Dagur - 24.09.1952, Blaðsíða 8
8
Miovikudaginn 24. sept. 1952
Að minnsfa kosfi 250.000 fenings-
mefrar af framræsluskurðum
grafnir í héraðinu í sumar
Nýrækfir í ár fullf eins miklar og áður - bygginga-
framkvæmdir eiffhvaö minni
Samtal við Ólaf Jónsson héraðsráðunaut
(Jm 100 bílar í fjárfíufningum til
Suðurlands alla þessa viku -
Flufningar hafa gengið framar öllum vonum - segir
umhoðsmaður sunnlenzku bændanna hér
Sumarið 1951 voru grafnir
framræsluskurðir í Eyjafjarðar-
sýslu og þeim .liluta Suður-Þing-
eyjarsýslu, er liggur að Eyjafirði,
er námu 250.000 teningsmetrum,
og á yfirstandandi sumri mimu
framkvæmdirnar ekki minni,
sennilega eitthvað meiri, en
mæiingum er ekki Iokið, enda
eru skurðgröfur enn að verki hjá
ræktunarsamböndunum og munu
verða fram á haustið, eftir því
sem tíð leyfir.
Þessar upplýsingar fékk blaðið
hjá Ólafi Jónssyni héraðsráðu-
naut, er það leitaði fregna hjá
honum af ræktunarframkvæmd-
um í héraðinu.
Framkvæmdimar í sumar.
í sumar hafa skurðgröfurnar
verið að verki hjá öllum ræktun-
arsamböndunum nema Svarfað-
ardfll, en þar var mikið rmnið í
fyrra. í stórum dráttum eru
framkvæmdirnar þessar: Hjá
Ræktunarsamb. Saurbæjar- og
Hrafnagilshreppa hefur í sumar
aðallega verið unnið syðst í
Hrafnagilshreppi, á Grund, Mið-
húsum, Finnastöðum, Torfum og
Möðrufelli og einna mest á síðast
taldri jörðinni, enda standa þar
yfir miklar framkvæmdir. Eru
tveir synir Kristins bónda Jóns-
sonar að stofna þar nýbýli. Þetta
ræktunarsamband á sjálft skurð-
gröfuna og starfrækir hana. Hjá
Ræktunarsambandi Öngulsstaða-
hrepps vinnur skurðgrafa, sem er
eign Vélasjóðs og hefur hún
unnið nyrzt í hreppnum í sumar,
í bæjaröðinni frá Kaupangi og
norður úr að hreppamótum. Þar
utan við er að verki skurðgrafa
Ræktunarsamb. Grýtubakka- og
Svalbarðsstrandarhrepps. Hefur
hún að undanförnu unnið á
Veigastöðum og er um þessar
mundir að byrja í Sigluvík, en'
fyrr í sumar stai’faði hún í
Höfðahverfi, og þar var einnig
mikið grafið í fyrra. Ræktunar-
samband Amess- og Árskógs-
hreppa hefur skurðgröfu frá
Vélasjóði, hefur hún til þessa að-
allega starfað syðst í Árskógs-
hreppi, í Kálfskinni og Rauðu-
vík og heldur nú inn eftir, um
Fagraskóg, Kjarna til Arnar-
ness. Þessi grafa var að starfi í
Svarfaðardal í fyrra. Næst sunn-
an við er grafa Vélasjóðs, starf-
rækt af Ræktunarsainbandi
Glæsibæjar-, Skriðu og Öxna-
dalshreppa. Sú grafa vann fyrst
í Kræklingahlíð, en síðan í
Oxnadal og er þar að starfi nú.
Loks er svo skurðgrafa Akur-
eyrarbæjar, sem unnið hefur að
framræslu fyrir ýmsa ræktunar-
menn í nágrenni bæjarins. Að
öllu samanlögðu má telja víst, að
grafnir hafi verið meira en
250.000 teningsmetrar. — Ólafur
Jónsson taldi að nýræktir í hér-
aðinu væri fullt eins miklar í ár
og í fyrra, en byggingafram-
kvæmdir eitthvað minni. Hann
taldi að heyskapur mætti teljast
sæmilegur allvíða, einkum inn-
fjarðar, en rýrari en ella allvíða
sökum kalskemmda á sl. vori.
Kal og grastegundir.
Þegar blaðið spurði Ólaf um
álit hans á rannsóknum þeim,
sem gerðar hafa verið á kal-
skemmdum í ár og fregnir hafa
birzt af í blöðum, sagði hann, að
enn hefði ekkert komið fram í
blaðafregnunum, sem ekki væri
áður vitað. Ólafur framkvæmdi
sjálfur athuganir á kali fyrir
nokkrum árum og skrifaði ýtar-
lega um þau efni í Ársrit Rækt-
unarfélags Norðurlands. Er þar
m. a. bent á þolni háliðagrassins,
sem virðist vera aðalniðurstaðan
nú. í framhaldi af þessu sagði
Ólafur Jónsson, að grasfræblönd-
ur þær, sem fengist hefðu hér að
undanfömu, hefðu valdið sér
vonbrigðum, og því miður væri
ekki sú bót orðin á grasfræsöl-
unni, sem hann og fleiri ræktun-
armenn hefðu vænzt. Til dæmis
væri ástæða til að ætla, að há-
liðagrasið, sem var í blöndu
þeirri, sem seld var í vor, hefði
ekki spírað að gagni nema að
einhverju leyti. Grasfræblöndur
þær, sem fengust fyrir stríð,
reyndust vel, og taldi Ólafur
ástæðulaust að breyta þeim nema
fyrir lægju sannanir um betri
blöndur, en slíkar sannanir væru
ekki fyrir hendi. Yfirleitt
virtist sér að vanda þyrfti meira
til grasfræinnkaupa og grasfræ-
blöndu en nú er gert.
Aðalsláfurííð hófsí í gær
í gær hófst aðalsláturtíðin hér
og var slátrað 350 kindum úr
Glæsibæjarhreppi, á sláturhúsi
KEA á Oddeyri. Féð virtist vera
mjög vænt. Engin kjötsala var á
sláturhúsinu í gær, enda hafði
ekki barizt tilkynning um haust-
verð á sláturafurðum frá verð-
lagsráði landbúnaðarins og má
það heita undarleg ráðsmennska,
að verðið skuli ekki tilkynnt í
upphafi sláturtíðar. Von mun
hafa verið á verðtilkynningunni í
gærkveldi.
Stjórn „Iðju"
mótfallin uppsögn
kjarasamninga
Um næstkomandi helgi fer
fram atkvæðagreiðsla í Iðju,
félagi verksmiðjufólks, jafn-
framt fulltrúakjöri- til Aíþýðu-
sambandsþings, um uppsögn á
núgildandi kaup- og kjara-
samningum og mun Alþýðu-
samband íslands hafa mælzt til
þess að félögin hafi samninga
lausa um miðjan des. næstk. —
Stjórn og trúnaðarráð Iðju hér
í bæ haía lýst sig andvíg upp-
sögn samninganna á þessum
mynd í Nýja-Bíó
Nýja-Bíó hér í bæ hefur und-
anfarna daga haft sýningar á
ítalskri söngvamynd (Bajazzo),
sem gerð er eftir óperunni Pagli-
acci eftir tónskáldið heimskunna
Leoncavallo. Syngja ágætir
ítalskir söngvarar hlutverkin, m.
a. Tito Gobbi, sem er í hópi beztu
núlifandi söngvara, og Nina
Lollobrigide, sem er í senn ágæt
óperusöngkona, og leikkona, og
auk þess fegurðardrottning ítal-
íu. Hljómlistin í myndinni
er því með ágætum, auk
þess er þessi stutta ópera
meðal skemmtilegustu og
áhrifaríkustu minni ópera á síð-
ari tímum. Ætt enginn, sem ann
söng og fagurri tónlist að missa af
þessari mynd. Hún mun verða
sýnd nú síðari hluta vikunnar
einu sinni eða tvisvar.
Hópíerðir á iðnsýninguna
Fjöldi manna héðan úr bæ hefur
gert ferð til Reykjavfkur til þess
að sjá sýninguna og hafa bæði
Flugfélagið og Norðurleið h.f.
boðið upp á sérstök kjör vegna
þessara ferðalaga. M. a. þeirra,
sem farið hafa suður, eru margir
starfsmenn KEA, og var ætlað að
um 90 starfsmenn mundu fara
suður fyrstu 3 helgar ýningar-
innar.
Síðastl. föstudag komu hingað
til Eyjafjarðar fyrstu fjárflutn-
ingabílarnir úr Þingeyjarsýslu og
hvíldu hér í Staðareyju um nótt-
ina. Fluttu þeir fé úr Kelduhverfi
sem átti að fara í Gnúpverja-
hrepp í Árnessýslu.
Lögðu þeir upp héðan á laugar-
dagsmorguninni suður á bóginn.
Þann dag fóru 19 bílar fullhlaðn-
ir suður, á sunnudaginn 33 bílar,
á mánudaginn 48 bílar og eitt-
hvað svipuð tala í gær. Hver bíll
hefur frá 45—65 lömb og hafa
flutningarnir gengið framar öll-
um vonum, að því umboðsmaður
sunnlenzku bændanna, Guð-
mundur bóndi Guðmundsson á
Efri-Brú í Grímsnesi — sagði
blaðinu í viðtali í gær. Engar
teljandi bilanir hafa orðið á bíl-
um og yfirleitt er skjótt brugðið
við að gera við vegi þar sem þörf
þykir, hefur einkum verið þörf
á því á Uxahryggjarvegi, sem
var endurbættur nú nýlega með
tilliti til fjárflutninganna..
Flestir bílarnir eru sunnlenzkir.
Guðmundur sagði að um 100
bílar væru nú skráðir til fjár-
flutninganna og skiptast þeir
þannig: Bílstjórafélag Þingey-
inga 16 bílar, Bílstjórafélag
Húsavíkur 7 bílar, úr Reykjavík
10 bílar, fáeinir bílar úr Rang-
árvallasýslu, 2 af Hvammstanga,
1 úr Stykkishólmi og um 60 bílar
úr Árnessýslu. Af Akureyri
verða nokkrir bílar, er að því
kemur að flytja fé úr Eyjafirði.
Flutningurinn er greiddur með
13 aurum á hvern km. fyrir
lamb ,og mun láta nærri að bíl-
arnir fái 80 krónur fyrir að flytja
lambið úr Kelduhverfi í Gnúp-
verjahrepp, en það er mesta
vegalengdin, en nokkru styttri til
annarra áfangastaða í Ámes-
sýslu. Er lömbunum skipt þar á 7
staði, og þangað sækja svo bænd-
ur lömbin. Áætlað er að menn fái
allt að50%af tölu þess bótaskylds
fjár, er þeir urðu að lóga vegna
sauðfjárveikivarnanna.
Lömbin líta vel út.
Guðmundur sagði að fjár-
kaupmennirnir, sem starfa í
Þingeyjarsýslu og Eyjafirði teldu
lömbin líta mjög vel út og væru
ánægðir með þau. Hins vegar
heyrðist sér að ýmsir bændur
hér um slóðir teldu þau tæplega
í meðallagi, en þá væru þeir líka
vanir vænu fé. Oll lömb, sem
suður eru komin, líta vel út og
hefur ekkert lamb farizt eða
meiðst í flutningunum það sem
af er. Auk gimbralambanna
kaupa bændur hrútlömb, 1 hrút
fyrir hverjar 12—15 gimbrar, og
hefur ekki reynst neinum erfið-
leikum bundið að fá hrútlömbin.
Horfur eru á því að sú tala, sem
lofað var, fáist fullkomlega og
sennilega vel þáð éftir því sem nú
horfir.
Hætt við kaup á
Svalbarðsströnd.
Þegar uppvíst varð um garna-
veikina í kindúm frá Svalbarðs-
strönd, var hætt við að kaupa
lömb á Svalbarðsströnd. Er fjár-
kaupasvæðið því frá Jökulsá á
Fjöllum að girðingu við Lónsbrú
í Glæsibæjarhreppi, að undan-
skildum Saurbæjarhreppi í Eyja-
firði og Svalbarðsstrandarhreppi.
Góð fyrirgreiðsla.
Fjárflutningar þessir, sem eru
þeir umfangsmestu, sem sögur
fara af hér á landi, munu standa
fram um miðja næstu viku, ef
allar áætlanir standast. Guð-
mundur á Efri-Brú kvað það trú
sína, að það lán, sem hefði verið
yfir flutningunum til þessa
mundi endast sunnlenzku bænd-
unum allan tímann hér nyrðra.
Rómar hann mjög alla fyrir-
greiðslu bændanna, sem selja
lombin, og allra annarra aðila,
sem sunnlenzku bændurnir eiga
hér skipti við. Sagði hann að
reynt væri að greiða fyrir flutn-
ingrmum eftir íöngum, hvar sem
þeir kæmu.
UM 350 MUNIR
(Framhald af 1. síðu).
Á meðal gripa, sem Ragnar
sýndi fréttamönnunum, voru
ýmsir útskurðarmunir, þ. á. m.
nokkrir eftir Bólu-Hjálmar, tó-
vinnuverkfæri alls konar, askar,
mjólkurílát, vefnaður, reiðskap-
ur alls konar, reizlur og vogir,
tóbaksílát og verkfæri, brenni-
vínskútar, hákarlaífærur o. m. fl.
Verður væntanlega hægt að segja
nánar frá safninu og einstökum
gripum þar í næstu viku.
Húsgögn frá Valbjörk á Iðnsýningunni
■líiíiiit 4
■ s-i
nm vhí
Eitt þeirra norðlenzku fyrirtækja, sem taka þátt i Iðnsýnmgunni, er
húsgagnavinnustofan Valbjörk s.f. hér á Akureyri, sem sýnir
smekkleg og nýtizkuleg húsgögn, sem vekja athygli. Hér er smekk-
leg borðstofa frá Valbjörk. — Ljósinynd: Guðni Þórðarson.