Dagur - 18.11.1953, Síða 1
12 SÍÐUR
XXXVI. árg.
Akureyri, miðvikudagnn 18. nóvember 1953
59. tbl.
Hépmyiid frá tízkusýningunni
Hörmulegt slys í Grundarfirði:
11 menn komust í nötabát, og af [>eim eru 3 látnir
9 vaskir sjómenn hafa því látið lífið í slysi þessu
an nótabátinn, en um morguninn,
cr birti, sáu skipsverjar á hinum
skipunum, að Edda var horfin.
Töldu þeir, að hún mundi hafa
farið að svipast eftir nótabátnum.
Fréttin berst frá Bár.
Um hádegi kom símaboð í
Grafarnes frá bænum Bár utarlega
við Grundarfjörð, og bað um lækn-
ishjálp. Varð þá ljóst, að hörmulegt
sjóslys hafði orðið. Að Bár hafði
nótabátur Eddu tekið land um
morguninn, og höfðu ]1 menn ver-
ið í honum. Barst báturinn gegn-
um brimgarðinn að landi. Þrír
ntenn af þeim ellefu, sem í bátn-
um höfðu verið, voru dánir, en hin-
ir voru ekki taklir í hfshættu.
Skipinu hvolfdi.
í gær fréttist svo, hvernig slysið
hafði að höndum borið. Hafði
feykilega snörp vindhviða lagt
skipið á hliðina og hvolft því. Af
19 manna áhöfn komust ellefu í
nótabátinn, en 6 munu hafa farizt
þá þegar með skipinu. Annars voru
fregnir af þessu mikla slysi fremur
óljósar í gær, vegna símslita við
Breiðafjörð.
Þeir, sem fórust:
Sigurjón Guðmundsson, 1. vélstj.,
Hafnarfirði, 34 ára giftur og átti 5
Ikirn, ung. — Sigurður Guðmunds-
son, 2. vélstj., Hafnarfirði, 28 ára,
giftur, átti fósturbarn og foreldra á
lífi. — Jósef Guðmundsson, (bróðir
Sigurðar 2. vélstj.) Hafnarfirði, há-
seti, ókvæntur. — Guðbjartur Guð-
mundsson, háseti, 42 ára, Hafnar-
firði.giftur, átti 5 börn og foreldra
á líl'i. — Guðbrandur Pálsson, há-
seti, 42 ára, Hafnarfirði, giftur, átti
6 börn, flest ung, og aldraða móður
á lífi. — Albcrt Egilsson, 30 ára, há-
scti, Hafnarfirði, átti konu og 1
barn og móður á lífi. — Stefán
Guðnason, háseti, 18 ára, frá Stiiðv-
arfirði, ókvæntur, á móður á lífi.
— Sigurjón Benediktsson, háseti, 17
ára, Hafnarfirði, ókvæntur, átti
foreldra á lífi. — Einar Ólafsson, há-
seti, Sandgerði, 19 ára, lætur eftir
sig unnustu og átti foreldra á lífi.
Skipstjóri á Eddu var Guðjón
Illugason, kunnur aflamaður, frá
Ilafnarfirði.
Aðalsteinn Magnússon
látinn
í gær lézt í Sjúkrahúsi Akur-
eyrar Aðalsteinn Magnússon, fyrrv.
skipstjóri, nú um langt skeið af-
greiðslumaður í Áfengisverzlun
ríkisins hér í bæ. Hann varð 61
árs. Aðalsteinn var kunnur borg-
ari og vel metinn, var m. a. framar-
lega í stéttarsamtökum skipstjóra.
Eins og rakið var í síðasta blaði, var haldin tízkusýning hér á Akureyri fyrra sunnudag, hin
fyrsta hér nyrðraj og var mjög íjölsótt. Varð húsfyllir þrisvar í samkomusal Varðborgar,
félagshéimílis ieihplara. Sýndar voru ýmsar gerðir kjóla frá saumastofu frk. Margrétar Stein-
grím-jdóttur, sem á 20 ára starfsafmæli um þessar mundir. Kjólarnir vöktu atliygli fyrir lát-
lausa og smekklcga gcrð, og fyrir lágt verð. Myndin sýnir allar stúlkurnar, sem fram komu, og
þá um Ieið fimm gerðir kjóla, sem sýndar voru. Frá vinstri: Frú María Ryel, frk. Ragna
Ragnars, frk, María Jónsdóttir, frú Stella Sæberg og frk. Sigurlaug Jakobsdóttir. Edvard Sig-
urgei»sson tók myndma og eins myndirnar, sem birtar eru í kvennadálki innan í blaðinu.
Hörmulegt slys varð í síld-
veiðiflotanum í GrundarfirSi í
ofviSrinu sl. mánudagsmorgun.
Vélskipinu Eddu frá HafnarfirSi
hvolfdi, og drukknuSu þar sex
menn þegar, en ellefu menn af
áhöfninni komust í nótabát
skipsins, og hrakti þá út á
GrundarfjörS. Tók báturinn
land undan bænum Bár utar-
lega í firSinum, en þrír menn
fórust, sem meS honum voru,
en ekki var ljóst í gærkvöldi,
hvort þeir hefSu farizt í lend-
ingunni eSa látizt eftir aS á
land var komiS.
Hafa því alls níu vaskir sjémicnn
farizt í hamförum þessum, sem eru
einhverjár þær mestu um margra
ára skeið.
Skipin í vari viS Grafarnes.
Samgöngomálaráðherra hefur ákveðið að ýtur
verði til taks við Öxnadals- os Holtavörðuheiðar
Verulegur árangur hefur
þegar náðst í þeirri baráttu
Norðlendinga að vegamála-
stjórnin taki upp aðra starfs-
liætti á þjóðvegum að vetrar-
lagi en verið hefur. Var þessu
mikilvæga hagsmunamáli
fjórðungsins hreyft hér í blað-
inu enn á ný lyrir hálfum
mánuði, en á liðnum árum
hefur það oft verið rætt og
bent á þörf úrbóta.
En það gerði gæfumuninn nú,
að með samgengumál í ríkisstjórn-
inni fer nú maður, dr. Kristinn
Guðmundsson, sem er gagnkunn-
ugur málefnum fjórðungsins og
skilur nauðsyn þess, að unnt sé að
halda uppi flutningum á þessari
fjölfcrnu leið á vetrum. Ýmis fyr-
irtæki og áhrifamenn í þremur
héruðum hafa nú siðustu dagana
rætt þessi mál við þlngmenn og viö
ráðherrann cg í fyrradag lagði ráð-
herrann svo fyrir, að urrúð skyldi
að því meðsn snjóíé.t er á lág’endi,
að halda þjóðveginum yfir Holta-
vörðnuheiði og Oxnadalsheiði opn-
um með verkfærum vegamála-
stjórnarinnar og er þess að vænta,
að það starf sé þegar hafið.
Umferð um Holtavörðuheiði.
Umferðin yfir heiðarnar síðustu
dagana sannar greinilega, hver þörf
er á þessum ráðstöfunum. Að und-
anförnu hefur að kalla látlaus
straumur vöruflutninga úr öllum
Norðlendingafjórðungi verið í um-
brotafærð á Holtavörðuheiði. Hér
er ekki aðeins um að ræða bifreið-
ir héðan frá Akureyri og Eyjafirði,
hefdur og úr Húnavatnssýslum og
Skagafirði, og sýndu Húnvetning-
ar og Skagfirðingar engu minni
áhuga en Akureyringar fyrir þessu
máli og gengu rösklega fram í því
að fá viðunandi fausn á því.
Til dæmis um umferðina er
þetta:
Á aðfaranótt laugardags sl.
fóru 8 bílar yfir Holtavörðu-
heiði, voru 6 tíma að fara yfir
heiðina.
Á laugardaginn voru 9 bílar í
7 klst. að brjótast yfir heiðina.
(Framhald á 12. síðu).'
Aðfaranótt mánudagins gekk fár-
viðri yfir Suður- og Vesturland.
Mörg síldveiðiskipin á Grundar-
firði leituðu vars skammt undán
bryggju í Grafarnesi í Grundarfirði,
en svo mikið var veðrið, að legu-
færi héldu naumast, og þurftu
skipin sífellt að vera að færa sig.
Meðal þessara skipa var Edda. Um
nóttina mun skipið ltafa misst ann-
Fundir Framspknarmanna um helgina:
r
Ársskemndturs á laugardags-
I - abennur ílokks-
íiifidur á sunnudag
Framsóknaríélögin hér á Akureyri lialda ársskemmt-
un sína að Hótel KEA næstk. laugardagskvöld og hefst
hún kl. 8.30 e. h. Þar mun Hermann Jónasson, formaður
Framsóknarflokksins flytja ávarp og fleiri stuttar ræður
verða fluttar. Einar Sturluson óperusöngvari mun
syngja nokkur lög, og enska söng- og dansmærin Linda
Lane mun syngja nokkur lög með undirleik hljómsveit-
ar Árna Elfars. Síðan verður dansað og leikur hljóm-
sveitin fyrir dansinum. Stjórnir félaganna skora á alla
félagsmenn að sækja ársskemmtunina. — Aðgöngumiðar
fást við innganginn og síðdegis á laugardaginn á Hótel
KEA. — Samkvæmisklæðnaður ekki áskilinn.
Á sunudaginn kl. 2 verður haldinn almennur fundur
Framsóknarmanna og mun Hermann Jónasson flytja
þar ræðu um stjórnmálaviðhorfið, en síðan verða frjálsar
umræður. Þessi fundur verður að Hótel KEA og eru all-
ir Framsóknarmenn velkomnir, bæði úr bæ og héraði
eins og húsrúm framast leyfir.
Koma Hermans Jónassonar er því skilyrði háð, að
flugfært verði norður á laugardag.
iÚ<H3<HKH><H><H><H><HKHKBSSHKBKH><H><H><HÍ<KHKBKHKH3<H><HKH3<tC
DAGUR
kemur næst út á regluleg-
um útkomudegi, miðviku-
daginn 25. nóvember.
GJALDDAGI
blaðsins var 1. júlí. — Léttið
innheimtuna! Sendið afgr.
áskrifíargjaldið!
Vétskipið Edda fórst í ofviðrinu
á inánudðgiiin og með því 6 ntenn