Dagur - 19.03.1952, Blaðsíða 11
Miðvikudaginn 19. marz 1952
D A G U R
11
MÓÐIR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 6. síðu).
hvernig dýnan, eða það sem legið
er á, skyldi vera. Átti hún að vera
mjúk eða hörð, eða kannske mitt
á milli? Þetta mikla vandamál og
margumdeilda hefur kannske
naumast verið leyst endanlega
með rannsóknum þessum, en all-
flestir iækna og vísindamanna,
sem að rannsóknunum stóðu,
samþykktu að rúmið ætti að vera
mjúkt. Á harðri dýnu, segja þeir,
er líkaminn borinn uppi af til
þess að gera fáum stöðum (snerti-
stöðum) en á þessum stöðum
herpast vefir líkamans saman, og
getur það auðveldlega orðið til
óþæginda, sem svo valda því, að
maðurinn ‘sefur ekki eins rótt og
ella. Því mýkri sem dýnan er, því
jafnar kemur þungi mannsins
(snertingin) niður, En á það er
þó lögð mikil áherzla, að rúmið
verði að vera jafnmjúkt og varað
við „hengikojustílnum."
60 cm. á hæ?.
Hæð rúmanna var líka rann-
sökuð með það fyrir augum, að
finna þægilegustu hæð til þess að
búa um rúmin og gera hreint
undir þeim. Gerðar voru alls 244
tilraunir með umbúnað' á rúmum
af ýmsum hæðum. Af þessum
rannsóknum og af umsögn þeirra
er framkvæmdu umbúnaðinn
varð byggð sú staðhæfing, að bezt
sé að rúmin séu 60 cm. há. Svo há
rúm er þó naumast að finna á
markaðinum og sennilega fyrir
þá sök, að flestir vilja geta setzt
á rúmstokkinn, en Svíarnir slá
því föstu, að rúmið megi ekki
vera undir 45 cm. á hæð, ef hægt
á að vera að búa um það án þess
að það verði að verulegu leyti
óþægilegt .Um hæð rúmfótanna
er það að segja, að þeir eiga helzt
að vera 25 cm. og ekki lægri en
20 cm. til þess að hægt sé að gera
hreint án harmkvæli. Fimm
hundruð hreingerningartilraunir
leiddu þessa staðreynd í Ijós. Að
lokum er á það minnt, að mað-
urinn dvelur um þriðjung æv-
innar í rúminu og hve mikilvægt
það því hljóti að vera, að hann
hvíli þar vel. Nú getum við reynt
að mæla rúmin okkar og athuga,
hve nálægt við komumst hinum
sænsku kröfum.
A. S. S.
Damask
Lakaléreft og stót
Léreft, hvít
Léreft, einlit
Léreft, rósótt
Léreft, köflótt
Dúnhelt léreft
Flónel, hvítt
Flónel, einlitt
Flónel, rósótt
Flónel, röndótt.
Vejnaoafvarudeild.
• Fokdreifar
(Framhald af 6. síðu).
Og svo hélt sauðburðurinn
áfram og nú eru þær allar bornar,
17 talsins, sú síðasta bar um
mánaðamótin febrúar og marz.
Lömbin eru 20, aðeins 3 tví-
lembdar, sem betur fór.
011 lömbin eru frísk og þrífast
vel og gefa ekki sitt eftir á garð-
anum, þau sem farin eru að éta.
Allar þessar rollur eru af Vest-
fjarðakyni. En hvert vei-ður svo
áframhaldið? Bera kannske 2/3
af ærhópnum næsta vetur á sama
tíma og svo flestar eða kannske
allar 1954? Hver veit.
En gaman væri að vita, hvort
fleiri hefou orðið fyrir því
„happi“, að sauðburðurinn flytt-
ist yfir á vetrai-mánuðina. Eg man
ekki til að eg hafi séð þess getið
opinberlegaA
- Mjólkurflutningar
(Framhald af 7. síðu).
ar túrinn til Akureyrar tekur 12
klst. En þeir þekkja okkur á
ströndinni og við þá. Við njótum
fyrirgreiðslu margra, en sérstak-
lega eigum við þökk að gjalda
hjónunum í Fagraskógi. Þar er
okkur ævinlega tekið tveim
höndum, þar er beðið eftir okkur,
ef við erum seint á ferð og veitt
af frábærri gestrisni. Ferðirnar
hefðu verið enn erfiðari, ef við
hefðum ekki átt að heimilisfólkið
þar.
Snjórinn hér og þar.
En það hefur víðar verið snjó-
þungt en í Svarfaðardalnum. Ut-
varpið hefur flutt okkur fréttir
af snjóþyngslunum sunnanlands
(43 cm. snjóaði einu sinni í
Reykjavík að því fréttastofa út-
varpsins hermdi). Eitt af tíma-
rjtum höfuðstaðarins hefur auk
heldur birt mynd af mjólkur-
flutningabíl á kafi í skafli og þarf
þá ekki lengur yitnanna við.
Hafið þið séð þessa mynd? Jó-
hann þrosir. Jú, við höfum séð
hana, segir hann um leið og hann
snarast út. Hann hefur þegar
eytt of löngum tíma í að spjalla
því að mörg verkefni bíða og í
dag á að halda heim. En hann
sagði ekki meira. En þeir sem
skoða myndina þá arna, sjá, að
hún er ekki frá „vegunum kring-
um höfuðstaðinn“ eða öðrum stað
þar syðra. Hún er af gulum her-
bíl, A 219. Á hurðina er málað:
UKE Dalvík. Hún er tekin í
Skíðadal í fyrra. Þeir hafa rugl-
ast í ríminu fyrir sunnan. Það er
víðar snjór á íslandi en í Gríms-
nesinu.
Daflia-eldavél
og stórt GÓLFTEPPI til
sölu. — Upplýsingar (eftir
liádegi) í sírna 1394.
Stúlka
óskar eftir formiðdagsvist.
Upplýsingar í síma 1597
fyrir föstudag.
K ý r
til sölu.
Afgr, yísar á.
ÚR B Æ O G BYGGÐ
S3 HULD, 59523196; JV/V; Frl.:
I. O. O. F. = 1333218iy2 =
Messað í Akureyrarkirkju kl. 5
e .h. á sunnudaginn kemur. P. S.
Messað á Möðruvöllum í Hörg-
árdal sunnudaginn 23. marz kl.
2 e. h.
Ársþing ÍBA heldur áfram í
félagsheimilinu kl. 20.20 í kvöld.
Látin er að Kristneshæli ekkj-
an Ingigerður Zóphoníasdóttir frá
Skáldalæk, 84 ára að aldri.
Úðun með vetrarlyfinu Ovicide
gegn blaðlús og birkiormi á trjám
og runnurn, fer fram í vetur ef
tíð leyfir og snjó leysir. Bæjar-
búar, sem vilja láta eyða óþrif-
um á gróðri sínum með þessu
lyfi, ættu að hafa tal af mér sem
fyrst. Finnur Árnason.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trjúlofun sína ungfrú Elísá-
bet Guðmundsdóttir frá Husa-
vík, og Vigfús Björnsson bóka-
bandsmeistari, Akureyri.
Karlakór Akureyrar endurtek-
ur söngsekmmtun sína í Nýjá-
Bíó næstk. sunnudag kl. 2 e. h.
Aðgöngumiðar seldir á laugardag
hjá Pétri og Valdimar, Ráðhús-
torgi og síðan við innganginn.
Rangliermt var í síðasta tbl.
nafn höfundar sjónleiksins Ævi-
sagan, sem Leikfélag Akureyrar
mun sýna bráðlega. Hann heitir
Samuel Behrman ,en ekki Berg-
man, eins og sagt var, er þekktur
amerískur sjónleikjasmiður og
leikhúsmaður.
Ritstjóraskipti hafa enn orðið
við „Verkamanninn". — Jakob
Árnason hvarf af ritstjórnarhaus
blaðsins með síðasta tbl., en nafn
Ásgríms Albertss. gullsm. kom
staðinn. Ásgrímur stýrði um tíma
blaði kommúnista í Siglufirði. —
Jakob Árnason er áfram í rit-
nefnd blaðsins.
Þakkarávarp. Nýlega bárust
Lögmannshlíðarkirkju stórrausn
arlegar peniugagjafir, sem nota á
til raflýsingar í kirkjunni, frá
Kirkjukór Lögmannshlíðarkirkju
kr. 1.300.00, kvenfél. „Gleym mér
ei“ í Glæsibæjarhreppi kr. 700.00
og frá frú Helgu Pétursdóttur,
Bérgi, Glerárþorpi, kr. 1.000.00,
sem hún gefur sem minningar-
gjöf um látinn eiginmann og fóst-
urdóttur. — Fyrir hönd safnaðar-
ins sendum við gefendunum okk
ar innilegasta þakklæti fyrir gjaf-
ir þessar og fórnfúst stárf þeirra
fyrir kirkjuna. — Sóknarnefndin.
Kvenfélag Akureyrarkirkju
heldur aðalfund fimrntud. 20.
marz kl. 4 e. h. í kirkjukapell-
unni. Venjuleg aðalfundarstörf.
Gamla kirkjan. Nýja sjúkrahúsið.
Almennur æskulýðsfundur mun
verða sunnudaginn 30. marz n. k.
í Samkomuhúsinu. Nánar auglýst
síðar.
Strandarkirkja. Kr. 25 frá I. A.
Mótt. á afgr. Dags.
Sunnudaga-
skóli Akur-
eyrarkirkju
er á sunnu-
daginn kem-
ur kl. 10.30 f. h. — 5—6 ára börn
í kapellunni. — 7—13 ára börn í
kirkjunni. — Bekkjarstjórar
mætið kl. 10.
Æskulýðs-
l/íÍktWí/íÍL félaS Akureyr-
(rnmmr arkirkju. —
Elzta deild,
fundur í kap-
ellunni á sunnu
daginn ld. 8.30 e. h. Bláklukku-
sveitin, Elsa Lára Svavarsdóttir.
Látin er fyrir nokkru hér í bæ
Valgerður Vigfúsdóttir kaupkona,
gestgjafa Sigfússonar á Akureyri,
er hér rak hótel frá 1898 til dauða
dags. Frk. Valgerður rak hér
lengi verzlun. Hún var borin til
grafar frá Akureyrarkirkju í gær.
Gjafir til sængarkaupa á
Sjúkrahús Akureyrar. Asta Frið-
riksd. 100 kr. — Ónefndur 500
kr. — Zontaklúbbur Akureyrar
900 kr. — Rakarastofa Sigti-yggs
og Jóns 550 kr. — Rebekkustúkan
nr. 2, „Auður“, Akureyri kr. 1000.
— Kvenfél. „Feryja, Arnarneshr.
1000 kr. — Kvenfél. Svalbarðsstr.
1000 kr. Móttekið. Kærar þakkir.
Ragnheiður Árnadóttir.
Skíðamót Akureyrar heldur
áfram um næstu helgi með
keppni í stórsvigi, öllum flokkum
karla og kvenna. Keppnin fer
fram hjá Ásgarði og hefst kl. 2 e.
h. Ef veður leýfir vérður einnig
keppt í stökki.' Lagt verður af stað
frá Hótel KEA kl. 10 f. h. Skíða
ráðið.
Strandarkirkja. Áheit kr. 50. —
Mótt. á afgr. Dágs.
Leikflokkur úr Saurbæjar-
hreppi sýndi sjónleikinn „Hrepp-
stjórinn á Hraunhamri“ að Þverá
í Ongulsstaðahreppi laugardags-
kvöldið 8. marz sl. Aðsókn var
mjög mikil og leikendum ágæt-
lega fagnað. — Viðtökur voru
rausnarlégar, og vill leikflokkur-
inn flytja beztu þakkir til Ingólfs
Pálssonar, Uppsölum, og leik-
flokki Ungménnafélágsins Ársól í
Ongulsstaðahreppi.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 15
frá N. N. Mótt. ó afgr. Dags.
Nýlega fékk maður hér í
bænum tilkynningu frá toll-
stjóraskrifstofimni í Reykjavík.
Segir þar, að ef böggull, sem
komið hafi til landsins í júlí
1948 verði ekki tafaríaust sótt-
ur í Hafnarhúsið í Reykjavík,
verði hann seldur fyrir kostn
aði. Maðurinn háfði aldrei áður
heyrt að hann ætti böggul í
tollinum, og 1 ítt skiljanlegt er,
að slíkar sendingar skuli látnar
liggja í Reykjavík árum saman
og ekki séndar til tóllstöðva úti
um land. Hér mun heldur ekki
vera um einsdæmi að ræða.
Guðspekistúkan „Systkinaband-
ið“ heldur fund þriðjudagmn 25
marz næstk. kl. 8.30 síðdegis.
Efni: Æðri heimar.
Fíladelfía. Almcnnar samkom
ur eru í Lundargötu 12 sunnu-
daga og fimpitudagp kl. 8.30 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 1.30 e. h. Öll
börn velkomin.’ — Saumafundir
fyrir stúlkur á miðvikudögum kl.
5.30 e. h.
Zíon. Samkömur ' ríæstu viku
Sunnud. kl.‘ 10.30 f. h.: Stinnu-
dagaskóli. Kl. 8.30 e, h.:- Almenn
samk. — Þriðjud. kl. 5.3,0 e. h
Fundur fyrir telpur 7—13 ára. —
Miðvikudag kl. 8.30 e. h.: Föstu-
hugleiðing. (Takið Pássíusálmana
méð). —‘ Fiiríintudag kl. 8 e. h.:
Fundur fynir ungar stúlkur.
K. F. U. M., Akureyri. Fundur
í Zíon næstk. sunnudag. Y. D.
(yngsta deild, drengir í barna-
skóla frá 9—-13 ára) kl .1 e. h. U.
D. (unglingadeild, drengir og
piltar yfir barnaskólaaldur) kl
2 e. h.
Sjónarhæð. Arthur Gook talar
á samkomunni næsta sunnudag
kl. 5. Allir velkomnir.
Biblíunámsskeiðið. — Enginn
fundui' næstk. laugardagskvöld.
Sæm. G. Jóh.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 160
frá X. Mótt. á afg’r. Dags.
Til Sólheimadrengsins. Kr. 50
frá B. Mótt. á afgr. Dags.
Akureyringar! Munið eftir að
gcfa litlu fuglunuríi.
Munið minningarspjöld sjúkra-
hussins! Fást í Bókaverzl. Axels
og í Blómabúð KEA.
Til raflýsingar Möðruvalla-
klausturskirkju hafa sóknárnefnd
borizt þessar gjafir: Frá börnum
og niðjum hjónanna Jakobínu
heitinnar Sveinsdóttur, ljósmóð-
ur, og Friðriks heitins Jóhanns-
sonar á Galmarsstöðum, á aldar-
afmæli Jakobínu 23. nóv. sl., kr.
3000, frá Jakobínu Sveinbjarnar-
dóttur að Gásum kr. 60, frá org-
anleikara kirkjunnar, Jóni Krist-
jánsyni kr. 500, til minningar um
Kristján heit. Eggertsson kr. 1000,
afh. af Davíð Eggertssyni. —
Beztu þakkir. Sóknarnefnd.
„S5kn“, félag Framsóknar-
kvenna, heldur aðalfund sinn
föstudaginn 21. þ. m. kl. 8.30 e.
h. í Rotarysalnum. Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf. Nefnd-
ir geri grein fyrir störfum sínum.
Konur! Hafið með ykkur handa-
vinnu. Mætið stundvíslega.
Áheit á Akureyrarkirkju. Kr.
50 frá Rósu og kr. 20 frá ónefnd-
um. Gjöf til minnisvarða gömlu
kirkjunni kr. 25 frá N. N. Þakkir
Á. R.
I. O. G. T. Stúkan Ísafold-Fjall-
konuan nr. 1 heldur fund næstk.
mánudag kl. 8.30 e. h. í Skjald-
borg. Venujuleg fundarstörf. —
Inntaka nýrra félaga. — Hag-
nefndaratriði o. fl. — Nánar aug-
lýst siðar.
Húnvetningafélagið heldur
kvöldskemmtun fyrir félaga og
gesti, að Hóael KEA, föstudaginn
21. þ .m. og hefst hún með sam-
eigirílegri kaffidrykkju kl. 8.30 e.
h. Til' skemmtunar: Ræður, upp-
lestrar, dans ,spil. Aðgöngumiðar
verða afhentir á afgreiðslu hótels
ins, miðvikudag og föstudag frá
kl. 2—6 é. h. Nýii' félagar vel-
komnir. — Stjórnin.
Til sjúkrahússins. — Gjöf frá
ónefndri konu kr. 10. — Gjöf frá
Önnu Margréti Ólafsdóttur kr.
100. — Mótt. á afgr. Dags.
Til nýja spítalans. Garðar Jó-
hannesson kr. 50. — Benedikt
Kristjánsson, Kristbjörg Stefáns-
dóttir og Kristján Benediktsson,
Þverá, Öxarfirði, kr. 300. —
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri kr.
10000. — Ungmennafélagið Ársól
í Öngulsstaðahreppi kr. 2000. —
Fanney Kristjánsdóttir og Krist-
ján Benjamínsson kr. 500. —
Kvenfélagið Voröld í Önguls-
staðahreppi kr. 5000. — Iátlahóls-
hjónin kr. 1000. — Eyþór Tómas-
son kr. 2000. — Jón Aðalsteinn
Guðmundsson kr. 25. — Stefán
Ingjaldsson, Hvammi, Höfða-
hverfi, kr. 1000. — Hjónin
Tryggvi og Jónína, Hafnarstr. 2.
kr. 200. — S. K. kr. 200. — Anna
Árnadóttir kr. 200. — Ólafur Ól-
afsson kristniboði kr. 200. —
Gróðurhús og Blómabúð KEA kr.
4215. — Slysavarnadeild Arnar-
neshrepps kr. 1000. — Jónas
Pétm-sson frá Hranastöðum kr.
100. — Ragna Jónsdóttir, Mógili,
kr. 500. — Hjónin Sigmar og Sig-
urlaug, Mógili, kr. 500. — Hjónin
Kjartan og Helga, Mógili, kr. 500.
— Verkstjórafélag Akureyrar kr.
1000. — Oddfellowstúkan Sjöfn á
Akureyri kr. 6000. — Bindindis-
félagið Vakandi í Hörgárdal,
ágóði af samkomu, kr. 625. —
Snorri Þórðarson, Bægisá, kr.
1000. — Margrét Ólafsdóttir kr.
100. — N. N. kr. 150. — N. N. kr.
10. — Elísabjörg Jóhannsdóttir
kr. 500. — Með þökkum móttekið.
Guðm. Karl Pétursson.