Dagur - 21.05.1952, Blaðsíða 1
Upplýsingar dr. Benja-
míns og viðbrögð komm-
únista.
Minningarspjöld Land-
græðslusjóðs fást í
Bókaverzl. Eddu.
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 21. maí 1952
21. tbL
Frá kveðjuathöfnimii á Torfunefi s. 1. föstudag
Efri myndin: Nokkur hluti mannfjöldans, er safnaðist saman við
höfnina til þess að kveðja Geysismer.n og aðra ferðalanga, er Iögðu
upp í Norðuhlandaför með m/s. Heklu sí. föstudagskvöld. — Neðri
mynd: Frá kveðjuathöfninni. Geysir stendur við Iandgöngubrúna,
formaður kórsins, Hermann Stefánsson, og söngstjórinn, Ingimundur
Árnason, á miðri myndinni. — (Ljósmynd: Vignir Guðmundsson).
Fyrirspurnir og svör um íslenzku
landhelgine í brezka þingenu
f neðri deild brezka þingsins í
fyrradag var borin fram fyrir-
spurn um það, hvemig málin
stæðu í orðsendingaskiptum þeim
sem fram hafa farið undanfarið
milli ríkisstjóma Breta og fslend-
inga iim hinar nýju regiur og
stækkun íslenzku fiskveiðiland-
helginnar.
Selwyn Lloyd ráðherra varð
fyrir svörum, og sagði að brezku
stjórninni hefði í vikunni sem
leið borizt svar íslenzku ríkis-
stjórnarinnar við þeim tilmælum
brezku stjómarinnar, að íslend-
ingar endurskoðuðu gerðir sínar
í þessu máli og létu hinar nýju
reglur ekki koma óbreyttar til
framkvæmda þegar í stað. Hefði
íslenzka stjórnin svarað þeim til-
mælum Breta algerlega neitandi,
og væri reglugerðin því gengin í
gildi.
Ráðherrann ræddi málið nokkru
nánar og sagði, að augljóst væri,
að stækkun íslenzku fiskveiði-
landhelginnar mundi hafa énn al-
varlegri aíleiðingar fyrir brezka
fiskimenn og útgerðarmenn en
stækkun norsku landhelginnar og
úrskurður Haagdómsins í því
máli, og væru þær afleiðingar
ekki komnar að neinu ráði í ljós
enn.
Hann kvað brezku stjórnina
hafa lagt mjög fast að íslenzku
stjórninni að fara aðrar leiðir í
þessu máli og hefðu munnlegar
og skriflegar viðræður lengi farið
fram um málið. Nú hefði stjórnin
enn málið til athugunar og yrði
að skjóta því undir alþjóðadóm.
Hverjar líkur væru til að það
ynnist kvaðst hann ekki geta
skýrt að sinni, því að málið væri
allt flókið og margþætt.
Einn þingmgnna, úr Verka-
mannaflokknum spurði þá, hvort
ráðherrann gerði sér ljóst, að
framkvæmd íslendinga á reglu-
geiðinni gæti leitt til þess, að um
löndunarstöðvun af hálfu brezkra
fiskkaupmanna gæti orðið að
ræða og ýmsa aðra örðugleika í
verzlunarviðskiptum Breta og ís-
lendinga. Ráðhen-ann kvað
stjórninni vera þetta allt vel ljóst,
og einnig væri viðbúið að það
leiddi mörg önnur vandræði af
sér. Úrskurður Haag-dómstóls-
ins mundi og vafalaust færa
Bretum ýmsa örðugleika, sem
enn væru óséðir.
Vinna haf in
við Laxárvirkjun
í fyrri viku hófs vinna á ný
við Laxárvirkjunina nýju og er
um 30 manna vinnuflokkur starf-
andi þar nú við undirbúning
sumarstarfsins. En innan tíðar
mun hafizt handa fyrir austan af
fullum krafti, aðallega við bygg-
ingaframkvæmdir til að byrja
með.
II
• II
í Þrándheimi -
*blaðadómar um fyrstu hljómleik
ana mjög lofsamlegir
Húsfyllir á hljómleikunum í Þrándheimi -
kórmim fagnað hjartanlega í Molcle í gær
Molde, þriðjudag.
Einkaskeyíi til Dags.
Nemendahljómleikar
Tónlistarskólans
á sunnudaginn
Nemendur Tónlistarskóla Ak-
ureyrar halda Iiina árlegu
nemeudahljónileika sína íSam-
koimdiúsi bæjarins n.k. sunnu-
dag kl. 5 síðdegis. Koma þar
fram einleikarar á píanó, fiðlu,
orgel og klarínett. Auk þess
einsöngvarai'. í Tónlistarsólan-
um er unnið merkilegt starf til
þess að skapa grundvöl fyrir
raunverulegri músíkmenningu,
með því að ltenna imgu fólki
hljóðfseralcik og fara með tón-
verk. Þetta starf ættu bæjar-
menn að styðja í raun og Iáta
sig skipta, hver árangur hefur
orðið. Með því að fjölmenna á
nemendatónleikana veita þeir
skóla og nemendum uppörvun.
ílér er um eftirtekíarverðan
þátt bæjarlífsins að ræða.
Sjómenn gefa rayndar-
lega til sjiikrahússins
Félög þau hér í bænum, sem
standa að sjómaiinadeginum, hafa
fært nýja sjúkrahúsinu að gjöf
röskar 26 þúsund krónur og
þakkar Guðmundur Karl Péturs-
son yfirlæknir þessa gjöf annars
staðar í blaðinu í dag. Félögin
eru: Skipstjórafélag Norðlend-
inga, Sjómannafélag Akureyrar
og Vélstjórafélag Akureyrar. —
Þorsteinn Stefánsson hafnar-
vörður afhenti gjöfina fyrir
þeirra hönd.
Kennaranámskeið að
Laugum i júní
Að tilhlutan Kennarasambands
Norðurlands og námsstjórans á
Norðurlandi verðm- haldið nám-
skeið fyrir barnakennara að
Laugum og hefst 4. júní næstk.
Stendur yfir í viku. Verður þar
leiðbeint um töfluteikningu, samr-
ræmingu á kennslu í málfræði og
stafsetningu, kennslu í kristin-
fræði o. fl. Fyrirlestrar verða
fluttir af dr. Brodda Jóhannes-
syni og fleirum. Haldinn verður
umræðufundur um kennslumál
og jafnframt aðalfimdur kenn-
arasambandsins. Forgöngumenn
námskeiðsins vænta þess að
kennarar fjölmenni á þetta nám-
skeið.
BREZKT HERSKIP,
„RomoIa“, — hjálpar- og eftir-
litsskip með fiskiflota Breta í
Norðurhöfum, — er væntanlegt
hingað í dag og hefur foringi
skipsins boð inni fyrir ýmsa bæj-
armenn síðdegis í dag.
„Hekla“ kom til Þrándheims
klukkan sjö á mánudagsmorgun-
inn eftir þægileg'a sjóferð. Veður
var gott alla leiðina, en sjóveiki
gerði lítillega vart við sig á laug-
ardaginn. Var hátíðahöldum um
borð í tilefni af þjóðhátíðardegi
Norðmanna, 17. maí, því frestað
til sunudagsins. Þá flutti Sig-
urður Magnússon fararstjóri eiv
indi um Noreg, séra Ingólfur
Þorvaldsson frá Olafsfirði flutti
stutta guðsþjónustu, Geysir söng
norsk lög. Getraunakeppni far-
þega um fyrstu landssýn vann
Tómas Steingrímsson og hlaut
500 krónur í verðlaun.
Koman til Þrándheims.
Sæmilegt veður var við kom-
una til Þrándheims. Samkórinn
Tonevald annaðist móttökur
Geysis. Bæjarstjórnin bauð til
hádegisverðar í Riddersalen og
talaði þar ræðismaður Islands í
Þrándheimi, Erling Hövik fyrir
hönd bæjarstjórnarinnar, en foiv
maður Geysis, Hermann Stefáns-
son, fyrir hönd kórsins. Að lokn-
um hádegisverði var ferðafólkinu
sýnd dómkirkjan.
Hljómleikarnir.
Fyrstu hljómleikarnir voru kl.
átta á mánudagskvöldið í Frí-
múrarahöllinni, sem er talinn
bezti söngsalur í Noregi. Var þar
fullt hús og afburða móttökur.
Kórnum barst fjöldi blómvanda.
Kórinn Tonevald söng þar ís-
lenzka þjóðsönginn, en Geysir
svaraði með þeim norska. For-
maður Tonevald, Karl Rövde,
flutti ávarp, og formaður synfón-
íuhljómsveitarinnar, Cecil Collin
Hansen hæstaréttarlögmaður,
stóð upp í sæti sínu og flutti
snjalla hrifningarræðu. Allir
áheyrendur tóku undir húrra-
hróp að lokum. Blaðadómarnir
eru ágætir og betri en nokkurn
dreymdi um. Eftir hljómleikana
var kvöldboð hjá Tonevald.
Ræðumenn þar voru varafor-
maðurinn, Ove Vikan, og for-
maðurinn Rövde og svo ræðis-
maðurinn, Hövik. Af Geysis-
mönnum svöruðu Hermann Stef-
ánsson og Kári Johansen. Geysi
var þarna gefinn norskur borð-
fáni á áletraðri silfurstöng, en
Geysir sæmdi söngstjóra og
stjórn Tonevald Geysismerkjum
úr gulli og silfri. Frá Þrándheijni
var síðan farið klukkan eitt að-
faranótt þriðjudagsins. Kórarnir
sungust á á bryggjunnj í kveðju-
skyni.
í Molde.
„Hekla“ kom til Molde kl. 10,30
í morgun (þriðjudag). Voru
glæsilegar móttökur á bryggj-
unni, söngur, hornablástur og
móttökuræður. Þar á bryggjunni
var mættur J. Jentoft Indbjör,
fyrrurn norskur vararæðismaður
á Akureyri. Hljómleikar eiga að
verða hér í Molde klukkan átta í
kvöld. Ágæt líðan allra og kærar
kveðjur heim. .“. Þannig hljóðar
þetta fréttaskeyti til Dags og er
auðséð af því, að förin hefur til
þessa gengið mjög að óskum,
bæði sjóferðin ög hin fyrsta við-
dvöl í Noregi. Munu bæjarmenn
samfagna kórnum og ferðafólk-
inu öllu með þennan ágæta ár-
angur og óska góðrar ferðar eftir-
leiðis.
Brottförin frá Akureyri.
Með Heklu fóru 185 farþegar,
frá Akureyri 128, þar af Geysis-
menn og skyldulið 70, frá Suður-
landi 21, frá Austurlandi 22 og frá
ýmsum stöðum á Norðurlandi 14.
Skipið fór héðan frá Torfunefs-
bryggju klukkan 8 síðastliðinn
föstudag. Hafði áður farið fram
virðuleg kveðjuathöfn á bryggj-
unni og þangað safnast saman
fleira fólk en menn minnast að
hafa séð þar áður. Veður var fgg-
urt og öll kveðjustundin hátíðleg.
Laust fyrir klukkan 8 gekk
Karlakór Akureyrar fram á
bryggjuna og söng kveðjuljóð, er
ort hafði formaður kórsins, Daní-
el Kristinsson, við lag Björgvins:
Syng frjálsa land. Því næst
ávarpaði Jónas Jónsson kennari
kórinn fyrir hönd Karlakórsins
og Kantötukórsins, en því næst
söng Kantötukórinn undir stjórn
Björgvins Guðmundssonar „Þú
ert fögur Akureyri“, ljóð Jóns
Norland, lag Björgvins. Tlermann
Stefánsson, formaður Geysis,
ávarpaði mannfjöldann úr lyft-
ingu, þakkaði vinarhug, kveðjur
og góða aðstoð, og kvaddi bæinn
með hlýjum orðum. Geysir söng
síðan tvö lög af þilfari, en síðan
sungu kórarnir á bryggjunni
þjóðsönginn og að því búnu leysti
Hekla landfestar og lagði frá
bryggjunni, en mannfjöldinn lét
Geysi og ferðafólkið lengi lifa.