Dagur - 07.08.1952, Side 7
Fimmtudaginn 7. ágúst 1952
DAGUR
7
— Fokdreifar
(Framhald af 4. síðu).
frumstæðum atvinnuháttum
þeirra.
ELVOGA-SVEINN var ein^
yrki allan sinn búskap, og bú-
skapurinn var honum harla oft
„grátt gaman“, eins og fleiri ein-
yrkjum á þeirri tíð. Gætti þess
oft í vísum hans, sem flestar
urðu til við daglegar annir og
strit. — Við slátt kvað hann eitt
sinn, beyskur í skapi:
Æsist lund við erfiði,
einn eg dunda á teigi.
Enginn hundur Ijær mér lið
litla stund úr degi.
Það liggur í augum uppi, að á
mörgum þessurn býlum, sem tím-
inn, með breyttum búháttum,
dæmdi til auðnar, hefur ekki
alltaf verið lifað neinu sældarlífi
á nútímavísu. Gömlu húsgang-
arnir vitna margir hverjir um
hina sárustu fátækt, skefjalausan
þrældóm, óþrifnað og hvers kon-
ar andlega og veraldlega ör-
birgð.
Þannig lýsir einn ókunnur
vísnasmiður búskaparháttum:
Er í býli búandans
bæði víl og sultur,
hvolpa ýl og krakkafans,
klögur, fýla og róstudans.
Og annar kvað á þessa leið:
Hart er stílað búmannsböl,
bresta fjalir enn i þil;
vantar ílát uhdiii mjöl,
ekki’ eru dahí líeldur til.
• w tK
ÞESSI GAMLA kóngsbæna-
dagsvísa segii; hgldur ekki frá
neinu^aUsii^gfáíifl, síður en svo:
Innan sleiki’ ’eg askinn minn,
ekki er saddur maginn.
Kannast eg við- kreistinginn
kohgs- á -bænadaginn.
Því fór þqHjarri; að sultur og
lélegt lífsviðúrværi hafi verið
bundið einvörðungu við ein-
yrkjakCftínj'seTtV'hú eru komin í
eyði. Stærri bújarðir, er fram á
þennan dag hafa sífellt vaxið í
áliti, eiga líka sínar sögur, varð-
veittar í húsgangsstökum. T. d.
kvað Sigurður Einarsson í Bakka
koti í Stafholtstungum þannig
um vistina í Síðumúla um og eft-
ir 1890:
Markús tjáir mönnum frá
— merkur er sá stálarunnur —
að kunni fáum krafta Ijá
kaka smá og grautur þunnur.
Um óþrifnað á Efri-Hólum í
Núpasveit, sem eg hygg að ávallt
hafi þó verið í tölu góðbúa, kvað
Erlendur gamli Gottskálksson
fyrir mörgum árum:
Á Efri-Hólum eru hús
öll í skít og fúa,
þar er fló og þar er lús,
þar má fjandinn búa.
Vissulega hefur búmannsraun-
in verið mörg, og oft ærin ástæða
til víls og sundurlyndis. Það hef-
ur m. k. þeir fundizt, sem kvað:
Hér er æði fullt með fúss,
fást ei ræður þuldar.
Utan bæði og innan liúss
eru næðingskuldar.
Og einnig þeim, sem þannig
kvað:
Gekk eg út á þorraþræl,
þótti ei betra inni:
Það var bannsett barnavæl
í baðstofunni minni.
ÞAÐ LÆTUR að Ííkum, að
nógir hafa verið tiTbúskussarnir
hér áður fyrri, en því óskiljan-
legri er afkoma þessa fólks, því
ekki ósjaldan mun mikil ómegð
og búskussaháttur hafa farið
saman. Þannig er gömul búskap-
arvísa úr Skaftafellssýslu:
Kýrin baular, karlinn raular,
konan sefur.
Hvorugt þeirra í hyggju hefur,
að hugsa um það, sem drottinn
gefur.
Onnur vísa um líka heimilis-
hætti er þannig:
Konan sat með síðar brár,
saurinn fatið þekur.
Bóndinn latur, þver og þrár
þykir matarfrekur.
NEI, ÞAÐ SKYLDI engan
undra, þótt þjóð, sem unnið hefur
jafnmikla „sællífissigra“ og við
íslendingar á síðustu áratugum,
geti illa hugsað sér að hverfa aft-
ur til hinna frumstæðu lífsskil-
yrða fyrri ára, til fátæktar þeirra
og vonlausa strits. Eyðibýlunum
mun frekar fjölga en fækka, og
er það eðlilegt, og þó ekki sárs-
aukalaust. Þeim fækkar óðum,
sem trúandi er til að taka upp
baráttuna á ný fyrir gamla Sig-
urð í Krókárgerði í Norðurárdal,
sem með hógværð hjartans kvað
við konu sína, margra barna
móður:
Farðu vart með veittan part,
vífið artarhreina.
Skammta spart, því mól er margt,
matinn þarftu’ að treina.
- „ílaiin er alltaf að hlýna“
(Framhald af 5. síðu).
liti til öryggis fyrir fólkið sjálft
og fénað þess?
Jafnframt því, sem kaupfélagið
hefur gert fyrir hérað sitt á líð-
andi stund ár hvert, þá hefur það
búið í haginn fyrir framtíðina
með því að byggja upp verzlun-
araðstöðu, sem kdmandi kyn-
slóðir taka við.
Aldrei þarf aákoma aftur fyr-
ir, að kaupfélagsstjórinn hafi —
eins og Jakob Hálfdónarson —
ekkert hús á að treysta, nema
skemmuskrifli.
Allt, sem félagið á í fasteignum
og óskiptilegum sjóðum er gróði
fjyrir framtíðina — arfur til ungra
og ófæddra Þingéyinga.
Aldrei hefur verið betra að
vera arftaki í félaginu en nú. —
Aldrei hefur það verið sterkara
sem framtíðarfyrirtæki en nú,
þegar það er 70 ára.
Enginn taki orð mín svo, að eg
haldi því fram, að ekkert sé hægt
að Kaupfélagi- Þingeyinga að
finna eða starfsefni þess.
Það er langt frá mér að halda
því fram.
Hitt fullyrði eg og hef fært rök
að því, að Kaupfélag Þingeyinga
er gott fyrirtæki og ómetanlega
mikilsvert fyrir héraðið, — hefur
verið það, er það og mun verða
það.
Enginn á félagssvæði þess hef-
ur, að mínu áliti, í raun og veru
ráð á því að standa utan við þessi
áhrifamestu samtök héraðsins, ef
hann vill vera sjálfum sér og
héraði sínu fyllilega það, sem
hann getur bezt verið.
Hafi félagsmaður sem þátttak-
andi í samtökunum yfir óánægju
efnum að kvarta, þá er réttur
hans til þess skýlaus og áhrifa-
leið hans innan félagsskaparins
opin — svo lýðræðislegt og
jafnréttistrútt er skipulag sam-
vinnufélaga.
V.
Vissulega er margt ógert, þótt
mikið hafi áunnizt.
Vörugeymslur þarf að byggja
í Húsavík — útibú eru óreist í
sveitum.
Og er ekki dæmi Gyðinganna
í hinu endurreista ísraelsríki líka
fyrirmynd, sem bendir langt
fram um óunnin verkefni?
Eiga ekki samvinnumenn ,að
gera aðferðir samvinnunnar að
skipulagi við að leysa sambúðar-
vandamál stéttanna, sem nú
skipta þjóðfélögunum innbyrðis í
stríðandi heildir?
Á ekki t. d. að reka útgerð og
iðnað á samvinnugrundvelli, þar
sem allir eigi sameiginlegra hags-
muna að gæta og skipti með sér
tekjum fyrirtækjanna í hlutfalli
við verk sín?
Sem betur fer bíða óteljandi
verkefni samvinnumanna hér —
og um heim allan.
VI.
Fyrir mörgum árum voru
nokkrir þingeyskir samvinnu-
menn á ferð á Hvammsheiði,
áleiðis til Húsayíþuv; .kornu af
kaupfélagsfundi.
Þeir áttu móti veðri að sækja:
„Að þeim hreytti ísi og snjó
undan norðangjósti.“
Það lá vel á þeim eftír fundinn,
einhver þeirra hafði orð á því, að
þetta 'væri ljóta veðrið. Þá sagði
Benedikt frá Auðnum, sem var
í hópnum:
„Nei, hann er alltaf að hlýna.“
Hinir hlóu ,— en geymdu orð
Benedikts í minni.
Þau voru einkennandi fyrir
Benedikt og bjartsýni hans.
Þau eru meira: Þau gætu hafa
verið einkunnarorð starfs og
stefnu þeirra manna, sem stofn-
uðu Kaupfélag Þingeyinga.
Þau eru sögð af því að hin log-
heita slagæð sló í brjósti.
Og kaupfélagið var stofnað
fyrir mátt þessarar slagæðar í
brjóstum gömlu Þingeyinganna
— á napur-köldum tímum.
Félagið átti að vinna á móti
kuldanum, — og það hefur félag-
ið gert — og mun gera meðan
æðin slær í brjóstum félags-
manna þess.
Örvum þann æðaslátt, góðir
Þingeyingar, til þess að norðan-
gjósturinn megi sín minna —
bæði beint og óbeint.
Kola-þvottapottur
til sölu í
Eyrarlandsveg 14 B.
Lítil íbúð,
eða gott herbergi með að-
gang að eldhúsi eða eldun-
arplássi óskast fyrir lengri
eða skemmri tíma.
IngibjörgSteindóttir,
Hfáfnagílsstræti 4.
ÚR BÆ OG BYGGÐ
Kirkjan. Sunnudaginn 10. ágúst
verður messað í Akureyrarkirkju
kl. 11 f. h. F. J. JR.
Hjónaband. Laugardaginn 2.
ágúst voru gefin saman í hjóna-
band, af séra Friðrik J. Rafnar,
Hanna Marta Vigfúsdóttir, ljós-
myndara Friðrikssonar, og Björn
Örvar úrsmiður, Reykjavík. —
Framtíðarheimili þeirra verður í
Reykjavík.
5 börn skírð í messu í Lög-
niannshlíð. Sunnudaginn 3. þ. m.
skírði séra Friðrik J. Rafnar 5
börn í messu í Lögmannshlíðar-
kirkju. 4 þeirra voru systkina-
böm, barnabörn hjónanna Sig-
urðar Vigfússonar og Katrínar
Björnsdóttur, Akureyri, en það
fimmta barna-barna-barn þeirra
hjóna. Elzta barnið sem skírt var,
rúmlega árs gamalt, var móður-
systir yngsta barnsins, sem var
fimm vikna gamalt.
Útför frú Jónu Þorsíeinsdóttur
fór fram frá heimili hennar,
Möðrufelli, laugardaginn 2. þ. m.
að viðstöddu fjölmenni. Jarðað
var í heimagrafreit. Séra Friðrik
J. Rafnar jarðsöng.
Minningarspjöld fyrir dvalar-
heimili aldraðra sjómanna fást í
bókabúð Rikku og hjá Sigurði
Sumarliðasyni, skipstjóra.
Hjúskapur. Föstud. 1. ágúst
voru gefin saman í hjónaband á
Möðruvöllum í Hörgárdal ungfrú
Ingibjörg Ólafsdóttir frá Sveins-
stöðum í Skagafirði og Ólafur
Jónsson frá Skjaldarvík, bílstjóri
á Akureyri. Ennfremur ungfrú
Auður Guðjór.sdóttfr fm ýunyu-
hálsi, Skagafirði, óg Stefárí 'Ing’-'
ólfsson frá Víðihóli á Fjöllum,
Kaupangsbakka. — Laugard. 2.
ágúst ungfrú Hulda Jóhannsdótt-
ir og Óli Friðbjörnsson, verzlun-
arm. á Akureyri, bæði úr Hrísey.
Náttúrugripasafn bæjarins er
opið kl. 2—4 e. h. á sunnudögum,
en ekki aðra daga.
Hjónaefni. Nýlega opinbei;uðu
trúlofun sína ungfrú Auður Þór-
hallsdóttir og ísak Guðmann.
Við lát
Guðnýar Loftsdóttur,
Þúfnavöllum
eftir
Sigurlínu R. Sigtryggsdóttur
frá Æsustöðum.
Vertu blessuð vina kdr,
við þér brosi sumarlönd,
þú varst hlý sem blíður blær,
í böli vernd þín milda hönd.
Líf þitt var sem lindin hrein,
sem líður hljótt um farveg sinn,
en leitar hafs frá steini að stein
og stígur rótt í djúpið inn.
Þín ást til barna blíð og tær
blómum vefur minnislönd,
vertu blessuð vina kær,
vel þig annist drottins hönd.
DANSLEIK
lieldur Skógræktarfél. Tjarn-
argerðis að Hrafnagili laugar-
daginn 9. ágúst, kl. 9l/á e. h.
Góð xnúsík. — Kaffi og gos-
drykkir á staðnuxn.
‘NEFNDÍN.
Lúðrasveit Akureyreyrar leik-
ur á Ráðhústorgi föstudaginn 8.
ágúst kl. 8 og 20 mín., ef veður
leyfir.
Til Sólheimadrengsins. Kr. 50
frá skagfirzkri konu.
Til nýja sjúkrahússins. Til
minningar um Sigurð Pálsson
forstjóra frá: Rannveigu Jósefs-
dóttur kr. 100. Freyju Jóhanns-
dóttur kr. 100. Tryggvu Krist-
jánsdóttur kr. 100. Sigríði Jóns-
dóttur kr. 50. — Áheit frá konu
á ísafirði kr. 110. — Áheit frá GK
kr. 100. — Með þökkum móttekið.
G. Karl Pétursson.
Til nýja sjúkrahússins. Kven-
félagið Framtíðin, ágóði af Jóns-
messuhátíð 21 og 22. júní kr.
20.990.39. Þar í innifalin gjöf frá
Þjóðleikhúsinu kr. 1.135.00. Þá
er skylt að geta þess, að á undan-
förnum árum hefur Kvenfélagið
Fi-amtíðin alls lagt til bygging-
arinnar kr. 403.316.64, þótt þess
hafi ekki verið getið eða þakkað
opinberlega. — Bifreiðastöðin
Stefnir kr. 1000.00. — Safnað í
Reykdælahreppi kr. 11.345.00. —
Eiríkur Einarsson cand. med. kr.
500.00. — A. G. kr. 100.00. — G.
H. , áheit, kr. 150.00. — N, N.,
áheit, kr. 100.00,—J.T. kr. 100.00.
— Kvenfélagið Hlín, Höfðahverfi,
kr. 2000.00. — Grýtubakkahr. kr.
11.515.00. — Skipverjar á Harð-
bak kr. 4300.00. — Með þökkum
móttekið. Guðm. Karl Pétursson.
Sem nýr
] ‘fátaskápúr til sölu, tilvalinn
í svefnlierbergi.
Upplýsingar gefur
Gunnar Þórsson.
Sími 1045.
ÞAKPAPPI
MÚRHÚÐUNARNET
SNOWCEM
❖
MATTOLUX-
PLASTMÁLNING
❖
STÁLULL með sápu
IÐNAÐAR-STÁLULL
•Þ
Ensk ÞAKMÁLNING
mjög vönduð.
❖
Ensk
ALUMINIUM BRONS
*
CASCO-LÍM.
Axel Kristjánsson h.f.
Brekkugötu 1.
Sími 1356.
Góður árabátur
tihsölu.
Afgr, vísar á.