Dagur - 16.07.1952, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 16. júlí 1952
D A G U R
7
Bréf til blaðsins:
Leiklistarstarfsemin úti á landi
Undirföt
Náttkjólar
Undirkjólar
Buxur,
silki og bómull
Corselett
Sokkabandabelti
Sokkabönd
Vcfnaðarvörudeild.
Ullarjavi
Ullargarn
Ullarefni
Stoppteppi
V ef naðarvörudeild
Hallamál
úr aluminium
Jám- og glervörudeild.
Mótorhjól
til sölu. Afgr. vísar á.
Hallgrímur Valdimarsson skrif-
ar blaðinu á þessa leið:
Lárus Sigurbjörnsson rithöfund-
ur og bókavörður Þjóðleikhússins
sem er öllum mönnum hér á landi
betur að sér og kunnugri öllu því,
er að leiklistar- og leikhúsmálum
veit, og sem oft skrifar um þau
efni í blöð og tímarit, segir svo
meðal annars í 2. hefti tímaritsins
Eimreiðin, apríl—júní-heftinu:
„Það er vitað mál, að íslenzk
leiklist stendur hæst i höfuðstaðn-
um. Þetta er ekki mælt af neinum
höfuðstaðargorgeir. Þar er eðlileg
afleiðing af því, að leiklistin í
Reykjavík stendur á grunni meir
en hálfrar aldar gömlum, sem á-
hugamenn lögðu henni með þrot-
lausu, árvökru starfi.
Enn sem komið er skiptir það
ekki verulegu máli, að nokkur
hluti leikenda hér er orðinn fast-
launaður, hefur gert list sína að
lífsstarfi. Fyrir örskömmum tíma
voru þessir leikendur áhugamenn,
rétt eins og leikendur alls staðar
utan Reykjavíkur eru enn. Hver
áhrif nýgræðingurinn, skólageng-
inn heima og erlendis, kann að
hafa, er vandséð, en það er víst,
að fyllist hann stærilæti eða of-
metnaði gagnvart einlægri og heið-
arlegri viðleitni áhugamanna, og
telji sér ósamboðið að tileinka sér
hið bezta úr íslezkri leikmennt,
eins og hún birtist hjá leikurum
eins og Friðfinni Guðjónssyrii,
og Gunnþórunni Halldórsdóttur,
— Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
ástæðulaust að bæta þar nokkru
við eða efna til frekari umræðna,
a. m. k. í þeirri tóntegund, sem
skólastj. — af einhverjum óskilj—
anlegum ástæðum — þykir nú
rentast að skrá þetta svar sitt í.
Brynjólfi Jóhannessyni og Arndísi
Björndóttur, þá er íslenzkri leiklist
voðinn vís. Það var þess vegna al-
veg sérstaklega lærdómsríkt og
mjög ánægjulegt að sjá í hópi
gestanna utan af landi Svövu Jóns-
dóttur, leikkonu frá Akureyri. Hún
lék með Leikfélagi Hveragerðis
í hlutverki frú Midget í sjónleikn-
um A útleið, fyrsta leikritinu, sem
sýnt var á vegum Bandalags ísl.
leikfélaga. Leikur hennar var
sannur frá fyrsta til hins síðasta,
byggður á einfaldri en þó sterkri
innlifun í hlutverkið, á ytra borði,
í máli og fasi, mjög vel samstillt-
um, skemmtilegum og sjálfstæðum
skilningi leikkonunnar á skaphöfn
hinnar langhrjáðu og hversdags-
gæfu persónu. Slíkar persónur er
auðvelt að ýkja með ósannri til-
finningasemi, en leikur frú Svövu
var laus við allt slikt. Það er á-
nægjulegt að hugsa til þess, að
leiksvið Norðurlands hefur alið
upp slíka listakonu, er nú lék sem
gestur í ungu og atorkusömu leik-
félagi hér syðra.-----
Um leik frú Svövu dæmi eg full-
um fetum, en sama mælistika
verður ekki borin á leik annarra
leikenda, er komu fram á leikviku
bandalagsfélaganna, og er þó
gaumur gefandi að leikmeðferð
nokkurra þeirra. I heild voru sýn-
ingarnar til frásagnar um gengi,
getu og takmarkanir leiklistarinn-
ar utan Reykjavíkur.“
Um leik frú. Svövu . í hlutverki
frú Midget hafa ýmsir leikdómarar
Reykjavíkurblaðamna' fárið mjög
lofsamlegum orðum.
Eg set þessar fáu línur hér, og
mér kom jafnframt til hugar, að
betra væri seint en aldrei, og á
eg þar við, að á síðustu árum
hafa nokkrir leikendur héðan
komið fram á leiksviði höfuðstað-
arins og ekki fundið náð fyrir aug-
um leikdómaranna, því miður.
H. V.
X
★
*
★
*
★
*
★
*
★
*
★
*
★
Nýjung í kvenfatagerð!
Nú um þessar mundir eru að koma á
markaðinn svonefndar
"STJÖRNUDRAGIIR”
eins og sést á myndinni er fylgir þessari auglýsingu.
yL.
Þessar dragtir kosta frá kr. 735,00 ^
Stjörnujakki og pils. jf
★
Einnig er hægt að fá keypta Stjörnujakka án pils, ★
sem kosta frá kr. 543,30 stykkið, og þá er jafnframt
hægt að fá pilsið saumað á einum degi, eða keypt ★
efni í pilsið eftir vild kaupendanna. *
STJÖRNUDRAGTIR eru nýjasta kvenfatatíska J
*
★
*
★
*
★
*
★
*
★
*
★
*
■fc ★
*****************************************
hvar sem er í heiminum.
Komið - Skoðið - Kaupið
Saumastofa GEFJUNAR
Húsi K. E. A. III. hæð.
Sími 1347.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Kirkjan. Messað á Akureyri
næstk. sunnudag kl. 11 f. h. — F.
J. R.
Útför Sigurðar Pálssonar for-
stjóra á Gefjuni var gerð hér sl.
laugardag og var mjög fjölmenn.
Séra Pétur Sigurgeirsson talaði í
kirkjunni og jarðsöng. Rotary-
félagar báru kistuna í kirkju, en
þar stóðu Oddfellowar heiðurs-
vörð og þeir báru einnig úr
kirkju. Síðasta spölinn báru sam-
starfsmenn á Gefjuni. — Blaðið
mun minnast Sigurðar Pálssonar
nánar síðar.
Nýja sjúkrahúsið. Áheit kr. 50
frá Þ. K. Mótt. á afgr. Dags.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 25
frá ónefndri konu. — Kr. 50 frá
S. — Mótt. á afgr. Dags.
Áheit á Æskulýðsfélag Akur-
eyrarkirkju. Kr. 125.00 frá N .N.
Kærar þakkir. — P. S.
Áheit á Akureyrarkirkju. Kr.
50.00 frá G. G. og kr. 20.00 frá J.
R. — Þakkir. Á. R.
Áheit á Strandarkirkju. Kr. 50
frá X. Mótt. á afgr. Dags.
Til Sólheimadrengsins. Kr. 50
frá A. og M.
Þrastahjónin. Kr. 20 frá Ásdísi
Jónsdóttur. — Mótt. á afgr. Dags.
Bifreiðaslys varð hér skarnmt
frá Lónsbrú í Glæsibæjarhreppi
sl. föstudagskvöld. Fólksbifreið
úr Reykjavík steyptist út af veg-
inum og skemmdist mjög mikið.
í bifreiðinni voru þrír menn.
Sluppu tveir ómeiddir að kalla, þ.
á. m., þifreiðarstjórinn) en annar
farþeginn hlaut talsverð meiðsli
og var fluttur í sjúkrahús. Var
það Hjörtur Eiríksson ullarfræð-
ingur á Gefjuni. Mun líðan hans
nú sæmileg eftir atvikum. ■—
Atvik að slysi þessu munu hafa
verið þau, að bifreiðin ætlaði
fram hjá hjólareiðamanni í beygj
unni, en lenti þá út af á tals-
verðri ferð.
Til nýja spítalans. Safnað í
Skútustaðahreppi kr. 10.570.00. —
Gjöf frá Sig. Kristjánssyni kr.
50.00. — Gauðlaug Stefánsdóttir,
áheit, kr. 50.00. — Stefán Tryggva
son, áheit, kr. 300.00. — J. G.,
áheit kr. 50.00. — Verkalýðsfélag
Þórshafnar kr. 2000.00. — Kven-
félag Reykdæla kr. 2000.00. —
Frá starfsmönnum Vélsmiðjunn-
ar Atla, í tilefni af 10 ára afmæli
vélsmiðjunnar, kr. 1957.00. —* *
Grímsevjarhreppur kr. 1500.00. —
Mývatnshreppur kr. 2950.00. —
Reykjahreppur kr. 1300.00. —
Fjallahreppur kr. 3000.00. —
Bárðdælahreppur kr. 6875.00. —
Útgerðarfélag Akureyringa h.f.
kr. 4300.00. — Með þökkum mót-
tekið. G. Karl Pétursson.
Kvöldferð Ferðafélags Akur-
eyrar i kvöld er fram Fnjóska-
dal, að Reykjum.
Sólhcimadrengurinnn. Kr. 50
frá N. N. Mótt. á afgr. Dags.
Brúin á Rauðá á Fljótsheiði,
sem varð ófær, hefur nú verið
gerð fær til bráðabirgða og er því
unnt að aka þá leið til Húsavíkur
aftur. Menn undrast að ekki skuli
'meira vandað til brúargerðar nú
hin allra síðustu ár — þetta er ný
brú — að það skuli geta komið
fyrir að ekki meira vatnsfall en
þarna er um að ræða skuli hafa
náð að grafa undan brúarstöplin-
um sem raun varð á.
Hinn góðkunni brezki veiði-
maður L. S. Fortescue, sem hing-
að hefur sótt til lax- og silungs-
veiða í áratugi, er vænt-
anlegur til landsins nú um
mánaðamótin næstu og mun
dvelja hér nokkurn tíma, aðallega
við veiðar í Fnjóská.
Akureyrartogararnir þrír, Kald-
bakur, Svalbakur og Harðbakur,
eru á Grænlandsmiðum og veiða
í salt. Jörundur, hinn fjórði Ak-
ureyrartogaranna, er á síldveið-
um.
Laxveiðin í Laxá í Aðaldal er
nú allmjög að glæðast og hafa
ýmsir fengið góða veiði að und-
anförnu bæði á neðri og efri
veiðisvæðunum í ánni. Akureyr-
ingar byrja sinn aðalveiðitíma í
ánni síðdegis á morgun og verða
hópar héðan að veiðum þar fram
til 7. ágúst.
FRÚ ELENAOR ROOSE-
VELT stakk upp á því í ræðu,
er hún hélt við lokapróf nokk-
urra háskólastúdenta, að þeir
víkkúðu sjónarsvið sitt með
því að vinna um nokkurn tíma
utan Bandaríkjanna. Hún
sagði m. a.: „Þeim ykkar, sem
notið tækiíærið og farið til
annarra landa, vil eg gefa það
ráð, að vera fúsir að miðla og
fúsir að læra af þessum gömlu
þjóðum — að þið farið von-
góðir og verið tryggir þeim
hugsjónum, sem munu gera
okkur fært, að lifa góðu og
gagnlegu lífi.“
MÓÐIR, KONA, IMEYJA.
* (Framhald af 4. síðu).
að sjá, ekki sízt fyrir samvinnu-
fólk. Heimsóknir af þessu tagi
efla skilning og gagnkvæmt
traust og styrkja allt samvinnu-
starfið, jafnframt því sem þær
veita konunum litils háttar sum-
arfrí, og er það eitt mikilsvert
atriði.
Olíukynfar eldavélar
væntanlegar á næstunni.
Sýnishorn fyrirliggjamli.
Olíusöludeild.
Vinnupláss
óskast til kaups, 50 fermetra eða stærra.
Semja ber við
Jónas Jakobsson, Brekkugötu 15, eða
> Emil Sigtirðssoiij .Eaxþgöiu .7$ . > ,i;.