Dagur - 01.10.1952, Blaðsíða 1
AUGLÝSINGAR í DEGI
Iesa ílestir Akureyiiiigar
og Eyfirðingar!
AGU
POSTKROFUR fyrir andvirði
blaðsins 1952 hafa verið send-
ar til fjarlægra staða. —
Innleysið þær grciðlcga!
XXXV. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 1. október 1952
39. tbl.
Málmhúðun KEA á Iðnsýningunni
í sýningardeild KEA á Iðnsýningunni er m. a. deild frá Málmhúðmi
félagsins á Oddeyrartanga, líkan af verksmiðjuhúsinu, er hýsir stál-
hiií gagnagcrðina og máimhúðunina og ýmsar upplýsingar um máím-
húðunina, sýnishom og frásagnir. Sjá nánari frásögn af Iðnsýn-
ingunni annars staðar hér í blaðinu.
Þáiftaka nor
Góð auglýsing fyrir iðnaðinn á Akureyri
Rösklega 30.000 manns hafa nú
séð Iðnsýninguna í Reykjavík,
og munu flestir, sem inn á sýn-
ingarsvæðið koma, líta inn á
deildir SÍS og KEA, sem sýna
þar margvíslega iðnaðarfram-
leiðslu frá verksmiðjunum hér á
Akureyri. Vekja þessar vörur
mikla athygli sýningargesta, að
því er Arnór Karlsson deildar-
stjóri, sýningarstjóri KEA, sagði
blaðinu í viðtáli í gær.
SPYR HVAR VÖRURNAR
FÁIST
Arnór sagði, að það væri áber-
andi, að fólk spyrði, hvar væri
hægt að fá t. d. pylsugerðar- og
efnagerðarvörur KEA í Reykja-
vík. Væri auðheyrt ,að KEA-
vörur hefðu gott orð. Mjólkur-
samlagið væri t. d. löngu lands-
þekkt, og nefndu það margir sýn-
ingargestir. Sama máli gegnir
raunar um smjörlíkisgerðarvörur
KEA, en hin yngri framleiðsla er
minna kunn. En Arnór taldi vafa-
laust, að aukinnar eftirspurnar
eftir þessum vörum mundi gæta
syðra vegna Iðnsýningarinnar.
HEKLA VEKUR SÉRSTAKA
ATHYGLI
Arnór sagði ennfremur, að
enda þótt sýning SÍS-verksmiðj -
anna hér á Akureyri væri öll hin
myndarlegasta og að iafnaði væri
fjölmenni á öllum sýningardeild-
um, mætti segja, að Heklu-vörur
vektu ekki hvað sízt athygli, og
þætti fólki gaman að sjá, hversu
langt væri komið á landi hér að
búa til prjónafatnað, undirföt,
vinnuföt o. fl., sem stæðist fylli-
lega samanburð við góða erlenda
framleiðslu um útlit, verð og
gæði. Mætti raunar segja hið
sama um Gefjunar-vörur, að enn
ættu margir landsmenn eftir að
átta sig á því, hversu vönduð og
smekkleg framleiðsla þar væri á
ferð, og um Iðunnar-skó og leður
væri það að segja, að fjöldi fólks
hefði enga hugmynd haft um það,
að hin fallegu og fjölbreytilegu
yfirleður og undirleður, sem not-
uð væru í íslenzka skó, væri al-
íslenzk framleiðsla, og því síður
að þetta væri tilfellið með bók-
bandsskinn og ýmis önnur fínni
skinn.
SJAFNAR-SÝNISHORNIN
FLJÚGA ÚT!
Ein deildin á sýningu SIS er
helguð Sápuverksmiðjunni Sjöfn
hér í bæ, og er framleiðsluvörum
Framh. á 7. síðu.
Villiminkur kom-
inn í Eyjafjörð
í gær far.nst dauður mínkur á
þjóðveginum um Moldhaugaháls.
Mun bíll hafa ekið yfir hann.
Adolf Gíslason bílstjóri, Árnesi í
Glerárþorpi, fann niinkinn dauð-
ann á vegínum og liirti hann til
sannindamerkis um að þessi vá-
gestur sé nú kominn í héraðið.
Lausafregnir hafa áður gengið
um minka hér, cn hafa ekki verið
staðfestar. Er koma villiminks-
ins hin verstu tíðindi.
Plága þessi stórspillir hvar-
vetna fugla- og fiskigengd, en Al-
þingi daufheyrist við öllum ósk-
um um hann við minkaeldi í
landinu.
Barn varð fyrir bíl
Síðdegis sl. laugardag varð lítil
telpa, Lydía Jónsdóttir, 2ja ára
gömul, fyrir fólksbíl við Aðal-
stræti 74 í Innbænum og slasað-
ist allmikið og var flutt í sjúkra-
hús. Meiðslin eru ekki talin lífs-
hættuleg og líðan telpunnar tal-
in sæmileg eftir atvikum er blað-
ið hafði síðast fréttir.
Rafmagn leltt í Lögmanns-
hlíðarksrkju
Nýlega er lokið við að leggja
rafmagn í Lögmannshlíðarkirkju
og koma fyrir ljósaútbunaði í
kirkjunni. Ber þar mest á tveim-
ur fögrum ljósakrónum og fall-
egum veggljósum, sem Málmiðj-
an í Reykjavík hefur gert. Það
er sóknarnefndin, undir forustu
formannsins, Þorst. Hörgdal, sem
hefur beitt sér fyrir máli þessu
og meðal þeirra, sem hafa stutt
það er kirkjukór sóknarinnar,
sem hélt söngskemmtanir.í fyrra,
undir stjórn Halldórs Jónssonar
í Ásbyrgi, til ágóða fyrir þetta
málefni, og ónefndur velunnari
kirkjunnar, sem færði henni veg-
lega peningagjöf. Ljósaútbúnaður
þessi var tekinn í notkun í fyrsta
sinn við guðsþjónustu í kirkjunni
fyrir hálfum mánuði. Rafmagns-
lögnina í kirkjuna önnuðust raf-
virkjameistararnir Sigtryggur
Þorbjörnsson og Jóhannes Ólafs-
son.
Fjölmenn útför Sveins
Bjarman aðalbókara
Útför Sveins Bjarman áðal-
bókara var gerð í gær. Fylgdi
mikill mannfjöldi hinuni vinsæla
borgara til grafar. Séra Friðrik J.
Rafnar vígslubiskup jarðsöng, en
ættmcnn, samstarfsmenn og söng
£g!íl Jóhannsson skipsfjóri á „Snæfelli" segir fré
reknefaveiðum Akureyrarskipanna
M.s. Snæfell lagði á land í sl .viku uni 500 tunnur af fullsaltaðrí
hafsíld og hélt aítur á miðin á sunnudag&kvöld. Er heildarafli skips-
ins síðan það hóf rekneíaveiðarnar austur í hafi þá orðinn um 1000
tunnur af fullsaltaðri síld. Afli „Akraborgaf“ og „Ingvars Gúðjóns-
sonar“ num svipaður og „Súlunnar“ liílu minni, enda byrjaði hún
veioarnar seinna. Ðagur náði tali af Agli Jóhannssyni skipstjóra á
Snæfelli á sunnudaginn og ræddi við hann um þessa íilraun til þess
að sækja síldina austur í haf og gera sumarvertíðina arðvænlegri
en ella. .
Góð afiabrögð.
Egill Jóhannsson
sagði,
að
aflabrögð ó þessum miðum, 160
•—220 mílur suðaustur af Langa-
nesi, hafi reynst
allgóð og stundum
ágæt síðan skipin
komu þar fyrst upp
úr miðjum ágúst. —
Fást oft allt að 100
tunnur í lögn í 62—
64 net, mesta veiði í
lögn hjá Snæfelli
hefur verið 250
tunnur og er þáð
raunar meiri veiði
en unnt er að taka á móti um
borð svo að vel sé. Mikil síld
virðist vera á þessum slóðum á
stóru svæði .Hafa ekki aðrir en
fslendingarnir verið þarna að
veiðum nú síðsumars. Ekkert
hefur sést til Rússa, Norðmanna
eða Svía, en íslenzku skipin hafa
haft samband við Færeyinga sem
eru sunnar og austar í hafinu.
Eru þeir farnir að veiða síldina
allt suður undir Færeyjar, t. d.
hafði Egill samband við skip,
sem vissi um allgóða veiði 70
mílur norður af Færeyjum nú
fyrir nokkrum dögum. Síldin,
sem þarna veiðist er yfirleitt
stór og falleg gotusíld, og telur
Egill engum vafa bundið að hún
sé fyrsta flokks vara.
Keldurðu að reknetaveiðin á
þessum slóðum geymi framtíðar-
niöguleika fyrir okkur?
— Eg er sannfærður um, að
ef síldargangan upp að landinu
er háo . straumum í hafinu og
síldarleysið orsakast af breyttum
straumum, þá er breytingar
okkur í hag ekki að vænta á einu
ári eða svo, heldur mun sú þró-
un taka langan tíma. Og síldin
hefur virzt vera að fjarlægjast
okkur æ meir á undanförnum ár-
um. Af þessu leiðir að við verð-
um að taka upp breytta veiði-
tækni. Uppgripin í herpinótina
við ströndina eru þá úr sögunni
í bráðina a. m. k., en hafsíldar-
veiði ætti ekki að vera þar með
að sækja
d. vitað, að vertíð norska flotans
á fslandsmiðum hefur gefið góða
raun í ár.
Hefði siídarflatinn íslcnzki get-
bræður báru kistuna til grafar.
Karlakórar bæjarins heiðruðu búin, heldur er hægt
hinn látna með söng heima og í síld á djúpmiðin eins og Norð-
kirkju. menn hafa lengi gert. Það er nú t.
að sótt austur í haf með sæmi-
legum árangri?
— Eg tel víst að næg síld hafi
alla tíð verið í hafinu og ef rek-
netaveiði hefði almennt hafizt
í júlí hefði afkoma síldarflotans
orðið önnur og betri en raun
varð á. Þess er þó að gæta, að
eg tel ekki hægt að stunda rek-
netaveiði austur í hafi á minni
skipunum, þau hafa ekki dekk-
plóss til athafna og ekki nægi-
legt rúm til að taka tunnur og
vistir sem duga í svo langa ferð,
en það hefur sýnt sig, að túrinn
hjá okkux', með 400—600 tunnur,
tekur íöskan hálfan mánuð.
Þegar sótt er svona langt, er
mikil nauðsyn að allt sé í lagi og
Framh. á 7. síðu.
Jóhann Hannesson
bókavörður Fiskesafnsins
Ameríska blaðið Ithaca Jour-
nal skýrði frá því í sl. mánuði,
að Jóhann Hannesson, (bóksala
Jónassonar í Siglufirði,) hafi
verið ráðinn bókavörður Fiske-
safnsins við Cornell-háskólann í
Itacha, í stað Kristjáns Karlsson-
ar (alþm. Kristjánssonar) ,sem
gegnt hefur stai-finu síðan 1948.
Jóhann Hannesson er stúdent frá
Akureyrarskóla og tók meistara-
próf í ensku fi'á Bex'keley-háskóla
1945. Hann hefur stundað
kennslu við Berlceleyháskóla síð-
an 1950 og vinnur nú að doktors-
í'itgerð sinni. Jóhann mun auk
bókavai'ðai'starfsins kenna við
Cornell-háskóla.