Dagur - 16.06.1954, Blaðsíða 1
öllu Norðurlandi
Óvenujafn og mikill afli á öllum verstöðvum við
Eyjafjörð — Fiskurinn veiðist nú á miðum, sem
að undanförnu hafa verið fisklaus með öllu.
Sjómenn vongóðir með vertíðina
Um aflabrögð á Húsavík.
í janúar og febrúar réru héðan
aðallega tveir dekkbátar, ein stór
trilla og smærri trillur af og til,
'Þegar kom fram í marz bættust
fleiri bátar og trillur við, og í lok
apríl var orðin hér talsverð út-
gerð, afli sæmilegur, en í maí,
eftir að menn komu af vertíð náði
útgerðin hámarki, og undir mán-
aðamót maí—júní voru um fjöru-
tíu bátar, stórir og smáir, og náði
þá aflinn hámarki. Afli smærri:
báta hefur verið tiltölulega meiri
og jafnari en hinna stærri, og
dæmi eru til að tveir menn hafa
aflað á einum degi fyrir kr.
3000.00.
Segja má að afli hafi verið með
jafnasta og bezta móti, það sem
af er árinu, og eru menn vongóðir
um áfi-amhaldandi afla, þó að nú
hafi dregið alímikið úr honum
síðustu daga.
Frá Ólafsfirði.
Fréttir frá Ólafsfirði herma, að
þar hafi einnig gengið vel síðan
aflahrotan hófst. Trollbátar
þeirra eru: Stígandi, Einar, Sig-
urður, Kári Sölmundarson og
Kristján. Sævaldur og Græðir
búast til síldveiða. Að minnsta
kosti 15 trillubátar róa frá Ólafs-
firði og hefur þeim gengið vel.
Þessi hálfsmánaðar afli bjargar
útgerðinni og eru menn vongóðir
um vertíðina. Sumir sjómenn
vilja halda því fram, að sam-
kvæmt gamalli reynslu ætti að
fiskast vel í haust, miðað við það,
hvernig fiskurinn hagar sér nú.
Ekki var sláttur hafinn þegar
Sjöunda Samvinnuskip-
inu lileypt af stokk-
unum
Fimmtudaginn 10. júní var sjö-
unda samvinnuskipinu hleypt af
stokkunum í Óskarshöfn í Sví-
þjóð. Hlaut það nafnið Helgafcll.
Nýja skipíð, sem Samband ísl.
samvinnufélaga lætur smíða í
Svíþjóð og hleypt var af stokkun-
um 10. þ. m., er 3300 þungalestir
að stærð, og verður þá þriðja
stærsta skip íslenzka flotans. —
Það er smíðað hjá Oskarshamn
Vaiv, eða sama fyrirtæki og
smíðaði Jökulfell.
Vilhjálmur Þór og kona hans,
frú Rannveig Þór, voru viðstödd
athöfnina og gaf frú Rannveig
skipinu nafn. Aðeins tvö skip í
flotanum eru stærri, en það eru
Gullfoss og Tröllafoss.
síðast fréttist og sprettan nókkru
minni en fremst í 'Eyjafirði.
Mikið að gera í Hrísey.
Fimm dekkbátar og 14 opnar
trillur róa til fiskjar frá Hrísey.
Nýju bátarnir 3, sem Skipasmíða-
stöð KEA byggði, reynast hin
beztu skip. Fara vel í sjó og eru
burðarbátar góðir.
Það hefur verið mikill annatími
áeyjunni nú um tíma. Ungir sem
gamlir hafa tekið þátt í störfun-
um. Jafnvel 7 ára drengir hafa
unnið svo sem orkan leyfði. Sum-
ir 8-—9 ára drenghnokkar hafa
líka grætt drjúgan skilding þenn-
an tíma, eða allt upp í 1000 krón-
ur, frá því þeir losnuðu úr skóla.
Hauganesbátarnir.
3 dekkbátar róa frá Hauganesi
og 2 trillur. Tvær vikurnar fyrir
hvítasunnu fóru dekkbátarnir 13
róðra og fengu 80—90 skippund
hver.
Trillurnar öfluðu líka ágætlega
og enn er reitingsafli.
Nýji báturinn, Draupnir, sem
áður hefur verið getið um í blað-
inu, reynist mjög vel.
Á Litla-Árskógssandi
hefur aflast vel eins og annars
staðar við Eyjafjörð síðan þorsk-
gangan kom.
Dekkbátarnir Pálmi og Otur
og 2 trillur eru gerðar út frá
Litla -Ársksógssandi.
Óvænt harmafregn
Filippus Þorvaldsson útibús-
stjóri í Hrísey varð bráðkvadd-
ur að hcimili sínu í gær. Hann
var 47 ára að aldri. — Þessa
mæta manns og góða drengs
verður væntanlega getið nánar
síðar.
Fj
iársöfnnn hafin til
ins á Sandhólum
fólk^i
Fjársöfnun til fólksins á Sand-
hólum í Eyjafirði stendur nú
yfir. Páll Sigurgeirsson gjaldkeri
Rauða krossins hér á Akureyri
tekur á móti gjöfum og hefur
þegar veitt móttöku allmiklu af
peningum. Ymsar stofnanir hér
í bænum hafa líka gjafalista hjá
sér.
Hið átakanlega slys á Sand-
hólum hcfur valdið héraðsharmi.
Það er vel að hafizt var handa um
fjársöfnun handa því. Þá gefst
mönnum kostur á að sýna, með
litlum eða stórum gjöfum, samúð
sína og hluttekningu með hinu
sorgmædda og sjúka fólki.
Syndir 200 metrana á
75 ára afmælinu
Lárus Rist er nýkominn í bæ-
inn úr Reykjavík og tjáði blað-
inu, að hann ætlaði að synda hér
200 metrana á laugardag næstk.,
en þá á hann 75 ára afmæli. —
Ekki eru allar töggur enn úr
Lárusi nema síður sé.
17
Akureyrarbær efnir til hátíða-
halda á morgun, 17. júní, í tilcfni
10 ára afmælis Iýðveldisins. Há-
tíðanefndin vonar að hátíðin fari
virðulega fram og án víns.
Kl. 8 í fyrramálið munu skip
þeyta flautur sínar og fánar verða
dregnir að hún. Kl. 10 verður
hátíðaguðsþjónusta í kirkjunni.
Séra Bjöm O. Björnsson predik-
ar, kl. 1.15 leikur Lúðrasveitin á
Ráðhústorgi. Þaðan verður farið
í skrúðgöngu upp á hátíðasvæðið
við sundlaugina. Þar syngja
karlakórar bæjarins, ræður verða
fluttar og ávarp og fer fram fána-
hylling. Kl. 5 fer fram á íþrótta-
svæðinu síðari hluti 17. júní
mótsins, en kl .8.30 um kvöldið
eru hátíðahöldin á Ráðhústorgi
og hefjast með leik lúðrasveitar-
innar. Þar verða fjölmörg önnur
skemmtiatriði. Og að síðustu
verður stiginn dans.
Þess er fastlega vænst af öllum
þeim er sækja hátíðahöldin hér á
þessum merkisdegi, að þeir sem
sannir íslendingar komi vel og
virðulega fram og sýni að það er
hægt að skemmta sér vel án
áfengis.
Húsey í Vallliólmi
braim á sunnudagmn
Húsey í Vallhólmi í Skagafirði
brann til kaldra kola sl. sunnu-
dag. Bóndinn á Húsey er Felix
Jósafatsson kennari. Bjargaðist
hann og annað heima
flók allt, en engu teljandi af inn
anstokksmunum varð bjargað. —
Fjöldi fólks dreif að, er brunans
varð vart, en húsið, sem var úr
tímbri, varð alelda á svipstundu
og útilokaði alla björgun.
Það eina, sem vitað er að hafi
farizt í eldinum voru 4 kettlingar
•1.
Útibu Landsbankans tekur formlega
til starfa í nýju húsi við Ráðhústorg
Glæsileg og vönduð bygging, sem ber yfirsmiðn-
um, Stefáni Reykjálín, fagurt vitni og mörgum
öðrum iðnaðarmanni hér í bæ
Stjórn Landsbanka íslands hafði
boð inni í hinu nýja, glæsilega
húsi sínu við Ráðhústorg síðast-
liðinn laugardag. Hafði hún boð-
ið fjölda gesta héðan úr bæ og
héraði og víðs vegar að af Norð-
landi. Tilefnið var flutningur úti-
búsins hér úr ófullkomnu hús-
næði í eigið hús, vandað fram-
tíðarheimili.
Jón Maríasson bankastjóri
bauð gesti velkomna, en því næst
tók til máls Magnús Jónsson, for-
maður bankaráðs. Lagði hann
fyrst út af ljóðlínu Matthíasar
um Norðurland. „Þú fjórðungur,
sem fylltir landið hálft.“ Fannst
honum sama og skáldinu, að reisn
Norðurlands heyrði fortíðinni til,
og hefði þessi landshluti sett nið-
ur frá því hina gömlu Hólabisk-
upa leið, en þeir hefðu engum lot-
ið sunnan heiða.
Rakti Magnús svo stuttlega
sögu útibúsins, sem nú er rúm-
lega fimmtugt, stofnað í júní
1902. Það er elzta útibúið og það
stærsta. Velta þess hefur þús-
undfaldast á hálfri öld. Hældi
bankaráðsformaðurinn stjórn-
endum útibúsins mjög, þeim
Júlíusi heitnum Sigurðssyni, sem
stjórnaði fyi'stu 30 árin, og ekki
síður Ólafi Thorarensen, sem for-
stöðu hefur haft á hendi yfir 20
ár. Lýsti hann því svo yfir fyrir
hönd stjórnar Landsbankans, að
útibúið hefði tekið til starfa í
þessu nýja húsi.
Þessu næst tók til máls Ólafur
Thorarensen. Gat.hann þess með-
al annars, að útibúið hefði aldrei
búið við fullnægjandi húsakost
fyrr en nú. Þakkaði hann öllum,
sem hefðu lagt þessu byggingar-
máli lið og flutti skýrslu þá um
húsið, er hér fer á eftir:
Byggingarframkvæmdir hófust
1950. Var aðeins lokið við að
steypa kjallarann, en fullsteypt
var húsið árið 1952 og síðan hef-
ur verið unnið óslitið að bygging-
unni.
Bankabygging þessi er kjallari
og þrjár hæðir ásamt portbygg-
ingu og allháu risi. Flatarmál
byggingarinnar er um 400 m2 en
rúmmálið um 6450 m3. Bygging-
in er gerð úr steinsteypu, gólf og
loft járnbent, sem venja er, cn
innveggir ýmist steyptir, hlaðnir
úr vikri eða gerðir úr þilplötum.
Einangrun innan á öllum veggj-
um er 10 sm. vikur- og kork-
plötur.
Tvöfalt gler („Thermopane")
er í öllum gluggum.
Að utan er húsið húðað með
kvartssalla á sérstakan hátt, sem
gefur húðuninni sérkennilega
áferð. Alla múrhúðun og múr-
smíði annaðist Óskar Gíslason,
múrarameistari.
í kjallara eru hitunar- og loft-
ræsitæki hússins, en hitunin er
venjuleg miðstöðvarhitun, nema
hvað í bankasal er blásið inn
heitu lofti að auki. Auk þess eru
í kjallara fjárhirzlur bankans og
ýmsar geymslur. Fjárhirzlurnar
eru þrjár, tvær fyrir peninga og
verðbréf en sú þriðja er fyrir
geymsluhólf (box) viðskipta-
manna. Geymslur þessar eru
byggðar samkvæmt ströngustu
kröfum erlendra banka um fjár-
hirzlur, gólf, loft og veggir úr
mjög þykkri, sérstakri járribentri
steinsteypu, með rammbyggileg-
um hurðum fyrir, en vega nokk-
ur tonn hver hurð. Hurðir þessar
eru frá enska firmanu Chubb &
Son.
Á 1. hæð er afgreiðslusalur
bankans, að stærð 10,5x16,5 m.
Að salnum liggja útibússtjóra-
herbergi, vélritunarherbergi,
(Framhald á 7. síðu).
Nýja-Bíó á Akureyri
sýnir með nýjum vélum
Síðastliðið fimmtudagskvöld
sýndi Nýja-Bíó í fyrsta sinn með
hinum nýju sýningarvélum sín-
um. Er það mjög mikil bót frá því
sem áður var. Tal er mjög greini-
legt og söngur hljómar ágætlega.
Auk þessara endurbóta hefur
verið komið upp nýju Panoi-ama-
tjaldi og er það mun stærra en
það gamla og færast allir atburðir
nær áhorfendum.
Nýju sýningarvélarnar eru af
mjög vandaðri gerð frá hinum
þekktu Philipps-verksmiðjum.
Með þessari gerð véla er fyrir-
hafnarlítið hægt að.sýna þrívídd-
armyndir.
Hér er um að ræða ánægjulega
framför í skemmtanalífi bæjarins
og mega Akureyringar vera
þakklátir þessari stórfelldu end-
urbót sem eigendur Nýja-Bíós
hafa látið gera.