Dagur - 13.12.1952, Síða 2

Dagur - 13.12.1952, Síða 2
2 D AGUR Almennar kauphækkanir leiða ti! gengislækkunar Fjársöfnun til styrktar verkfalls- inönniim Afkoma verkalýðsins. Sú alvarlega vinnustöðvun, sem nýlega er skollin á, vekur menn til umhugsunar um afkomu verkalýðsins .Um það er engum blöðum að fletta, að, verkamenn hafa rýrar tekjur og æskilegt væri að hagur þeirra gæti orðið sem beztur. Hitt er annað, að ágreininngur er um það, hvaða leiðir á að fara til að' bæta hag, ekki aðeins verkamanna, heldur og allra annarra vinnandi manna. Afkom averkalýðsins veltur á fernu: atvinnu, kaupgjaldi, verð- lagi lífsnauðsynja og framförum í atvinnumálum. Um kaupgjaldið er það að segja, að hærra kaup- gjald þarf ekki að þýða hærri raunverulegar tekjur. Háar pen- ingatekjur þýða því aðeins góða afkomu, að verðlag lífsnauðsynja sé í hófi miðað við kaupmátt launanna. Þá er hitt, að ekki tjó- ar hátt kaupgjald, ef ekki er nægileg atvinna. Það þarf engum orðum að eyða að því, hver hag- ur bíður verkamannsins, þegar hann verður atvinnulaus. Flestir munu sammála um, hvílíkt böl atvinnuleysið er. Skipulag framleiðslunnar og ástand atvinnutcjskjanna ræðyr samt mestu um 'lífskjör ' verká- lýðsins sem annarra landsmanna. Kaupgjaldið á aðra hlið og verð- lag á hina ákveðst af afkasta- mætti framleiðsluaflanna.' Þeim mun meiri framleiðsla með minni eða sama tilkostnaði, lækkar vöruverð. Og þeim mun betri af- koma framleiðslunnar, þeim mun hærra kaupgjald ber framleiðsl- an. Ef þessar staðreyndir eru nú athugaðar nokkru nánar kemur fyrst á daginn, að almennar kauphækkanir, sem óumflýjan- lega koma í kjölfarið, ef kröfur verkalýðsins ná fram að ganga, valda því að erfiðara verður að framleiða samkeppnisfæra vöru á erlendum markáði. Þetta hlýtur að valda samdrætti og þar með minnkandi atvinnu fyrir verka- menn. Þá er hitt, að almennar kauphækkanir hækka verðlag í landinu, svo að verðbólga vex ennþá og finnst þó flestum nóg um núverandi verðlag. Kröfur verkfallsmanna eru m. a. rök- studdar með því að fjölskyldurn- ar eigi erfitt með að lifa á verka- mannalaunum. Það skal ekki dregið í efa, en hins vegar er aug- Ijóst, að hækkun dýrtíðarinnar kemur einmitt þyngst niður á stórum fjölskyldum. jafnvel þótt fyrirvinna fjölskyldunnar fái ein- hverja hækkun hverfur það óðar í marga munna. Ábyrgðarlaust forysta. Aðstaða þjóðarinnar er á marga vegu ískyggileg. Stærsti og bezti fiskmarkaðurinn, brezki markaðurinn, er lokaður. Hlýtur aðeins að vera tímaspursmál, þar til allir landsmepn finná fyrir því. Þjóðin öll verður að taka á sig byrðar til að standast langvar- andi viðskiptastríð vegna land- helgisdeilunnar. Danir munu þegar farnir að hugsa sér að komast inn á brezka markaðinn og vinna hann af íslendingum. Slæmt árferði ^il lands og sjávar hefur herjað landið á mjög til- finnanlegan hátt undanfarin ár. Þá hafa vörur, sem við verðum að flytja inn í landið hækkað verulega á seinustu árum, án þess að útflutningsafurðir okkar hafi hækkað samsvarandi .Þannig mun viðskiptaaðstaða okkar hafa versnað um 14—15% árin 1949— 1951. Það verður því að teljast mikill ábyrgðarhluti að vai-pa þjóðinni út í innanlandsófrið milli verkalýðssamtakanna ann- ars vegar og atvinnurekenda hins vegar. Það er þegar sýnt, að verkfallið muni standa yfir nokkurn tíma, en á meðan ganga verkamenn vinnulausir, þótt þeir sem aðrir megi sízt við því um þetta leyti. Aðsfaða ríkisstjórarinnar. Löggjöfin um stéttarfélög og vinnudeilur byggir á því, að at- vinnurekendur og launþegar semji um lausn deilumála sinna, án ^fs^pta rílíisy|ldsins. ■ f Earuf feérStœii- • embættismenn, sáttsemjarar; sem eiga að vinna að lausn kaupdeilna. Sé um mjög alvarlega deilu að ræða, getur ráðherra skipað sérstaka sátta- nefnd vegna þeirrar deilu, enda liggi fyrir beiðni um það frá öðrum hvörum aðila. Það hefur lieldur ekki verið stefna stéttar- félaga að kalla til aðgerða ríkis- stjómar í vinnudeilum. Enda á ekki svo að vera. Lýðræðið er í bráðri hættu, ef stéttarfélög geta neytt ríkisstjórn landsins til að breyta ákveðinni stjórnarstefnu. Tækifæri hafa landsmenn til þess við almennar kosningar. Ríkis- stjórnin hefur hins vegar tekið vel í að ræða við verkfallsmenn og heyra hverjar tillögur þeir hafi fram að færa til lausnar verk- fallsins með löggjöf eða stjórnar- boði. Hverjar eru tillögurnar? Það vekur hins vegar mestu furðu almennings, að fyrst verk- fallsmenn leita til ríkisstjórnar- innar, skuli þeir ekki hafa gert grein fyrir þeim tillögum, sem þeir vilja, að ríkisstjórnin leysi málið með. Þegar víðtækt verk- fall hefur staðið um langan tíma skaðast á því allir aðilar. Al- menningur finnur til vaxandi óþæginda og sums staðar vofir hætta yfir afkomu manna. Það er því mikill ábyrgðarhluti að efna til verkfalla, fyrr en fullreynt er um aðrar leiðir. En telja verður, að sökum kapps og óbilgirni forstöðumannanna, hafi verkfall- inu verið hrint af stað, án þess að nauðsynlegur undirbúningur til þess að reyna með öllum mætti að afstýra því, hafi verið látinn fara fram. Það er því ótímabært, þar sem löngum og dýrmætum Verkfall verkamanna hér í bænum hefur staðið síðan 1. þ. m. og verkakvenna síðan 3. þ. m. og samúðarverkföll sjómanna, járn- iðnaðarmanna, bílstjóra og vél- stjóra eru ýmist um það bil að hefjast eða munu skella á á næst- unni. Enn bryddir ekki á vilja ríkis- stjórnarinnar og atvinnurekenda til að leysa vinnudeilurnar og virðist það ráðagerð þessara aðila að teygja verkfallið svo á langinn, að fullkomin neyð verði meðal verkfallsmanna og verði þannig skipað öngþveiti, sem geti orðið orsök að ósigri verkalýðssamtak- anna. Slíkar ráðagerðir verður að hindra. Sigur vei'kalýðssam- takanna í yfirstandandi átökum er sigur allra launþega. Ósigur þeirra skipbrot allrar launþega- stéttarinnar. Allir launþegar, allir stuðn- ingsmenn alþýðusamtakanna, sem einhvers eru rhegnugir, verða að sameinast um raunhæf- an stuðning við verkalýðinn, sem nú stendur fremstur í baráttunni fyrir bættum kjörum allrar al- þýðu manna. Úrslit þeirrar bar- áttu getur oltið á því, að verk- fallsmenn fái þann fjárhagslega stuðning að hindruð verði neyð á heimilum þeirra, sem verst eru staddir. Slík fjárhagshjálp er ekki ölmusa, hún er stuðningur við sameiginelgan málstað allrar alþýðu á íslandi. Við viljum biðja álla þá, sem vilja veita fjárhags-* Iegan stuðning, að snúa sér til Skrifstofu verkalýðsfélaganna eða til einhvers af undirrituðum í söfnunar- og úthlutunarnefnd Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna. Jón Ingimarsson, Klapparstíg 3. Bjöm Kristinsson, Hríseyjarg. 20. Ragnar Skjóldal, Helgam.str. 6. Höskuldur Egilsson, Oddagötu 1. Vilborg Guojónsd., Munk. 14. Cesar Hallgrímsson, Fróðas. 10. Eernharð Helgason, Krabbast 1. ATHS. Blaðið tadli rétt að verða við óskum söfnunarnefndarinnar að birta ávarp þetta um fjársöfnun, en bendir jafnframt á þá augljósu staðreynd, að ummæli nefndar- manna um viðhorf ríkisstjórnar- innar og afskipti af vinnudeilunni eru ómakleg og ósönn og slíkur málflutningur er til ógagns fyrir allan verkalýð. tíma hefur verið eytt, áður en verkfallsmenn hafa getað borið fram kröfur sínar við ríkisstjórn- ina. Afleiðingarnar. Fyrsta beina afleiðing langs verkfalls er, að verkamenn ganga atvinnulausir og hafa því engar tekjur á meðan. Síðan lamast framleiðslan og minnkar stórlega. Seinast koma svo almennar kauphækkanir, dýrtíðarhjólið fer af stað jafnt og þétt. Öll þjónusta hækkar og kaupmáttur launa verður lakari en áður. Fram- leiðslan dregst saman, þar sem hún á ennþá erfitt með að standa undir framleiðslukostnaði. Og þróunin leiðir hraðfara til geng- isfalls íslenzku krónunnar. Það hefur hvergi verið rök- stutt, að verkfallið muni leiða til kjarabóta fyrir verkalýðinn. Hitt mun sönnu nær, að verið sé að undirbúa jarðveginn fyrir al- þingiskosningarnar að vori kom- anda. í fjölbreytfu úrvali: UNDIRFÖT NÆRFÖT NÁTTKJÓLAR HÖFUÐKLÚTAR HANZKAR / SOKKAR SOKKABANDABELTI VASAKLÚTAR miiiiiiiiiiiiiniiiiiniiiniiiniiniiiiinminiimiiMimiiimnllliimmiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii AIJGLÝSIÐ í DEGI ■ ■ i ■ 11 ■ 11 • ■ i ■ i iiiiiii 11111111111111111111 iiimimiiiiiiii immmmmiiimmmmimmimmmmmiimmiimimi|iii

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.