Dagur - 14.01.1953, Síða 5

Dagur - 14.01.1953, Síða 5
Miðvikudaginn 14. janiiar 1953 D A G U R 5 Landbúnaðurinn: Þróun hans og framtíðarhorfur YERKFALLIÐ - Seinni grein - Eftir ÁRNA JÓNSSON tilraunastjóra 1. sept. 1952 voru tekjur og gjöld vísitölubúsins, sem lagt er til grundvallar vísitöluútreikn- ings á landbúnaðarvörum, á þessa leið: G J Ö L D: 1. Kjarnfóður Kr. 5.788.00 % 8.7 2. Áburður 3.718.00 5.4 3. Viðhald húsa 1.823.00 2.8 4. Kostn. v. véla 2.356.00 3.6 5. Ýms kostnaður ýmsar tekjur 435.00 0.6 6. Kaup bónda 27.838.00 57.2 7. Aðkeypt vinna 14.108.00 21.6 Alls kr. 66.066.00 100% TEKJUR: 1. Afurðir nautgripa kr. 43.771.00 2. Afurðir sauðfjár — 17.901.00 3. Afu. af hrossum — 807.00 Alls kr. 66.066.00 Gjöld vísitölubúsiiis eru lögð til grundvallar framleiðslukostn- aðar og landbúnaðarvísitölu og gjöldum búsins jafnað niður framleiðslueiningar þess. Kaup bóndnns í þessu vísitölu- búi er miðað við vinnulaun ann- arra sambærilegra stétta, því að fotsvarsmenn bænda hafa haldið því fram, að ekki sé hægt að ætl- ast til þess að bændum vinni fyrir minna kaupi heldur en aðrir. — Þegar ekki er nægileg eftirspurn eftir framleiðslu bænda, skapast önnur viðhorf. I»örf breyttrar stefnu. Eg vil nú leiða nokkur rök að því, að þessi pólitik undanfarinna ára í verðlagsmálum landbúnað- arins þarf að breytast, ef land- búnaðurinn á að geta þróast á eðilegan hátt, með hliðsjón af því. að innan skamms verður að flytja verulegan hluta af fram- leiðslunni úr landi og selja á heimsmarkaðsverði. Framleiðslu- möguleikar landbúnaðarins eru áreiðanlega miklir, ef rétt er á haldið og geta og eiga að aukast mjög mikið í náinni framtíð. Hins vegar verður sala á land- búnaðarafurðum innanlands tak- mörkuð, fyrst og fremst af því, að þjóðin er fámenn og árleg fólks- fjölgun því ekki mikil eða um 3000 manns. Sé ræktun aukin líkt og verið hefur undanfarin ár, eða um og yfir 2000 ha. á ári, ætti heyfengur af þessu landi að svara til þess að hægt væri að fóðra um 2500 kýr, en þær ættu að mjólka a. m. k. um 5 miljónir kg. á ári, eða sem samsvaraði mjólk handa um 10 þúsund manns. Svipað verður uppi á teningn- um í sauðfjárræktinni. Þar verð- ur innan fárra ára þörf á að flytja út þúsundir tonna af kjöti. a En öllum má vera ljóst, að eins og nú er háttað verðlags- og kaup- gjaldsmálum hér á landi, er sala útilokuð á heimsmarkaði fyrir það verð sem þar er á hliðstæðri vöru. Skal nú vikið nokkru nánar að verðlagi á nokkrum landbún- aðarvörum í nágrannalöndum okkar. Verðlag hér og þar. Verð á landbúnaðarvöru um- reiknað í íslenzkar krónur eins og verðlag var sl. haust. Er hér yfirleitt miðað við beztu gæða- flokka hverrar vörutegundar. Verðið er miðað við heildsölu- verð í krónum pr. kíló. ísland Svíþjóð Noregur Danm. Bandar. Nautakjöt 15.00 10.90 13.20 9.44 7.60 Dilkakjöt 16.40 14.22 13.00 12.98 Kjöt af fullorðnu fé 11.15 12.00 11.17 7.08 Hrossakjöt 7.50 7.11 7.30 7.08 Smjör 45.90 23.94 14.82 Nýmjólk 3.67 1.32 0.95 1,70 Egg 24.00 14.82 10.85 Kartöflur 2.21 0.63 0.45 0.50 Mais 2.20 1.29 1.03 1 stórum dráttum sýnir þessi samanburður á verði landbúnað- arafurða, að verðmismunur á kjöti er ekki mjög mikill. Á dilka- kjöti t. d. er mismunurinn 10— 20%. Mjólkin og mjólkurvörur eru hins vegar mikið dýrari hér á landi, munar um tugi króna á smjörinu t. d. Þessi samanburður gefur til kynna, að við getum enga þessa vörutegund selt á er- lendum markaði með því verði, sem framleiðendur telja sig þurfa að fá, enda þótt nægur markaður væri fyrir hendi, því að auk verðmismunarins yrði að gera ráð fyrir nokkrum flutningskostn. og einhverjum tollum. Verðlag og framleiðslukostnaður hér innan- lands er á þann veg, að telja verður útilokað að selja kjöt og mjólkurvörur úr landi með fram- leiðsluverði, nema með stórfelld- um uppbótum úr ríkissjóði, eða þá að selja hærra verði þann hluta landbúnaðarafurða, sem seldur er á innlendum markaði. eða í þriðja lagi að framleiðslu- kostnaðurinn verði lækkaður svo að framleiðsluverð verði sam- bærilegt sams konar framleiðslu landbúnaðarins, sölumöguleika og verðlag. Niðurstaða mín er því sú, að eigi landbúnaðurinn að geta blómgast og vaxið á eðlileg- an hátt eins og til hefur verið stofnað á undanförnum árum, sem ætti að leiða til stóraukinnar frámleiðslu, vcrður verðlag á landbúnaðarframlciðslu að mið- ast við verð á hliðstæðri vöru á heimsmarkaði. Útflutningsgrund- völlur getur að mínum dómi ekki verið fyrir hendi til langframa á öðrum forsendum. Jafnframt því sem heimsmarkaðsverð réði verði á búvöru yrði almennt kaupgjald að færast í hliðstætt horf og mið- ast við þann grundvöll sem fram- lciðslan hefur upp á að bjóða á hvcrjunt tíma. Það er hægt að draga úr framleiðslukostnaði. Eg ætla að lokum að benda á nokkur atriði, sem geta miðað að því að draga nokkuð úr fram- leiðslukostnaði við landbúnaðinn. svo að verð á framleiðslunni geti lækkað, en jafnframt geti hún aukizt. í því sambandi er rétt að hafa til hliðsjónar verðlagsgrund völl framleiðsluráðs, vísitölubúið, sem áður er getið. 1. Hagkvæm notkun tilbúins áburðar gæti í senn aukið upp- skeru og lækkað framleiðslu kostnað hvers heyhests. 2. Með betri heyverkunaraðferð- um fást betri hey og minni efnarýrnun, og má þar til nefna súgþurrkun og votheysgerð. 3. Verð á kjarnfóðri ætti að vera hægt að lækka, t. d. með því að skapa bændum aðstöðu til þess að fá allar fóðurvörur fluttar beint frá útlöndum til helztu verzlunarhafna úti um land og að bændum gefist kostur á því að fá fóðurvörur með heild- söluverði, þegar þær eru keyptar í sekkjatali. Það sýnist vera óeðlilegt að bændur, sem kaupa fóðurvörm- í tonnatali, skuli þurfa að greiða fyrir þær sama verð og þær eru seldar á í búðum, þegar búið er að vigta þær í smáskammta. Fleiri rekstrarvörur ættu einnig að vera fáanlegar á heildsöluverði, þegar um stærri kaup er að ræða. Þá má og benda á, að fleiri bændur gætu slegið sér saman og gert sameiginleg inn- kaup hjá sínu kaupfélagi eða kaupmanni, þannig, að verzl- unin þyrfti ekki að afgreiða með heildsölukjörum mjög smáar pantanir í einu. í þessu sambandi má benda á, að í Reykjavík er nú að rísa upp alda og áhugi fyrir pöntunar- félögum, þar sem neytenda- hópar slá sér saman og mynda félag til vöruinnkaupa fyrir heimilin og um leið og slíkt félag hefur verið tilkynnt til samvinnufélagsskrár getur fé- lagið og meðlimir þess fengið hvers konar heimilisvörur, svo sem matvörur, fatnað, tóbak o. fl. hjá hvaða heildsölufyrirtæki sem er eða verksmiðjufram leiðendum. 4. Ef miðað er við meðalbúið þarf aðkeypt vinna að minnka, en hún er í verðlagsgrundvellin- um 21.6% af heildargjöldum, og sé miðað við framleiðslu þess bús, ætti aðkeypt vinna að geta minnkað; þegar bóndinn hefur í þjónustu sinni vinnu- sparandi vélar, góða ræktun og hagkvæmar byggingar fyrir búfé. 5. Reiknað kaup bóndans er 57.2% af framleiðslukostnaði vísitölubúsins. Skiptir því miklu máli að bóndinn sé vel verki farinn, sé hagsýnn vinnutilhögun, kunni að not færa sér til hlítar þau tæki og vélar sem hann hefur við fram leiðslustörfin. 6. Auknar kynbætur búf járins og betri fóðrun, mundi einnig auka framleiðsluna án þess að kostnaðarliðir þyrftu að hækka svo að neinu nemi. 7. Hvers konar leiðbeiningastarf semi þarf að stóraukast, bæði í jarðrækt, búfjárrækt og tækni. Leiðbeiningastarf getur beint eða óbeint stuðlað að betri búnaðarháttum auknum vinnu afköstum, t. d. í sambandi við vélanotkun, betri framkvæmd á ræktun, betri nýtingu á heyj um og hagkvæmari og ódýrari fóðrun o. fl. Með leiðbeininga- starfsemi ættu ýmsir nýjungar að geta náð fyrr til bændanna. sem gætu þá miðað að því að minnka framleiðslukostnaðinn og að gera framleiðsluna ör uggari. 8. Aukið lánsfé með hagkvæmum vöxtum og afborgunum er að sjálfsögðu mjög stórt atriði fyrir landbúnaðinn og jafnvel lifsnauðsyn, bæði af því að það er mjög erfitt fyrir bændur að þurfa að stofna til framkvæmda með óhagstæðum lánum, því að yfirleitt eru fjárfestingar nú settar í varanlegar fram kvæmdir. Hagstæð framleiðslu lán, eins og þau sem Búnaðar- bankinn hefur veitt til bygg- inga og ræktunar, gera það að verkum, að þáttur stofnkostn- aðarins verður lítill í fram- leiðslukostnaðinum í þeim til- fellum, en aftur á móti tölu- verður liður þegar lán eru óhagstæð. Vanmáttur stjórnarvaldanna Sjálfstæði þjóðarinnar í hættu Afurðaverð landbúnaðarins Eftir JÓN H. ÞORBERGSSON á Laxamýri Fullveldisdeginuin var heilsað með verkfalli, eða með glöggum merkjum þcss, að verið er að grafa máttarstoðirnar undan sjálfstæði þjóðarinnar. Það stefnir að fjárhagsþroti hjá ijóðinni og ‘ er tilræði við sjálf- stæði hennar. Það sýnir líka að stjórn landsins er vanmáttug og kraftlaus til að stöðva tilræðið, sem hún þyrfti þó að vera megn- ug að gera. Meira að segja ríkis- útvarpið flytur þá fregn að for- kólfar vei-kfallsins — nokkrir pólitískir ævintýramenn — hafi leyft að selja mætti einhvern slatta af mjólk í Reykjavík, handa sjúklingum og börnum þar. Hitt hefði þó verið sínu nær að rík- isstjórnin hefði bannað stöðvun á mjólkursölu í bænum. Kaupgjald og framleiðsla. Ríkisstjórn og Alþingi ætti líka að vera þess megnugt að ákveða og láta gilda, í gegnum þykkt og þunnt þann verðgrundvöll, sem tryggi það, að framleiðslan til sjós og lands beri sig. Þannig, að sníða kaup og laun við magn og verðmæti framleiðslunnar á hverjum tíma og miða uppbætur og vísitölu við afrakstur fram- leiðslunnar, þótt hún yrði mis- jafnlega há eða lág eftir árferði. Það er þessi verðgrunnur, sem alltaf hefði átt að gilda og verður að gilda. Beri þjóðin ekki gæfu til að skipa verðlagi í landinu sam- kvæmt þessum grundvelli, þá verður það erlend þjóð eða þjóð- Við gctum orðið samkcppnis- færir. Eg er í engum efa um, að hér á landi er hægt að framleiða landbúnaðarafurðir á því verði, sem aðrar þjóðir bjóða vörur sínar á, þrátt fyrir hnattstöðu landsins, því að hér cru landkost- ir góðir, ákjósanlcg skilyrði til grasræktar, beitiland gott og landrými mikið. Séu einhverjir þeirrar skoðunar, að ekki sé hægt að framleiða landbúnaðarafurðir nema fyrir innlendan markað og með tollamúrum, er ástæða fyrir þá að gleðjast yfir því, hversu fólki hefur fækkað í sveitunum undanfarið, því að ef þetta sjón- armið ætti að ráða, er nauðsyn- legt fyrir bændur að framboð landbúnaðarafurða sé alltaf minna en eftirspurnin. Þetta sjónarmið vil eg kalla neikvætt. Þáttur ríkisvaldsins og þeirra pólitísku flokka, sem cru mál- svarar landbúnaðarins, eiga að sjá svo um, að pólitískar hags- munaklíkur og einstakar stéttir þjóðfélagsins kollvarpi ekki eðli- legri verðlags- og kaupgjalds- þróun. Núvei'andi ástand í verð- lags- og kaupgjaldsmálum er yfir spennt og óeðlilegt og hlýtur fyrr eða síðar að hrynja, ef heilbrigð skynsemi á að ráða í stjórnar- háttum landsins. Verðlag á landbúnaðarvörum verður að miðast við heimsmark- aðsverð og kaupgjald verður einnig að miðast við kaupgjald í þeim löndum, þar sem við höíum viðskipti okkar, því að ekki er hægt að ætlast til að íslenzkir bændur geti greitt verkamanni um 1000.00 krónum meira á mán- uði en starfsbræður þeirra gera í heztu viðskiptalöndum okkar og boðið framleiðslu sína á sama verði og þeir. irt sem kenna íslendingum það, þegar þeir hafa glatað hinu fjár- hagslega sjálfstæði sínu. Að rík- isstjórn og Alþingi ekki ræður við þessi undirstöðuatriði fyrir sjálfstæði þjóðarinnar eru dauða- mörk á stjórnarfoi-mi í sjálfstæð- ismálum hennar. Aflciðing kröfustefnunnar. Verðgrunnurinn hefur undan- farna áratugi verið ákveðinn samkvæmt kröfum, en ekki sam- kvæmt framleiðsluskilyrðum landsins. Af því hafa orðið til margir þjóðfélagslegir örðug- leikar: 1. Miklu meiri skuldasöfnun hjá ríkinu en æskilegt eða hefði þurft að yera. 2. Miklu meiri eyðsla (flottheit) í daglegu lífi, heldur en nauðsynleg er og af- komumöguleikar landsins geta veitt sínu fólki. — Jafnvel getur I ekkert land í heimi veitt svo íburðarmikið og fórnarlítið líf, sem fjöldamargt fólk í þessu landi lifir nú í dag, einkum í höfuðstað landsins. 3. Verðfelling krónunnar, sem miðar nú að því drjúgum skrefum að gera hana verðlausa og þá er hrunið komið og íhlutun erlendra þjóða um fjárhag landsins. — Bátagjald- eyririnn er grímuklædd krónu- felling. — 4. Óeðlileg og allt of mikil aðsókn fólks að komast í launastöður, en varpa frá sér ábyrgri framleiðslu. — Það er af því að launað fólk hefur haft betri kjör. — Um síðustu aldamót var, a. m. k. 75% af þjóðinni ábyrgir framleiðendur, þar af landbúnaðarfólk 71,5%. Nú eru þessir framleiðendur komnir all- langt niður fyrir 40%. Við þá tölu bætist þó það fólk, sem vinnur að iðnaði úr innlendur fram- leiðsluvörum. Aðeins fáir menn í Reykjavík eru valdir að þessu verkfalli og er stórillt og athyglisvert, að þeir skuli hafa svo óhæfilega aðstöðu til að leika sér að fjöreggi þjóð- arinnar. Þessir R.víkingar hafa líka aðstöðu — vegna samtakanna — til að draga aðrar bvggðir landsins ofan í svaðið með sér, á móti vilja fólksins, sem þar býr, sem eykur mjög áhættuna, sem þessar ráðstafanir hafa í för með sér. Kaupgjald og landbúnaðarvörur. Því hefur verið haldið fram í sambandi við verkfall þetta, að kaup og laun þyrftu að hækka vegna hækkunar á verði land- búnaðarafurða frá 1. sept. síðastl. Þetta eru tylliástæður einar og furðuleg vitleysa, þegar það er vitað, að verð landbúnaðarafurð- anna hækkaði vegna kaups- og launahækkana á árinu og þegar það er vitað, að það er nefnd manna af beggja hálfu, seljenda og kaupenda, sem koma sér sam- an um eða ákveða verðið, og að þetta fyrirkomulag er lögbundið. Launahækkunin var búin að gilda mánuðum saman, þegar varan var hækkuð 1. sept. En þetta verðsamræmi milli launa og afurðaverðs verður að gilda, svo að framleiðslan haldi áfram. Nóg er nú komið af fólki samt burt frá framleiðslunni, til stórrar skaðsefni og hættu fyrir fjárhags- lega afkomu þjóðarinnar. Þrátt fyrir þessa hækkun 1. sept. síðastl., þá er þó t. d. mjólk- (Framhald á 6. síðu).

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.