Dagur - 30.07.1952, Side 1
Málverka- og góbelínvcfnaS-
arsýning í Gagnfræðaskóla-
húsinu þessa viku.
GJALDDAGí BLAÐSINS
var 1. júlí síSastliðinn.
XXXV. árg.,
w' .... ■■■■
Akureyri, miðvikudaginn 30. júlí 1952
39. tbl.
Frá háííðahöldunum í Húsavík sl. sunnudag. Frá vinstri: Mannfjöldinn á torginu við verzlunarhús K. Þ., Karl Kristiánsson alþm. setur samkomuna, Vihjálmur Þór for-
stjóri ávarpar mannfjöldaim, Þórhallur Sigtryggsson kaupfélagsstjóri ílytur ræðu, Jón Sigurðsson í Yztafelli í ræðustólnuni. Páll H. Jónsson og Ketill Indriðas. fluttu kvæði.
Þingeyingar minntost frumherja
samvinnustarfsins og viðburða-
ríkrar sögu
Samband íslenzkra samvinnu-
félaga hefur fært Kaupfélagi
Þingeyinga að gjöf líkneski af
fyrsta kaupfélagsstjóranum á ís-
landi, Jakobi Hálfdánarsyni frá
Grímssíöðum í Mývatnssj^it, og
var líkneskið afhjúpað við hátíð-
lega athöfn í Húsavík sl. sunnu-
dag. Var dagurinn helgaður sam-
vinnustarfinu og minningu frimi-
herjanna hvar vetna um héraðið
og komu Þingeyingar fjölmeimir
til Húsavíkur hvaðanæfa úr
héraðinu.
Fjölmenn útísamkoma.
Hátíðahöld dagsins hófust á
torginu fyrir framan hið reisu-
lega verzlunarhús K. Þ. klukkan
2 síðdegis, í mildu og góðu veðri.
Var þá fjölmenni þar saman
komið. Karl Kristjánsson alþm.,
formaður kaupfélagsstjórnarinn-
ar, setti hátíðina og bauð vel-
komna heiðursgestina, en þeir
voru m. a. Vilhjálmur Þór for-
stjóri SÍS og frú hans, dætur
Jakobs Hálfdánarsonar, er kom-
ið höfðu frá Reykjavík til þeíS
að taka þátt í þessum fagnaði og
vera viðstaddar afhjúpun minn-
ismerkisins, og fulltrúar þing-
eysku kaupfélaganna, á Kópa-
skeri og Svalbarðseyri, Pétur
Siggeirsson formaður K. N. Þ. og
Finnur Kristjánsson kaupfélags-
stjóri á Svalbarðseyri og konur
þeirra. Karl minnti á það í setn-
ingarræðu sinni, K. Þ. hefði ekki
haldið slíka hátíð sem þessa síð-
an það minntist 25 ára afmælis
síns að Breiðumýri árið 1907, en
sú hátíð var lengi rómuð í hér-
aðinu og er enn í minni margra.
Oskaði hann þess, að samvinnu-
hátíð sú, er nú væri sett, skildi
eftir minningar eigi síðri né
skammlífari. — Lúðrasveit Ak-
ureyrar lék á hátíðinni í milli
ræðuhaldanna, og Karlakórinn
Þrymur söng og var báðum
klappað lof í lófa fyrir góða
frammistöðu.
Afhjúpun líkneskisins.
Vilhjálmur Þór, forstjóri SÍS,
ávarpaði manníjöldann að lok-
inni setningarræðu formanns K.
Þ. og flutti Þingeyingum þakkir
fyrir brautryðjandastarf þeirra í
samvinnumálum, er þeir hefðu
stofnað bæði K. Þ. og SÍS, og
fundið þaú framkvæmdaform, er
vel hefðu dugað. Hann minntist
frumherjanna og starfs þeirra og
þeirra hugsjóna, er þeir hefðu
aþð í brjósti. Hann leiddi líkur
að því, að náttúra héraðsins í
fjölbreytileik sínum hefði mótað
hina glæsilegu brautryðjendur
cg andans menn, er þar hefðu
lifað og starfað fyrr og síðar.
Hann kvað sér það í senn heið-
ur og ánægju, að fá að afhenda
Kaupfélagi Þingeyinga líkneski
af fyrsta kaupfélagsstjóranum og
brautryðjandanum Jakobi Hálf-
dánarsyni, er SÍS færði félaginu
að gjöf, í virðingarskyni við
minningu þessa ágæta manns og
sem þakklætisvott samvinnu-
hreyfingarinnar til Þingeyinga.
Gekk forstjórinn síðan inn í
anddyri hins nýja verzlunarhúss
K. Þ., þar sem styttunni hafði
verið komið fyrir, og afhjúpaði
hana. Myndin er gerð af Jónasi
Jakobssyni mydhöggvara, í fullri
líkamsstærð. Á fótstallinum er
mynd af börnum, sem eru að bisa
við bjarg. Myndin mun framveg-
is standa í anddyrinu og hefur
henni verið búinn þar sérstakur
staður. Ræðu Vilhjáms Þór var |
ágætlega fagnað af mannfjöldan- |
um en Karl Kristjánsson færði i
fram þakkir K. Þ. fyrir ágæta
gjöf og lét mannfjöldinn SÍS
lengi lifa með ferföldu húrra-
hrópi.
Minnst 70 ára samvinnustarfs.
Að lokinni athöfninni fluttu
ræður Þórhallur Sigtryggsson
kaupfélagsstjóri, Karl Kristjáns-
son alþm., formaður K. Þ., Jón
Sigurðsson í Yztafelli, Þórir
Friðgeirsson gjaldkeri K. Þ., Pét-
ur Siggeirsson á Oddsstöðum,
formaður Kaupfélags Norður-
Þingeyinga og Finnur Kristjáns-
son kaupfélagsstjóri á Svalbarðs-
eyri. Þeir Þórhallur og Karl
minntust í ræðum sínum frum-
herja samvinnustarfsins i Þing-
eyjarsýslu og héraðsins sjálfs, og
litu yfir farinn veg 70 ára sam-
vinnustarfs. Jón Sigurðsson í
Yztafelli talaði m. a. um gildi
bókasafns Þingeyinga fyrir hér-
aðið og tengsl þess og samvinnu-
stefnunnar og minnti á nauðsyn
þess að búa vel að safninu, en
ákveðið er að það verði hýst í
hinni nýju og veglegu stórbygg-
ingu K. Þ. þá fluttu þeir Páll H.
Jónsson kennari á Laugum og
Ketill Indriðason bóndi á Ytra-
Fjalli snjöll kvæði, er þeir höfðu
ort, í tilefni af 70 ára afmæli
K. Þ. Þórir Friðgeirsson
flutti kveðjur starfsmanna félags
ins, Pétur Siggeirsson flutti
kveðjur frá K. N. Þ. og tilkynnti
að félagið mundi gefa K. Þ.
brjóstmynd af Jóni Jónssyni
Gauta, er var fyrsti kaupíélags-
stjóri Kaupfélags Norður-Þing-
eyinga. Finnur Kristjánsson
flutti kveðjur frá Kaupfélagi
Svalbarðseyrar og minntist
langrar samvinnu K. Sv. og
K. Þ.
Að lokum þakkaði Karl Krist-
jánsson kveðjurnar og árnaðar-
óskirnar, las heillaskeyti, sem
borizt höfðu, minntist fóstur-
jarðarinnar og sleit síðan þessari'
myndarlegu útisamkomu, en
(Framhald á 5. síðu).
Líkneski Jakobs Kálfdánarsonar í anddyri K. Þ. í Húsavík, eftir
afhjúpunarathöfnina á sunnudaginn. Jónas Jakobss. gerði myndina.
Á fóístalli, sem er IV2 m. hár, er táknræn mynd af bömimi a'3 bisa
við bjarg. Myndin mun framvegls prýöa hið veglega anddyri nýja
verzlunar- og skrifsíoíuhúc-sins, sem nú er sem næst fullbyggt. —
Dætur Jakobs Háífdánarsonar, er voru heiðursgcstir á hátiðinni:
Frá vinstri: Herdís, Jaliobína og Aðaibjörg. Þórhallur Sigtryggsson
kaupfé'agsstjóri minntíst þeirra sérstaklega í ræðu í veizlu K. Þ.