hið fyrsta, sem gera þarf, er að fá því framgengt að þessi leið njóti sama réttar, hvað snertir eftirlit og fjárframlög vegna snjómokst- urs eða þjöppunar fyrir bíla, og , aðrir aðalþjóðvegir njóta yfir vetrarmánuðina. Það má ekki eiga sér stað, eins og fyrir kom eftir hlákuna góðu seint í febrúar síðastliðnum, að þótt aðrar aðal- leiðir væru færar og Vaðlaheiði hafði margar undanfarnar vikur vei-ið lokuð bílum, þá var ekkert gert af hálfu hins opinbera til þess að gera fært yfir hana, þrátt fyrir tilmæli ýmissa manna aust- an heiðar, fyrr en gengið hafði verið inn á að láta gera leiðina færa frá Skógum upp á heiðar- brún, eða ábyrgjast fjárframlag til verksins að öðrum kosti. Þetta var gert og vegurinn hélzt fær um vikutíma til hagsbóta fyrir marga, en ekki fyrir þá, er kostn- aðinn greiddu, fremur en aðra. Misréttur, og áníðsla sem þessi, er skömm og á ekki að eiga sér stað. Enginn trúir því að óreyndu, að slíku hafi nokkurs staðar á öðrum stað verið beitt á aðal- þjóðleiðinni frá Reykjavík til Húsavíkur. Hvers vegna þá að beita því við það héraðið, sem verst er sett með tilliti til læknis- vitjana og flutninga á þungavöru, auk almennra mannflutninga? Vegna þess að alltaf geta komið tímabil, þegar ekki er unnt að halda opinni leið fyrir venjulega bíla milli Húsavíkur og Akureyr- ar, er nauðsynlegt að til séu snjó- bílar, sem annast geti póst- og mannflutninga þegar nauðsyn krefur. Líkur eru til að hann geti gegnt þessu hlutverki fyrir stærra svæði, t. d. Norður-Þing- eyjarsýslu líka. Ný vegagerð. Þótt takast megi að bæta mikið úr samgönguörðugleikunum á umræddri leið frá því sem nú er, með snjómokstri og aðstoð snjóbíls, þá verður ekki undan því vikist, að hraða lagningu nýs vetrarvegar, eða' stórfelldum vegabótum, frá Ljósavatnsskarði inn til Eyjafjarðar. Þær fram- kvæmdir verða framar öllu öðru að byggjast á nákvæmri rannsókn á því hvar vegarstæði er bezt með tilliti til snjóalaga. Það er full átsæða til að víta, hve flausturs- lega oft er unnið að undbúningi nýrra vega. Venjulega koma einhverjir verkfræðingar um há- sumarið, oftast ókunnugir í þeim byggðum, þar sem vegurinn á að liggja, mæla og merkja og fara síðan. Það ætti ekki að eiga sér stað að nýir vegir séu lagðir, án þess að nákvæmar snjómælingar hafi áður verið framkvæmdar á vegarstæðinu um fleiri ára skeið. Verið er að endurbæta, og að nokkru að leggja nýjan veg, norður Fnjóskadal að austan og niður Dalsmynni. Sá vegur er nauðsynlegur fyrir þá, sem við hann búa, og getur orðið til nokkurra úrbóta _ fyrir fleiri, á meðan ekki er annarra betri leiða völ, t. d. á haustin, þegar krapa- snjó hleður á Vaðlaheiði, en rignir af í lágsveitum. En þeir, sem til þekkja, skoða þessi vegalagningu ekki sem var- anlega lausn og hvergi nærri þá beztu. Auk þess sem vegarstæðið hefur alls ekki verið valið fyrst og fremst fyrir vetrarveg, heldur miðað við hitt, að notast við gamla veginn sem mest, þá vita allir, sem þekkja hvernig snjó leggur í þrönga dali og gil á Norðurlandi, að austurhlíð Fnjóskadals og norðurhlíð Dals- mynnis geta ekki verið örugg leið á vetrum. Vegurinn þarf því að liggja sem fyrst vestur yfir Fnjóská, og þar sem hún fellur ekki í gili eins og neðan við Skóga. Þegar vestur yfir ána er komið, er um þrjár leiðir til Eyja- fjarðar að velja: a) Niður Fnjóskadal að vestan og um Dalsmynni sunnan ár. Það er til muna snjóléttari leið en austan og norðan árinnar — sú snjóléttasta, sem völ er á, -— en litlu styttri, og vegarstæðið ekki alls staðar gott. b) Um Víkurskarð. Sú leið er til muna styttri, og rnundi reyn- ast ótrúlega lítið lengri en Vaðlaheiðarvegur nú. Skarðið er lágt, og telja kunnugir, að í suð- urhlíð þess megi fá mjög örugga vetrarleið. Vestanvert við há- skarðið er vegarstæðið örðugra, en oftast er þar snjólétt. c) Að endurbæta Vaðlaheiðar- veginn, sem nú er, til mikilla muna. Leggja hann á öðrum stað vestan í heiðarbrúninni og hækka hann á vissum stöðum. Nauðsyn ber til að hið bráðasta fari fram nákvæm athugun á því, hver þessi leið skuli valin og komið verði á snjómælingum, þar sem þurfa þykir. Brú á Fnjóská. Naumast verða gagngerðar um- bætur gerðar, nema ný brú verði byggð yfir Fnjóská, þótt ekki sé þar með sagt að hún þurfi að koma á undan eða jafnhliða vegalagningunni sjálfri. Árgilið hjá Skógum verður stundum jafnsnemma illfært yfirferðar og Vaðlaheiðarvegurinn. Sumir ætla, að brúin þar, sem nú er orðin yfir fjörutíu ái-a, fari ekki að þola mjög mikinn þungaflutning, en gæti hins vegar staðið lengi og borið létta umferð. Því væri gott að geta fullnægt því tvennu í senn, að létta þungaflutningi af þeirri brú á vetrarvegi yfir Fnjóská, hver sem hinna þriggja fyrrnefndu leiða vestur um heið- ina yrði valin. Sterk rök hníga að því, að þetta sé hægt. Tveimur og hálfum kílómetra norðan við Skóga, við svonefndan Ljóts- staðalæk, fellur áin þröngt milli .blágrýtisklappar að vestan og malarnefs að austan. Með nokk- urri vissu mun mega segja, að þar sé hægt að gera stytzta brú sem völ er á yfir ána í dalnum og jafnframt örugga fyrir ísruðn- ingi. Snjólétt og jafnlend vega- stæði liggja að þessum stað, eftir því sem um getur verið að ræða: Að austan, af þjóðveginum vest- an við Háls, norð-vestur af mel- unum og yfir lárétta viðarmóa að ánni. Að vestan: norður og upp á veg sveitarinnar þeim megin; og þaðan er gott að leggja veg. hvort heldur sem er norður á bóginn, eða suður og upp á þjóð- veginn, að líkum rétt ofan við hina snjósælu brekku, sem er norðan við brúna á Nesánni aust- an í heiðinni. Líklega mundi þetta frávik af þjóðveginum, á kaflan- um frá Hálsi yfir í heiðina, frem- ur stytta leiðina en hitt. — Með tilliti til samgangna innan Fnjóskadals væri áskjósanlegra að fá brú norðar yfir ána. En af- staðan til langferðaleiðar og brú- arstæðis hlýtur algerlega að ráða úrslitum í þessu tilfelli. Því er ekki líklegt að kvikað verði langt frá þessum stað: ekki heldur þótt þótt önnur hvor nyrðri leiðin verði valin inn fyrir heiðina. Greinarkorn þetta er skrifað sem innlegg í þær umræður, sem þegar eru hafnar um þetta nauð- synjamál. Þær hljóta að verða æ ákveðnari, unz til framkvæmda kemur, og viðunandi lausn er fengin. Víðivöllum, 9. marz 1952. Jón Kr. Kristjánsson. Ung kýr, mjög góð, til sölu. Ai<>r. vísar á. Samgönguerfiðleikar Þetta er áagleg sjón á vegunum kringum höjuðsiaðinn um þessar mundir, þegar samgöngur hafa teppzt að meira eðá ■minna leyti vegna óvenjulegs jannkyngis. Mynd af Dalvíkurbíl í sunnlenzku tímariti í vor. Brotizt þrisvar í viku í vetur til Akureyrar með mjólk úr Svarfaðardal Mjólkurbilarnir hafa verið allt að tuttugu ldukkustundum á leiðinni Þrigvar í yjku kcinur lest þriggja stórra, gulmálaðra herbíla akandi niður Brekkúgötu, sem leið liggur um miðbæinn og Grófargil, til Mjólkursamlagsins. Þctta erjj bílarnir úr Svarfaðar- dal. Þeir hafa í allan vetur brotizt hingað með mjólkina og heim aft- ur með alls konar vörur til Dal- víkinga og Svarfdælinga. Áðeins tvær ferðir hafa fallið niður í vet- ur, var þá giipið til flutninga á sjó. En að' öðru leytí hefur áætlun þeirra staðizt. En þáð hefur kost- að ótrúlega mikið erfiði og dugn- að að halda þessum ferðum uppi, brjótast í misjöfnum véðrum fram um Skíðadal og Svarfaðadal og síðan alla leið til Akureyrar. Þrír vaskir Ðalvíkingar hafa staðið í þessu erfiði nú í vetur og um mörg undanfarin ár, Jóhann Jónsson, Halldór Gunnlaugsson og Sveinn Jónsson. — Dugnaður þeirra og harðfengi hefur víða spurzt. — Blaðið kom að máli við einn þeirra félaga á dögunum og spurði hvernig ferðirnar gengju nú orðið. Hann lét vel af því. Þetta er ekkert orðið, ekki nema um 4 klst.! í leiðangurinn fram um Skíðadal og Svarfaðardal, til að sækja mjólkina, og annað eins í aksturinn til Akureyrar. Stund- um í vetur hefur ferðin um dal- inn tekið 14 klst., en það er 2ja tíma ferð á sumrin, og til Akur- eyrar um 20 klst., en það er klukkustundar ferð á sumardegi. Algengt var 8—10 tímar. Bílar á beltum. í vetur fengúm við til reynslu útbúnað á bílaná, sem gaf góða raun og á sjálfsagt fyrir sér að verða meira notaður. Það voru belti sem sett voru yfir báðar afturhásingarnar og yfir aftur- hjólin. Belti þessi eru smíðuð á bílaverkstæði útbús KEA á Dal- vík, af Jónasi Hallgrímssyni, og reyndust gefa miklu betri spyrnu en hjólin gerðu, og auk þess flutu bílarnir betur yfir fannir með þessum hætti. Auðyelt er að setja þennan útbúnað á bílana og taka hann af aftur, svipað eríiði og setja á keðjur. Með þessum hætti hafa hinir þungu herbílar orðið hálfgildings snjóbilar. Eins góðir og nýju snjóbílarnir? Jóhann Jónsson bílstjóri hristir höfuðið. Nei, líklegast eru þeir framtíðin í þessum vetrarflutningum. Hvorki menn né vélar endast til þess lengi, að leggja nótt við dag í þessum flutningum. Hcfur vegurinn ekki verið ruddur í vetur? Tvisvar hefur það verið reynt, en entist skamma stund. Leiðin liggur ekki í gegnum snjóinn heldur ofan á honum. Greiðfær- ara er þar sem búið er að þjappa, en í geilum eftir ýtur. í Svarfað- ardal eru harðsporar eftir bílana orðnir mun hærri en umhverfið og festir ekki snjó á þeim lengur. Meira vit væri í því að leggja fé til þess að hækka veginn eða færa burt úr snjóakistum, en ausa því í vafasaman mokstur. Þegar er fengin reynsla af því. í hitteð- fyrra var hækkaður vegarkafli á Hámundarstaðahálsi. Þar var áð- ur einn versti partur leiðarinnar. Nú er þar engin fyrirstaða. Þann- ig eru íleiri dæmi. Mjög víða mætti forða fannfergi á veginum með upphækkunum. Flytjið þið fleira en mjólkina? í ferð munu vera um 5000 ltr. mjólkur og auk þess er alltaf ein- hver annar flutningur. Og til Dal- víkur mikið af vörum í hverri ferð. Farþegar? Jú, það er til, að menn leggjast í að ferðast með okkur, þótt ekki sé hraðferð þeg- (Framhald á síðu 11).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.