Dagur - 24.09.1952, Page 1
AUGLÝSINGAR í DEGI
lesa flestir Akureyringar
og Eyfirðingar!
AGU
POSTKRÖFUR fyrir andvirði
blaðsins 1952 verða sendar
næstu daga til fjarlægra staða.
Innleysið þær greiðlega!
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 24. september 1952
38. tbl.
I deild KEA á Iðnsýningunni í Reykjavík er m. a. greint frá stál-
húsgagnagerð og málmhúðun félagsins á Oddeyrartanga og eru
þar m. a. sýnd húsgögn frá stálhúsgagnagcrðinni, sem sjást hér
á Iðnsýningimni
Frambjóðandi Framsóknar-
flokksins í aukakosningunni í
Vesíur-ísafjarðarsýslu, Eiríkur
Þorsteinsson kaupfélagsstjóri,
vann glæsiiegan sigur í kosning-
unni sl. snunnudag.
Taliiingu atkvæða lauk síðdeg-
is í gær og urðu úrslit þessi:
Eiríkur Þorsteinsson, Framsókn-
arflokkur, 405 atkvæði.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
frambjóðandi Sjálfst.fl., 273.
Sturla Jónsson, frambjóðandi Al-
þýðufl. 233 atkv., og
Gunnar M. Magnúss, fram-
bjóðandi kommúnista 34 atkv.
Auðir seðlar 4, ógildir 6. Á
kjörskrá 1068, 958 kusu, eða
89,7%.
í síðustu Alþingiskosningum
var Ásgeir Ásgeirsson, frambjóð-
Vígsia nýja knalfspyrnu-
vaiiarins á sunnudaginn
Á sunudaginn kemur er ætiun-
in að vígja knattspymuvöllinn á
íbróttasvæðinu nýja. Vígslan
hefst með því að formaður
ÍBA, Ármann Dalmannsson,
flytur ávarp, þá keppa meistarafl.
K. A. og Þór í knattspyrnu (40
mín. leikur), boðhlaupssveitir frá
K. A. og Þór munu reyna að setja
ntt íslanýdsmet. í 1000 m. boð-
hlaupi og loks verður „old boys“
knattspymukappleikur og er
ætlunin að blaðamenn velji í
annað liðið en knattspyrnuráðið
í hitt. Keppendur verða ýmsir
meistarar og enginn degi yngri en
fertugur. — Allur ágóði af sam-
komunni rennur til áhaldakaupa
fyrir nýja ihróttasvæðið.
andi Alþýðuflokksins, kjörinn
með 418 atkv., Eiríkur Eiríksson,
frambjóðandi Fram.sfl. hlaut 336
atkv., Axel Tulinius, Sjálfstæðis-
fl. 213 og Þoi valdur Þórarinsson,
kommúnisti, 28 atkv.
Um 350 iniffiir
þegar gefnir til
byggðasafnsins
í gærmorgun bauð Ragnar Ás-
geirsson ráðunautur, sem hefur
undanfarið unnið að því, ásamt
Snorra' Sigfússyni námsstjóra, að
safna munum til fyrirhugaðs
byggðasafns í Eyjafirði, blaða-
mönnum að líta á árangminn af
söfnuninni til þessa. Hefur mun-
unum verið komið fyrir til
bráðabirgða í herbergi í kjallara
nýja spítalans. Er buið að raða
þeim þar í hillur, merkja þá og
skrá. Samkvæmt frásögn Ragnars
eru þegar komnir um 350 munir
í safnið og eru ýmsir þeirra
mjög merkir. Hafa ýmsir aðilar
fært safninu að gjöf marga góða
gripi og vitað er um ýmsa muni
víðs vegar um héraðið, sem safn-
inu munu berast á næstunni. Það
vekur furðu, hversu margt hefur
safnast á skömmum tíma og
Ragnar Ásgeirsson tók fram, að
nær undantekningarlaust væru
munimir gefnir en ekki seldir
og íylgdi gjöfinni góðvilji fólks til
byggðasafnsmálsins og áhugi fyr-
ir því, að slíkri stofnun verði
kcmið hér upp hið fyrsta.
(Framhald á 8. síðu).
verkefnin hér um slóðir
Fjárskortur Iiáir mjög endurbótum og viðhaldi
á vegakerfi landsins
Stutt samtal við Geir G. Zoéga vegamálastjóra
Vegamálastjórinn, Geir G. Zoega, hefur undanfarna daga verið á
ferðalagi um Eyjafjarðar- cg Þingeyjarsýslur, m. a. til þess að
kynna sér ásigkcmulag vega og athuga um nauðsyniegar endurbæt-
urf og framkvæmdir í næstu íramtíð.
Úrslit kosninganna í Verka-
mannafélaginu hér á Akureyri
um lI. helgi urðu þau, að
kommúnistar löfðu á 4 atkv. og
fengu kjörna fulltrúa sína á
Alþýðusambandsþingið. Hlaut
listi þeirra 194 atkv., en Iisti
lýðræðissinna 190 atkv. Komrn
únistar smöluðu mjög liðs-
mönnum sínum og tókst með
harðíylgi að verða ofan á. —
Lýðræðissinnar sóttu kosning-
una lakar og urðu því af sigr-
inum. En kommúnistar eru
komnir í minnihluta í Verka-
mannafélaginu og eru það
markverð tíðindi út af fyrir
sig og mun þess nú skammt að
bíða að verkamenn hrindi
flokksstjóm kommúnista á
hagsmunasaintökum sínum.
Lýðræðissinnar hafa
sérsfakan lisfa í kjöri
í Jðju”
Urú næstk. helgi verða kjörnir
fulltrúar á Alþýðusambandsþing
í Iðju, félagi verksmiðjufólks hér
í bæ og verða tveir listar í kjöri,
annar borinn fram af lýðræðis-
sinnum, en hinn af stjórn félags-
ins og trúnaðarráði (listi komm-
únista). Á lista lýðræðissinna
eru þessir menn: Ingimar Da-
víðsson, Mjólkursamlaginu, Adam
Ingólfsson, Iðunni, og Karólína
Stefánsdóttir, Gefjuni. Til vara:
Brjánn Guðjónsson, Iðunni,
Ingibjörg Jóhannsdóttir, Gefjuni,
og Guðmundur Andi’ésson, Sjöfn.
Á lista kommúnista eru: Jón
Ingimarsson, Klapparstíg 3,
Kristján Larsen, Árbakka, og
Kristlaug Guðmundsd., Kletta-
borg. Til vara: Sveinn Benedikts-
son, Framnesi, Helga Hannes-
dóttir, Norðurgötu 36, og Laufey
Bjarnadóttir, Kaupvangsstræti 1.
aðalbókari, látijm
Sveinn Bjarman, aðalbókari
hjá KEA, andaðist í Reykjavík
sl. mánudag eftir skamma lcgu.
Banamein hans var hjartabil-
un. Hann varð 62 ára gamall,
fæddur 5. júní 1890 að Naula-
búi í Skagafirði. — Þessa
mcrka borgara og ágæta drengs
verður minnst hér í blaðinu
síðar.
Dagur átti stutt samtal við
vegamálastjórann í fyrradag og
spurðist fyrir um horfur á fram-
kvæmdum í vega- og brúargerð-
armálum hér nærlendis.
Brýr á Skjálfandafljóti
og Glerá.
Vegamálastjóri skýrði svo frá,
að hann væri hér m. a. vegna
fyrirhugaðra brúargerða á
Skjálfandafljóti undan Stóru-
völlum og á Glerá. Um Skjálf-
andafljótsbrúna sagði hann, að
ýmis undirbúningur og mælingar
yrðu gerðar nú í haust, og nokk-
úð af efni keyrt á brúarstaðinn,
en brúarsmíðin sjálf mundi hefj-
ast að vori. Þetta verður hengi-
brú allmikil, sama gerð og brúin
á Jökulsá á Fjöllum, en ekki
miðuð við eins mikinn þunga-
flutning og því ekki eins veiga-
mikil. En mikil samgöngubót
yrði að brúnni fyrir Bárðardal.
Um Glerárbrúna væri það að
segja, að ekki væru horfur á að
meira yrði gert í ár en að steypa
stöplana. Ekki hefði verið veitt
fé til þessarar brúargerðar á
fjárlögum og enda þótt bærinn
hefði boðist til að lána fé, væri
tími nú svo hlaupinn að naum-
ast mundi hægt að Ijúka brúar-
gerðinni í ár, þótt fé fengizt.
Endurbætur á Vaðlaheiðarvegi
og Eyjafjarðarbraut.
Vegamálastjóri sagði að sér
virtist aðkallandi að gera veru-
legar endurbætur á ýmsum veg-
um hér í Eyjafirði og þá einna
helzt á Vaðlaheiðarvegi og
Eyjafjarðarbraut og reyna með
slíkum endurbótum að fyrir-
kyggja að vegirnir tepptust eins
snemma í snjóum og nú er orðið.
En þessi mál væru mjög erfið
viðfangs vegna fjáiskorts. Sann-
leikurinn væri sá, að vegagerð-
ina skorti mjög fé til nauðsynleg-
asta viðhalds á vegakerfi lands-
ins og um endurbætur að nokkru
ráði væri þaðan af síður að ræða
meðan ekki blési byrlegar með
fjárveitingar. Ýmsir vegir, sem
kallaðir hefðu verið fullgerðir
hér fyrr á árum, þyrftu nú mik-
illa endurbóta við. Nú þyrfti að
brjótast yfir heiðar á öllum árs-
tímum, enda væru nú tæki til
þess, en slíku hefði ekki verið að
heilsa á árum áður. Á meðal
vega, sem stórra endurbóta
þyrftu við, væru t. d. Vaðlaheiðar
vegur — að koma honurn burt úr
skaflihum og mestu snjóalögun-
um, — og Eyjafjarðarbraut, sem
þyrfti verulegra endurbóta við,
m. a. vegna snjóalaga.
Ilvað um Fnjóskadalsveg og þá
leið austur?
Um vetrarleið um Fnjóskadal
yrði naumast að ræða fyrr en fé
hefði verið veitt til þess að gera
þar nýjan veg að mestu leyti, en
slík vegagerð mundi kosta stór-
fé. Ekki vildi vegamálastjóri spá
neinu um það, hvort líklegt mætti
telja að fé yrði veitt til þessa veg-
ar á næstunni.
Ný Hörgárbrú.
Um brúargerð á Hörgá, sagði
vegamálastjóri, að hann hefði
fyrir löngu gert tíllögu um að fé
yrði veitt til þess að gera þar nýja
brú, enda væri þess mikil þörf.
Hann taldi nokkra von- til þess að
e. t. v. yrði hafizt handa um það
á næsta ári, en þó væri það engan
veginn víst.
Þetta samtal við vegamála-
stjóra gat ekki orðið lengra að
sinni, því að eftir honum beið bíll
og nokki'ir samferðamenn og var
ætlunin að aka Laugalandsveg til
þess að athuga hann og heyra
tillögur um endurbætur á hon-
um. Dagur þakkar vegamála-
stjóra greið svör. Það er gott að
hann gefur sér tíma til að koma
hingað norður og kynnir sér af
eigin reynd ástandið. Sennilega
fer það ekki fram hjá honum, að
mikil og almenn óónægja er hér
ríkjandi vegna ófullnægjandi
viðhalds vega og erfiðleika að
komast bæjarleið eftir að snjóar
ganga í garð. Verður að vænta
þess að vegamálastjórnin leggi
kapp á að greiða úr slíkum erf-
iðleikum, t. d. í sambandi við
Vaðlaheiðarveg, eftir því sem
efni framast leyfa.