Dagur - 16.07.1952, Side 8
8
Dague
Miðvikudaginn 16. júlí 1952
Starl SIBS byggir brú milli heilsu
hælanna og vinnumarkaðsins
Frá 8. þingi sambandsins að Kristnesi í sl. viku
Nð verðið að gera svo vel að venja
Brezkur útgerðarforstjóri ávarpar almenning
Áttunda þing SÍBS var haldið
hér að Kristneshæli dagana 11.—
13. b. m. og sóttu það 72 fulltrúar
sambandsdeildanna og auk þess
fulltrúar frá öllum Norðurlönd-
unum og nokkrir aðrir gestir. Eru
Iiinir crlendu fulltrúar hingað
komnir til þess að sitja þing
Berklavarnabandalags Norður-
Ianda, sem háð er að Reykjalundi
nú í þessari viku og kynnast
merku starfi SÍBS að Reykja-
Iundi og víðar.
Maríus Helgason, forseti Sam-
bandsins, setti þingið, en þing-
forsetar voru kjörnir Steindór
Steindórsson menntaskólakenn-
ari, Jónas Þorbergsson útvarps-
stjóri og Garðar Jóhannesson,
Kristneshæli.
Að þingsetningu lokinni og að
afloknum ávörpum erlendra full-
trúa, hófust störf þingsins með
því að trúnaðarmenn og starfs-
menn SÍBS fluttu ársskýrslur
sinar um starfsemi liðins árs.
Maríus Helgason forseti SÍBS
flutti skýrslu stjórnarinnar.Björn
Guðmundsson gjaldkeri las reikn
inga sambandsins, Þórður Bene-
diktsson flutti skýrslu um vöru-
happdrætti SÍBS og starf Norð-
urlandabandalagsins, formaður
vinnuheimilisnefndar skýrði frá
starfrækslunni að Reykjalundi og
Oddur Ólafsson yfirlæknir skýrði
frá árangri starfsins þar og fyrir-
komulagi. Þá voru fluttar skýrsl-
ur frá einstökum sambandsdeild-
um.
Umræður og tillögur.
Það kom í Ijós við umræður
um skýrslurnar, að félagsmenn
eru mjög ánægðir með það starf,
sem leyst var af hendi sl. ár og
hlutu trúnaðarmenn sambandsins
þakkir þingsins fyrir sinn skerf.
Það kom glöggt í Ijós, að þing-
heimur allur telur sambandið og
málefni þess standa í mikilli
þakkarskuld við þjóðina alla, al-
þingi og ríkisstjórn, fyrir mikinn
skilning og stuðning allt frá
fyrstu tíð. Var lögð á þetta
áherzla í ræðum manna og einn-
ig samþykkt tillaga er tók þetta
sérstaklega fram.
Framkvæmdir að Reykjalundi.
Aðalmál þessa þings var fram-
kvæmdir að Reykjalundi og
hvernig unnt væri að hraða þeim
sem mest. Nú er hafin bygging
vinnuskála, eins af þremur, er
það mikil bygging, 600 fermetrar
að flatarmáli. Vinnan hefur til
þessa farið fram í herskálum, sem
eru ófullnægjandi. Fram til þes'sá
hefur verið lögð megináherzla á
byggingu íveruhúsa og-allsherjar
stórbyggingar þeirrar, sem nú er
að mestu lokið og hýsir margt
fólk, auk mötuneytis, setustofa o.
s. frv. Það er vöruhappdrætti
SÍBS, sem stendur undir fjár-
Góð lnndaveiði á
Mánáreyjum og Lundey
Lundaveiði hefur verið stund-
uð í allt vor í Mánareyjum og í
Lundey á Skjálfandaflóa, og hef-
ur veiði verið góð, sérstaklega á
Mánareyjum, enda hafa veiði-
menn legið þar við langtím. sam-
an. í Lundey er veiðin um 5000
lundar nú í vor. Nóg er um lunda
segja veiðimenn, en ótíð hefur
gert veiðiskapinn erfiðari.
framlögum til bygginganna að
verulegu leyti, enda er það hlut-
verk þess, en framleiðsla vist-
manna á ýmsum varningi, á að
standa undir rekstri heimilisins.
Maríus Helgason forseti SÍBS
komst svo að orði, að hlutverk
heimilisins að Reykjalundi væri
ekki hvað sízt að byggja brú í
'milli heilsuhælanna og hins al-
menna vinnumarkaðar og skapa
fólki, sem ekki á kost á starfi í
þjóðfélaginu, aðstöðu til þess að
vinna þjóðfélaginu gagn og sjálf-
um sér farborða um leið. Að
þessu marki væri keppt og mætti
segja að verulegur árangur hefði
þegar náðst, en mikið væri ógert
og treysti sambandið á velvilja
þjóðarinnar allrar í því efni sem
fyrrum.
Þingið samþykkti að fela stjórn-
inni að hraða framkvæmdunum
í Reykjalundi eftir því sem unnt
er. Ennfremur skoraði það á hið
opinbera að endurbæta og auka
húsnæði vinnustofanna að Vífil-
stöðum og Kristnesi. Þingið
þakkaði læknum og starfsfólki
heilsuhælanna ágætt starf á liðn-
um árum.
Kosningar.
Forseti SÍBS til næstu fjögurra
ára var endurkjörinn Maríus
Helgason. Aðrir í stjórn voru
kjörnir: Oddur Ólafsson yfir-
læknir, Þórður Benediktsson
framkv.stj., Gunnar Ármanns-
son skrifstofum. Fyrir í stjórninni
voru: Ásberg Jóhannesson, Björn
Guðmundsson og Brynj, Einars-
son. í stjórn Reykjalundar var
endurkjörinn Ólafur Björnsson. í
stjórn vinnustofunnar að Krist-
nesi var endurkjörinn Ásgrímur
Stefánsson framkv.stj. Akureyri.
Erindi.
í lok þingsins flutti Oddur Ól-
afsson yfirlæknir stórfróðlegt er-
indi um notkun berklalyfja og
þær vonir, sem við þessi lyf ei-u
tengd, og Jónas Þorbei-gsson út-
varpsstjóri flutti snjalla ræðu um
baráttuna gegn berklaveikinni og
sögu Kristneshælis. Var Jónas
hylltur af þingheimi fyrir braut-
ryðjandastarf á sviði heilsuhæl-
ismálsins.
Að þingstöi-fum loknum fóru
fulltrúarnir til Mývatns, en voru
óheppnir með veður.
Þyrilfluga yfir
Akureyri
Hér kom fyrir helgina amerískt
flutningaskip, tilheyrandi sjó-
hernum, og hafði meðferðis þyr-
ilflugu (helicopter). Hóf flugan
sig upp af þilfari skipsins hér við
Torfunefsbryggju á mánudags-
morguninn og flaug síðan hér
umhverfis bæinn. Er þetta í
fyrsta sinn, sem slík flugvél sést
á flugi hér. Flugvélin settist jafn-
auðveldlega á þilfar skipsins,
stanzaði í loftinu í nokkurri hæð
og seig síðan hægt niður á þil-
farið.
Þýzkur methafi í svif-
flugi kominn í bæinn
Hingað er kominn heimsmet-
hafi í þolflugi á svifflugu, Ernst
Erich Vergens að nafni, og mun
hann verða til leiöbeininga hér hjá
Svifflugfélagi Akureyrar. Stjórnar
Vergens námskeiði, sem haldið
verður við Sellandafjall í Mý-
vatnssveit, og taka um 20 svifflug-
menn þátt í því.
Svifflugfélagið hér átti 15 ára
afmæli á sl. vetri, svo sem þá var
getið um hér í blaðinu, og standa
þeir félagarnir í þessum stórræð-
um nú m. a. til þess að minnast
15 ára starfs.
Komnir alla leið til fs-
lands til að veiða lax
Hingað eru komnir tveir gestir
frá Bandaríkjunum til þess að
veiða lax og skrifa fyrir amerísk
blöð um ísland sem sportveiði-
land. Menn þessir eru Mr. Sample
og Mr. Hayword, hinn fyrrnefndi
kunnur teiknari og málari,' en
hinn síðari rithöfundur og blaða-
maður. Þeir hafa stundað veiði í
Laxá í Kjós og fara á morgun
austur í Laxá og verða þar við
veiðar 1—2 daga, en halda að því
búnu til Vopnafjarðar og ætla að
veiða í Selá og Hofsá.
DAGUR
Vegna suniarleyfa kemur
blaðið ekki út í næstu viku.
Það kom fyrir í Fleetwood í
Bretlandi fyrir nokkrum dögum,
að brezki togarinn „Red Rose“
kom af Grænlandsmiðum með
fullfermi, en gat ekki losnað við
allan aflann. Fiskkaupmennirnir
sögðu að fiskurinn væri magrari
og miklu verri en íslandsfiskur
og af afla sem nam 25.000 stone,
seldust ekki nema 15.000 stone til
neyzlu, en 10.000 stone fóru til
fiskimj ölsvinnslu.
Flann hafði verið 21 dag í „túrn-
um“, og útgerðarfyrirtækið held-
ur því fram, að tap á veiðiförinni
nemi 2000 sterlingspundum.
Verða að venja sig við
Grænlandsfiskinn.
1 tilefni af þessari útreið, sagði
forstjóri útgerðarfélagsins eftir-
Síldveiðiflotinn
í landvari
I norðangarðinum undanfarna
þrjá daga hefúr síldveiðiflotinn
legið í landvari og engin síld hefur
veiðzt. Vonir stóðu til þéss í gær,
að veðrið væri að lægja svo á
miðunum, að skipin mundu kom-
ast út í nótt eða morgun.
Verið að ryðja Lágbeiði
og Siglulf jarðarskarð
Verið er að ryðja Lágheiði og
Siglufjarðarskarð og var þar
mikill snjór fyrir. Er óvenjulega
seint, sem þessir vegir opnast,
enda óvenjuleg snjóalög og mikl-
ir kuldar á þessum slóðum.
Kuldatíð - snjóar í f jöll
Iiin mesta kuldatíð ríkir enn
hér nyrðra, eftir skamma góð-
viðristíð gekk aftur til norðaust-
lægrar áttar á föstudaginn og um
helgina snjóaði víða í fjöll, t. d.
voru Súlur hvítar allt niður á
Súlumýrar. Sláttur er almennt
hafinn hér um slóðir, en spretta
mun víðast heldur léleg og hey-
skapartíðin með afbrigðum slæm
þessa síðustu daga.
Lítill drengur drukkn-
ar í Svarfaðardalsá
Það hörmulega slys varð í
grennd við Dalvík fyrra þriðju-
dag, að lítill drengur, Ingvar
Gestsson, drukknaði í Svarfaðar-
dalsá. Hann var aðeins 2 ára,
sonur hjónanna Jónínu Sigur-
jónsdóttur og Gests Sigurðssonar
verkamanns í Dalvik. Hafði hann
hlaupið að heiman með félaga
sínum til að leika sér og fannst
eigi síðar fyrr en örendur eftir
nokkra stund.
farandi í blaðaviðtali: „Fólk
•verður að gjöra svo vel að venja
sig við Grænlandsfiskinn. Víð-
áttumikil veiðisvæði á íslandsmið
um eru nú lokuð togurum. En við
látum ekki hugfallast. Græn-
landsþorskurinn verður að eign-
ast vinsældir hér. Grænlandsmið
er nú eini staðurinn þar sem hægt
er að veiða þorsk að nokkru
ráði.“
„Litla flugaii44
skemmtir á Akurevri
j
Hingað eru komnir þirír lista-
menn frá Reykjavík, sem hér
halda skemmtikvöld, og var það
fyrsta í gærkvöldi. Flokkurinn
kennir sig við „Litlu fluguna” hans
Sigfúsar Halldórssonar, enda er
hann sjálfur með í förinni og leik-
ur og syngur eigin lög, þar á meðal
Fluguna og Tondeleyo. — Mun
marga fýsa að sjá þennan óvenju-
lega fjölhæfa og skemmtilega
listamann. Aðrir í förinni eru frk.
Soffía Karlsdóttir, hin góðkunna
revýu-söngkona, og Höskuldur
Skagfjörð leikari.
Golfmeistaramót ís-
larids Iiáð hér
Golfmeistaramót íslands verður
háð hér á Akureyri dagana 17.—
20. þ. m. Á morgun verður golf-
þing íslands sett. Þá hefst einnig
öldungakeppni, en undirbúnings-
keppni meistaramótsins, sem fer
fram 19. og 20. þ. m„ hefst á föstu-
daginn. Núverandi golfmeistari ís-
lands er Þorvaldur Ásgeirsson,
Reykjavík, og er hann mættur hér
til keppni. — Nokkrir bæjarmenn
taka þátt í mótinu, þar á meðal
Sigtryggur Júlíusson, núverandi
golfmeistari Akureyrar, og Jón
Egils, fyrrv. golfmeistari.
í STUTTU MÁLI
ÞEGAR NÝJA landhelgis-
reglugerðin íslenzka gekk í
gildi, voru fánar dregnir að
hún um Suðurnes og víð'ar á
íslandi, en íiskiskip í flestum
brezkum höfnum fiögguð'u í
hálfa stöng, að því er Fishing
News hermir: f ílull, Grimsby,
Fleetwood, Lowestoft, North
Shields, Milford Ilaven,
Swansea og Cardiff!
★
JOHN LANGAARD, for-
stöðumaður listasafnsins í
Osló, segist vera mjög hrifinn
af hinum ágætu viðtökum,
sem verk norska málarans
Edward Munch hafa fengið, en
þau hafa verið sýnd víðs vegar
í Bandaríkjunum. í grcin sinni
í norska dagblaðinu Aften-
posten segir Langaard að sér
virðist hin mikla tilfinning
fyrir listum í Bandaríkjunum
sé að þakka: „óskertum hæfi-
leikum tií þess að taka við öllu
því bezta á öllum sviðum
mannlegrar viðleitni.“
I Kaupvangsstræti klukkan f jög;ur
Klukkan fjögur síðdegis leggja flestir mjólkurflutningabílarnir upp
frá Kaupvangstorgi út í sveitirnar og þá er þar ys og þys og mikið
urn að vera. Þessa mynd tók Jöran Forsslund í fyrra, en þetta er
svipmót torgs og strætis á hverjum degi sumarmánuðina.