Dagur - 22.10.1952, Page 6
6
D AGUR
Miðvikudaginn 22. október 1952
*** «**
I Hin gömlu kynni I
sis
eftp' JESS GREGG
2. dagur. ^♦^♦^♦^♦^♦^♦(^1
(Framhald).
Hugur hennar hvarflaði viku
aftur í tímann, til þeirrar stundar
er hún stóð frammi fyrir Harry
Mellett á skrifstofu hans. Hann
hafði beðið hana að koma, en
hún hafði skilið það svo, að þetta
ætti ekki að vera venjulegur
fundur um bókaútgáfu, heldur
væri hér um að ræða sérstakt
boð henni til handa. Þau höfðu
líka farið út og rölt um sali nýja
málverkasafnsins í New York og
spjallað um alla heima og geima.
Henni hafði verið heitt um
hjartarætur þessa dagstund. Hún
fann enn til þess í endurminn-
ingunni.
Þegar Elísaþet hugsaði um
Harry Mellett, skjátlaðist henni
á sama sviði og mörgum öðrum
ungum stúlkum við svipaðar að-
stæður. Hann var hreint ekki
sérstaklega fallegur maður. Hann
var skolhærður og oftast stutt-
klipptur, andlitið var ofurlítið
toginleitt, húðliturinn frekar
dökkur eins og af miklum sól-
bruna. En andlitið var lifandi og
þó einkum augnatillitið og líklega
var þáð fyrst pg' fremst }>að, sem
kom .þeirri hugmynd inn hjá.
kvenþjóðinni, að hann væri fall-
egur.
„Eg hef áhyggjur þín vegna,“
sagði hann.
„Og hvers vegna, má eg
spyrja?“ spurði hún, létt í
bragði.
„Vegna þess að þú ert ekki far-
in að skrifa aftur af neinni al-
vöru. Engin ný kvæði fyrir mig
nú upp á síðkastið?“
„Þú heldur auðvitað, að það
sé vegna þess að bókin mín fékk
ekki góðar undirtektir, sem eg er
hætt að skrifa?"
„Er það ekki ástæðan, Elísa-
bet?“
„Nei, alls ekki.“
„Ertu búin að gefa skáldskap-
inn upp á bátinn?“ spurði hann,
röddin var mild og samúðarfull.
„Nei, mig langar ekki fremur
til neins annars en að halda
áfram að skrifa.“
„Það líkar mér að heýi-a.“ Þau
héldu áfram göngunni um sali
málverkasafnsins og stö.ðvuðust
fyrir framan stóra mynd af ungri
stúlku, sem var að skoða sína eig-
in nekt í stórum, brotnum spegli.
„Þetta held eg sé sú mynd, sem
mér þykir fegurst hér inni,“ sagði
hann.
„Myndin af Emmu?“
Hann kinkaði kolli. „Þykir þér
hún ekki snilldarlega gerð?“
Hún hikaði við. „Jú, mér finnst
hún falleg. En maður er búinn að
sjá svo margar auðvirðilegar éft-
irlíkingar af þessari mynd, að
maður hættir að taka eftir lista-
verkinu sjálfu.“
„Hefurðu kynnt þér nokkuð
Wrenn og verk hans?“
„Nei ,ekki :get eg sagt það.“
„Flestir geta víst sagt hið
sama,“ sagði hann.
„Hann var einkennilegur mað-
ur,“ hélt Mellett áfram. „Mig
hefur alltaf langað til þess að
gefa út bók um hann og verk
hans, enda eru málverk hans nú
mjög' í tízkú. En eg hef eklji gét-
að rekist á neinn höfund að slíkri
bók. Enda er fátt eitt vitað um
Wrenn, staðreyndirnar um hann
liggja ekki á lausu. Raunar er
ekkert til að fóta sg á nema það,
sem blöðin sögðu meðan
hneykslismálið var að ganga yfir,
og það er því miður ekki allt
áreiðanlegt.“
„Hvaða hneykslismál?11
„Kannske er of sterkt að orði
kveðið að kalla það svo nú á dög-
um. Síkt mundi ekki vekja aðra
eins athygli í dag, en þetta mál
varð þó helzt til mikið af því
góða fyrir virðulega borg eins og
(Framhald).
Lítð herbergi
Grapefruitsafi
Appelsínusafi
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og útibúin.
VÍNBER
MELÓNUR
CÍTRÓNUR
Kaupfélag Eyfirðinga
NýlenduvÖrudeildin
og útibú.
Heillnveiti
Bankabygg lieilt
Hveitiklíð
Heilbaunir
Hálfbaunir
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeild
og útibu.
Molasykur
Kr. 5.20 pr. kg.
Strásykur
Kr. 4.10 pr. kg.
Flórsykur
Kr. 4.75 pr. kg.
Púðursykur
Kr. 4.70 pr. kg.
Iíandís
Kr. 6.50 pr. kg.
Kaupfélag Eyfirðinga
N ýlenduvörudeild
og útibú
Kurlaður Maís
BL Hænsnakorn
Hveitikorn
Varpmjöl
Kaupfélag Eyfirðinga
Nýlenduvörudeildin
Lamba:
Lifur og hjörtu
Kjötbúðir KEA,
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Bæjarabjúgu og
Vínarpylsur
í heil- og hálfdósum.
Kjötbúðir KEA.
Hafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Rækjur
n ý k o m n a r.
Kjötbúðir KEA.
I-Iafnarstræti 89. Sími 1714.
Ránargötu 10. Sími 1622.
Nýsteiktar:.
KÓTELETTUR
KJÖTB0LLUR
Soðið hangikjöt
aoðm svið
Soðnar kartöflur
Koma í búðina um
hádegi á hverjum degi.
Kjötbúð KEA.
Sími 1714
Þvottapottur
(kolakyntur) til sölu.
F erguson-rótherf i
— nýtt — til sölu.
Afgr. vísar á.
Til sölu:
Nokkrir pokar af Gullauga-
kartöflum, á kr. 90.00 pok-
inn. — Uppl. hjá Jóni
Kristinssyni, sími 1133.
íþróttafél. Þór.
Þvottavél,
sem sýðui’, til sölu.
Upplýsingar í síma 1048.
Traktor
til sölu, með sláttuvél og
heyvagni.
Áfgr. vísar á.
Dansskemmtun
haldin að Saurbæ laugardag-
inn 25. þ. m. og liefst kl. 10
síðdegis.
Shemmtinefndin.
Herbergi
til leigu á bezta stað , bæn-
um. ' AfgV.'visáf'á.
Handsnúin saumavél
til sölu með tæk-ifærisverði.
Guörún Kristjánsdóttir,
Strandgötu 25.
~ ' ..... ' ... A
BANN
Öllum óviðkomandi er
stranglega bönimtV' 'Tjfqrna-
veiði og umferð ineð.skptyopn
í Hlíðarfjalli sunnan varnar-
girðingar og á Glerárdal vest-
an ár.
Þeir, sem brotlegir gerast,
mega búast við að verða sóttir
til sekta.
til leigu.
Afgr. vísar á.
Smíðum húsgögn við allra hæfi
Eigum eftir aðeins eitt borðstofusett, sams konar og
það, sem sýnt var á IÐNSÝNINGUNNI. Einnig skrif-
borð, bókaskápa, rúmfataskápa, o. fl.
VALBJÖRK S.F.
Strandgötu 3ó. — Sími 1797.
Hringið í síma
1797
ef yður vantar húsgögn
VALBJÖRK S.F., Strandgötu 36.
Afgr. vísar á.
Ábúendur jaröanna.
1
Happdrætti Háskóla íslands
Endurnýjun til 11. flokks hefst 24. þ. m.
Verður að vera lokið 18. nóvember.
MuniÖ aö endurnýja i tima.
Bókaverzlun Axels Kristjánssonar h.f.
t
Auglýsing
um breytingu á tilkynningu fjárhagsráðs frá 10. septem-
ber 1951 um byggingu smáíbúðarhúsa:
Síðasti málsliður 1. töluliðs tilkynningarinnar orðist
svo:
Rúmmál hússins má ekki fctra yfir 340 rúmmetra.
Reykjavík, 15. okt. 1952.
FJÁRHAGSRÁÐ.
f######################################################^#^WÍ