Dagur - 06.05.1953, Side 8
8
Bagum
Miðvikudaginn 6. maí 1953
ÝMISLEGT FRÁ BÆJARSTJÓRN
Úr fundargerðum bæjarráðs að undanförnu.
NOKKRIR ÍBÚAR Glerárþorps tilkynna með bréfi, dags. 9. apríl,
að bráðlega muni koma hingað norður sendimaður frá félagsmála-
ráðuneytinu til þess að greiða fyrir samkomulagi um sameiningu
Glerárþorps og Akureyrar. Telja þer í bréfinu að sterkur meirihluti
Glerárþorpsbúa sé enn mjög ákveðinn með sameiningu. Bæjarráð
telur erindi þetta ekki gefa tilefni til ályktunar að svo stöddu.
------o-----
SLÖKKVILIÐSSTJÓRI, Ásgeir Valdemarsson, fer fram á fjár-
veitingu til kaupa og uppsetningu á 28 brunahönum. Áætlaður
kostnaður ca. 120 þús. kr. Bæjarráð leggur til að heimilað verði að
verja allt að 120 þús. kr. af væntanlegu láni Brunabótafélags íslands
til þessara framkvæmda. — Slökkviliðsstjóri, Ásgeir Valdemarsson,
fer. þess á leit, að erindisþréfum varðmanna á slökkvistöð verði
breytt þannig, að 10. gr., er nú er svohljóðandi: „Bæjarsjóður lætur
varðmanni í té tvenn vinnuföt á ári, auk annarra einkena, er bæjar-
ráð ákveður“, verði þanig, að varðmennirnir fái einkennisbúning
annað hvort ár, en engan vinnufatnað. Upplýsir slökkviliðsstjóri að
nothæfur einkennisbúningur muni kosta ca. 1700 krónur. Bæjarráð
leggur til, að beiðni þessi verði samþykkt.
------o-----
BJÖRN HALLDÓRSSON, f. h. Ásbjarnar Árnasonar, býður bæn-
um forkaupsrétt að býlinu Lækjarbakki, ásamt erfðafestulöndum.
Kaupverð kr. 60.000.00. Kaupandi Halldór Kristjánsson. Bæjarráð
leggur til að forkaupsrétti sé hafnað.
------o-----
BÆJARRÁÐ leggur til, að bæjarstjórn gefi bæjarstjóra Steini
Steinsen fullt og ótakmarkað umboð til að undirskrifa skuldabréf
fyrir lánum þeim, er Brunabótafélag íslands hefur lofað bæjarsjóði
Akureyrar til vatnsveituframkvæmda og kaupa á tækjum fyrir
Slökkvistöð Akureyrar.
------o-----
LAGT FRAM bréf frá stjórn Bílstjórafélags Akureyrar, dags. í
dag, þar sem sagt er upp gildandi samningum við atvinnuveitendur
frá 1. júní 1953 um kaup og kjör vörubifreiðastjóra.
------o-----
LAGÐIR FRAM reikningar bæjarsjóðs Akureyrar fyrir árið 1951,
rekstrarreikningur og efnahagseikningur. Reikningunum hefur
verið útbýtt prentuðum meðal bæjarfulltrúa. Reikningarnir eru
áritaðir af endurskoðendum án athugasemda. Bæjarráð leggur til
að bæjarstjórn samþykki þessa reikninga. — Lagðir fram reikningar
Vatnsveitu Akureyrar fyrir árið 1951. Reikningarnir eru áritaðr án
athugasemda af hinum kjörnu endurskoðendum bæjarins. Bæjarráð
leggur til að bæjarstjórn samþykki reikningana.
------o-----
ERINDI frá Góðtemplarareglunni á Akureyri, dags. 27. apríl sl.
Er þar skýrt frá, að bæjarstjórn hafi fyrir nokkrum árum samþykkt
að veita 5000.00 krónur til að reisa Friðbirni Steinssyni bóksala
minnismerki. Þar sem brjóstlíkan af Friðbimi er nú fullbúið, er
óskað eftir að hefja bæjarsjóðsstyrkinn. Bæjarráð samþykkir að
fjárveiting þessi, sem veitt var til að koma upp minnismerkinu hér í
bæ, verði nú greidd úr bæjarsjóð.
------o-----
ERINDI frá Finni Árnasyni garðyrkjuráðunaut, þar sem hann fer
fram á að fá lán til að kaupa sendlabíl, sem hann telur sér algerlega
nauðsynlegan til að geta annast starf sitt. Biður hann um 18 þús. kr.
til 3ja ára. Einnig £cr hann fram á bifreiðastyrk úr bæjarsjóði kr.
4000.00 á ári. Bæjarráð leggur til að Finni verði veitt umbeðið lán til
þriggja ára með 6% vöxtum. Einnig leggur bæjarráð til, að Finni
verði veittur bifreiðastyrkur, kr. 2000.00 á ár.
------o-----
LAGT FRAM ERINDI frá bæjarverkfræðingi, þar sem hann
spyrzt fyrir um, hvort gæta skuli þess að eyða ekki af vegafé nema
kr. 800.000.00 til 1. okt. næstk. Bæjarverkfræðingur telur, að þann 1.
apríl sl, hafi verið óeytt af vegafé kr. 318.000.00 + 300.000.00, sem
geyma skal þar til eftir 1. október. Af þessu fé telur hann raunverú-
lega ráðstafað í föst laun, vegheflun, holræsarör og bifreiðakeyrslu
ca. 140.000.00. Óráðstafað væri því ca. 160.000.00, er svari til að ca. 7
menn, ásamt 1 bíl, verði í stöðugri vinnu til 1. okt. Bæjarráð heldur
fast við fyrri samþykkt, að geymdar verði 300 þús. kr. til 1. okt. og
leggur því til, að vegavinnu verði hætt um 6 vikna tíma í júlí og
ágúst, eftir því sem við verður komið, en unnið verði við vatnsveitu
og rafveitu og sé þeirri vinnu úthlutað af vinnumiðlunarnefnd í sam-
ráði við rafveitustjóra, vatnsveitustjóra og bæjarverkfræðing.
125 ár frá fæðingu stofnanda
Rauða Krossins
Lítil þátttaka
í kröfugöngu
Fyrsta maí-hátíðahöldin hér
voru með svipuðu sniði og áður.
Þrátt fyrir fagurt veður, var lítil
þátttaka í kröfugöngunni, eða um
120 manns að börnum frátöldum.
Á meðal ræðumanna á útifundin-
um var frambjóðandi kommún-
ista hér á Akureyri, Steingrímur
Aðalsteinsson, og var það mjög
ósmekkleg ráðstöfun af forstöðu-
nefnd 1. maí-hátíðahaldanna, að
velja hann sem ræðumann, enda
flutti hann pólitíska áróðursræðu
fyrir flokk sinn. Kommúnistar
brugðu því ekki vana sínum að
þessu sinni, heldur reyndu á all-
an hátt að gera þennan hátíðisdag
verkalýðsins að flokkslegum
áróðursdegi fyrir sig. En það er
tímanna tákn, að þátttaka í úti-
fundi og kröfugöngu var minni
nú en oftast áður. Sýnir það ljós-
lega að verkamenn eru orðnir
þreyttir á kommúnistum og vilja
ekki láta bendla sig við flokks-
starfsemi þeirra.
Spánarfarar komnir
heim
Fjórir Akureyringar voru í
Spánarförinni, sem farin var á
vegum Ferðaskrifstofu ríkisins
nú fyrir skemmstu. Var farið með
Gullfaxa, um París og Barcelona,
og heim aftur með flugvélinni frá
Madrid. Ferðafólkið fór víða um
Spán og lætur vel af förinni, sem
þó var allerfið, því að víða var
farið og mikið ferðast á skömm-
um tíma. Þátttakendurnir héðan
voru hjónin frú Ásta Sveinsdótt-
ir og Kristinn Jónsson afgreiðslu-
maður Flugfélagsins hér, frk.
Solveig Pálsdóttir skrifstofumær
og frk. Svanbjörg Svanbergsdótt-
ir verzlunarmær.
Erlend skip losa áburð
og hjallaefni
Hér hafa nýlega verið tvö er-
lend skip, með erlendan áburð, og
fiskhjallaefni. Hingað er komið
nokkurt magn af túnáburði og er
afhending hafin hjá KEA út á
pantanir. Garðáburður er hins
vegar ekki kominn enn, en vænt-
anlegur senn. Fiskhjallaefnið fá
útgerðarfyrirtæki hér í bæ og
hefur staðið á efni til þess að geta
tekið á móti eins miklu magni af
fiski til herzlu og ætlunin var.
Sauðburður hafinn í
Eyjafirði
Sauðburður er hafinn hér í
Eyjafirði og er farið að bera á
nokkrum bæjum. Úr Þingeyjar-
sýslu er blaðinu símað að sauð-
burður sé að hefjast þar. Mikill
snjór er í útsveitum Þingeyjar-
sýslu, t. d. sagði Jón bóndi Þor-
bergsson á Laxamýri blaðinu í
gær, að þá um daginn hefði fyrst
sést í túnið á Laxamýri fyrir
snjó. Blíðviðri og hiti var þar
eystra í gær og leysir snjóa ört.
Hinn 8. maí þessa árs eru liðin
125 ár frá fæðingu stofnanda
Rauðakrossins.
Henry Dunant var fæddur í
Genf þann 8. maí 1828 og var af
góðum ættum í báða liði. Það
kom snemma í ljós, að hann var
gæddur næmri tilfinningu með
Deim, sem lifðu skuggamegin í
lífinu, sam f#fa sterkri löngun til
pess að verða þeim að liði.
Á uppvaxtarárum sínum varð
Dunant fyrir áhrifum frá þrem
nafntoguðum konum, sem allar
unnu að sama háleita markinu,
sem sé að draga úr þjáningum
manna, enda þótt þær ynnu hver
á sínu sviði. Konur þessar voru
Mrs. Beecher-Stove, höfundur
hinnar heimsfrægu bókar „Kofi
Tómasar frænda", en sú bók átti
sinn þátt í hreyfingunni, er barð-
ist fyrir afnámi þrælahalds í
Bandaríkjum N.-Ameríku. Önn-
ur var Florence Nightingale,
hjúkrunarkonan enska, er gat sér
hinn góða orðstír fyrir björgun og
hjúkrun særðra í Krímstríðinu.
Sú þriðja var ensk kona, Mrs.
Elizabeth Fry, er vann mikið og
göfugt starf í því, að fá bætta að-
búð fanga. Störf þessara þriggja
kvenna urðu Dunant mikil
hvatning, til þess að láta eitt-
hvað gott af sér leiða.
Árið 1859 geisaði stríð í N,-
ítalíu, milli Frakka og Austur-
ríkismanna. Einhver blóðugasta
orrustan var við Solferino þann
24. júní, og var mannfall ógurlegt
hjá báðum. Dunant, sem var á
ferð þarna, rann eymd hermann-
anna svo til rifja, að hann ákvað
að hefjast handa til hjálpar þess-
um vesalingum. Fékk hann í lið
með sér nokkrar konur og hóf
þegar björgunar- og hjúkrunar-
starfið fyrir særða hermenn úr
báðum herjum. Auk þess fékk
hann svo látna lausa herlækna, er
teknir höfðu verið til fanga, og
með þessu starfsliði vann hann
svo líknarstarf sitt meðal særðu
hermannanna, en þetta starf varð
upphafið að því alþjóða líknar-
starfi, sem nú er rekið undir
nafninu „Rauði Krossinn". Stafar
Fimratusgafmæli og
25 ára prestsafmæli
Sér Þormóður Sigurðsson,
sóknarprestur að Vatnsenda í
Köldukinn, átti fimmtugsafmæli
30. apríl, og um sama leyti 25 ára
prestsafmæli; -Séra Þormóður er
sonur Yztafellshjónanna, Sigurð-
ar Jónssonar og Kristbjargar
Marteinsdóttur, og gekk einn
menntaveg af börnum þeirra sex,
og gerðist prestur í fæðingarsveit
sinni, 25 ára að aldri.
Á afmælisdaginn fjölmenntu
Þingeyingar að Vatnsenda til
séra Þormóðs og Nönnu Jóns-
dóttur frá Finnsstöðum, lconu
hans. Sóknarbörn hans færðu
honum að gjöf vandað gullúr.
nafn þetta af því, að starfsfólk
það er Dunant hafði sér til hjálp-
ar við líknarstarf sitt við Solfer-
ino hafði að einkenni hvítt band
með rauðum krossi í, og yfir
bækistöð hans blakti hvítur fáni
með rauðum krossi (öfugt við
svissneska flaggið, sem er rautt
með hvítum krossi).
Þetta starf Dunants vakti
hvarvetna hina mestu athygli og
fljótlega um alla álfuna og vakti
aðdáun ,og var nú fyrir alvöru
farið að ræða um alþjóða samtök
um að stuðla að linun þjáninga
særðra í ófriði, og setja reglur um
meðférð þeirra, og til verndar því
fólki, er ynni að slíkri hjálpar-
starfsemi. í október 1863 var köll-
uð saman alþjóða ráðstefna í
Genf, til þess að undirbúa stofnun
slíkra samtaka þjóða á meðal, og
8. maí 1864 var aftur kvödd sam-
an ráðstefna fulltrúa 16 ríkja, til
þess að ganga frá samningi þar
um. Þann 22. ágúst er svo hinn
frægi „samningur um velferð
hermanna er særast í ófriði“ und-
irritaður. Síðar bættust svo fleiri
ríki í þessi samtök, og nú eru
Rauða Kross félög starfandi í 71
landi.
Hér á landi var Rauða Kross
félag stofnað hinn 10. desember
1926 og eru nú starfandi alls 10
deildir, með um hér um bil 3000
félagsmönnum. Þar sem ísland
hefur ekki vopnaðan her og á því
ekki í ófriði við aðrar þjóðir, er
hlutverk Rauða Krossins íslenzka
nokkuð annað en samsvarandi
félaga í öðrum löndum. Hefur
starf félagsins hér því verið í því
fólgið aðallega, að útvega og reka
sjúkrabíla, koma upp sjúkraskýl-
um og sjá börnum fyrir sumar-
dvöl í sveit á sumrum, og hefur
í þessu þrennu verið unnið mikið
og gott starf.
En nú bíða fleiri og ný verk-
efni. Ástand það sem ríkt hefur
í heiminum undanfarin ár gæti
leitt til ófriðar, hvenær sem vera
skal, og þar sem hætt er við að
við íslendingar förum ekki var-
hluta af slíkum hildarleik, vill
jR.K.Í.vera viðbúinn með sjúkra-
hjálp, svo sem hjúkrunarlið, rúm,
meðöl o.fl., og er nokkuð af þessu
nú þegar fyrir hendi, en ekki nóg.
Parf til þess meira fé en R. K. f.
hefur til umráða, og þess vegna
snýr félagið sér til allra lands-
manna og biður þá að gerast
meðlimir. Það er ódýrt, en getur
verið félaginu mikill styrkur.
Árgjald meðlima Akureyrardeild-
ar Rauðakross íslands er aðeins
kr. 10. Þeir sem vilja ganga í fél-
agið gjöri svo vel að snúa sér til:
Páls Sigurgeirssonar Vöruhúsinu,
Ljósastofu Rauða Krossins, Hafn-
ai-stræti 100, eða Kristjáns Krist-
jánssonar BSA.
Gerist því í dag félagar í Rauða
Krossi fslands.
Iijálpið Rauða Krossinum í dag
— á morgun þurfið þér ef til vill
á hans hjálp að halda.