Dagur - 15.10.1952, Qupperneq 6
c
D A G U R
Miðvikudaginn 15. október 1952
«4» «*»
Hin gömlu kynni
Saga ejt.ir JESS GREGG
$*$*$»$*$*$*$> 2- dasur- $»$»$*$*$»$*$>¥%?
(Framhald).
dyranna. Elísabet óttaðist að hún
hefði móðgað hana og flýtti sér
að segja: „Það er bara að eg vil
ógjarnan vera fyrir nokkrum eða
* láta hafa fyrir mér,“ sagði hún í
afsökunartón. En dyrnar lokuð-
ust á eftir Worth án þess að frá
henni kæmi nokkurt svar.
Elísabet andvarpaði, gekk svo
að stiganum, sem lá úr anddyr-
inu upp á efri hæðirnar og upp á
loftið.
Einhvers staðar í þessum sal-
arkynnum sló klukka fimm högg.
Einkennilegt stærilæti mátti
kalla það, hugsaði Elísabet, að
láta klukkur tifa í þesum húsa-
kynnum, því að í þeim hafði tím-.
inn ekkert gildi lengur, var hætt-
ur að vera til. Hún hraðaði för
sinni. Hún vissi ekki hvort hafði
meiri áhrif á hana, íburðurinn
eða einangrunin.
Henni fannst það léttir, að
finna þarna herbergi ,sem ekki
var neitt að ráði í borið og lítið
skreytt, nema þá af daufri sólar-
birtu. Veggirnir voru hvítmálaðir
og það var hátt undir loft, en
fátt var um gullna vegglista og
annan íburð og aðeins Örfáar
myndir á veggjum. Gólfið var
einlitt trégólf, eins og þilfar á
herskipi. Hér var ekkert, sem
hafði truflandi áhrif á hana, en
heldur ekkert til þess að dást að.
Hún lét staðar numið, tók háls-
klútinn sinn og hengdi hann inn
í tóman fataskáp. Hún hafði val-
ið, þetzt að.
Hún rak augun í ofurlítið rós-
rautt fingrafar á ljósri eikarum-
gerð dyranna. Blóð, hugsaði hún
fyrst, en hratt hugsuninni frá sér.
Þetta var sennilega ekkert annað
en leifar af gamalli málningu.
„Eruð þér nú vissar um, að þér
viljið endilega fá þetta herbergi?"
Elísabet snerist á hæli og leit
til dyranna. En þar var enginn
nema frú Worth, með töskuna
hennar í hendinni.
„Herbergin hinum megin eru
skemmtilegri,11 sagði hún, „sér-
staklega þó þriðja herbergið á
þriðju hæðinni. Þar er líka hið
merkilega Winslow-safn af
postulínsmunum.“
„Eg kann ágætlega við mig
hér,“ svaraði Elísabet feimnis-
lega, „hér er allt einfalt — og
laust við íburð.“
„Jú, það mun nærri lagi, þetta
er herbergið hans.“
„Herbei'gi hvers?“
„Herra Wrenn bjó hér.“
- „Maríus Wrenn?“
Þjónustustúlkan kinkaði kolli,
en Elísabet leit í kringum sig á
ný með aukinni athygli.
„Var þetta vinnustofa hans eða
svefnherbergi?“ spurði hún.
„Hvort tveggja. Hann málaði
hér og svaf hér líka.“
„Og dó hér?“ spurði Eílsabet
hikandi og leit á mjóan legu-
bekkinn úti í horni.
„Nei,“ svaraði frú Worth um
leið og hún lét frá sér töskuna.
„Hann drukknaði.“
„Hvernig vildi það til?“
Frú Worth opnaði dyrnar.
„Hún segir yður sjálfsagt frá því,
þegar henni. þykir tími til kom-
inn, ungfrú.“
„Hvaða hún?“
„Frú Wrenn,“ svaraði þjónust-
an „barónessan."
Elísabet var aftur ein í her-
berginu. Hún opnaði töskuna
sína. Hún hafði ekki tekið nema
fátt eitt með sér, en hún fór sér
að engu óðslega að koma fötum
sínum og öðru dóti fyrir. Hún
lét þrjár bækur, sem hún hafði
tekið með sér, á borðið við legu-
bekkinn: Ljóðmæli Keats, ritsafn
Shakespears og litlu Ijóðabókina
sína. Hún greip litla kverið og
fletti því lauslega, eins og annars
hugar. Á titilblaði var þessi til-
einukun: Tileinkað Harry Mell-
ett.
(Framhald).
Barnateppi
Hekla barnateppi úr tillögðum
lopa og grófu bandi. Fljót af-
greiðsla.
Gertrud Poorten,
Oddeyrargötu 24.
Stúlka óskast
um óákveðinn tíma. — Upp-
lýsingar í síma 1726.
Allstórt herbergi,
eða 2 minni, óskast til leigu
nú þegar. Helzt sem næst
miðbænum.
Upplýsingar í síma 1204.
Vetrarmaður
Ungur maður, alvanur
sveitastörfum, óskar eftir
vetrarvist. — uppl. hjá
Hallgrími Tryustasym,
Akureyri.
Tek nemendur í
Upplestartíma
í vetur. — Til viðtals kl.
7—9 síðdegis. Sínri 1892.
Edda Schevmg.
Hríseyjargötu 18.
Vetrarmáðui*
Ungur maður, vanur sveita-
störfum, óskar eftir vinnu.
Afgr. vísar á.
Karlmannsúr
fundið.
Simi: Ytra-Gil.
2 hrútar,
veturgamall og tvævetur (1.
verðlaun), til sölu.
Jón Rósinantsson,
Syðrakoti,
Arnarneshreppi.
List-stopp
(Kunststop)
Geri við slysagöt á betri
fötum.
ANNA HLÍÐAR.
Sími 1937.
Hrossasmölun
í Saurbæjarhreppi er ákveð-
in laugardag 19. þ. m. Rétt-
að verður í Borgarrétt.
Fjallskilastjóri.
Stór eldhúsvaskur,
úr aluminium, til sölu.
Tækifærisverð.
Bragi Eiriksson.
Sími 1612.
Tvö herbergi
til leigu. Aðgangur að eld-
húsi kemur til greina fyrir
barnlaust fólk. — Uppl. í
Þórunnarstræti 87.
Tómas Árnason
lögfræðingur
Hafnarstæti 93, 4. hæð.
Simi: 1443, 1628.
Viðtalstími: Kl. 1.30-3.30.
Laugardaga kl. 10—12.
TAKIÐ EFTIR!
Vegglampar,
áður kr. 92.00, nú kr. 70.00
áður kr. 89.00, nú kr. 65.00
Melís, grófur
Strásykur, fínn. — Hveiti '
Vínber o. fl.
Verzlunin HRÍSEY
ÍBÚÐ,
2 stofur og eldunarpláss, til
leigu frá næstu mánaðamót-
um eða 1. desember.
Afgr. vísar á.
Dulrænar frásagnir
frá fundum Hafsteins Björns-
sonar miðils, eftir Elinborgu
Lárusdóttur, heitir ný bók,
sem kemur út um n. k. mán-
aðamót. — Safnað verður
áskrifendum að bókinni, og
tekur Arni Bjarnarson, í
Bókaverzl. Edda, á móti pönt-
unum.
Bridgenámskeið
Bridgefél. Akureyrar hefst
innan skámms. Þáttaka til-
kynnist formanni félagsins,
sem gefur allar nánari upp-
lýsingar í síma 1996.
Tvímenningskeppni
Bridgefélagsins
Iiefst þriðjudaginn 21. okt.
í Strandgötu 7, kl. 8 e. h.
Þátttaka heimil öllum, er
gerast félagar, og tilkynnist
hún formanni félagsins fyr-
ir 17. þ. m.
VeTðlækkun
Seljum nú:
MOLASYKUR á kr. 5.20 pr. kg.
STRÁSYKUR á kr. 4.10 pr. kg.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin og útibú.
BÆNDUR!
Höfum fengið nokkrar birgðir af
Amerísku fóðurblöndunni.
Pantanir óskast teknar nú þegar.
Verzlunin Eyjafjörður h.f.
1
(J)
fbúð til sölu
Efri hæð hússins Oddagötu
7 er til sölu. Upplýsingar á
sarna stað kl. 5—7 e. h. eða
í síma 1156.
Stúlka _
óskast i vist á gott og fá-
mennt heimili í Reykjavík.
Afgr. vísar á.
Fjögra manna bíll,
smíðaár 1947, mjögvel með
farinn, til sölu.
Afgr. vísar á.
Herbergi,
nýmálað, með aðgangi að
síma, til leigu á Oddeyri.
Upplýsingar í síma 1849,
eftir kl. 8 e. h.
Saumanámskeið
Næsta námskeið Irefst 23.
þ. m.
Jórunn Guðm undsdótt ir,
Brekkug. 35. Sími 1732.
eru ennþá til.
m a * L »
Byggingavörudeild KEA
fyrirliggjandi.
Byggingavörudeild KEA
Þakpappi
nýkominn.
Byggingavörudeild KEA
Succat
(dökkt) nýkomð.
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og útibuin.
Gúmmístígvél
á börn og fullorðna.
Skódeild KEA.
Barnaskór
í miklu úrvali.
Skódeild KEA.