Dagur - 18.11.1953, Blaðsíða 11
Miðvikudaginn 18.nóvember 1953
D A GU R
11
MÓÐIR, KONA, MEYJA.
(Framhald af 6. síðu).
• Verð pils og blússu kr. 438.
Tízkusýningin hefur mælzt vel
fyrir. Er það mál bæjarbúa, að
hún hafi tekizt vel og verið þeim,
er að henni stóðu, til sóma.' A
forsíðu blaðsins í dag er hópmynd
frá tízkusýningunni, þar sem sjást
síðir og hálfsíðir samkvæmiskjólar.
LAUST OG FAST
Móðureyrað.
KOMMÚNISTAR norðan og
sunnan heiða virðast ekki hafa
komizt í öllu meiri hval um
EKLEND TIÐINDI
(Framhald af 7. síðu).
frá Washington“ um ófarirnar. En
kjósendur eru ekki að hugsa um
neina arfleifð og ekki um fortíðina,
þeir eru að hugsa um framtíðina
og frammistöðu flokksins í dagleg-
um vandamálum.
Það er ekki hægt að smokra sér
fram hjá þeirri staðreynd, að enda
þótt forsetakosningin á sl. ári sýndi
að Trumanstjórnin hafði misst
traust meirihl., sýndu þingkosning-
arnar, sem fóru fram um sama
leyti, að Repúblikanaflokkurinn
er ekki vinsæll, því að hann hlaut
færri atlcvæði en Demokrata-
flokkurinn.
Um þetta atriði fórust einum af
Ieiðtogum Repúblikana þá orð á
þessa leið:
Kosnngarnar 1952 sýndu, að
ameríska þjóðin var enn ekki
tilbúin að afhenda Repúblik-
anaflokknum stjórnartaumana.
Við höfum því ekki traust
nema nokkurs hluta þjóðarinn-
ar. Nú er það hlutverk okkar
að ávinna okkur traust hins
hlutans. —
Ef kosningarnar í sl. viku geta
sannað flokknum, að framtíð hans
liggur í því, að standa traustlega
að baki forsetans og stefnumála
hans, gera þær mikið gagn. Þegar
þing kemur saman sést, hvort
flokkurinn hefur lært af reynsl-
unni eða ekki.
- Gunnar Gunnarsson
(Framhald af 7. síðu).
með brúnum straumrákum sínum
slípar basaltsteinana tinz þeir gljáa
I farveginum. Þar eru margar lýs-
ingar á stjörnubjörtum kvöldum,
alhvítu landi og blómskreyttri
sumardýrð við miðnætursólarskin.
Þeir, sem hafa séð íslenzka náttúru,
ræða margt um töframátt hennar.
Gunnár Gunnarsson kallar þennan
mátt fram í bók sinni og færir töfr-
ana inn í líf þeirra pcrsóna, sem
hann færir fram á sviðið.
Við bjóðum hann velkominn aft
ur á svið danskra bókmennta og
óskum þess, að honum auðnist að
ljúka þessu verki og færa til stór
felldrar fullkomnunar.
- Framsóknarmenn
hafa forustu ...
(Framhald af 2. síðu).
Tillögur Framsóknsrmanna
marka ébyrga stefnu og nýjar að-
gerðir til þess að þær nauðsynlegu
landvarnir, sem hér verður að hafa
um sinn, séu innan eðlilegra tak-
marka, stefni ekki þjóðerni í hættu
né valdi ofþennslu, er orðið gæti
atvinnísvegum landsmanna til
falls. Fyrir kjósendur Framsókn-
arflokksins er þessi þróun málanna
hin athyglisverðasta. Þeir sjá nú
hvert gildi það hefur fyrir ábyrga
stjórnmálastefnu í landinu að veita
F ramsóknarf lokknum brautar-
gengi, og jafnframt hversu gjör-
samlega þýðingarlaust fyrir þessi
málefni öll brölt svonefndra Þjóð-
varnarmanna er. Þeirra hlutverk
virðist vera það eitt nú, að freista
þess að sundra þeim, sem ættu að
standa saman um ábyrga stefnu og
vinna þannig gegn aukinni festu í
þessum málum sem öðrum.
Úr erlendum blöðum
(Framhald af 2. sxðu).
dönskum söfnum, og scm nú
heitt óskað eftir að fá til baka.
í lok greinarinnar segir prófessor
Brix síðan á þessa leið:
„Látum oss skilja það sem við
gerum sent almennt mannúðarmál
Það mcsta, sem við geturn leyft okk-
ur þar fyrir utan er, að ef örlaga-
hjólið á aftur að merja okkur undir
ér, og hvað getur ekki skeð á þess-
ari ógnajlegu öld, að við skiipum
ekki tækifæri til þess að láta ögr
andi raust kalla til okkar frá þeim
sem umhverfis standa, að við höfum
á leið okkar frá Jeríkó til Jerúsal-
em ckki gefið okkur tíma til að
rétta nauðstöddum bróður hjálpár-
hönd.
En getur nokkur krafizt þess, að
við af frjálsum vilja gerum okkur
enn fátækári? Hver talar um fá-
tæka hér?“
langa hríð en þá ákvörðun
Nautgriparæktarsambands Eyja
fjarðar að segja upp starfs-
manni sínum hér í bæ með sex
mánaða fyrirvara. Hér nyrðra
heitir þetta á máli þeirra póli-
tísk ofsó.kn, en syðra, að gjör-
vallur Framsóknarflokkurinn :
Eyjafirði sé „tryfltur af Mac-
carthyisma“. Því að auðvitað
eru þessi félagssamtök bænda í
10 hreppum Eyjafjarðar- og
Þingeyjarsýslna það sama og
„FramsóknarfIokkurinn“ þegar
slíkur málatilbúnaður passar
kram þessa blaðakosts,endaþótt
illa gangi að játa það fyrir kosn-
ingar að allir bændur séu flokks-
bundnir Framsóknarmenn. Hér
skal enginn dómur lagður á upp-
sögn þessa starfsmanns þessara
bændasamtaka. Blaðinu er með
öllu ókunnugt um aðdraganda
□ Rún 595311187 — 1:.
I. O. O. F. = 13511208V2 =
Messað í Akureyrarkirkju á
sunnudaginn kemur kl. 2 e. h. —
Aðventutíð jólanna byrjar. P. S.
Árshátíð Æskulýðsfélagsins er
sunnudaginn kemur kl. 5 e. h. í
V arðborg með sameiginlegri
kaffidrykkju. Aðgöngufniða er
hægt að sækja til sveitaforingj-
anna. Fundir verða ekki í kapell-
unni þann dag.
Guðsþjónustur í Grundarþnga-
prestakalli. Kaupangi sunnudag-
inn 22. nóv, kl. 2 e. h. — Grund,
sunnudaginn 29. nóv. kl. 1,30 e. h.
Munkaþvérá, sunnudaginn 6.
desember kl. 1,30 e. h.
Hjónaefni. Þann 3. nóv. sl. op-
inberuðu trúlofun sína ungfrú
Herdís Helga Halldórsdóttir frá
þess máls, en um það munu Lækjarbakka við Akureyri
Bæjarstjórn í nýjum
húsakynnum
Það hefur nú orðið úr, að bæjar-
stjórnin hefur ákveðið að flylja
fundi sína úr Samkomuhúsi bcejSf-
ins í nýja Landsbankahúsió' og
verða bæjarstjórnarfundir haldnir
á skrifstofum bæjarins þar, unz
bæjarstjórnin fær aðgang að fund-
arsal á efstu hæð hússins, sem ætl-
að er að verði tilbúinn áður en
mjög langt um lxður. Jafnframt
hefur fundartíma bæjarstjórnar
verið breytt og eiga fundir að
hefjast kl. 5 síðdegis hér eftir. —
Þessar breytingar báðar munu
væntanlega verða til þess að fleiri
bæjarmenn sækja bæjarstjórnar-
fundi sem áheyrendur. Ætti það að
geta orðið bæjarstjórninni til góðs.
Það er gott, að sem flestir bæjar-
menn fylgist með orðum og gerð-
um bæjarfulltrúanna, en fram til
þessa hefur verið fátt um tilheyr-
endur nema við sérstök og hátíð-
leg tækifæri. En vonandi lenda
virðulegir bæjarfulltrúar ekki í
þeirri fallgryfju að flytja langar
og leiðinlegar éróðursræður þótt
þeir sjái framan í nokkra háttvirta
Lýósendur 4^.tilheyf.endajie;kkjum.
Ef sú verður raunin á, er breytingin
ekki til bóta.
réttir aðilar væntanlega birta
greinargerð. En augljóst er þeg
ar, að hér er enginn stjórnmála-
flokkur að verki heldur hags-
munasamtök manna af öllum
flokkum og getsakir um póli-
tískar ofsóknir því harla fjar
stæðukennt skraf. En málatil
búnaður kommúnista sýnir, að
það er þunnt móðureyrað. Eða
var það ekki Þjóðvarnarmaður,
sem í hlut átti? Aldrei reiddust
kommúnistagoðin svo mjög þótt
fyrirtæki segðu upp starfsmönn-
í öðrum stjórnmálaflokkum.
Lyktarlaus fjós?
RAUNAR eru skrif kommún
istablaðanna um þessi innan-
félagsmál Nautgriparæktarsam-
bandsins harla brosleg þegar
þau eru skoðuð ofan í kjölinn.
Ef starfsmanni þeim, sem í hlut
á, hefur verið sagt upp af póli-
tískum ástæðum, eins og komm-
únistar fullyrða, þá hlýtur að
mega draga þá ályktun af því,
að maðurinn hafi lagt sig fram
um pólitískt nautauppeldi og
jafnvel pólitískar sæðingar. Og
þá fer uppsögnin að verða vork
unnarmál, því að ráðningar-
samningar munu væntanlega
hljóða upp annars konar aðgerð
ir. En einhvers hafa kommúnist-
ar að sakna fyrst þeir eru sVona
áhugasamir nú að draga pólitík
ina inn í fjós. Það er raunar upp
áhaldskenning kommúnista, þeg-
ar þeir koma úr Rússlandsferð-
um, að fjós þar í landi séu lykt
arlaus með öllu og svín sápu-
þvegin. Er um þetta heilmikil
hugvekja í Verkam. á föstudag-
inn var og víst hin þriðja eða
fjórða í röðinni. Það skyldi þó
aldrei vera, að nef þeirra hér
hafi fundið þef úr fjósi og af
því séu öll lætin sprottin?
'l/l' bœ
OCý
°g
Guðmann Pálson starísmaður
Hótel Borg.
Basar heldur Húsmæðraskóla-
félag Akureyrar, sunnudaginn 22.
3. m. kl. 4 e. h. í Húsmæðraskól-
anum. Nefndin.
Strandarkirkja. Gömul og ný
áheit kr. 470 frá S. P. og S. S. —
Kr. 50 frá S. B. — Kr. 35 frá Á.
H. — Kr. 50 frá R. B. — Kr. 100
frá Ó. G. — Mótt. á afgr. Dags.
f surnar lét bærinn gera bíla
torg á lóð gamlaslippsinsaustan
við Hafnarstræti. Bætti það úr
brýnni þörf, er þar oft þröng
á þingi og margt um bíla. En
ekki er samt betur búið að
þessu stæði en svo, að þar er
ckkert ljós og er þess þó hin
mesta þörf nú í vaxandi
skammdegi. Þá er það og til
ltilla þæginda, að komið hefur
verið fyrir þarna 10 metra
löngu járni, með allhvassri
brún, einmitt á stað, sem hent
ugt er að leggja bílum, á vest
urhluta bílastæðisins. Er járn
þetta varasamt, því að það get-
ur hæglega skemmt hjólbarða
Er þörf á því að bílastæði þetta
sem væntanlega er til nokkurr
ar frambúðar, verði gert betur
úr garði en nú er.
Jólamánaðardagar. Kvenfélagið
Framtíðin selur eins og í fyrra
jólamánaðardagana í Verzl. Vísi
og Bókaverzlun POB.
Karlakórinn „Geysir“ heldur
árshátíð sína að Hótel K. E. A.
laugardaginn 28. nóv. Styrktar-
félagar og aðrir þeir sem hafa ver
ið þátttakendur undanfarin ár láti
skrá sig á lista er liggur frami í
Verzl. Brynjólfs Sveinssonar h.f.
Fyrir hönd Bókasafnsins í
Kristneshæli flytjum við forráða-
mönnum verzlana og ýmissa ann-
ara fyrirtækja í bænum, þakklæti
okkar fyrir ágætan stuðning við
fjáröflun safnsins 1. nóv. s. 1.
Sérstaklega vottum við þeim
hjónum: Frú Gyðu Thoroddsen
og Torfa Maronssyni, nuddlækni,
alúðarþakkir fyrir mjög veglega
gjöf, bókasafninu til handa.
Bókasafnsnefndin.
Kirkjugiftingar. 14. nóv. sl. voru
gefin saman í Akureyrarkirkju
ungfrú Signa Hallberg Hallsdótt-
ir, Þórunarstræti 121, og Gunn-
laugur Búi Sveinsson, vélsmiður.
Laugarg. 3. Heimili þeirra verður
í Grær.ugötu. — Ungfrú Rebekka
Helga Guðmann frá Skarði og
Hermann Vignir Sigtryggsson
framkvæmdastjóri. Heimili þeirra
er að Varðborg. Séra Pétur Sig-
urgeirsson gaf brúðhjónin saman.
Litmyndir frá Gyðingalandi
verða sýndar frá kl. 5 til kl. 5,30
á undan samkomunni á Sjónar-
hæð á sunnudaginn. Allir vel-
komnir. Sunnudagaskóli kl. 1 e.'n.
Kvennasamkoma á miðvikudag
kl. 8,30. Saumafundur ungra
stúlkna á fimmtudag kl. 6.
Drengjasamkoma á laugardag kl.
5,30. Sjónarhæð.
Samkomur verða í Zíon sunnu-
daginn 22. þ. m. kl. 8.30 e. h. —
Benedikt Jasonarson talar.
Guðspekistúkan Systkinaband-
ið heldur fund næstk. þriðjudag
k. 8.30 e. h. á venjulegum stað.
Erindi.
Möðruvallakl.prestakall. Mess
að á Bægisá sunnud. 22. nóv. og
Glæsibæ sunnud. 29. nóv. kl
2 e. h.
Strandarkirkja. Gamalt áheit
kr. 10 frá N. A. — Móttekið á af-
greiðslu Dags.
Dansleik halda Framsóknarfé-
lögin að Hótel KEA næstk.
sunnudagskvöld kl. 9. Hljómsveit
Árna EJfars leikur. Enska söng-
og dansmærin Linda Lane syng-
ur með hljómsveitinni. Aðgöngu-
miðar við innganginn.
Hjúskapur. Laugard. 14. þ. m
voru gefin saman í hjónaband að
Möðruvöllum í Hörgárdal ungfrú
Ragnheiður Árnadóttir yfir-
hjúkrunarkona og Jóhann
Snorrason, verzlunarmaður, Ak-
ureyri.
I. O. G. T. st. Brynja nr. 99
heldur fund í Skjaldborg írxánu-
daginn 23. nóv. kl. 8.30 e. h. — í
fundarlok verður lesin fram-
haldssaga og fl. verður til
skemmtunar.
Skjaldborgarbíó sýnir um þess-
ar mundir fræga enska mynd
„No place for Jennifer“, og heitir
á ísl. „Olnbogabarnið." Þessi
mynd hefur hlotið mjög góða
dóma erlendis. Næstu sýningar
á henni verða væntanl. um helg-
ina næstu.
Frá kvennfélaginu Hlíf. Fél-
agskonur! Vinnufundur verður
n. k. fimmtudag 19. þ. m. kl. 9
e. h. í Hafnarstræti 101. (Amaro)
Konur fjölmennið!
Vinnufundarnefnd.
Sextugur varð í gær Guðmund-
1 ur Gíslason frá Ólafsfirði, nú til
heimilis í Ægisg. 27 hér í bæ.
Æskulýðsheiinili templara. —
Skemmtun verður haldin í Varð-
borg fimmtudaginn 19. þ. m. kl.
8.30 e. h. Kvikmynd o. fl. Mánað-
arskírteini gilda að þessari sam-
komu. Aðgöngumiðar seldir við
innganginn.
Slökkviliðið hefur beðið blaðið
að skýra frá því, að gefnu til-
efni, að slökkviliðsæfing sú, er
fram fór í innbænum í fyrri
viku (við Höepfner) hafi verið
tiikynnt fyrirfram einum íbúa
hússins og hann beðinn að
koma vitncskju um hana til
annarra, er þar búa.
„Nú er verið að kvikmynda
„Egyptann“ lagsmaður! Ertu bú-
inn að lesa bókina?“