Dagur - 09.04.1952, Síða 6

Dagur - 09.04.1952, Síða 6
6 D A G U R Miðvikudaginn 9. apríl 1952 Þorp í álögum -tví'. Saga eftir Julia Truitt Yenni 28. DAGUR. www- (Framhald). ,,En hvers vegna í ósköpunum þurfti hún endilega að koma hingað?“ Röddin var bitur, augnaráðið hvasst. „Hún kom hingað vegna þess að fasteignasali sagði henni frá húsinu. Hún hafði efni á að ná tangarhaldi á því. Og henni leizt ákaflega vel á sig hér í Ár- móti.“ Rósa sagði ekki fleira. Hún horfði þögul á hann. Svo sneri hún sér frá honum og gekk inn í eldhúsið. Hann stóð grafkyrr við barinn og reyndi að hugsa skipulega. Hann fann nú að hann gat ekki lengur haldið eér í fjarlægð frá borðinu, þar sem þær sátu, Eva og Faith, og þá gilti, að hvert orð, er hann sagði, væri hnitmiðað við aðstæðurnar. Hann setti glasið á borðið og gekk síðan í gegnum matsalinn og rakleitt inn í herbergið, þar sem þær sátu. „Halló, Eva,“ sagði hann fyrst, og svo: „Faith. ...“ En það var Eva, sem svaraði: „Seztu hjá okltur, Amos. Við er- um að ljúka við það síðasta af koníakkinu hans pabba. Það má kalla merkisatburður. Kannske veit hann líka á eitthvað?" Hann settist, hélt að kannske væri Eva farin að finna til þess að hún var búin að drekka eitt- hvað af koníaki, en ekki varð það séð á henni. „Mér þvkir vænt um að þú hefur kynnst Evu. Eva er nefnilega mín fyrsta, stóra ást, og eg er ekki Rósa Silvernail. búinn að ná mér almennilega af því ennþá.“ „Nei, Ámos,“ sagði Eva, brosti og rétfí horiúm hcndina yfir borð- íð. '' T"’* XT'X'Y Amos hugsaði, að Faith ætti ekki til neitt þessu líkt — engar ástúðlegar minningar af þessu tagi, engin gömul kynni, sem ljómuðu í endurminningunni. Ekkert af slíku liðsinnir mér til þess að halda í hana. Örvænting- artilfinning læddist í brjóst hans á ný. „Faith....“, sagði hann, en þagnaði svö, hörfði á hana orð- laus. En ekki nema andartak. „Gerðu það aldrei aftur, Faith,“ sagði hann svo. Hún horfði spurnaraugum -á hann. „Eg á við, að þú megir aldrei aftur standa innan við læstar dyr og svafa ekki, þegar kallað er á þig. Það var... . Gerðu það ekki aftur.“ „Fyrirgefðu,“ sagði hún. Hún mætti augnaráði hans andartak. Það var engin fyrirgefningarbón í augunum, ekki tillit vinar. Eftir litla þögn sagði hún: „Eva er bú- in að segja mér allt. Eg veit, hvað eg hef gert.“ „Þú hefur ekkert gert,“ sagði Eva undrandi. „Það sagði eg aldrei. Þú hefur alls ekliert gert.“ Eva vissi ekki, hvort Faith heyrði þetta. Amos horfði þögull á þær litla stund, en sagði svo: „Faith, þú mátt ekki álykta fljót- færnislega. Fólkið hér í Ármóti er búið að koma sér í klípu. En það hefur lifað af hneyksli og vandræði fyrr og hvað annað, sem að höndum hefur borið.“ Hann þagnaði, því að Faith, sem horft hafði á hann meðan hann sagði þetta, leit undan, í átt til dyranna. Þaðan kom undir- gangur og hávaði. Ein rödd skar sig úr, gnæfði upp yfir hinar eins og drangur úr sjó. Það var Roxie Drumheller. „Slepptu mér, segi eg, slepptu, Lucíus Parker,“ hrópaði hún. Eftir fótaspark og hávaða í anddyrinu, birtisf hópur manns í veitingastofunni. Roxie stjakaði frá sér, gekk fram og leit í kring- um sig. Hún kom auga á borðið í aukaherberginu. Andlit hennar varð allt í einu uppljómað af bræði, hún settu undir sig höfuðið og geystist þangað. „Komdu með lökin, Beulah,“ hrópaði hún. í kjölfarið kom lítil, hræðsluleg kona, og bar stóra körfu með lér- eftum. Á eftir henni gekk Lucíus Parkei’, ekkert hamingjusamleg- ur að sjá. , „Roxie,“ sagðí hann og var hvass í máli, en nú dugðu ekki orðin ein lengur. „Haltu þér saman,“ kallaði Roxie til hans. „Það er til ein- hvers að borga þér stórar .fúlgur á ári til þess að forða mér frá vandræðum.“ „En eg er einmitt að reyna að forða þér frá að gera heimskupör og frá vandræðum!“ „Já, og lætur þér á sama standa þótt því sé haldið fram að eg noti skítugan rúmfatnað." , Hún sneri sér beint að Faith, lét sem hún sæi ekki Amos og Evu. (Framhald). Husmæður! Látið í þvottavélar ykkar að i/3 Sólar-sápuspæni og % Perlu- eða Geysis-þvottaduft, og árangurinn mun gera yður ánægðar. Sólar-sápuspœnirnir eru ódýrustu og beztu sápuspœn- irnir, sem fáanlegir eru. Sápuverksmiðjan SJÖFN. Rósa kom með glas handa hon- um og hann lofaði Evu að hella það fullt. Hann horfði ástúðlega á hana á meðan. Hann hafði þekkt Evu lengi. Hann átti ekkert nema ástúðlegar minningar um hana. Hann minntist fyrstu kynna sinna af henni. Hann vissi nú, að hún hafði verið óvenjulega bráð- þroska og íturvaxin stúlka. — Hún hafði haft eitthvert ómót- stæðilegt aðdráttarafl. Hann ■ Cf . mundi það, eins og það hefðþgerzt í gær. Hún kom gangandi, hvít- klædd með hvítan hatt á sól- skinsdegi. Minningin var björt, hvítt, sól, birta. Hann hafði rifið sig lausan frá frænku sinni, sem hafði haldið í hendina á honum, hlaupið beint á þessa hvítu veru og tekið utan um hana. „Amos, Amos, hvað gerirðu, drengur,“ hafði frænka hans sagt. En Eva (og það hafði verið sér- kennilegur og þægilegur ilmur af henni) hafði aðeins lotið höfði og kysst hann á vangann. Amos hafði elskað hana ákaf- lega eftir þetta atvik, og þessi barnsást entist honum lengi, seinna breyttist hún í einlægan vinarhug og hann fylgdi henni síðan. En nú sneri hann sér að Faith: Vald. V. Snævarr: Tjarnarkirkja í Svarfaðardal sextug (Nokkrir þættir úr sögu hennar) (Framhald). maður mim liann háfa verið, en vel kunni liann þó með fjárm'urii að fara. Aðstaða þeirra hjóna til fjáröflunar hefir að ýmsu leyti verið óhæg. Þau áttu mörg börn, og embættis- tekjurnar voru rýrar: lengst af tæpar 600 kr. á pappirnum á ári, hýernig seni þær hafa svo goldizt. Innheimtuharka var víst víðs.fjarri þeim hjónum, en greiðásemi og góðfýsi nær- tæk. Bújörðin var tálin sæmileg, þótt ólík væri hún því, sem hún er nii. í skjölum „brauðamatsnefndarinnar“ frá 1854 er Tjörn lýst á þá leið, að „jörðin hafi þýfð tún í meðallagi grasgéfin, engi sé mikið og gott „mestan part“, en land- kreppa hin mesta, landlétt fyrir ær, en gott fyrir kýr. Hún fóðri í meðalári 6 kýr, 70 ær, 30 lömb, 20 sauði og 4—5 hross, — en sé fólksfrek. — Þá hafði það sitt að segja, og varð sízt til auðssöfnunar, að séra Kristján varð „að byggja allan stað- inn upp“ í prestsskapartíð sinni, — og sum húsin tvívegis. Hann var og fjárhaldsmaður kirkjunnar og auðgaðist víst ekki á þeirn viðskiptum, eins og síðar kann að verða frá sagt. Þrátt fyrir allt verður samt ekki annað sagt, en að allt bless- aðist vel í höndum þeirra hjóna. , Þegar séra Kristján kemur í Tjörn, var þar lítil og forn- fáleg torfkirkjaj byggð á árunum 1852—1853. Hún var 13% al. á lengd, 6 álnir á breidd og 3% aí. á hæð upp á bitabrún, og þaðan í sperrukverk 3% al. Hún var Hvítmáluð upp að bitum. Stafnar ofan bita voru úr timbri, ýmist bikaðir eða „lýsismálaðir“ rauðleitir að utan. Klukkum var komið fyrir í vesturstafni kirkjunnar. — Vitanlega hrörnaði hún ár frá ári, þrátt fyrir sæmilegt viðhald. Torfkirkjur entust ekki að Tjamarkirkja. öllum jafnaði öllu lengur en 40—50 ár, jafnvel ekki hér á Norðurlandi. Nokkru fyrir eða urii 1890 var farið að hreyfa því, að fulla nauðsyn bæri til, að byggja nýja kirkju og þá helzt úr timbri. í Prófastsvísitazíugjörð 15. júlí 1891 segir svo: „Norðurvegg- urinn er lagstur á grindina, svo að kirkjan er sýnilega farin að hallast til suðurs. Svo er. og meira en álnarlangur partur af þilinu að innan fúinn í gegn. Suðurveggurinn er bæði snaraður suður og sprunginn, svo að óumflýjanlegt væri að taka hann og gjöra af nýju, ef kirkjan ætti að vera í sama formi. Sama þurfti og að gjöra við norðurvegginn, ef hann ætti ekki að snarast alveg suður.-----Þar sem nú þessu er þannig varið, og kirkjan er, svo sem venja var með eldri kirkjur, byggð í því formi, sem alls ekki samsvarar kröfum (Framhatd).

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.