Dagur - 19.03.1952, Page 12
12
Bagxjk
Miðvikudaginn 19. marz 1952
Yfirflotaíoringi Atlanzhafsbanda-
lagsins ræddi við ríkissijórn
íslands á mánudaginn
Kom til þess að ræða „sameiginlega ábyrgð
vora á Atlanzhafssvæðinu“
Yfirforingi flofastyrks Atlants-
hafsríkjanna, Lynde McConnick
og aðstoðarmaðnr hans, Sir Willi-
am Andrews flotaforingi og
nokkrar fylgdarmenn þeirra,
dvöldu í Reykjavík um helgina og
ræddu við ríkisstjórn Islands um
hervarnarmál Atlantshafsbanda-
lagsins, að því er varðar ísland.
Á mánudaginn ræddi flotafor-
inginn við blaðamenn í höfuð-
staðnum og bii-ti þar m. a. eftir-
farandi ávarp til íslendinga:
„Mér er það sérstök ánægja að
koma í heimsókn til íslands og
votta þjóðinni virðingu mína
vegna hins merkilega hlutverks
hennar í sögu hinna frjálsu
þjóða. Alþingi yðar er formóðir
þjóðþinganna, stjórnarhættir yð-
ar eru gott dæmi um lýðræði í
framkvæmd, og íslendingar hafa
sýnt, hvernig þjóð getur lifað í
friði og eindrægni við allar þjóðir
heims. Aðrar þjóðir geta lært
mikið af Islandi.
Undanfarna mónuði hef eg not-
ið mjög ánægjulegra samskipta
við Pétur Eggerz, fulltrúa yðar í
herrriálanéfnd Atlantshafssvæðis-
ins. •
Eg hef komið hingað til að
kyrjnaKt. ríkisstjórn yðar og starfs
mönnum hennar og ræða við þá
um hina sameiginlegu ábyrgð
vora á Atlantshafssvæðinu. Mér
þykir ennfremur Vænt um að fá
þetta tækifæri. til að rSeða við yf-
irmann varnarliðsins á íslandi,
Edward J. McGaw, hershöfð-
ingja.
Sem þátttakendur í Norður-
Atlantshafsbandalaginu munum
vér með festu framkvæma sam-
eiginlegar skuldbindingar vorar,
þær að ■ varðveita frið og frelsi,
sem íslendingar hafa jafnan lótið
sér annt um.“
Auk þess sagði yfirflotaforing-
inn, að ísland ætti ekki að þurfa
að óttast, fremur en önnur lönd
Atíantshafsbandalagsins, þótt til
ófriðar kæmi, ef bandalaginu
tækist að leysa hlutverk , sitt af
hendi svo sem til væri ætlazt.
Þessir góðu gestir húrfu vestur
um haf, til Kanada, aðfaranótt
þi’iðjudagsins.
dæluna af Óskari Halldórssyni
Unnið verður við flugvallargerðina hér í smiiar
Á sunnudaginn komu hingað
flugleiðis tveir menn úr Flugráði,
þeir Bergur Gíslason og Baldvin
Jónsson, og í för með þeim yfir-
verkfræðingur flugvallanna Mar-
teinn Björnss., vélaverkfræðingur
frá Hamri í Reykjavík, Einar
Þorkelsson, og yfirverkstjóri
flugvalla ríkisins, Guðni Jónsson.
Erindið hingað var að athuga
sanddælu þá, sem byrjað var að
nota í fyrra við flugvallargerðina.
Hvaða Akureyringiir
tekur þátt í landsliðs-
keppni í skák?
Skákþing Norðlendinga stend-
ur yfir þessa dagana og eru þátt-
takendur 23, keppt er í þremur
flokkum. Aðeins einn utanbæjar-
maður er á þinginu. Sigurvegari
í meistaraflokki öðlast réttindi til
þess að taka bátt í landsliðskeppni
í skák, sem hefst 23. þ. m. í Rvík.
í gáer voru þeir Jón Þorsteinsson
og Jón Ingimarsson hæstir í
meistaraflokki með 4V:> vinning
og Stefán Ó. Stefánsson í II. fl.
með 6 vinninga. Keppni er lokið
í I. flokki og sigraði Ármann
Rögnvaldsson með 4 vinningum.
Búnar eru 6 umferðir. Sjöunda
umferð var tefld í gærkveldi, en
úrslit ekki kunn er blaðið fór
í pressuna.
Óskar Halldórsson útgerðarmað-
ur átti dæluna, en nú hefur flug-
málastjórnin keypt hana.af hon-
um. Er hún talin í góðu lagi, en
gera þarf á henni nokkrar breyt-
ingar tíl þesS að hún kömíi að sem
beztum notum við dælustarfið
hér. Ér ætlunin að dæla sandi af
Leirunni upp á flugvallarstæðið
og hækka þannig landið í Eyja-
fjarðarárhólmum, sem ætlað er
undir flugvöllinn.
Unnið er að því þessa .daga að
taka dæluna sundur og verður
henni breytt hér.
Vinna hefst þegar ísa leysir.
Vinna við nýja flugvöllinn mun
hefjast strax og ísa leysir af ánni
og Leirunum. Verður fyrst um
sinn aðallega unnið með vélum,
fyrst méð jafðýtúm og svo með
sanddælunni, er hún kemst í lag.
Eyfirðingiir hrcppti
ferðina til Khafnar
Bláðið hefur frétt um einn
vinning í happdrætti Tímans, sem
komið hefur hingað í Eyjafjörð
Guðjón Einarsson, Núpufélli í
Eyjafirði, hlaut ferð til Kaup-
mannahafnar og heim. aftur með
Gullfossi.
Sennilegt að þýzkur
vinnumaðiir hafi
flutt gin- og klaufa-
veiki til Kanada
Gin- og klaufaveikifarald-
ur kom nýlega upp i Saslcat-
chevvanfylki í Kanada og var
þegar hafizt handa um stór-
felidan búfjárhiðurskurð og
aðrar varnaraðgerðir. Það
þykir nú sannað, að bakterían
hafi komið til landsins með
þýzkum innflytjanda, land-
búnaðarv’erkamanni frá ná-
grenni Bremen, sem nýlega
kom vestur sem innflytjandi.
Er talið sennilegt, að sýkillinn
hafi flutzt með fatnaði hans,
sennilega skóíatnáði. Þjóð-
verjinn hóf þegar eftir kom-
una yestur að starfa á bónda-
bæ í Saskatchéwan og þar
kom veikin upp. Nýjar og
strangar varúðarreglur um
innflytjendur hafa tekið gildi
í Kanada.
Stórgjafir halda áfram
að berast sjúkrahúsinu
Ekki haía enn borijt fregnir af
árangari fjá. söfnunar til sjúkra-
hússir.s í sýsium og bæjum Norð-
lendingafjorðungs, en fjársöfnun-
arlistar voru fyrir nokkru sendir
öllum hreppstjórum og bæjar-
stjórum. En góðar gjafir halda
áfram að berast víðs vegar að. í
blaðinu í dag kvittar Guðm. Karl
PétUrsson yfirlæknir m. a. fyrir
móttöku þessara upphæða: Frá
Ungmennafélaginu Ársól í Öng-
ulsstaðahreppi 2 þús., Kvenfélag-
ið Voröld í Öngulsstaðahreppi 5
þús., ágóði af blómasölu Blóma-
búðar KEA 4215 kr., Slysavarna-
deild Arnarnesshrepps 1 þús.,
Sjálfstæðisfélögin á Akureyri 10
þús., Oddfellowstúkan Sjöfn á
Akureyri 6 þús., Verkstjórafélag
Akureyrar 1 þús. Þá eru nokkrir
einstaklingar með gjafir allt að 2
þús. kr. í sl. viku voru á lista yf-
irlæknisins ýmsar stórgjafir, eins
og t. d. 10 þús. kr. gjöf frá Stefáni
óðalsbónda Stefánssyni á Sval-
barði. Á listanum í þessari viku
eru m. a. 1 þús. kr .gjafir frá
bændunum Snorri Þórðarsyni á
Bægisá og Stefáni Ingjaldssyni í
Hvammi, og 2 þús. frá Eyþóri
Tómassyni á Akureyri. Listinn er
birtur á bls. 11.
„Adam“ gerður
upptækur!
Dómsmálaráðuneytið stöðvaði
í fyrradag sölu á tímaritinu
„Adam“, sem riýlega hóf að koma
út hér í bænum. Er ábyrgðar
maður þess skráður P. Guð-
mundsson. í viðtali við Reykja
víkurblað segir Ragnar Bjarkan
fulltrúi, að endanleg ákvörðun
hafi þó ekki verið tekin um það,
hvort útgáfa ritsins verði bönnuð
fyrir fullt og allt. Riti þessu svip-
ar til danska ritsins „Hudibras"
og flutti þetta hefti hálfkveðnar
vísur og myndir. Lögreglu á
hverjum stað hefur verið fyrir-
skipað að taka upplag í bóka-
verzlunum í sína umsjá.
Jóhann Svarfdælingur í Texas
Myndin er úr E1 Paso Time í Texas, sýnir Jóhann Svarfdæling og 4
blómarósir bar úr borginni.
Jóhanti Svarfdælingur var beðinn
að leika „Golíat” í kviktnyndinni
og
rr
Jóhann Svarfdælingur, sem í
Bandaríkjuniun er nefndur „hæsti
maður veraldar“, hefur að und-
anförnu unnið með fjölleikaflokki
í Texas og segir blaðið E1 Paso
Times frá dvöl hans þar í borg nú
nýlega og birtir viðtal við hann.
í þessu viðtali er m. a. greint
frá því, að Jóhann hafi leikið
fornaldarmann í kvikmyndinni
„Fornaldarkonur“ og ætlunin
hafi verið að hann léki risann
Golíat, í Hollywood-kvikmynd-
inni „Davíð og Batseba“, en úr
því hafi ekki getað orðið vegna
þess að Jóhann hafi þá þurft að
sýna með fjölleikaflokki þeim, er
hann er ráðinn hjá, í Suður-Am-
eríku. Maður að nafni Tuulun
leikur Golíat í kvikmyndinni, en
aðalhlutverkin leika hinir kunnu
leikarar Gregory Peck og Susan
Hayward. Mynd þessi er nýlega
komin á markaðinn og vekur
mikla athygli.
í bréfum hingað heim segir Jó-
hann frá starfi sínu vestra. Hann
er þar á sífelldrum ferðalögum og
hefur að undanförnu dvalið í
ýmsum borgum Texasfylkis.
Býst hann við að taka sér hvíld
Edvard
sýnir
Vatna-
jökulsmyndina
Edvard Sigui'geirsson dvelur
um þessar mundir í Reykjavík og
sýnir þar litkvikmyndina, sem
hann tók í Vatnajökulsleiðangri
Akureyringa 1950, þeim er bjarg-
aði áhöfn Geysis af jöklinum. Var
fyrsta sýningin í Sjálfstæðishús-
inu í gærkveldi, á vegurn Ferða-
félags íslands.
nú í þessum mánuði, fram til þess
tíma, er súmarsýningar hefjast.
Jóhann lætur vel af sér, hefur
nóg að starfa, ferðast víða og sér
margt, en segir bæði í bréfum og
viðtalinu við EiPasoTimes að líf-
ið sé sér stundum erfitt og þreyt-
andi.
Skíðamót Norðurlands
á Siglufirði
Skíðamót Norðurlands fer fram
í Siglufirði um aðra helgi.
Keppt verður í eftirtöldum
greinum:
18 km. göngu A- og B-flokki.
15 km. göngu 17—19 ára ald-
ursflokki.
Svigi A-, B- og C-flokki.
Stökki A- og B-flokki.
Stökki 17—19 ára aldursflokki.
Þeir Akureyringar, sem hafa
hug á að taka þátt í Norðurlands-
mótinu að þessu sinni, hafi sam-
band við form. Skíðaráðs^ Akur-
eyrar.
Fjöibreytt skemmtun
barnamia
Barnaskólabömiri höfðu árs-
skemmtun sína í sl. viku og var
hún með svipuðu sniði og áður.
Onnuðust börnin sjálf öll
skemmtiatriði og fórst það vel úr
hendi. Þarna voru leiksýningar,
upplestrar, skrautsýning, gaman-
þættir og söngur. Barnakór skól-
ans söng þarna undir stjórn
Björgvins Jörgenssonar, m. a. lög
eftir tónskáld bæjarins, söng-
stjórann, Björgvin Guðmundsson
og Áskel Snorrason og tókst þessi
söngur prýðisvel.