Dagur - 30.07.1952, Qupperneq 2
2
D A G U R
Miðvikudaginn 30. júlí 1952
Signrður Pálsson
forstjóri Ullarverksm. Gefjunar
Dánarminning:
Alt eins og bómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgun stund
á snöggu augabragði
afskorið verður fljótt
lit og blöð niður lagði
líf mannlegt endar skjótt.
Manni kemur ósjálfrátt í hug
þessi fagri sálmur þegar sam-
ferðamenn okkar hverfa héðan á
bezta skeiði lífsins. Við sem
störfuðu með Sigurði Pálssyni,
áttum von á að eiga með honum
langa samleið, því hann var hér
sem forstjóri Gefjunar, nýlega
tekinn við því starfi af fóstur-
fþður sínum Jónasi Þór. En' hin
duldu öfl sem ráða lífi og dauða,
hafa í því efni viljað fara aðrar
leiðir en við.
Sigurður Pálsson byrjaði sitt
ullarjðnfræðinám hér á Gefjuni
undir handleiðslu Jónasar Þór,
og að því námi loknu sigldi hann
til framhaldsnáms til Þýskalands,
og nokkr-um árum síðar til Eng-
lands og USA til framhaldsnáms.
Það má því með sanni segja að
Sigurður Pálsson, hafi öðlazt
betri menntun í þessum fræðum
en flestir ef eigi allir nú lifandi
íslendingar. Eins og að líkum
lætur lenti það því mjög í hlut
Sigurðar að vinna með Jónasi
Þór að uppbygggingu hinnar
nýju fullkomnu ullarverksöaiðju
Gefjunar, sem Sambandið hefur
verið og er að koma hér upp.
Þeir sem lítið þekkja til slíkra
mála, gera sér varla grein fyrir
því, hversu stórbrotið og vanda-
samt verk hér hefir verið og er
verið að leysa. Sigurður Pálsson,
hefir átt mjög merkan þátt í
öllu sem hér hefir verið gert,
og hefir hann þannig á stuttu
æfiskeiði, öðlast þá hamingju að
leggja styrka hönd á merka upp-
byggingu nýrrar ullarverksmiðju
sem öll þjóðin á komandi árum
á eftir að njóta ávaxtanna af.
Við fráfall Sigurðar er sár
harmur kveðinn að eftirlifandi
ekkju börnum og móður, en
nokkur tregabót má það vera,
að vera þess vitandi að eftir Sig-
urð liggur mefkilegt' starf, sem
þjóðin á komandi tímum á eftir
að skilja enn betur en hún nú
gerir. —
Blessuð sé minning hans.
A. Þorsteinsson.
Alúðarfyllstu þakkir flyt eg börnum minum og I
tengdabörnum, vinum og kunningjum, sem á ýmsa
lund auðsýndu fnér 'ástúð og virðingu á áttrœðisafmœli
minu þann 21. þ. m. og gerðu mér daginn ógleyman- 1
legan.
Lifið öll heil i guðs friði.
Friðrika Tómasdóttir.
Skozka bómullaraefnið
er nú komið!
Vefnaðarvörudeild.
NÝKOMIÐ!
Frá Englandi:
Hurðarhandföng og skrár
Hurðaskrár
Utidyraskrár, m. handfangi
Smekklásar (Union)
Skápalæsingar, fl. teg.
Hengilásar, fl. teg.
Láshespur
Rennilokur
Staflalamir
Jám- og giorvöriideild.
Frá Svíþjóð:
Skrár og handföng
Ú tidyraskrár
Ú tidyrahandföng
Hliðgrindalamir
Hliðlokur
Fjaðralásar (skápsmellur)
Dyraklinkur
Fatasnagar
Skápalæsingar
Káetuskrár, með hand-
föngum og skiltum
Jám- og' glervöfúdeild.
Guðný Loftsdóttir
frá Þúfnavöllum
I
Eins og áður er getið hér í blað-
Ullarmóttaka sfendur yfir
hjá Kaupfél. Eyfirðinga
Eins og auglýst er í þessu blaði
er ullarmóttaka hjá KEA hafin
fyrir nokkru og fer fram í vöru-
geymslu félagsins á Gleráreyr-
um, þar sem áburðarafhending
fór fram á sl. vori. Félagið beinir
þeim vinsamlegu tilmælum til
bænda, að þeir komi ullinni frá
sér hið allra fyrsta og forði frá
auknum kostnaði við móttökuna
með því að gera móttökutímann
óþarflega langan.
r
Islandsmet í svifflugi
Nú fyrir sköfnmu fóru félagar
úr Svifflugfélagi Akureyrar til
æfinga við Sellandafjall í Mý-
vatnssveit undir leiðsögn þýzka
svifflugkennarans, sem hér dvel-
ur. Er góð flugaðstaða við fjallið
í hvaða vindátt sem er. Við þetta
tækifæri setti Tryggvi Helgason,
Akureyri, íslandsmet í þolflugi
á svifflugu, var á lofti samfleytt í
16 klst. og 25 mín. Tryggvi flaug
á Olympia-flugu, og var flugan í
400—1200 metra hæð, lengst af í
800—1000 metra hæð. Þýzki
kennarinn átti um skeið heims-
met í slíku þolflugi.
Á hausti lcomanda veroa liðin
75 ár frá því að kvennaskólinn
eldri tók til starfa á Laugalandi
í Eyjafirði.
Var hann einn af fyrstu hús-
mæðraskólum landsins og þótti á
þeim tíma mikilsvert um þá
menntun, sem hann veitti. Mörg
ungmeyjan kleif þá þrítugan
hamarinn til að verða aðnjótandi
skólavistar þar og' var skólinn
sóttur úr öllum landsfjórðungum,
en þó mest af Norður- og Aust-
urlandi. Heimili margra þessara
kvenna urðu til fyrirmyndar og
þóttu bera af um menningar-
fræðslu.
Við, sem höfum notið ástúðar
þeirra og umhyggju, stöndum í
þakkarsklætisskuld við þær og
þá brautryðjendur, sem að skól-
anum stóðu. Enda þótt þorri
þeirra kvenna, sem stunduðu
nám í Laugalandsskólanum á ár-
unum 1877—1896, séu gengnar
til hinztu hvíldar, lifa þær í verk-
um sínum og þakklátri minningu
vandamanna og vina. Hefur því
Héraðssamb. eyfirzkra kvenna
þótt hlýða að gangast fyrir því,
að heiðruð verði minning þeirra,
með einhverjum þeim hætti, sem
varanlegur væri og staðnum til
prýði, og jafnframt fagur og
táknrænn um líf þeirra og störf.
í þessu skyni samþykkti H. E.
K. svohljóðandi tillögu á síðasta
aðalfundi:
„Héraðssamband eyfirzkra
kvenna samþykkir að gangast
fyrir því, að koma upp minning-
arlundi að Syðra-Laugalandi, til
minningar um námsmeyjar og
kennara gamla Laugalandsskól-
ans.“
Á fundinum bárust strax fyrir-
heit um minningargjafir, og þótti
líklegt að margir vildu styrkja
þetta fyrirtæki. með, minningar-
gjöfum um máéð'ur sínar, eða
áðrar ættkonur, sem í skólanum
inu, andaðist Guðný Loftsdóttir
frá Þúfnavöllum 10. júní si. að
Elliheimilinu í Skjaldarvík. Hún
var lögð til hinztu hvíldar 16. s. m.
heima á Þúfnavöllum við hlið
manns síns, í grafhýsi, er liann
hafði gera látið mörgum árum fyrir
dauða sinn.
Guðný var fædd 29. júní 1861 að
Baugaseli 1 Hörgárdal, dóttir Lofts
Guðmundssonar þónda þar og konu
hafa dvalið og sótt þangað mennt
un sína. Æskilegt væri að þeir,
sem áhuga hafa fyrir því, að
•heiðra minningu einhverra hinna
gömlu námsmeyja eða kennara
Laugalandsskólans með þessum
hætti, sendi stutt æviágrip þeirra
og mynd af þeim, ef unnt væri.
Verður varðveitt í Húsmæðra-
skólanum sérstök minningabók,
þar sem þessar myndii' verða
festar inn og æviágripin skráð,
eða það sem gefandinn kynni
sérstaklega að óska.
Verður unnið að því að eignast
þannig skrá yfir sem flestar
námsmeyjar eldri skólans, en
hana geta vitanlega ættingjar og
vinir bezt látið í té.
Ætlunin er, ef mál þetta fær
ákjósanlegar undirtektir, að
marka fyrir minningarlundinum
á 75 ára afmæli skólans í haust,
en girða hann og planta á næsta
vori. Hefur lundinum þegar ver-
ið ti-yggður fagur staður í grennd
við Húsmæðraskólann, sem nú
starfar á Laugalandi. Er svo til
ætlast, að þessi reitur megi jafn-
framt vekja áhuga þeirra náms-
meyja, sem sækja Laugalands-
skólann í framtíðinni fyrir ti-já-
rækt og allri heimilisprýði utan-
húss. Minningargjöfum þessum
hefur frk. Arnheiður Skaptad.,
gjaldkeri á skrifstofu KEA, góð-
fúslega lofað að veita móttöku
fyrst um sinn. Gefur hún jafn-
framt nánari upplýsingar um
málið, ef menn óska.
Mér er ekki kunnugt um hve
fjölmennur hópur nómsmeyja frá
gamla Laugalandsskólanum hef-
ur verið, né hverjar þeirra eru á
lífi. En þær, sem treysta sér til,
ættu að rifja upp æskudagana við
skólasetninguna á Laúgalandi á
hausti komanda, þar sem þær
eru alveg sérstaklega velkomnar
á þetta hátíðlega nfrnæh skólans,
að því er stjórnéndur skólans
segja. — S. S. '.........
hans, Þorbjargar Jónsdóttur. Ólst
hún þar upp með loreldrum sínum.
Ekki var siður í þá daga að setja
ungt fólk til mennta, sízt stúlkur,
þó var Guðný vetrarþartýéið nánt á
Ytri-Bægisá hjá frá Hólmfríði Þor-
steinsdóttur, konu sr. Arnljóts Ól-
afssonar. Baugasel, þar sem Guðný
ólst upp, er í Barkárdal, sem er af-
dalur vestur úr Hörgárdal. Bærinn
er langt frá öðrurn bæjum og af-
skekktur. Guðný liefur því sjálfsagt
haft lítið samneyti við annað fólk
í æsku. Þó kom það æði oft fyrir
í þá dága, að næturgesti bar þar að
garði og stúndum illa til reika, því
að menn lögðu þá töluvert leið sína
yfir fjöllin (Héðinsskörð) á milli
Hörgárdals og Hjaltadals, einkum
skólapiltar á Hóium. Meðal ann-
arra bar þar að garði Guðmund
Guömundsson, kennara við búnað-
arskólann á Hólunt. Kom liann
þangað kalinn og lirakinn, eftir að
liala brotizt yfir fjöllin í grimmdar
stórhríð, og’varð nú að leggjast þar
veikur. Þetta urðu örlög Guðnýjar,
því að þau Guðmundur trúlofuðust
og gengu að eigast 14. .júlí 1884, og
lifðu síðan saman í liinu farsælasta
hjónabandi í nær því 63 ár, eða
þar til hann andaðist árið 1947.
Fyrsta árið eftir giftingu þeirra
hjóna, var Guðmundur enn kenn-
ari á Hólunt. Síðan tóku þau hjón
part af Baugaseli til ábúðar, en
vorið 1887 reistu þau bú í Sörla-
tungu í Hörgárdítl og þjuggu þar
til ársins 1892, en þá.fiuttu þau að’
Þúfiiabiillióri/cig bjúggtí þar á infeð-þ
an bæði lifðu..............
i *♦ ■ r.
Þeim hjónunum, Guðmundi og
Guðnýju, búnaðist mjög vel, urðu
vel efiuið og ráku stórbú á Þúfna-
völluni, énda var Guðmundur, fcins
og m^jgir mumtaánunÍJauást.Jiinn
mesti athafnamaður og búhöldtuy.
og luin manni sínuin 'samlient 1.
öllu. Hcimilið 'var sl.órt: margt
verkafólk og börnin ínörg. LIús-
freyjustaðan hefur því oft. verið
erfið, en í því efni naut Guðný á-
gætrar áðstóðar íiiágköiiu síiinar,
Sigurlaugar Guðnnindsdóttur, sem
mjög lengi var önnur liönd hennar
í heimilis- og bústjórn.
Guðný á Þúfnavöllum var lán-
söm kona, enda horfði lnin'í ell-
inni þakklátum augum ylir farinn
vcg: lnin unni manni sínum hug-
ástum og vildi öllu íyrir hann lórna
til hinztu stuiidar, og henni auðn-
uðust samvistir við ltann til ltárrar
élli og bar alltaf þá umhyggju, sem
aldrei brást, fyrir honum. Þeim.
hjónum varð 8 barna auðið, og eru
þau öll á lífi, 6 synir og 2 dætur.
Öll liafa börnin gifzt og eignazt
börn og barnabörii, svo að afkom-
endur Guðnýjar og Guðmnndar á
Þúfnavöllum eru nú orðnir niargir.
.Xf sonunum eru tveir bændur á
Þúfnavöllum og sá þriðji á næsta
bæ, tveir eru embættismenn í
Reykjavik, cn elzti sonurinn og
báðar dæturnar eru hér á Akureyri.
Síðustu ár ævinnar dvaldist Guð-
ný á elliheimilinu í Skjaldarvík. Þar
lcið hcnni vel eftir atvikum, enda
voru allir, starfsmenn og vistfólk,
henni góðir. Sérstaklega ber að
nefna fórstöðumann hælisins, Stef-
án Jónsson, sem reyndist henni
eins og góður sonur, enda unni
hún honum sem syni sínum, og sam-
býliskonu hennar, Guðlaugu Benja-
mínsdóttur, er var hcnni sem systir.
Guðný sál. var gædd góðum gáf-
um og fróðleikfús. Hún var trygg-
lyiul og vinföst, ]>ar sem hún tók
því, en ekki mannblendin, enda
dul í skapi. Astrík og umhyggjusöm
eiginkona var hún svo að af bar og
að öllu hin merkasta kona.
S.
Bréf til Dags:
Kvennaskólinn LaugalandF 75 ára
Héraðssamband eyfirzkrá kvenna vill heiðra.
minningu braufryðjendanna