Dagur - 15.10.1952, Síða 5

Dagur - 15.10.1952, Síða 5
Miðvikudaginn 15. októher 1952 D A G U R 5 S j ö t u g u r: Kristján Eldjárn Kristjánsson hreppstjóra á Hellu Kristján Eldjárn Kristjánsson bóndi og hrepþstjóri á Hellu varð sjötugur í gær. Er skylt að minnast hans nú, því að hann er merkismaður. Kr. E. Kristjánsson er fæddur 14. okt. 1882 á Litlu-Hámundax-- stöðum á Árskógsströnd (nú Ár- skógshreppi). Voru foreldrar hans Kr. Jónsson og Guðrún Vigfúsdóttir, búandi hjón þar, af traustu og greindu fólki komin, og má óhætt segja það af nokkr- um kunnugleik, að í hlut Kr. E. Kr. hafi komið margir hinna beztu eiginleika foreldra hans og ættmenna, svo' sem greindin, dugnaðurinn, umbótahugurinn og skapfestan. En allt þetta og margftleira gott fékk Kr. E. Kr í vöggugjöf. Árið 1905 útskrifaðist Kr. úr Hþlaskóla, og arið eftir fer hann utan til búnaðarnáms. Var hann þá um tíma í Danmörk við land- búnaðarstörf, en síðar í Noregi við búnaðarskólann á Stend og svo við Landbúnaðarskólann Osló. Hann er því prýðilega menntur bóndi, og var á sinni tíð fágætlega menntaður í þeirri stétt. Er heim kom gerðist hann leiðbeinandi bændanna í byggð- um Eyjafjarðar um nokkur ár, sem sýsluráðunautur, en keypti bráðlega óðal féðfa sinna, Hellu hóf þar búskap.ög hefur búið þar síðan óslitið. eða. rúmlega 40 ár. Á þessum áratugum hefur Hella tekið miklum stakkaskipt um, með stóraukinni ræktun og ágætum húsakosti, og hefur þannig verið setin með mikilli prýði. Þegar á unga aldri gerðist Kristján virkur . þátttakandi félagsmálum sveitar sinnar, sem voru heldur fáskrúðug eins og víðar. En með stofnun Ung mennafé'i. „Réyiiii-*1 þar í sveit hófst ný félágsalda, sem hóf hina ungu menn til vaxtar og þroska og voru þeir Hámundarstaða- bræður meðal forystumanna þar í hvers konar félagslegri starf semi, og Kristján raunar verið það alla ævi. Því að hann hefur verið driffjöður í hvers konar menningarlegri framfaraviðleitni og félagslegri uppbyggingu sveit- unga sinna alla tíð. Þeir munu áreiðanlega sjá það ef ekki nú, þá síðar, hverjum beri fyrst og fremst að þakka for göngu í ýmsu því, sem nú prýðir menningu sveitarinnar og skipa: henni í fremstu röð. Má þar fyrst nefna það, að Árskógshreppur varð fyrstur allra byggða hér að koma upp svetiarsíma inn á svo að segja hvert heimili. Og þótt margur legði þar á gjörva hönd, þá var það fyrst og fremst hreppsnefndin, með oddvita sinn í broddi fylkingar, Kristján E. Kfistjánsson, sem foryztuna hafði. Það var stórmyndarlegt átak á þeirri tíð, og bar fyrir- hyggju og kappi oddvitans gott vitni, enda hafði hann af því mikið erfiði, — og ánægju að lokum. Næsta skrefið var bygging skólahússins. Það var mikið lán fyrir sveitina, hve snemma hún var á ferðinni. En þegar litið er á „efni“ og ástæður“ hefði mátt ætla að aðrir hefðu orðið á und- an. Og það er alveg vafalaust, þótt kennarinn þar, virtur og vinsæll að maklegleikum, ætti sinn veigamikla þátt í að skapa þann hug hjá fólkinu, sem lyfti undir þá framkvæmd, þá er það fyrst og fremst að þakka hinni Stefna valdhafanna í Moskvu felur í sér gífurlega hætfu fyrir allan hvíta kynstofninn farsælu forystu oddvitans og skólanefndarformannsins, Krist- jáns E. Kristjánssonar, að í þá byggingu var ráðist af slíkri for- sjá og dugnaði. Og nú á Árskógs- hreppur sitt skólaheimili, eitt hið prýðilegasta á landinu, og hefur jannig í eitt skipti fyrir öll ráðið fram úr þessum málum, sem allt of margir vam'æktu of lengi og eru nú í vandræðum með. Miklu fleiri mætti nefna, sem Kr. E. Kr. hefur átt drjúgan þátt í að hrinda í framkvæmd. Eg vil minna á sóknarkirkjuna í því sambandi. Einu sinni var vegleg kirkja byggð í Stærra-Árskógi, vígð rétt fyrir sl. aldamót. Hún var af lítilli fyrirhyggju byggð, enda varð endingin eftir því. Nú er þar ein hin fegursta sveita- kirkja, vönduð að allri gerð, sem mun lengi standa og vitna um menningu safnaðarins á tímum safnaðaroddvitans, Kr. E. Kr., dugnað hans og fyrirhyggju. Eins og sjá má af því, sem hér er ritað, hefur Kristján haft á hendi margs konar trúnaðar- störf fyrir sveit sína. Hann hefur verið sýslunefndarmaður um 4 áratugi, sóknarnefndarmaður og skólanefndarformaður um langt árabil, og hreppsnefndaroddviti lengi og hreppstjóri síðan 1939. Það má því óhætt segja, að hann hafi verið forvígismaður sveitar sinnar um áratugi, og alla tíð til uppbyggingar og sæmdar. Kristján er kvæntur Sigur- björgu Jóhannesdóttur Jónssonar prests Reykjalíns frá Þöngla- bakka, hinni ágætustu konu, og eiga þau 4 uppkomin börn og eina fóstui'dóttur. Eru nú synir þeirra að leysa þau af hólmi. Jó hannes sonur þeirra mun nú í 1 þann veginn að taka við búsfor- ráðum á Hellu, en eldri sonurinn, Snoi’ri, muni ætla sér að reisa bú að Krossum, en þá jörð keyptu þeir feðgar fyrir all-mörgum ár- um, enda liggja jarðirnar hvor að annarri, báðai; ágætlega fallnar til mikilla ræktunarframkvæmda og vel í sveit settar. Mun þessum nýju bændum kippa í kyn um dugnað og manndóm, og munum við öll, sem til þekkjum, óska þeim fai’sældar. En afmælisbarn- inu og konu hans þökkum við langa samfylgd og gott ævistarf. Og alveg sérstaklega sendi eg Kr. E. Kr. hugheilar þakkir fyrir foi’na vináttu og félagsskap uppi á Doffafjöllrun í slagtogi með Molda, Hi-úgu og Fera, og mosaþembum Vallnatúns og Ti-jónubakka í félagsskap við Sælor, blessaðan. Eg þakka drengskap hans og dug í hverri raun, og óhvikula ti-yggð hans við æskuhugsjónir og ættarerfð ir. Og eg vildi mega óska þess þjóð minni til handa, að ísl bændastétt ætti jafnan möi’gum slíkum mönnum á að skipa. Að svo mæltu óska eg Krist- jáni til hamingju með afmælið og unnin stöi’f og sendi fjöl skyldu hans allri beztu kveðjur. Snorri Sigfússon. Þættir úr endurminningum Henry Wallace, fyrrverandi varaforseta Bandarkjanna — FOKDREIFAR (Framhald af 4. síðu). pakka með flugvél á vegum hlutafélags en með bifreið á veg um hins opinbei’a. Ein afleiðing þessa ráðslags er sú, að menn forðast að fara með pakka í póst- húsin, sé þess, kostur. Reyna leirgstu lög að koma þeim með öðrum hætti. Minnkandi viðskipti þykja áhyggjuefni hjá venjuleg um fyrirtækjum. Kannske er hið opinbera undantekning að þessu leyti. í grein þeirri, er birtist hér í blaðinu í sl. viku, lýsti Henry Wallace, fyrrv. varaforseta Banda ríkjanna og formaður „Progressive" flokksins þvi, hvernig Rúss ar l.eyndu hann og fé- 1 a g a h a n s þrælabúðun- um í Síberíu, er þeir ferð- uSust u m landið 19 4 4. Stefnuhv ö r f u r ð u h j á Wallace eftir valdarán kommúnista í Tékkó slóvakíu, og þó einkum eftir að kommúnistar komu af stað Kór- eustyrjöldinni, þrátt fyrir allt friðartalið. í þessari grein heldur Wallace áfram að segja frá reynslu sinni. Þegar eg lít til baka til ferða lagsins yfir þvera Sovét-Asíu og Kína og eftir að hafa lesið og heyrt lýsingar vinnuþrælanna xeirra fáu, sem loppið hafa lifandi á lífinu í vinnubúðunum, sé eg, að mér varð alltof mikið um þá leiksýningu, sem rússneskir emb ætismenn settu á svið fyrir okk ur. Mér virðast þessir rússnesku embætismenn engum líkjast frem ur en framgjörnum kapítalistum, Eg sé ennfremur nú, að á þessu ferðalagi mínu 1944, gei’ði eg of lítið úr möguleikum Kínverja til ress að efla herveldi sitt. Herveldi Kínverja. í Norður-Kína, sem hefur fimmtán sinnum fleira fólk en Síbería, fyx’irfannst þá sem næst enginn þungaiðnaður. Fram- leiðslumáttur þessa landssvæðis virtist þá enginn nema geta smá bændanna, sem unnu baki brotnu á smájörðum sínum með frum- stæðum verkfærum, nótt og nýt- an dag að kalla. Það, sem eg sá til kínvei’skra hei’manna 1944 virtist benda til þess, að ógerlegt mundi að æfa þá og búa svo, að þeir gætu árið 1952 orðið hern aðarmáttur eins og sá, er við þel^kjum nú í Kóreu. En eg sá þó 1944, að Kínverjar voru furðu lega fljótir að færa til miðlungs stórt .stórskotalið og þeir kunnu vel að beita því. En enda þótt eg lýsi undrun minni yfir því, hversu fljótt Kínverjar hafa eflst hernaðarlega, var það þó grun ur minn og ótti þegar árið 1944, að Kínverjar kynnu einhvem tíma að verða voldugasta her veldi heims. Eg óttaðist, að þeir mundu eiga eftir að vejða leið togar þjóðanna í Asíu í baráttu gegn hinum vesti’æna heimi. einn tuttugasta af því, sem al- mennir vei’kamenn í Bandaríkj- im, Kanada og Vestur-Ev- ropu gera. Þetta fólk á fyrir vændum 40 ára styttri meðalævi en við Vestui’landabúar, vegna lélegs viðurværis, sjúkdóma og fáfræði. Með menntun og góðu viðurværi væri geta þessara manna engu minni en okkar. Eg vildi sjá til þess, að þessi mikla fylking hinna óbreyttu alþýðu manna, skipaði sér í lið með okk ur, og ég taldi að bezta tryggingin fyrir því að svo yrði, væri að hjálpa þessum þjóðum efnahags lega með því að auka fram- leiðslumöguleika þeirra og afköst. í stuttu máli, eg taldi, að þegar til lengdar léti væri það einasta örugga leiðin fyrir Bandaríkja menn væi’i að vingast við þjóðir, sem kallað er að séu skammt á veg komnar efnahagslega og tæknilega. betur, að hinn rússneski komm- únismi, sem enga virðingu ber fyrir sannleikanum, er haldinn ofstæki, miskunnar- og tillits- leysi við aðrar skoðanir og for- smáir trúarbrögðin og siðfræði þeiri’a, er af hinu illa. Bandaríkin vilja hjálpa Asíu- þjóðunum. Bandai’íkin hafa ekki og munu aldrei reka heimsvaldapólitík gagnvart Asíu. Bandaríkjamenn gáfu Filippseyjum frelsi og þeir munu hvei’fa frá Japan og For- mósu undir eins og hættan á kommúnistískri árás er liðin hjá. Þeir hafa aldrei rekið nýlendu- pólitík á meginlandi Asíu. En eins og sakir standa, og þrátt fyrir yfirburði Bandaríkjanna á sviði tækni og auðlegðar, eru áhrif þeirra á undanhadi í þessum löndum, vegna þess, að Banda- ríkjamenn skilja ekki fólkið þar eins vel og Rússar gera. Við vitum það gerla að vísu, að valdhafarnir í Kreml munu svíkja þetta fólk undir eins og þeir hafa náð öruggu tangarhaldi á því, en í dag virðast þeir samt eiga meiri samúð að mæta hjá því en við og okkar stefnumál. Þarna eru á ferð vandamál bænda og verkamanna. sem vinna sér inn minna en 10 krónur á dag. Rússneskir fjötrar Það varð því fyrsta verk mitt eftir heimkomuna sumarið 1944, að flytja ræðu um möguleikana stórauknum viðskiptum við Asíulöndin, yfir Kyrrahafið. Eg held að þetta hafi verið góð ræða, og ef sú stefna, sem ég þar mark- aði, hefði náð fram að ganga, hefði það sparað óhemju fjár- magn. Eg hafði séð framsókn hins óbreytta alþýðumanns í Asíu árið 1944, en það sem ég sá ekki, var áætlun Sovét-Rússa að fjötra alþýðuna siðferðislega, sálarlega og líkamlega, til gagns fyrir eigin heimsvaldastefnu. í dag hefur Sovét-Rússland — með hjálp Mao-Tse-tung — milljónir kín- verskra verkamanna á valdi sínu, milljónir, sem búið er að gera að hermönuum. Elska Rússa ekki meira en aðra hvíta menn. En valdhafarnir í Moskvu virð- ast ekki gera sér ljóst, að hinn mikli risi, sem þeir hafa þannig vakið úr svefni aldanna, geti, er tímar líða, snúist gegn þeim, Eins og nú standa sakir — á meðan er reynt að hrekja hvíta manninn burt úr Kóreu — láta kínverskir kommúnistar sem þeir séu dyggir þjónar Moskvuvalds- ins, en þegar frá líður mun koma í ljós, að Kínverjar munu ekki elska Rússa meira en aðra hvíta menn, og ekkert meira en Banda ríkjamenn eða Vestur-Evrópu- menn. Kínverjar munu sann- möguleikana á árekstrum í fram- Von, sem hrást. Hver mun Ieiða þetta fólk til betri lífskjara? Um tíma trúði eg því að Rússland og Bandarík- in gætu unnið saman að þesari endurreisn í gegnum Sameinuðu ijóðirnar. En hegðun valdhaf- anna í Moskvu hefur sannfært mig um að eina leiðin nú sé að Sameinuðu þjóðirnar leggi meg- inkapp á tæknilega og efnahags- lega aðstoð, bæði beint og í gegn- um stofnanir sínar eins og Vís- inda- og landbúnaðarstofnunina, til dæmis í löndum eins og Ind- landi, Persíu o. s. frv. Með því að hjálpa þessu fólki til mannsæm- andi lífskjara kaupum við okkur meira öryggi með 1 dollar en með 20 dollurum, sem varið er til að vígbúast. Vann fyrir friðinn. Eg er stoltur af því að hafa lagt að veði pólitíska aðstöðu mina fyrir friðinn á þeim tíma, sem það var mjög óvinsælt að tala um slíka hluti. Enginn háttsettur stjórnmálamaður í Bandaríkjun- um reyndi fremur eú eg að koma á skilningi og vináttu í milli Rússa og Bandaríkjanna og hinna vestrænu þjóða yfirleitt, áður en það yrði um seinan. Margir eru þeirrar skoðunar að við Roose- velt forseti höfum reyr$ að kaupa vináttu Rússa með undanláts- semi. Satt er, að við báðir sáum 40 ára styttri meðalævi. En að öðru leyti hafa skoðanir mínar, þær er eg myndaði mér þessari ferð 1944, ekki breytzt, og þær eru eins réttmætar í dag og þær voru þá. Eg fór til Asíu 1944 með þá skoðun, að nýlendupóli- tíkin hefði e .t. v. fólgna í sér mestu hættuna fyrir hvíta kyn- stofninn. Eg taldi að mesta vandamál heimsins væri hin stanzlausa ganga hins óbreytta alþýðumanns og sú staðreynd, að Iangflestir óbreyttir alþýðumenn heims vinna sér inn minna en reyna, að það felst engin hagsbót fyrir Kína í því að skipta á kín- versku lénsstjórnarskipulagi og nýlendupólitík fyrir rússneskan kommúnisma. Framtíð veraldarinnar getur mjög hæglega orðið háð því, hversu vel Bandaríkjamönnum tekst að sannfæra Kínverja, gegnum Sameinuðu þjóðirnar, að til þess að losna úr taki hinnar rússnesku kúgunar, þurfi Kín verjar ekki að taka upp aftur miðalda lénsstjórnarskipulag eða lúta evrópskri nýlendupólitík þess stað hafi þeir tækifæri til þess að sækja fram til miklu meiri framleiðslu og Rærri lifi standards en þeir geta nokkru sinni vænst að öðlast með því að heyja styrjaldir fyrir Rússa. Tími þessarar stefnubreytingar er ekki kominn enn, en hann er ekki langt undan. Eg er að sannfærast um það æ tíðinni og vildum reyna að forð- ast þá. En eg er einn þeirra, sem trúi því, að ef Roosevelt hefði lifað og haft heilsu, mundi fram- vinda sögunnar hafa orðið með öðrum hætti og við mundum ekki í dag verja 60 milljörðum dollara til vígbúnaðar. Rússar stefna að tortímingu. Eg vildi vinna að friði, en ekki að friði sem kostaði kommún- istíska yfirdrottnun. Eg hélt að leiðtogarnir í Moskvu væru víð- sýnni en mér hafa virzt þeir vera af gerðum sínum undanfarin ár. En reynslan hefur nú sýnt að eg var of bjartsýnn að þessu leyti. En eg er sannfærður um að mér skjátlast ekki þegar eg spái því, að ef Sovét-leiðtogarnir halda áfram á þeirri braut, sem þeir eru nú á, felur það í sér þann (Framh. á 7. síðu).

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.