Dagur


Dagur - 13.12.1952, Qupperneq 1

Dagur - 13.12.1952, Qupperneq 1
D A G U R litprentar stærri auglýsingar fyrir viðskipta- vini sína, ef sérstaklega er um það samið. Talið við afgreiðsl- una. Blaðið getur látið viðskipta- vini sína fá hentug myndamót með verzlunarauglýsingum án endurgjalds, cf um það er samið. Talið við afgreiðsluna. XXXV. árg. Akureyri, laugardaginn 13. desember 1952 - 53. tbl. Listamaður gefur SÞ málverk Kunnur listamaður, José Vela Zanetti, sem fæddur er á Spáni, en er forstöðumaður listaskóla Dominíkanska lýðveldisins í Suður- Amcríku, hcfur gefið Sameinuðu þjóðunum þetta málvcrk, sem á að r:ýna baráttu mannkynsins gegn þrælahaldi. Myndin er 20 metra löng og á að prýða salarkynni í hinni nýju stórbyggingu SÞ í N. Y. Jólabúð barnanna verður opnuð á mánudaginn kemur Lögmæfir flufningar iðnaðarvöru stöív- aðir áf verkfallsmönnum Hindrun flutnings iðnaðarvarnings með bifreið- um virðist lögleysa ein — íðnverkamenn og bíl- stjórar ekki í verkfalli Á mánudaginn opnar KEA Jólabúð barnanna í nýbygging- unni Hafnarstr. 93 og er búð þessi alger nýjung í verzlun- arlífi bæjarins og líkleg til þess að vekja mikla athygli og setja sérstakan jólasvip á miðbæinn. Búðin mun selja ýmiss konar varning við hæfi barna, en af- greiðslu annast stálpuð börn. Jólasveinn mun birtast þania og í fyrsta sinn á morgun, sbr. auglýsingu í blaðinu. KEA hef- ur gert fleira nú fyrir þessi jól til þess að setja bjartan og skemmtilegan jólasvip á aðal- verzlunarhverfi bæjarins. f sl. viku var komið fyrir fallegri jólastjörnu með björtum ljós- um við Kaupvangstorg, og í dag mun verða sett upp falleg bjalla í Hafnarstræti, sunnan Kaupvangstorgs. Veturinn er kominn Vetur kom loksins snögglega yfir okkur aðfaranótt sl. fimintudags og hefur verið norðan garður síðan með frosti og snjókomu. Vegir austur á bóginn eru ófærir, en akfæri sæmilega golt innanhéraðs og fært var enn talið yfir Oxna- dalsheiði og til Reykjavíkur í gær. Söngskemmtun og Lúcíuhátíð Karlakór Akureyrar efnir til söngskemmtunar með Lúcíuhátíð í kirkjunni í kvöld kl. 9 og aftur á morgun kl. 5 síðd. Verður þar kórsöngur og einsöngvar. Söng- stjóri er Áskell Jónsson. Kórinn hefur nokkrum sinnum áður haft söngskemmtun með slíku sniði, sem hefur fengið góða dóma og hlotið vinsældir meðal bæjarbúa. Lúcíuhútíð er mjög algengur siður í Svíþjóð og fleiri Norður- löndum. Er hún haldin 13. des., sem er Lúcíumessa. Hér á landi er þessi siður lítið útbreiddur, en vafalaust munu bæjarbúar fjölmenna á þessar söngskemmtanir. DAGUR Nú eru aðeins fá blöð til jóla. Verzlunum og iðnfyrirtækjum er bent á að bezta tækifærið til þess að ná til Akureyringa og Eyfirðinga fyrir jólin verður í DEGI í næstu viku. — Næsta blað kemur út á miðvikudag. Auglýsingum sé skilað fyrir kl. 2 e. h. á þriðjudag. Verkfallið: Viðræðum haldið áfram — árangur óviss í gær Sáttanefnd sú, er ríkisstjórnin skipaði til þess að starfa að lausn vinnudeilunnar, hefur undan- farna daga setið á fundum með deiluaðilum og mun nú vera að undirbúa tillögur, sem fela i sér mögulcika til að binda endir á verkfallið. En ekki var talið lík- Iegt í Reykjavík í gær að skjótra úrslita væri að vænta enn. Munu athuganir, sem fram fara á möguleikum til að draga úr ein- stökum þáttum dýrtíðar og bæta kjör án grunnkaupshækkana, taka nokkurn tírna. Falleffar barnasögur o o eftir séra Pétur Sigur- geirsson' í dag kemur í bókaverzlanir lítil, falleg bók, sem hefur að geyma nokkrar barnasögur eftir séra Pétur Sigurgeirsson. Mynd- ir í bókina hefur Garðar Lofts- son gert, en Æskulýðsfélag Ak- ureyrarkirkju gefur bókina út. Bókin heitir: „Litli Hárlokkur og fleiri sögur“. í formálsorðum segir höfundur, að sögurnar hafi oi’ðið til í sambandi við barna- og unglingastarfið í Akureyrar- kirkju, en höf. hefur, sem kunn- ugt er haldið uppi fjölþættu æskulýðsstarfi í bænum undan- farin ár. Enginn, sem þekkir til starfa séra Péturs, þarf að efast um að þessar sögur hans eru fallegar og hafa fagran boðskap að flytja. Guðmundur Eggerz gefur út minningabók Guðmundur Eggerz^ fyrrv. sýslumaður, er lengi var fulltrúi bæjarfógetans hér í bæ, hefur skrifað minningabók og Leiftur h.f. gefið út. Þetta er stór og myndarleg bók og skemmtileg að lesa. Höfundur segir fyrst frá nánustu ættmönnum sínum og þá frá berhskuheimilinu. Síðan eru þessir kaflar: í latínuskólanum, Stúdentsár í Kaupmannahöfn, Dvöl á Jótlandi, Starfsárin í Stykkishólmi, í Suður-Múla- sýslu, Sýslumaður Árnessýslu, Sextán síðustu árin, Vinir og venzlafólk^ Nokkrir smælingjar og Stjórnmál og loks eftirmáli. Þorsteinn M. Jónsson skólastjóri skrifar formálsorð fyrir bókinni. í bókinni er m. a. ýmsar frásagnir af dvöl Guðmundar Eggerz á Akureyri og nágrenni. Bókar þessarar verður væntanlega getið nánar í blaðinu síðar. f gærmorgun gerðust ,þau tíð- indi að forráðamenn Verka- mannafélags Akureyrarkaupst. settu verkfallsvörð við Ferða- skrifstofu ríkisms, sem annast af- greiðslu langferðabílanna frá Rvík, og tilkynntu jafnframt, að engir vöruflutnmgar yrðu leyfðir frá verksmiðjum og öðr- um fyrirtækjum í bænum, en heimilt væri cinstaldingum að senda böggla. Jafnframt var framleiðsluvör- um nokkurra verksmiðja í bæn- um snúið frá og sendar heim aft- ur af starfsmönnum verkfallsins. Þessar aðfarir virðast aíger lögleysa, því að sendingar iðn- aðarvarnings héðan með bif- reiðum er ekkert verkfallsbrot. Iðnaðarmenn þeir, sem vör- urnar framleiða, eru ekki í verkfalli — höfnuðu tilmælum um samúðarverkfall — bíl- stjórar eru heldur ekki í vferk- falli og bifieiðaakstur allur frjáls. Starfsmenn iðnaðarfyrir- tækjanna hafa flutt Varning á afgreiðsluna og er það engin nýlunda og ekkert yfirleitt að- hafst við þessa flutninga, sem verkfallsmenn geta með nein- um rétti gert athugasemd við. Verkfallsstjórnin Verður að horf- ast í augu við þá staðreynd — og taka afleiðingum hennar — að iðnaðarmenn eru frjálsir að vinna að framleiðslu og bílstjórar að akstri. Verkfallsstjórnin getur ekki upp á sitt eindæmi stöðvað slíkan atvinnurekstur og bakað fyrirtækjum hér, sem þurfa að koma framleiðslu sinni á markað, stórtjón. Með aðgerðum sínum hefur verkfallsstjórnin tekið valdið í sínar hendur til að stöðva löglegar athafnir og hlýt- ur hún að verða kölluð til ábyrgðar fyrir slíkt framferði af þeim, sem hér eiga hlut að máli. Þótt vinnulöggjöf íslands sé frjálsleg og viðurkenni rétt fagfélaga til verkfalla, gcta verkfallsmenn ekki svipt menn rétti til að fara frjálsir ferða sinna eða stunda atvinnurekst- ur með löglegu móti án þcss að verða sóttir til ábyrgðar fyrir. Verksfallsmenn hafa gngu meiri rétt til að stöðva löglega flutn- inga varnings, en til að neyða félagsmenn Iðju og bílstjóra til að hætta vinnu, gegn löglegum samþykktum og eindregnum vilja þeirra. Stöðvun vöruflutninga með bifreiðum héðan eins og nú standa sakir, er því ekkert nema ofbeldisráðstöfun gagnvart at- vinnulífi byggðarlagsins, líklega til þess að hafa verulegt fjárhags- tjón í för með sér. Virðist nauð- synlegt að úr því verði skorið hið bráðasta, hvort hægt er með þessum hætti að stöðva löglegar athafnir og yfirleitt hvort heldur duttlungar pólitískra ævintýra- manna eigi að ráða í þjóðfélaginu eða lög og réttur. Frelsisskerðing. Sunnanlands hafa verkfalls- menn stöðvað bíla á þjóðveginum og leitað í þeim, rétt eins og hér væri ríkjandi hernaðarástand. Með hvaða rétti eru slikar aðfar- ir hafðar í frammi? Virðist slíkt framferði freklegt brot á per- sónufrelsi manna og athafnafrelsi, sem ætti að vera tryggt í stjórn- arskrá og lögum. Stöðvun póst- flutninga til landsins og frá því virðist einnig ofbeldisráðstöfun, sem engan rétt hefur, en er fram- kvæmd í skjóli þess að fram- kvæmdavaldið hér er máttlaust og sinnulaust um réttindi þegn- anna þegar ófyrirleitnir pólitískir ævintýramenn leika lausum hala. Útvarp Skjaldarvík á 407 metrum Undanfarna daga hefur annað veifið mátt heyra gjallandi músík á bylgjulengd 407 m., þetta er út- varp Skjaldarvík eða endur- varpsstöðin nýja hér norðan við bæinn. Er verið að reyna nýju vélarnar. Ætlunin cr>. að hefja reglulegt endurvarp fyrir jól. Frægir menn í Skjald- borgarbíó Skjaldborgarbíó sýnir næstk. mánudagskvöld fræga franska kvikmynd, sem mikla athygli hefur vakið. Hinn frægi kvik- myndaleikari Jean Pierre Au- mont hittir að máli suma fræg- ustu núlifandi Frakka, svo sem Picasso, Sartre, Rostand, Gide og Le Corbusier. Inn í myndina er fléttað ævintýrum úr lífinu í París. Danskur texti er með myndinni.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.