Dagur - 10.09.1952, Side 1
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 10. september 1952
36. tblj
í anddyri Iðnsýningaririnar er kornið fyrir fallégurit, táknrœnum Ijós- lieit. Kliðmyndin: Úr sýningarsál KEA, mjólkursamlagið sýnir frámleiðslu-
myndum;sein eiga að minna áhorfendur á að við búum i lítt numdii landi, vorur sínar; linurit sýhir próuu samlagsins; í baksýn likan af byggingum
en tcckifccrin blasá hvarvetna við. Einkunarorðin eru skráð stórum stöfum, samlagsiris við Kaupvangsslncli. Myndin t. h.: Úr sýhingardeild SÍS, ttluti
éirís og mýndin sýnir: L'and mitt! Þú ert örœtlur draumur, óráðin gáta, fyrir- ' af sýningu FalaVerksmiðjuiinar Heklu. Sokkaprjónaavél i gangi til viiistri.
Merkor þáttiir saiitvinimfélagamia í
iðnaði landsmanna og sýnmgimni
Síðastliðinn Iaugardag opnaði forseti íslands formlega iðnsýning-
una í Iðnskólahúsinu nýja í Keykjavík, og að þeirri athöfn lokinni
var sýningin opnuð almenningi og varð þegar mjög mikil aðsókn og
hefur hún. haldizt síðan. Almenningur gerir mjög góðan róm að
sýningunni og telur hana hina merkustu.
Kemur þar margt á óvart um
hæfni og kunnáttu íslenzkra iðn-
aðarmanna. Sýningin vottar, að
iðnbylting ' hefur verið fram-
kvæmd á fslandi síðan Iðnsýn-
ingunni 1932 lauk, og hún eflir
bjai-isýni áhorfenda um mögu-
leika þjóðarinnar til þess að gera
hvers konar iðnað einn af helztu
máttarstólpum atvinnulífsins og
keppa við erlendar iðnaðarþjóðir
á heimsmarkaðinum. Má tvímæla
laust telja opnun iðnsýningarinn-
ar 1952, merkan atburð, sem
lengi mun til vitnað.
200 ára minning Innréttingauna.
Sýningin er haldin til minning-
ar um 200 ára afmæli Innréttinga
Skúla fógéta og er verðugt að
minnast brautryðjandastarfs
hans, sýningin er þó ekki sögul.
yfirlit um þróun iðnaðar hér
nema að litlu leyti, aðaláherzlan
er hér lögð á að sýna getu og
kunnáttu iðnaðarmannanna í dag
og þau tækifæri, sem nú eru til
eða í næstu framtíð, að framleiða
hér ágætan iðnaðarvarning af
hinum margvíslegustu tegundum.
Að sýningunni standa samtök
iðnaðarframleiðenda og nokkurir
aðrir aðilar ásamt SÍS og Rvík.
Þátttakendur eru iðnaðarfyrir-
tæki fyrir sunnan og norðan, að-
allega í Hafnaz-firði og Reykja-
vík, alls á þriðja hundrað fyrir-
tæki. Af fyrirtæjum utan Rvíkur
ber langsamlega mest á sam-
vinnuverksmiðjunum hér. Eiga
SÍS og KEA stórar deildir á sýn-
ingunni.
MikiII húsakostur.
Sýningin er til húsa í hinni
miklu nýbyggingu Iðnskólans í
Reykjavík, á Skólavörðuholti, og
er þar ó fimm hæðum, auk þess
eru sýningardeildir úti, á lóð
skólansi Eru þetta mikil og góð
húsakynni, samanlagt sýningar-
rými mun vera um 5600 m2. Á
fyrstu hæð er sýndur ýmiss kon-
ar málmvarningur, framleiddur í
vélsmiðjunum, þ. á. m. hinn ís-
lenzki dieselhreyfill vélsmiðj-
unnar Héðins, þarna er sýnd m.
a. smíði miðstöðvarkatlá og ofna,
olíunkyndingartækja, vélahluta,
leikfimistækja o. m. fl. Þarna er
og almenn upplýsingadeild fyrir
iðnaðinn í heild og fá gestir þar í
stórum dráttum yfirlitsmynd af
því, hvar þjóðin er á vegi stödd í
iönaðinum í dag.
Á annarri hæð eru líkan inn-
réttinganna í Reykjavík og þar er
minnzt Skúla fógeta. Á þessari
hæð hefur matvælaframleiðslan
aðalsýningarskála sína, er þar t.
d. hraðfrysti-iðnaðurinn, öl- og
gosdrykkjaiðnaðurinn, þarna eru
ennfremur ýmiss konar hrein-
lætis- og matvörur, umbúðir og
fleira.
Á þrioju hæð eru m. a. blikk-
smíðavörur ýmiss konar, léttar
málmvörur aðrar, burstagerðar-
vörur, plastvörur, rafmagns-
áhöld, byggingavörur o. fl., og
þar eru sýningarsalir SÍS og
KEA og vekja mikla atliygli.
Sýnlng samviiuiuverksmiðjnna.
Samband ísl. samvinnufélaga
hefur til umráða nokkrar stofur á
þessari hæð og er þar á smekk-
legan og áhrifaríkan hátt skýrt
frá þróun samvinnufélagsskapar-
ins í landinu og þátttöku sam-
vinnumanna í iðnaðinum. Þá eru
sérsýningar verksmiðja SlS og
ber þar vitaskuid mest á stórfyr-
irtækjum SÍS hér, Gefjuni, Ið-
unni og Heklu, og þarna eru
einnig sýningar sameignarfyrir-
tækja KEA og SÍS, Sáþuverk-
smiðjunnar Sjafnar, kaffi-
brennslunnar og kaffibætisgerð-
arinnar. Utflutningesdeild Sam-
bandsins á þarna athyglisverða
deild og í sambandi við hana er
eldhús, sem býður gestum_ jafn-
an upp á ýmsar tegundir ljúf-
fengra ostarétta. Mikið er þarna
af ljósmyndum og línuritum til
skýringar, auk framleiðsluvara
verksmiðjanna.
Kaupfélag Eyfirðinga
sýnir framleiðsluvörur verk-
smiðja sinna í smekklegu sýning-
arherbergi, eru þar Ijósmyndir
úr verksmiðjunum og sýnishoi'h
vai-riings, m. a. frá smjöi’líkis-
gei’ðinni, pylsugei’ðinni, efna-
gerðinni, stálhúsgagnagerðinni og
málmhúðuninni, frá skipasmíða-
stöðinni og mjólkursamlaginu.
Er sýningai-munum og upplýs-
ingum smekklega og nýstárlega
fyrir komið, vekur þessi deild at-
hygli og umtal.
Fimm hæðir.
Á fjórðu hæð eru aðallega fatn-
aðar- og leðurvörur og getur þar
að líta mai’gvíslega fataiðju, sem
þróast hefur hér á landi á síðustu
árum og er þó merkasti þáttur
þeirrar iðju í sýningai’deild SÍS,
þar sem skýrt er frá framförun-
um í ullarvefnaði og dúkagerð
Gefjunar. Á fimmtu hæðinni eru
sýnd húsgögn og húsmunir ýmiss
konar, ennfremur heimilisiðnað-
ur aJls konar og munir frá hand-
íðaskólanum. Loks er veitinga-
salur. Hefur hér aðeins verið tal-
ið fátt eitt og gefur slík upptaln-
ing næsta fátæklegá mynd af
þessari miklu sýningu.
Fá fyrirtæki után af landi.
Þegar sýningardeildum sam-
vinnufélaganna sleppir, eru fá
fyrirtæki utan af landi, sem sýna
vörur sínai’. Af fyrirtækjum á
Akureyi’i, að því bezt er vitað,
aðeins súkkulaðiverksmiðjan
Linda og vélsmiðja Stéindórs h.f.
Sýnir Linda framleiðsluvörur sín
ar, en Steindór fjósinnréttingu,
sem vélsmiðjan hefur fundið upp
og smíðar og þykir merkileg.
Sjón er sögu ríkari.
Ohætt er að hvetja þá, sem
ástæður hafa til þess, að bregða
sér suður og sjá sýninguna. Flug-
félagið auglýsir nú hópferðir með
niðursettu verði og sjáífsagt
j verður efnt til hópfei’ða landíeið-
ina líka.
Samvinnuverksmiðjurnar cru
langstccrsti pátttakandinn ut-
an af landi, cn nokkur önnur
fyrirtcvki útan Rvikur eru
með, par á meðal tvö Akur-
eyrarfyrirtæki, Súkkulaðiverk
smiðjan Linda og Vélsmiðja
SteindórS. Myndin sýhir deild
IJndu h.f.
Þreíöld uppskero?
Líkur benda til þess, að upp-
skera í kartöflugörðum hér um
slóðir verði í mesta lagi þreföld,
þ. e. 2—6 kartöflur í útsæðisstærð
undan grasi. Kartöflugras féll
nær alveg hér í Eyjafirði seint í
sl. mánuði.
Sáptivcrksníiðjan Sjöfn á skemmtilegan pátt í sýhingar-
deild SÍS á Iðnsýningunni. Hjólið fyrir cnda gangsins snýst
i sífellu og sýnir jafnframt framleiðsluvörur vérksmiðjunnar.
Stúlkumyridin innst til hcegri er búin til úr eintómum sápu-
stykkjum. Gestir fá sýnishorn mcð sér, ef peir æskja pess.