Dagur - 17.03.1954, Síða 8

Dagur - 17.03.1954, Síða 8
8 Baguk Miðvikudaginn 17. marz 1954 Mikill áhugi meðal bænda um með áburðarskammfa Uraferðaráðunautar Búnaðarfélags fslands ferðast um Eyjafjörð í þessari viku og velja reitina Fyrir helgina komu hingað til bæjarins umferðaráðunautar Bún- aðarfélags fslands, Agnar Guðnason og Sigfús Þorsteinsson, er nú ferðast hér um fjórðunginn til þess að annast þá sérstöku leiðbein- ingarstarfsemi fyrir landbúnað, sem stofnað hefur verið til fyrir Marshall-fé. Stendur starfsemin í 2 ár og sinna henni 4 ráðunautar. fyrir lilraun Ráðgerf að gróðursetja 90.000 trjápiöntur hér í vor Hin nýja skógræktarmynd „Fagur er dalur“ sýnd hér nyrðra um þessar mundir í ár verður farið um Norð- lendingafjórðung og Austfirð- ingarfjórðung, en næsta ár um Sunnlendinga- og Vestfirðinga- fjórðung. Þeir Agnar og Sigfús ferðast nú um Norðurland, frá Vaðlaheiði að sýslutakmörkum Stranda- og Norður-fsafjarðarsýslu, en um Austurland ferðast ráðunautarn- ir Egill Jónasson og Ornólfur Örnólfsson og falla Þingeyjar- sýslur báðar undir þeirra ferð. Hafa farið um vesturhéruðin. Þeir Agnar og Sigfús hafa ferðast um Húnavatns- og Skagafjarðarsýslur, en hurfu liingað er tíð spilltist og færð versnaði. Hafa þeir ekki lokið ferðum um Skagafjörð og munu hverfa þangað aftur. Hér hófu þeir starfið með ferð Áíengi tekið úr Reykjafossi Síðastliðinn föstudagsmorgun fundu tollverðir, er voru með Reykjafossi í ferð skipsins frá Dalvík á Svalbarðseyri 150 flösk- ur af spíritus í skipinu og var áfengið gert upptækt. Áður höfðu tollverðir fundið 96 flöskur af spíritus í skipinu er það var statt á Austfjarðahöfnum. Upplýst mun hverjir af skipverjum voru eigendur þessa áfengis og munu þeir hljóta sinn dóm. Komst til skila Það bar við í hríðarveðrinu er hér gerði fyrir stuttu að skólapiltur fékk bréf frá póst- húsinu hér á Akureyri, sem ekki er í frásögur færandi. Tók pilturinn við því um hádegisbil og skundaði svo heim til sín í matinn. Veðurofsi var og mik- ið kóf. Þegar heim var komið var bréfið horfið, hafði sýnilega fokið úr vasa hans. Síðastlinn sunnudag var pilturinn að leik heima hjá sér, sér hann þá bréfsnepil koma . skoppandi eftir snjónum og staðnæmast við fætur hans. Þarna var komið bréfið sem fauk í austanhvassviðrinu nú fyrir skemmstu, en sl. sunnu- dag var suðvestangola. Bréfið var vel læsilegt. til Ólafsfjarðar, en að því búnu munu þeir ferðast hér innfjarðar og heimsækja búnaðarfélög í hverjum hreppi. í samtali við blaðið létu þeir vel af ferð sinnimeðalskagfirzkra og húnvetnskra bænda. Bændur fjölmenntu mjög á fundi þá, er þeir efndu til, og voru fundirnir hvarvetna hinir ánægjulegustu. Kom í ljós, að bændur hafa mik- inn og lifandi áhuga fyrir því starfi, sem hér er verið að vinna. Sýnisreitir í hverjum hreppi. Eitt aðalatriðið í þessari nýju leiðbeiningarstarfsemi er að koma upp sýnisreit í hverjum hreppi. Er reiturinn 1 hektari alls, og síðan skipt í smærri reiti. Reynt er að velja þessa reiti mið- svæðis í hreppum, svo að sem flestir hafi greiðan aðgang að þeim, og á gamalræktuðum tún- um. Tilgangurinn með sýnisreit- unum er að sýna fram á, hverja uppskeru má fá með vissum áburðarskömmtum. Búnaðarfélag ið leggur til áburðinn að 2/3 hlutum. Verður fylgzt nákvæm- lega með grassprettunni á reit- um þessum í sumar og bændum gefnar sem fyllstar upplýsingar um árangurinn. 5 ferðir ráðunautanna. Ráðunautarnir vinna nú að því að velja reitina og gera undir- búningsráðstafanir. En þeir eru ekki búnir að sleppa hendinni af þessum reitum. Þeir eiga eftir að líta eftir þeim fjórum sinnum enn. Næst koma þeir um það bil sem borið verður á í vor, síðan þegar fyrri sláttur fer fram, þá þegar annar sláttur fer fram og loks í haust til þess að kynna árangur tilraunanna. Almennar umræður um landbúnaðarmál. Auk þess sem ráðunautarnir ræða þetta mál við bændur á fundum þeim, er þeir halda með þeim í hreppunum, fer fram al- menn leiðbeiningarstarfsemi um ýmsa þætti búnaðarmála og ræð- ir Agnar einkum um jarðrækt, en Sigfús um búfjárrækt og einnig heyverkun. Hér í Eyjafirði munu þeir alls halda um 14 fundi og verða hér í hálfan mánuð. Auk þess munu þeir væntanlega mæta á Bænda- klúbbsfundi næstk. þriðjudag. Fundahöld umferða- ráðunautanna Umferðaráðunautar Bl, sem nú dvelja hér í héraðinu (samtal við þá annars staðar í þessu tbl.) munu efna til funda i héraðinu næstu daga, sem hér segir: I dag á Árskógsströnd, á morgun í Öngulsstaðahreppi, föstudag í Hrafnagilshreppi, laugardag væntanlega í Amar- neshreppi. Á mánudag í Saur- bæjarhreppi, á þriðjudag í Glæsibæjarhreppi og um kvöld ið mæta ráðunautarnir á Bændaklúbbsfundi hér á Ak- ureyri. Verður þá rætt um leiðbeiningarstarfið, en erindi dýralæknisins, sem áður var auglýst, er frestað. Ríkisstjórn Islands hefur nú sent dönsku stjórninni svar sitt við tillögum þcim í handritamál- inu, sem menntamálaráðherra Danmcrkur fól menntamálaráðh. íslands að bera fram við íslenzku ríkisstórnina sem trúnaðarmál. I svari ríkisstjórnarinnar var til- lögum þessum hafnað, enda er það í samræmi við þær undir- tektir, sem málið hefur fengið hér á landi, síðan skrif hófust um tillögurnar í dönskum blöðum. Ríkisstjórnin athugaði vand- lega þær hugmyndir, sem þarna komu fram. Meðan á athugun ríkisstjórnarinnar stóð, fékk hún vitneskju um, að menntamála- ráðherra Dana hafði borið málið undir formenn stjórnmálaflokk- anna í Danmörk, og mátti þá bú- ast við, að ekki yrði langt þar til blaðaskrif hæfust um málið. Rík- isstjórn íslands fór þess þá á leit við dönsku stjórnina að mega skýra stjórnmálaflokkunum hér frá málinu og var það auðsótt, en áður en til þess kæmi, hófust blaðaskrifin um málið í dönskum Agætur afli í Húsavík - nýrri loðnu beitt Undanfarna daga hefur ágætur afli verið í Húsavík. Róa þaðan 5 —6 þilfarsbátar og nokkrar trill- ur. Loðna veiddist í sl. viku inn með fjörum í Húsavík og er henni nú beitt. Eru horfur á að áframhald verði á góðuðm afla, því að mikið magn af loðnu náð- ist og líklegt að áframhald verði á loðnuveiði. Skógræktarfél. Eyfirðinga boð- aði til sýningar á hinni nýju kvikmynd Skógræktar ríkisins sl. mánudagskvöld. Heitir mynd- in „Fagur er dalur“ og er mjög falleg og lærdómsrík, því að hún fjallar aðallega um vöxt barrtrjáa á íslandi og sýnir á eftirminnileg- an hátt þann glæsilega árangur sem náðst hefur, einkum á Hall- ormsstað og í Múlakoti. Hefur myndin verið sýnd í skólum hér og verður sýnd víðs vegar um héraðið næstu daga. Er óhætt að hvetja fólk til að sjá myndina, því að hún er vel tekin og Ijómandi falleg. blöðum og síðan á íslandi, og var málið þar með komið á opinberan vettvang. ENGINN SAMKOMULAGS- GRUND V ÖLLUR. Tveir lokaðir fundir voru haldnir um málið á Alþingi, og ríkisstjórnin ræddi málið þar við þingmenn og undirbjó svar sitt í samráði við þá. I svar- inu sagði ríkisstjórnin, að það sé skoðun hennar og allra ís- lenzkra alþingismanna, að hug- myndin um sameign handrit- anna geti ekki orðið samkomu- lagsgrundvöllur til lausnar í handritamálinu, þar sem slík sameign mundi gersamlega brjóta í bága við þjóðartilfinn- ingu íslendinga og skilning þeirra á handritamálinu, og því verða stöðugur ásteitingar- steinn í sambúð þjóðanna. VILJI TIL SAMKOMULAGS. Þá mun stjórnin og hafa tekið skýrt fram í svari sínu, að enda þótt íslenzk stjórnarvöld geti af framangreindum ástæðum ekki fallizt á hugmyndina um sameign handritanna meti þau mikils þann vilja, sem fi-am kemur til þess að finna lausn á málinu, og treysta því, að það verði til lykta leitt í samræmi við yfirlýstar óskir íslendinga. Danir afundnir. Síðan svar íslendinga var birt i Danmörk, hafa dönsk blöð mjög rætt málið og eru afundin, þykj- ast hafa boðið vel, enda verði nú ekki meira rætt um málið við fs- lendinga, segja sum þeirra. Aðalfundur Skógræktarfélagsins. Aður en myndasýningin hófst skýrði Ármann Dalmannsson frá helztu störfum Skógræktarfélags Eyfirðinga, sem er sambandsfélag eyfirzku skógræktarfélaganna. Var aðalfundur félagsins haldinn sl. sunnudag. Ármann sagði, að nú væii ráðgert að gróðursetja alls um 90 þúsund plöntur í hér- aðinu, eða meira en nokkru sinni fyrr og skoraði hann á bæjar- menn og héraðsbúa að gerast sjálfboðaliðar við gróðursetning- arstörfin þegar kallið kemur. Ef ekki fæst almenn þátttaka í vor, verður ekki unnt að framkvæma þessa áætlun. Aukin þátttaka í starfinu. Að lokinni sýningunni flutti formaður félagsins, Guðm. Karl Pétursson yfirlæknir, hvatning- arorð til manna um aukna þátt- töku í skógræktarstarfinu. Hann taldi að skógræktarmálið væri eitt af stærstu málum þjóðarinnar í dag. Enn skorti lifandi áhuga mikils þorra þjóðarinnar. Enginu væri í rauninni mótfallinn skógrækt, en vandinn væri nú að yfirbuga afskiptaleysi manna og leysa orku fjöldans úr læðingi. Sannað er að barrskógar þrífast hér vel ,en starfið við að planta skógi í stórum stíl er eftir. Til þess þarf margar hendur og fórn- fúsar og vilja til þess að gjalda landinu fósturlaunin. Myndin verður sýnd aftur annað kvöld í Varðborg kl. 9. Hestar drepast af súrheyseitrun Nýlega missti Indriði bóndi Vilhjálmsson í Torfunesi í Köldukinn 4- hesta, og er talið að þeir hafi drepizt af súrheyseitrun. Þá veiktust nýlega 4 hestar á Víkingav., N.-Þing., og drápust 2 þeirra og var einnig talið að um súrheyseitrun væri að ræða. Á nokkrum bæjum öðrum hafa hestar veikzt að undanförnu. - Lækkun tolla Framhald af 1. síðu). framleitt góðar og ódýrar iðn- aðarvörur til neyzlu innan- lands og samkeppnisfærar vör- ur til útflutnings. Engin þjóð gæti verið án iðnaðar, allra sízt sú, sem um langleiðir sækir sína aðdrætti. Þrátt fyrir fá- menni og hráefnaskort liefði ís- lenzki iðnaðurinn staðizt vel prófraun reynslunnar. Frumvarpinu var síðan vísað til 2. umræðu og fjárhagsnefndar. Ríkissfjórn og Alþingi hafna dönsku handritafiílögunum Hugmyndin um sameign handritanna getur aldrei orðið samkomulagsgrundvöllur

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.