Dagur - 07.01.1953, Blaðsíða 3

Dagur - 07.01.1953, Blaðsíða 3
Miðvikudaginn 7. janúar 1953 D A G U R 3 Olíufélagið svarar Sökum þess að eigendur Olíufélagsins h.f. eru fjölmenn samtök og félög í landinu, sem ekki verður náð til nema á opinberum vettvangi, telur félagið sig ekki geta komizt hjá því að gera nokkra grein fyrir afstöðu sinni til þess döms, senr kveðinn hefur verið upp vegna olíufarms þess, sem olíuskipið „Esso Memphis“ flutti til landsins í marzmánuði 1950. Gerir félagið þetta, enda þótt því sé ljóst, að almennt kann það að vera óæskilegt, að gerð séu að um- talsefni opinberlega mál, sem eru fyrir dómstólum landsins. En sökum blaðaskrifa og rógs um þetta mál á félagið ekki annarra kosta völ. I. Málavextir. Olíufélagið h.f. hefur frá stofnun þess 1946 flutt inn olíur og benzín frá Esso Export Corporation í New York, en félagið sjálft og Hið íslenzka steinolíuhlutafélag hafa selt þessa vöru til inn- lendra aðila uin/land allt, svo og erlendra aðila á Keflavíkurflug- velli. Sá háttur hefur, með samþykki innflutningsyfirvaldanna, verið hafður á greiðslum fyrir þennan innflutning, að allar doll- aratekjur fyrir sölu á Keflavíkurflugvelli hafa verið færðar í reikn- ing Oh'ufélagsins hjá Esso Export Corporation í New York. Inn- flutt olía frá þessu ameríska félagi hefur síðan verið greidd úr þessum reikningi, auk þess sem gjaldeyrisleyfi hafa verið veitt fyrir þeirn upphæðum, sem skort hefur til viðbótar. Géngi íslenzkrar krónu var lækkað 1.9. marz 1950. Voru þá kannaðar birgðir olíufélaganna, og breyttist olíuverð samkvæmt ákvörðunum verðlagsyfirvaldanna tii hækkunar 1. apríl. Nú hafði olíuskipið „Esso Memphis" komið til landsins 10. marz, en þar senr Olíufélagið átti ekki dollara í reikningi sínunt í New Yörk til greiðslu á-öð.ru en þeinj hluta farmsins, sem ætlaður var erlendum aðilum á Keflavíkurflugvelli; en olía og benzín úr. skipinu til infi- lendrar notkunar voru ógreidd 19. marz, var þessi- farmur ekki tal- inn með þeim birgðum, sem keyptar höfðu verið á eldra genginu. Olíusalan á Keflavíkurflugvelli hefur hins vegar ekki áhrif á verð olíu til innlendra aðila, og var því ekki um það spurt, hvort sá hluti af farmi „Esso Memphis“, sem þangað fór, hefði verið greiddur fyrir eða eftir gengisbreytinguna. Úrskurður sá, sem Verðlagsdómur Reykjavíkur kváð upp fvrir nokkru, virðist byggjast á því, að dómurinn telur Olíufélagið hafa átt dollara fyrir öllum farminum, framkvæmdastjóra félagsins því hafa gefið verðlagsyfirvöldunum rangar upplýsingar og félagið hafa hagnazt ólöglega á innanlandssölu þessa farms. Byggir dórnur- inn þetta á því, að Olíufélagið hafi 19. marz átt til greiðslu á um- ræddurn farmi bæði þá dollara, sem því höfðu verið færðir til tekna í reikningi hjá Esso Export Corp., og þá dollara, senr búið var að afhenda olíuvörur fyrir á Keflavíkurflugvelli fram til 19. marz, enda þótt kaupendur hefðu elcki greitt þá, og þeir því verið ókomnir í reikning Olíufélagsins. Augljóst rná þó vera, að ekki gat félagið greitt vörur með peningum, sem því höfðu sjálfu ekki verið greiddir. í þessu sambandi skal tekið fram, að olíuvörur þær, sem seldar eru á Keflavíkurflugvelli, eru aldrei greiddar við mót- töku, heldur er reikningum til hvers kaupanda safnað saman á vissum fresti, sem getur verið mismunandi eftir því hvers konar reikningsviðskipti kaupandinn hefur samið um, og síðan sendir vestur um haf til innheimtu. Líður því að jafnaði talsverður tími frá því að varan er afhent á Keflavíkurflugvelli og þar til andvirði hennar er komið í reikning Olíufélagsins hjá Esso Export Corp. Verðlagsdómur telur þannig, að Olíufélagið liafi átt að koma til skila á ákveðnum degi gjaldeyri, sem því hafði sann- anlega ekki verið greiddur þann dag. Þó kom fram í málsvöm- inni, að margir útflytjendur drógu, jafnvel svo mánuðum skipti, að afhenda Landshankanum gjaldeyri, sem ]>eir höfðu afhent litflutningsvörur fyrir og fengið greiddan frá erlend- urn aðilum fyrir 19. marz 1950, til þess að geta eftir þann dag fengið liann greiddan á nýju gengi. En bankinn hefur keypt allan gjaldeyri, sem til hans er skilað, á því kaupgengisverði, sem er í gildi þann dag, sem skilin fara fram, án tillits til þess, hvenær gjaldeyrisins hefur verið aflað. Vitað er einnig, að þeim kaupsýslumönnum, sem eignazt höfðu umboðslaun í erlendum gjaldeyri fyrir 19. niarz, var ekki gert að skyldu að afreikna þau miðað við eldra gengið. Framkvæmdastjóri Olíufélagsins taldi í marz 1950, — telur enn og hefur að sinni hyggju fært fullar sannanir fyrir því, að félagið hafi ekki átt erlendan gjaldeyri fyrir öðru af fatmi „Esso Memphis“ en því, sem fara átti til erlendra káupenda. Annar hluti farmsins var allur ógreiddur eftir gengisbreyting- una. Hann taldi sig þá og telur sig enn hafa gefið fullkomlega réttar upplýsingar og telur félagið á engan hátt hafa hagnazt ólöglega af sölu umrædds farms vegna gengisbreytingarinnar. II. Vörn Olíufélagsins. Það er skoðun Olíufélagsins, að lögfræðingur þcss hafi fyrir réttinum fært fullar sönnur á eftirfarandi höfuðatriði þessa ntáls: 1) Að, framkvæmdastjóri félagsins hafi'talið þann hluta af farmi „Esso Memphis“, sem ætlaður var innlendunt notendum, ógreidd- an 19. ntarz 1950, og hafi eftir beztu samvizku hagað upplýsingum sínum til verðlagsyfirvaldanna eftir þeirri skoðun. 2) Olíufélagið skuldaði 19. marz 1950 í reikningi sínum hjá Esso Export Corp. hærri upphæð en verðmæti þess farms „Esso Memphis“, sem seldur var innlendum notendum. Ennfremur er það óumdeilt, að heildsöluskattur, leyfisgjald, bankakostnaður, verðtollur, vörumagnstollur og smásöluskattur fyrir ohu þessa \ oru greidd miðað við hið nýja gengi. Farmurinn var þannig toll- afgreiddur á nýja genginu og tryggingargjöld fyrir hann voru einnig greidd á nýja genginu. 3) Að það var mjög eðlilegt, að Olíufélagið ætlaði dollaratekjur sínar af sölu á Keflavíkurflugvelli fyrst og fremst til greiðslu á . vörunt fyrir flugvöllinn, þar sem H, í. S. varog er samningsbundið til þess að hafá ávallt nægar birgðir af olíu og benzíni á vellinum. Auk þess hafa viðskiptin á flugvellinum tryggt þjóðinni allmikinn gjaldeyri til kaupa á nauðsynlegum olíum fyrir sjálfa sig, og því var mjög mikilvægt að tryggja, að þeim viðskiptum yrði haldið áfram. 4) Að áætlun Olíufélagsins um skiptingu á farmi „Esso Memp- his“ milli innlendra og erlendra notenda var í alla staði eðlileg og heirnil, enda var skiptingu þeirri fylgt í reyndinni. III. Hinn „ólöglegi hagiiaður“. Niðurstöður Verðlagsdóms Reykjavíkur hafa komið Olíufélag- inu og Hinu íslenzka steinolíuhlutafélagi mjög á óvart, eins og séð verður af skýringunum hér að ofan, þar á rneðal sú niðurstaða dómsins, að félögin hafi hlotið „ólöglegan gróða“ að upphæð 1.600.165 krónur. Það leiðir af því, sem hér hefur verið sagt, og ítarlegum rökstuðningi lögfræðinga félaganna fyrir réttinum, að félögin hafa engan slíkan gróða hlotið. Við réttarhöldin kom eklcert fram sem á nokkurn hátt benti til þess, að Olíufélagið eða H. í. S. hefðu selt einn einasta líter af olíuvörum, hverju nafni sem nefnast, hærra verði en leyft var með tilkynningum verðlagsyfirvaldanna, eða hækkað verð á vörum sínum, fyrr en slík hækkun var leyfð af sömu yfirvöldum. Loks er það skoðun félagsins, að upphæðin, 1.600.165 kr„ fái ekki staðizt, og sýndi lögfræðingur Olíufélagsins fram á það fyrir réttinum, að hún er byggð á útreikningum, sem eru í verulegum atriðum rangir. IV. Málinu áfrýjað. Hér er ekki hægt að gefa nema örstutt yfirlit yfir mjög um- fangsmikið mál, en það, sem sagt hefur verið, gefur vísbend- ingu um það, að Olíufélagið og Hið íslenzka steinolíuhluta- félag geta ekki sætt sig við úrskurð Verðlagsdóms og hafa því, svo sem framkvæmdastjórar félaganna og fynverandi fram- kvæmdastjóri Olíufélagsins, ekki hikað við að áfrýja hon- um til hæstaréttar í þeirri öruggu von, að þar fái þau leið- réttingu mála sinna. Olíufélagiö h.f.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.