Dagur - 18.11.1953, Page 2

Dagur - 18.11.1953, Page 2
2 D A G U R Miðvikudaginn 18.nóvember 1953 Ástcndið í alþjóðamálum kallar á nauðsynlegar landvarnir, en reynslan sýnir þörf á breytingum á framkvæmd gildandi samninga Eins og skýrt var fra í síðasta tbl., hefur ríksstjórnin nú til um- ræðu uppkast að orðsendingu til Bandaríkjastjórnar um breyting- ar á varnarsamningnum. Þessara tillagna hafði verið vænzt. Það var vitað mól, að Framsókn- arflokkurinn mundi beita sér fyrir nýrri skipan sambúðarmálanna við Bandaríkjamenn. Það hafði verið boðað á síðasta flokksþingi. Blöð flokksins höfðu gagnrýnt fram- kvæmd samningsins og bent á nauðsyn þess, að leyndarhulunni væri svipt af þessum málum og um þau rætt fyrir opnum tjöldum. — Þegar Framsóknarflokkurinn ákvað að taka þátt í núverandi ríkisstjórn og taka við stjórn utan- ríkismála, var augljóst, að tíðinda mundi að vænta. Kom það raunar þegar fram, er stjórnarsamningur- inn var birtur. Þar var ákveðið að endurskipuleggja stjórn varnar- málanna og fela þau sérstakri stjórnardeild, í stað þess sem áð- ur var, er ýmsir þættir sambúðar- málanna komu til kasta fleiri aðila. Miðstjórn flokksins skipaði síð- an sérstaka nefnd til þess að gera tillögur um þær breytingar, sem flokkurinn hafði áhuga fyrir, í ein- stökum atriöum, og lagði nefndin álit fyrir miðstjórnarfund 22. okt sl. Var þar gengið endanlega frá tillögum flokksins, og síðan hóf utanríkisráðherra undirbúning að samningum við Bandaríkin um að fá breytingunum á varnarsamn- ingnum fram komið. Er um þessi mál fjallað í orðsendingu þeirri, sem væntanlega verður send innan skamms. Breytingarnav sntia inh á við. Gagnrýni sú, sem Framsóknar- flokkurinn hélt uppi um varnar- málin í tið fyrrv. ríkisstjórnar, byggðist ekki á þvi, að talið væri rétt eða fært að fá varnarsamning- inn numinn úr gildi og hervarnir landsir.s niður fel'dar. Það var samhljóða vilji þing- manna allra lýðræðisflokkanna, að áska landvarna, þegar varnarsamn- ingurinn var gerður,eins og það var vilji þeirra að Island gerðist aðili að Atlantshafsbandalaginu. Þessi skoðun byggðist á hinu ótrygga astandi í alþjóðamálum. Hvert rík- ið af öðru hafði orðið heimsvalda- stefnu kommúnista að bráð. Frið- samar nágrannaþjóðir sáu sér pann kost vænstan, að leggja fram stórfellda fjármuni til landvarna og að kalla unga menn til her- þjálfunar, jafnframt því sem þær feituðu samstöðu með öðrum lýð- sama sakleysingja“, nokkurn byr undir vængi í áróðri sínum. En aðgætandi er, að mjög vafasamt er, að þessi áróður hafi nokkuð fjölgað þeim hóp sem í raun og sannleika vill hafa landið óvarið. Það eru sjálf sambúðarmálin, sem mörfju fólki eru þyrnir í augum, og það öngþveiti, sem stundum hefur virzt ríkja í stjórn þessara máfa. Tillögur Framsóknarmanna eru miðaðar við að nema burt ástæð- urnar fyrir þessari óánægju. Þær snúa því inn á við. En utanríkis- stefnan sjálf er óbreytt eins og þörfin fyrir lándvarnir og aðild íslands að Atlantshafsbandalaginu. Meginefni tillagnanna. I síðasta tbl. var rakið megin- efni tillagna Framsóknarmanna. Þær eru, auk þess að setja öll sambúðar- og varnarmálin undir eina stjórn í utanríkisráðuneytinu, í aðalatriðum þessar: 1. Að framkvæmdum varnar- liðsins sé þannig hagað, að ekki þurfi að flytja inn erlent verka- fólk vegna þeirra ,en jafnhliða sé þó höfð full hliðsjón af vinnuafls- þörf íslenzkra atvinnuvega á hverjum tíma. Jafnframt sé lögð áherzla á að haga framkvæmdun- um þannig, að þær geti komið þjóðinni að gagni til annars en ræðisþjóðum um sameiginlegar varnir. I raun og veru var enginn mis- munur á aðstöðu Islendinga og t. d. Norðmanna í þessu efni annar en sá, að Norðmenn höfðu sjálfir möguieika til þess að taka að sér landvarnir sínar, en við ekki. ís- lendingar urðu því að taka þá ör- lagariku ákvörðun, hvort þeir ættu að láta land sitt óvarið með öllu og opið til árása fyrir landræn- ingjana, eða semja við vinveitt stórveldi um að taka að sér varn- irnar, og freista þess þannig að fyrirbyggja að Island yrði her- numið af heimsvaldasinnum ef að syrti í alþjóðamálum. Iiér var þó ekki aðeins um ör- yggi Islands að tefla. Island í höndum árásarríkis er hin mesta ógnun við þjóðir Vestur-Evrópu og Vesturálfu og siglingar á norður höfum. Islendingar hafa lengi lif- að í þeirri trú, að þeir mundu r, , „ .... , . , , ! landvarna. Brottflutnmgur erlends óáreittir af öllum í stórveldastyrj- ‘ öld og margir trúðu því, allt til endaloka fyrri heimsstyrjaldar, að okkur hafi í rauninni ekki verið búin nein hætta af þýzkri árás. En það er nú sannað með skjölum, sem fundust í Þýzkal. í þrotabúi nazista, að árás á ís- land var einmitt á dagskrá áður en Bandamenn tóku landið und- ir sinn vemdarvæng. Með hliðsjón af þessari sögu og almennu ástandi í alþjóðamálum, var varnarsamningurinn við Bandaríkin gerður. Það er fullvíst, að honum var ekki þröngvað upp á Islendinga. Þeir urðu sjálfir að ákveða, hvorn kostinn þeir völdu. Og að sjálfsögðu verða þeir að koma fram sem ábyrgir samnings- aðilar við það stórveldi, sém kall- inu hlýddi. Enda er ekki um það að ræða, að breyta varnarsamn- ingnum út á við. Enginn nema kommúnistar treysta sér til að taka sér í munn fullyrðingar um frið- vænlegt útlit í heiminum eða telja varnarviðbúnað lýðræðisþjóðanna ástæðulausan. Þær vonir, sem menn gerðu sér um batnandi ástand eftir fráfall Stalíns, eru flestar að engu orðnar og útlitið í heiminum nú engu friðsamlegra en það hefur verið síðustu árin. Landvarnir hér eru því enn sama nauðsyn og fyrr. Breytingar þær, sem Framsóknarmnn beita sér fyrir að fá fram, snúa inn á við, að sambúðarmálunum og framkvæmd samningsins hér á landi.Þessisamn búoarmál og það, hvernig haldið hefur verið á málunum af Islands hálfu, hefur gefið öfgamönnum og þeim, sem þeir sjálfir kalla „nyt- verkafólks, sem nú starfar að fram- kvæmdum fyrir varnarliðið verði hafinn sem fyrst. 2. Að íslenzka ríkið annist gerð og viðhald mannvirkja fyrir varn- arliðið ,svo sem nú á sér stað um vegagerð vegna fyrirhugaðra rad- arstöðva. 3. Að varnarsvæðin verði skipu lögð þannig, að dvalarsvæði varn- arliðsins og útlendra manna þjónustu þess verði svo glöggt að- greind frá dvalarsvæðum íslenzkra starfsmanna, að auðveldara verði um eftirlit með mörkum þessara svæða. 4. Að settar verði reglur um leyfisferðir varnarliðsmanna utan samningssvæðanna, enda gildi þær reglur einnig um erlenda verkamenn, sem dveljast á vegum varnarliðsins. Reglur þessar miði að því að hindra óþörf samskipti landsmanna og varnarliðsins og takmarki dvöl þess við þá staði, sem það hefur til afnota. 5. Að athugaðir verði möguleik- ar é, að Islendingar annist fyrir varnarliðið starfrækslu fyrirhug- aðra radarstöðva, — svo og önnur tiltekin störf í sambandi við varn- irnar — enda verði hafinn undir- búningur að sérmenntun íslenzkra manna í því skyni, eftir því sem með þarf. Stutt greinargerð. Rétt þykir að skýra nokkru nán- ara einstaka liði í élyktunum mið- stjórnarinnar: Fyrsti Hðurinn fjallar um það, að erlendir verkamenn, sem vinna hér aö gerð mannvirkja í þágu hersins, verði fluttir úr landi, en þó verði ekki fleiri íslendingar ráðnir til slíkra starfa en þörf ísl. atvinnuvega leyfir. Af þessu mun leiða, að umræddar framkvæmdir munu taka nokkru lengri tíma en ráðgert hefur verið. Slíkt er í sam- ræmi við það, sem gert hefur ver- ið annars staðar og byggt er á þeirri skoðun, að yfirvofandi stríðshætta sé nú tæpl. eins mikil og hún var um skeið, þótt hún gæti fljótt aukizt aftur, ef dregið væri úr þeim vörnum, sem nú eru. Annar liðurinn fjallar um það, að íslenzka ríkið talci að sér að sjá um alla gerð og viðhald mann- virkja Þþágu varnanna. Af þessu myndi m. a. leiða, að Hamilton- félagið hætti hér störfum. Ogerlegt er að hafa nægilegt eftirlit með þessum framkvæmdum, nema yf- irstjómin sé í höndum íslenzks að- ila og kemur þá ekki annar til greina en ríkið sjálft. Hér er nær eingöngu að ræða um húsabygg- ingar, flugvallargerð og vegagerð og getur íslenzka ríkið ekki síður annast slíkar framkvæmdir fyrir varnarliðið en fyrir sjálft sig. Þriðji liðurinn þarfnast tæplega skýringa. Fjórði liðurinn fjallar um það, að settar verði reglur, er takmarki dvöl varnarliðsins við samnings- svæðin. Engar slíkar reglur eru nú til, nema þær, sem herinn sjálfur kann að hafa sett, og er því nauð- synlegt, að um þetta atriði verði gerðir glöggir samningar. Fimmti liðurinn er um athugun á því, að Islendingar annist sjálfir gæzlu radarstöðvanna og er þá að sjálfsögðu átt við það, að íslend- ingar taki að sér þessa gæzlu, ef athugunin sýnir, að það er vel framkvæmanlegt. Þá er í þessum lið einnig gert ráð fyrir viðtækri athugun eða þeirri, að Islendingar taki að sér gæzlu herstöðvanna að mestu eða öllu leyti, ef friðarhorf ur glæddust svo, að erlends hers þætti hér ekki þörf. Samningarnir við Bandaríkin. ÚR ERLENDUM Til þess að koma fram áður- greindum ráðstöfunum þarf samn inga við Bandaríkinmenn. Utan ríkisráðherra hefur í undirbúning að slíkar viðræður verði hafnar. eins og áður segir. Ríkisstjórnin hefur nú til athugunar uppkast að orðsendingu. er ráðherrann hefur samið, og hugsað er sem grund- völlur væntanlegra samninga. Bandaríkjamenn hafa jafnan í samningum við Islendinga sýnt, að þeir hefðu fullan skilning á sértöðu þeirra. Þvi má telja víst, að þessir samningar muni takast farsællega og tryggja áfram góða sambúð ís- lendinga og Bandaríkjamanna. Framkvæmd þessara tillagna mundi áreiðanlega verða til bóta. Þegar verður þess vart, að ýmsir „vildu Lilju kveðið hafa“, og þykj- ast hér hafa lagt á ráðin. Jafnvel Þjóðvarnarliðar og kommúnistar þykjast hér hafa lagt hönd að verki! En þessir aðilar hafa ekkert lagt til þessara mála annað en að reyna að skapa úlfúð og tortryggni, auk þess sem afstaða þeirra til stöðu íslands í ófriðvænlegum heimi einkennist af fullkomnu ábyrgðarleysi. (Framhald á 11.. síðu). BLOÐUM )anskur menntamaður ritar um handritamálið Kunnur dankur menntamað- ur, prófesor Hans Brix, birti 3. þ. m. grein um handritamálið í Berl. Aftenavis í Kaupmanna- höfn. Er þar haldið á málinu á fremur einkennilegan hátt. — Meginefni greinar prófessors- ins er á þessa leið: Nú dregur senn til úrslita í ís- lenzka handritamálinu. Gamall og trúr þjónn og elskhugi hinnar norsk íslenzku skáldmenntar telur því að hann verði að flýta sér, ef rödd hans á að heyrastíumræðunumum málið og hann vill gjarnan þar með tryggja samvizku sína fyrir iðrun síðar meir. Spurning um, að hve miklu leyti Islendingar hefðu laga- lgan og siðferðilegan rétt til end- urheimtar handritanan, hefur verið rannsökuð og íhuguð vandlega. Það er mín skoðun, og moirihluta kunnáttumanna í Danmörk, og hún byggð á nékvæmri athugun, að Is- land hafi elcki lagalegan rétt til handritanna, og frá tilfinningahlið málsins verður ekki séð að við höf- um neina jákvæða ástæðu til þess að gefa þeim ritin. Þau eru eign danska ríkisins eftir þeim lögmál- um, sem gilda um allan heim um svipuð tilfelli. Nú má telja sam- band landanna mjög vinsamlegt, nánar tiltekið, milt temprað. Hinn óvænti skilnaður íslands frá móð- urríkinu hefur ékki skilið eftir ólæknandi sár eða varanleg mis- smíði hér hjá okkur. En þao eru engar ástæður fyrir hendi, sem knýja okkur til að koma með fang- ið fullt af gjöfum, enda þótt óskir komi fram um það. Allt mælir hér með frestun. Látum þá stund renna upp, að það verði ómenguð gleði fyrir Danmörk, að verða við brennandi ósk íslendinga um þetta. . . . Danmörk er litið land. Ef maður lítur á hnattlíkan eða landabréf verður manni á að hlæja. .... En hér eigum við við þjóð, sem er ennþá minni. Eg minnist þá sársauka, sem í mörg, þung ár þjáði okkur. Þeir ungu þekkja ekki hjartasorg okkar. . . . Vonin um að fá Norður-Slésvík aftur spratt af 5. grein friðarsamningsins í milli Prússlands og Austurríkis 1866. Loforðið var þar, en það var ekki gefið okkur. En svo var ákveðið að þurrka þessa grein út. Það var beizkur bikar ,en við vorum smáir og vanmáttugir. Við gátum ekkert gert, en sviðinn sat í sárinu. . . . Þegnr við minnust þessa sársauka vegna aðgerða stórra landa í suðr- inu. varpar það ljósi á aðstöðu ís- Iands og Danmerkur í sambandi við handritin. I>á skilst manni, að við erum nú, í þetta sinn, stóra rlkið í suðrinu, og til þessa stóra ríkis beinir litla ríkið óskum um skilningá þessu hjartans máli þjóð- arinnar. Því að þessi dýrmætu handrit cru meira cn textinn sjálf- ur. Hann getum við skoðað af ljós- myndum. Þau eru lýsandi vottur um andlega auðlegð fortíðarinnar meðal fátækrar þjóðar, langt frá þjóðlciðum Evfopfir érTýfír ki áfta- verk eru hér varðveitt og geymd í (Framhald á 11 siðu).

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.