Dagur - 07.01.1953, Blaðsíða 8
8
Bagur
Miðvikudaginn 7. janúar 1953
Til vandræða horíir með sam-
komuhald í héraðinu vegna
ásóknar drukkinna manna
Nauðsynlegt að grípa til nýrra ráðstafana
tilþ ess að fyrirbyggja ósómann
Samkomuhald í sveitunum —
einkum í grennd við stóru bæ-
iria — á við sííellda örðugleika
að ctja vegna ásókiiar drukkinna
manna og hljótast iðulega af
vandræði þótt ekki sé í frásögur
fært.
En hér er alvarlegt vandamál
á ferðinni, sem ekki fer batnandi
með árunum; því miður. Virð-
ist orðið nauðsynlegt að taka
þessi mál nýjum tökum. Má í
því samband minna á tillögur
þaer, sem Páll H. Jónsson kenn-
ari á Laugum birti hér í blaðinu
fyrr í vetur. Þar var gert ráð
fyrir einbeittum ráðstöfunum til
þess að veita sveitafólki vernd
með samkomur sínar.
Dæmi um ástandið.
Samkomur hér í grennd við
Akureyri hafa lengi átt í vök að
verjast vegna ásóknar drukkinna
manna úr bænum. Hljótt hefur
verið um þessa atburði að jafn-
aði, en vel má vera að réttara
sé að geta þeirra hverju sinni
og þá jafnvel birta nöfn þelrra
manna, sem þar hafa sig mest í
frammi. Dæmi um ófrið þenna
er atburður, sem gerðist að sam-
komuhúsinu að Þverá á Staðar-
byggð sunnudaginn 28. desember.
í lögregluskýrslu segir svo:
„Ár 1952; sunnudagskvöldið
28. desember, og fram á nóttina,
átti að vera skemmtisamkoma
fyrir innansveitarfólk að Þverá
á Staðarbyggð. Hafði verið boðað
til skemmtunarinnar með miðum
innansveitar, en hún ekki auglýst
í blöðum.
Umrædd skemmtun hófst með
skemmtiatriðum nálægt kl. 21.30
um kvöldið en um klukkustundu
Geysir gaf nýja spítal-
anum vandað píanó
Eins og áður er frá skýrt hér í
blaðinu ákvað Karlakórinn
Geysir, á 30 ára afmli sínu, að
gefa nýja spítalanum 10 þús. kr.,
og var það þakklætisvottur til
bæjarins fyrir veittan stuðning í
utanför kórsins á sl. vori. Skyldi
verja upphæðinni í samráði við
yfirlækni. Varð síðan að ráði að
verja fénu til að kaupa vandað
hljóðfæri handa spítalanum, sem
á aðeins gamalt orgel en ekkert
píanó. Gerði Geysir ekki enda-
sleppt við málið og lagði fram fé
til viðbótar til að unnt væri að
kaupa píanó, mun upphæðin alls
vera hartnær 20 þús. kr. Er
hljóðfærið — frá Hornung &
Möller — í Kaumannahöfn, þeg-
ar komið til bæjarins.
síðar átti að fara að dansa í hús-
inu. Komu þá að húsinu nokkrar
bifreiðar frá Akureyri með óboð-
ið uta'nsveitarfólk og vildi það
fá inngöngu á dansinn. All-margt
af fólki þessu var undir áhrifum
áfengls og sótti það fast á og
fyllti brátt veitingastofu hússins.
Var brotinn þar lampi og fleira
skemmt, en síðan varð að hætta
veitingasölunni með öllu. Þá
sótti og lýður þessi á að komast
í danssalinn en var varnað þess
af dyravörðum og samkomugest-
um. ... “
Síðan er skýrt frá því, er einn
aðkomumanna braut hlera frá
glugga og fór þá leiðina inn í
kjallara hússins, en komst ekki
þá leiðina inn í danssalinn. Eru
síðan í skýrslunni nafngreindir
nokkrir menn, bæði bæjarmenn
og af skipum. Síðast segir í lög-
regluskýrslunni: „. .Þegar hér
var komið, var sýnilegt. að ekki
yrði við neitt ráðið og skemmt-
unin með öllu eyðilögð fyrir fólk-
inu og var þá beðið um lögreglu
frá Akureyri og var þá klukkan
20 mínútur yfir miðnætti. Þrír
lögreglumenn fóru á staðinn og
höfðu óróaseggirnir sig þá á
burtu og varð ekki fleira tíð-
inda. .. . “ Þá er greint frá því að
aðkomumenn hafi lagt hendur á
þá, sem dyrnar vörðu og að rifin
hafi verið föt. Hefur dyravörður-
inn gert skaðabótakröfu fyrir
fataskemmdirnar og árásarmann-
inum gert að greiða mörg hundr-
uð krónur í bætur.
komandi manna. Ekki ósvipaðir
taburðir gerðust nýverið að
Hrafnagili og á Svabarðsströnd.
Vinandi gerizt þess ekki þörf á
þessu nýbyrjaða ári að rekja
fleiri dæmi.
Hér er rakið eitt nýjasta dæm-
ið um vandræði á samkomum
sveitafólks af völdum utanað-
komandi manna. Vonandi gerizt
þess ekki þörf á þessu nýbyrjaða
ári að rekja fleiri dæmi.
Friðjón Jensson,,
tannheknir, 85 ára í gær.
Gamall og góður borgari hér í
bænum; Friðjón Jensson, tann-
læknir, átti 85 ára afmæli í gær.
Steingríraur Jónsson,
fyrrverandi bæjarfógeti, 85 ára.
Þann 27. des. sl. átti Steingrím-
ur Jónssont fyrrv. bæjarfógeti og
alþingismaður, 85 ára afmæli.
Steingrímur er landskunnur
maður vegna afskipta sinna af
opinberum málum. Er hann vin-
sæll maður og vinmargur, enda
heimsótti hann fjöldi manns á
afmælinu.
í skautahlaupi
mun þjálfa skautamenn
hér á Ákureyri í febrúar
r
Skaiitamót Islands verður háð Irér
í byrjun næsta mánaðar
Hinn kunni norski skauta- 1948 og sama ár varð hann Ev-
STUTTU MALI
ALEXANDIÍINE ekkju-
drottning í Danmörk, er var
drottning slands í 32 ár, and-
aðist aðfaranótt 28. desember
í Kaupmannahöfn. — Útför
hennar var gerð á sunnudag-
inn að viðstöddu ýn.su stór-
menni. Fulltrúi forseta Islands
við athöfnina var Sig. Nordal
sendiherra. — f Reykjavík
gekkst ríkisstjórn fslands fyr-
ir núnningarguðsþónustu í
dómkirkjunni .
-k
FORVÍGISMENN stjórn-
málaflokkanna hafa hirt ára-
mótahugvekjur í blöðum. —
Forseti slands, herra Ásgeir
Ásgeirsson, ávarpað þjóðina í
útvarp ó nýjársdag, en Stengr.
Steinþórsson forsætisráðherra
flutti ávarp á gainlaársdag.
Hermann Jónasson skrifar í
Tímann 31. des. mjög athyglis-
verða áramótahugvekju og
Bjarni Benediktsson skrifar
áramótaspjallið að þessu sinni
í Morgunblaðið. f Alþýðu-
hlaðinu uröu hugvekjurnar
tvær. Onnur frá Hannibal
Valdimarssyni, en hin frá
Stefáni Jóhann Stefánssyni.
Einar Olgeirsson birti lang-
hund í Þjóðviljamun.
★
TVEIR MENN hafa farizt
nú um nýjárið, annar hrapaði
til hana í rjúpnaveiðiferð, í
Norðurárdal í Borgarfirði,.
Pétur Samúelsson, á sjötugs-
aldri, hinn varð úti á Brcið-
dalsheiði vestra, Kristinn Sig-
urðsson námsmaður, ungur fs-
firðingur, cr var uin skeið
nemandi hér í bæ. Hvarf liann
að heiinan á gamlaárskvöld og
fannst eigi síðan fyrr en ör-
endur.
★
STAÐA útvarpsstjóra hefur
verið auglýst frá 1. febrúar. —
Umsóknarfrestur er til 20.
þ. m.
★
KYRRLÁTT var yfirleitt
um land allt á gamlaárskvöld,
veðurblíða liér nyrðra og milt
veður syðra. Óspektir urðu að
kalla engar og drykkjuskapur
með minna móti, a. m. k. hér
um slóðir. Til dæmis gisti eng-
inn í fangahúsinu hér á nýj-
ársnótt. Lögreglan á Akureyri
telur þetta rólegustu hátíðir
hér um langa hríð.
hlaupari, Reidar Liaklev, cr
væntanlegur hingað til lands inn-
an skamms til þess að leiðbeina í
skautahlaupi , og þjálfa hér
áhugamenn í þessari fögru
íþrótt.
Liaklev, sem er 35 ára gamall,
er mjög kunnur íþróttamaður. —
Hann vann gullverðlaun fyrir
5000 metra skautahlaup á vetrar-
olympíuleikunum í St. Moritz
Enska blaðið Fishing New, sem J
til þessa hefur haldið einna ske-
leggast á máli brezku togaraeig-
endanna í landhelgismálinu, virð-
ist nú vera farið að draga í land
— þótt ekki muni miklu — og
taka upp hófsamlegri tón í garð
íslendinga. Birti blaðið ritstjórn-
argrein um miðjan sl. mánuð sem
heitir „Látum deilumálið ekki
lengur reka á reiðanum“. í upp-
hafi máls segir ritstj., að brezka
stjórnin hafi ekki verið nógu við-
bragðsfljót að taka upp viðræður
við fslendinga, þegar kunn voru
úrslittn í deilu Norðmanna og
Breta í Haag, en því miður hafi
ráðleggingum blaðsins um þetta
efni á þeim tíma ekki verið sinnt.
Má ekki dragast.
Blaðið segir að sambúð íslend-
inga og Breta fari nú dagversn-
andi og það minnir á, að ísland sé
eitt Norður-Atlantshafsríkanna
rópumeistari í skautahlaupi.
Ráðgert er að Liaklev dvelji
hér í tvær vikur í febrúarmánuði
og leiðbeini hér. Mun Skautafélag
Akureyrar annast um dvöl hans
og kennslustörf.
íþróttasamband íslands hefur
tilkynnt að Skautamót íslands
verði háð hér á Akureyri snemma
í næsta mánuði. Mun Skautafélag
Akureyrar sjá um mótið fyrir
hönd sambandsins.
og þar séu herbækistöðvar sam-
kvæmt samningum við Bandarík-
in. Blaðið telur að verkfall það,
sem hófst hér á landi 1. des., sýni
að sú hætta sé yfirvofandi hér á
landi, m. a. vegna fiskveiðadeil-
unnar við Breta, sem sé notuð til
að espa upp andstöðu gegn Atl-
antshafsbandalaginu o. s. frv.
Skorar blaðið síðan á brezku
ríkisstjórnina og íslendinga að
skjóta deilunni annað tveggja til
„Overfishing Commission“-nefnd
arinnar, sem fjallar um ofveiði —
eða til Haag-dómstólsins, sem
blaðið telur þó lakara. í þessu
sambandi má minna á, að ís-
lenzka ríkisstjórnin hefur þegar
hafnað tillögu Breta um að
„Overfishing Commission" fjalli
um þetta málefni með því að það
er ekki í verkahring slíkrar
nefndar að fjalla um ákvarðanir
ríkisstjórna eða stjórnarathafna í
fullvalda ríkjum.
„Fishing News" breytír um tón-
íegund - „látum malið ekki reka
á reiðanum lengur”
Forvígismenn á |)ingi Sameinuðu þjóðanna
Myndin er af nokkrum nefndarformönnum á þingi S. Þ., sem nú koma talsvert við sögu. — Talið frá
vinstri: Amjad Ali frá Pakistan, form. félagsmálanefndarinnar, Rudolfo Munoz, Argentína,form.vernd-
gæzlunefndarinnar, Charles P. Romulo hershöfðingi, Filippseyjum, form. fjárhags- og skipulagsnefndar
og loks Wan Waithayákon prins, frá Thailaridi, form. laganefndar þingsins og er hann einn þeirra
manna, sem nefndur hefur verið í sambandi við eftirmaim Trygg\e Lie,