Dagur - 21.05.1952, Blaðsíða 8
8
Dagur
Miðvikudaginn 21 maí 1952
Gróðursefning írjápianfna á vegum
Skógrækfarfélagsins hefst
á morgun
Skógræktarfélag Akureyrar hcfur gert áætlun
um að klæða skógi stórt laudsvæði
sunnan við bæinn
Bygging endurvarpssföóvarinnar
við Skjaidarvik hófsf síðast-
Á mörgun verður farin fyrsta
vinnuferðin í ár til þess að planta
skógi r skógræktarlöndin hér í
nágrenninu og verða farnar þrjár
vinnuferðir á viku fyrst um sinn.
Forráðamenn skógræktarmál-
anna hér skora á bæjarmenn að
leggja hönd á plóginn og taka þátt
í a. m. k. einni vinnuferð sjálfum
sér til þroska og ánægju og til
stuðnings við liið stórmerka
fram framtíðarverkefni, sem
skógræktin er.
Vinnunefnd félagsins sér um
þessar framkvæmdir og skipa
hana þessir menn: Sigurveig
Guðmundsdóttir, Helga Guð-
mundsdóttir, Árni Jónsson, Árni
Björnsson, Eiríkur Sigurðsson,
Aðalsteinn Tryggvason, Guðni
Sigurðsson, Hafsteinn Halldórs-
son, Skarphéðinn Ásgeirsson og
séra Pétur Sigurgeirsson. Verk-
stjórn og forustu fyrir þessum
framkvæmdum hefur varafor-
maður félagsins, Þorsteinn Þor-
steinsson. Vinnuferðirnar verða á
þriðjudögum og fimmtudögum kl.
7.30 e. h. og á laugardögum kl.
3.30 e. h. Fafið verður frá Hótel
KEA. Menn geta á ýmsan hátt
stutt vinnunefndina í stdl'fi
hennar: með því að taka þátt í
ferðinni og vinna að gróðursetn-
ingu, með því að aka fólki á
vinnustað eða ljá bíla til þess og
með því að leggja fram fé til
framkvæmdanna.
60 þúsund plöntur.
Samkvæmt upplýsingum fram-
kvæmdastjóra Skógræktarfélags
Eyfirðinga, Ármanni Dalmanns-
syni, var áætlað að gróðursetja 60
þús. plöntur á þessu vori á fé-
lagssvæðinu öllu, samkvæmt
pöntunum. Um þriðjung þessa
magns getur félagið sjálft lagt t.il
frá uppeldisstöð sinni, en afgang-
inn var ætlunin að fá frá Skóg-
rækt ríkisins. Nú hefur orðið að
takmarka afgreiðslu frá skóg-
ræktinni vegna mikilla pantana
og mun áætlunin því tæpast
standa. Vinnuflokkar þeir, sem
starfa að gróðursetningu héðan
frá Akureyri, munu bæði vinna í
landi Akureyrarfélagsins og landi
Skógræktarfélags Eyfirðinga. —
Akureyrarfélagið hefur nú friðað
nokkurn hluta af landi því, sem
bæjarstjórnin úthlutaði því, en
það er svonefnt Kjarnaland
sunnan við Brunná. Vestan við
þjóðveginn, skammt sunnan við
Brunná, er ráðgert að reisa
myndarlegt hlið, og á leiðin að
liggja þar um í væntanlegan
Kjarnaskóg. Á sá skógur að
klæða syðsta hluta af landi Ak- |
ureyrar, frá þjóðveginum upp að
Lönguklettum. Er þarna fagurt
og sérkennilegt umhverfi.
Norskir og íslenzkir
vinnuflokkar.
Norðmenn og íslendingar munu
skiptast á vinnuflokkum til skóg-
ræktar í ár eins og í fyrra. Eru
nokkrir Norðmenn væntanlegir
hingað, á vegum Skógræktarfél.
Eyfirðinga, 27. maí næstk. og
munu þeir vinna hjá félaginu við
gróðursetningu. Geta þeir, sem
vilja fá aðstoð þeirra við gróður-
setningarstörf, pantað hana lijá
framkvæmdastjóra félagsins, Ár-
manni Dalmannssyni. Héðan úr
Eyjafirði fer fimm manna hópur
í skógræktarförina til Noregs.
j Aðalfundur Skógræktarfélags
fslands.
Fyrirhugað er að halda aðal-
fund Skógræktarfélags íslands
hér á Akureyri að þessu sinni, og
verður hann sennilega um fyrstu
helgi júlímánaðar.
i
Skógræktarfélag Akureyrar.
Skógræktarfélag Akureyrar er
deild í Skógræktarfélagi Eyfirð-
inga. Stjórn þess skipa: Jakob
Frímannsson, form., Hannes J.
Landspróf stendur yfir þessa
dagana um land allt og þreytir
fjöldi nemenda prófið. Allgott
sýnishorn af því, sem ætlast er til
að nemendur viti, er prófverk-
efnið í Iandafræoi, en það próf
var háð 16. maí sl. Spurningarn-
ar fara hér á eftir, Menn geta gert
sér það til gamans að athuga,
hvort þeir geta kallast landspróf-
færir í landafræðinni eða ekki.
1. Lýsið stuttlega ám (Vonandi
að enginn nemandi hafi samið
lýsingu á okkar ágætu sauð-
kind, en til þess mun ekki hafa
verið ætlast, þrátt fyrir orða-
lag spurningarinnar!) á ís-
landi og greinið frá að hvaða
notum þær koma.
2. a) Hvar eru 4 nafntoguðustu
goshverir íslands?
b) Nefnið 2 merkar brenni-
steinsnámur hér á landi.
3. a) Hvaða iðnaði kveður mest
að hér á landi?
b) Hvaða not eru af tveimur
helztu nytjadýrum lands-
ins?
c) Hvers konar afurðir eru
einkum fluttar út frá ís-
landi?
4. í hvaða byggðalögum eru: a)
BergþórshvQll, b) Bíldudalur,
Karlakórinn Geysir
fór raeð Flateyjarbók
(Ljósm. Jón & Vigfús).
Flaíeyjarbók sú hin dýra, er Ak-
ureyri gefur vinabæ sínum, Ála-
sundi, var send með „Heklu“ til
Noregs og munu Geysismenn
koma henni til skila, til borgar-
stjórnarinnar í Álasundi. Aldrei
varð af því, að bæjaryfirvöldin
lofuðu bæjarmönnum að sjágrip-
inn í útstillingarglugga, en hér
að ofan er mynd af bókinni og
silfurskreytingunni. Er bókin
forkunnarfalleg og vönduð og
mun hvarvetna þykja dýrgripur
hinn mesti.
Magnússon, ritari, Marteinn Sig-
urðsson, gjaldkeri, Þorsteinn
Þorsteinsson, varaform., með-
stjórnendur: Eiríkur Stefánsson,
Sigurður O. Björnsson og Finnur
Árnason. Þorsteinn Þorsteinsson
hefur, sem fyrr er sagt, umsjón
með gróðursetningu og öðrum
verklegum framkvæmdum félags
ins, í samvinnu við framkvæmda-
stjóra Skógræktarfélags Eyfirð-
jnga, Ármann Dalmannsson.
c) Goðafoss, d) Hólar (Ekki
nánar tilgreint við hvaða
„Hóla“ e rátt.) e) Hólmavík,f)
Ólafsdalur, g) Þingeyri?
5. Lýsið jurtagróðri Noregs.
6. Hvar í Svíþjóð eru: a) Mestu
akurlendin, b) víðáttumestu
skóglendin, c) stærstu járn-
námurnar?
7. Hvenær eru: a) vorjafndæg-
ur, b) vetrarsólhvörf á norð-
urhveli?
8. Um hvaða ríki liggur stytzta
leiðin frá Bangkok um Kabúl
til Bagdad?
9. Hvaða tungumál er aðallega
talað í: a) Brasilíu, b) tlemen,
c) Kanada, d) Nýja-Sjálandi.
Hvaða ríkistrú er í: e) Bret-
landi, f) íran, g) Poi'túgal?
Hvaða stjórnarfyrirkomulag
er í: h) Hollandi, j) Vene-
zúela?
10. Hvar eru og hverjum lúta: a)
Azóreyjar, b) Gullströndin, c)
Hawaiieyjar, d) Jamaica?
11. Hvaða nytjajurtir eru einkum
ræktaðar í: a) Cðte d’Or, b)
írlandi, c) Úkraínu?
12. Hyað cg hvar ei-u: a) Kala-
harí, b) Líma, c) Murray, d)
Nepal, e) Yucatan?
II. Ritgerðir.
Loftraki og úrkoma.
Á miðvíkudaginn var hófust
frænkvæmdir við að byggja end-
urvarpsstöðvarhúsið, sem fyrir-
hugað “r á vegamótum Dagverð-
areyiar- og Skjaldarvíkurvegar
hér skammt norðan við Akureyri.
Þetta verður tvílyft hús, á
kjallara, 245 fermetrar að stærð.
Á efri hæð verður íbúð endur-
varpsstjórans. Mun vera ráðið að
Davíð Árnason endurvarpsstjóri
á Eiðum stjómi hinni nýju end-
urvarpsstöð. Á aðalhæðínni verð-
ur vélasalurinn en í kjallara íbúð
fyrir aðstoðarmann. Loftskeyta-
stengurnar verða reistar á hóln-
um skammt frá húsinu, og munu
þær verða 20 metra háar. Ætlun-
in er að ljúka byggingu hússins
og uppsetningu stanganna í sum-
ar, svo að uppsetning véla geti
hafizt í haust. Vélarnar til end-
Baldur Líudal efnafræðingur
fór hér um í vikunni sem leið á
leið austur í Mývatnssveit, til
þess að undirbúa jarðboranir
þær, sem framkvæmdar verða í
Námaskarði í sumar.
Ferð Baldurs að þessu sinni er
til þess gerð að athuga gufuupp-
streymið úr borholunum frá í
fyrra og mæla, hvort það hafi
breytzt. Taldi hann líklegast að
það væri óbreytt með öllu, er
blaðið ræddi við hann sl,
fimmtudag.
Fleiri jarðborar.
Ákveðið er að halda áfram
jarðborunum og rannsóknum í
Námaskarði og nágrenni þess og
verður nú bætt við jarðborum.
Verða 2—3 borar að starfi þarna í
sumar. Þá mun Baldur Líndal
halda áfram rannsóknarstörfum
sínum í Þingeyjarsýslu, í sam-
bandi við jarðgufur o. fl. Vöktu'
athuganir hans í fyrra mikla at-
hygli. Þær leiddu m. a. í Ijós, að í
Danskir sjómenn
dæmdir fyrir smygl
Nýlega voru sjómenn af danska
skipinu Elin S. frá Svendborg, er
hér kom í sl. viku, kærðir af toll-
gæzlunni fyrir áfengissölu og
fyrir að ætla að skjóta bjórbirgð-
um undan innsigli. Voru 3 skips-
menn dæmdir í 400 kr. sekt hver
og einn í 4 þús. kr. sekt. Áfengi
og bjór var gert upptækt, Þá voru
2 íslendingar, er verzluðu við
hina dönsku sjómenn, sektaðir.
urvarpsstöðvarinnar eru fyrir
nokkru komnar hingað og bíða
hér uppsetningarinnar.
Útvarpssalur?
í sambandi við þessar fram-
kvæmdir vaknar sú spurning,
hvort útvarpið sé ekki fáanlegt til
þess að koma hér jafnhliða" upp
útvarpssal eða útvarpsherbergi
til þess að greiða fyrir því að
hægt sé að taka upp dagskrárefni
hér. Þær tilraunir sem gerðar
hafa verið til útvarps héðan á
liðnum árum, hafa allar beðið
mikinn hnekki við það, að hin
tæknilega aðstaða er mjög ófull-
komin. Úr því verður ekki bætt
að gagni nema með sérstökum
útvarpssal, er hefur alla nauð-
synlegan umbúnað fyrir hljóð-
flutning og útvarp.
jarðgufunum þar eystra eru mörg
verðmæt efni og tengdir þeim eru
ýmsir möguleikar til vinnslu og
iðnaðar, sem áður var lítið sem
ekkert vitað um. Á þessu sviði er
mikið ónumið land á íslandi og
starf Baldurs Líndals vekur því
sérstaka athygli.
Daglegar ferðir til
Reykjavíkur landleið-
ina hefjast í næstu
viku
Upp úr næstu helgi munu
•hefjast daglegar bílferðjr milli
Akureyrar og Reykjavíkur á
vegum Norðurleiða h.f. Fargjald
er hið sama og í fyrra, kr. 167,00
hvora leið. Sú breyting verður þó
gerð nú, að bifreiðarnar fara
seinna héðan frá Akureyri en
verið hefur undanfarin ár, því að
þeim er ætlað að vera í sambandi
við ferðir frá Dalvík og Húsavík,
þannig, að fólk frá þessum stöð-
um komizt á einum degi til
Reykjavíkur með áætlunarbílun-
um. Þá verður hinn nýi svefn-
vagn tekinn í notkun um 20. júní
og verða 2 ferðir í viku með hon-
um. Fer hann á kvöldin, kl. 9,30
og ekur um nóttina. í þessum
vagni eru 28 sæti þannig útbúin
að halla má þeim aftur (3 skipt-
ingar) og gera úr þeim sæmileg-
asta svefnpláss. Þessi vagn er og
hærri undir loft og allur rúm-
betri en dagvagnarnir.
Mundir þú standast landspróf
í landafræði ?
Jarðborunurn I Námaskarði verður
haldið áfram í sumar
Baldur Líndal verður við rannsóimarstörf
í Þingeyjarsvslu