Dagur - 05.08.1954, Qupperneq 1
GERlST ÁSKRIFENDUR!
Sími 1166.
ÁSKRIFTARSÍMI
blaðsins er 1166. Gcrizt
áskrifendur!
XXXVn. árg.
Akureyri, fimmtudaginn 5. ágúst 1954
34. tbl.
Eyjafjarðará bylt úr farvegi vegna nýja
flugvallarins
Svo sem um var getið í síðasta blaði Dags, var vestustu ltvísl Eyja-
fjarðarár nýskeð veitt úr farvegi sínum í skurð þann hinn nýja, sem
grafinn hefur verið þar til sjávar. Myndin sýnir grandann, sem færð-
ur var í ána í þessu skyni, rétt áður en aðalátökin hófust við vatns-
ílauminn, er allur virtist færast í auka, áður en hann varð beizlaður.
Stórmerk sýning á liinum heimsfrægu,
þýzku bifreiðum
MercedesBenz
opnuð hér á Akureyri
Norðlenzkir blaðamenn fá tækifæri til að fylgjast með at-
hugunum, er staðfesta, hversu ótrúlega sparneytin þessi bíl-
gerð er í akstri. — Kynnisför Reykjavík—Akureyri.
ian til sóma, en baklóðin til
lítillar sæmdar I
Á annað þúsund manns hafa þegar skráð nöfn
sín í gestabók Matthíasarkirkju á þessu sumri
Kristján Sigurðsson, trésmíðameistari, átti erindi inn í skrif-
stofur Dags nú eftir helgina, og greip blaðið tækifærið til þess
að spjalla um stund við hann um málefni kirkjunnar hér, —
þó einkum um hina ytri hlið þeirra mála, ef svo mætti að orði
komast, þ. e. kirkjubygginguna og næsta umhverfi hennar, —
en Kristján er, svo sem alkunnugt er, einn hinn mesti áhuga-
maður um þau mál og manna kunnugastur öllu því, er þetta
varðar, enda hefur hann um langt skeið verið hringjari og
húsvörður kirkjunnar, sókarnefndarmaður og formaður
nefndarinnar síðastliðin 18 ár.
Svo sem getið hefur verið um í
blöðum og útvarpi, var sýning
haldin í Reykjavík nú fyrir
skömmu á Mercedes-Benz bílun-
um þýzku. Vakti sýning þessi
mikla athygli þar syðra. Þórs-
hamar h.f., sem hefur söluumboð
verksmiðjunnar hér, hefur nú
fengið sýninguna hingað norður
á Akureyri, og verður henni lok-
ið í kvöld. Á þessari sýningu eru
sýndar 3 fólksbifreiðar, 1 vöru-
bifreið og dráttarvél.
Ekki verður gerð tilraun til að
lýsa hér þessum bílum að neinu
ráði, enda ekki á færi annarra en
íagmanna. Þó verður örlítið getið
um mjög athyglisverða niður-
stöðu á athugun, sem gerð var
mjög nákvæmlega á brennslu-
magni einnar bifreiðarinnar á
Flugslys hjá Blöndugili
Tveggja manna flugvél, sem
lagði upp frá Reykjavík kl. 8 í
fyrrakvöld, og ætlaði til Akur-
eyrar, bilaði hjá svonefndu
Blöndugili, norðan Hveravalla,
og varð að lenda. — Mennirnir,
sem heita Sveinbjörn Bárðar-
son og Karl Schiöth, sluppu lít-
ið meiddir, en vélin mun vera
ónýt.
Veiðimenn, sem voru þarna
nærstaddir, komu flugmönnun-
um þegar til hjálpar og fylgdu
þeim til byggða. Voru þeir það-
an fluttir á sjúkrahús.
leiðinni frá Reykjavík til Akur-
eyrar.
Þórshamar h.f. bauð blaða-
manni frá Degi ferð súður og
með þessum þýzku bifreiðum
norður, og þá um leið að athuga,
hvórt sú kenning stæðist, að hér
væri um að ræða sparneytnari
bifreiðar en áður hefðu þekkzt
hér.
Kynnisför: Reykjavík—Akureyri.
Um leið og ekið var af stað frá
Reykjavík, var olíutankur 6
manna fólksbifreiðar fylltur.
Skyldi nú ganga úr skugga um,
að ekki væru brögð í tafli. Lykill
að olíugeymi var afhentur blaða-
Akraborg m/s, eigandi og út-
gerðarmaður Valtýr Þorsteinsson
frá Rauðuvík, er nú á síldveiðum
undan Norð-austurlandi. 3—4
síldarsöltunarstúlkur eru þar um
borð, og er blaðinu ckki kunnugt
um, að önnur síldveiðiskip íslcnzk
hafi áður verið búin til útisöltun-
Verður vandi togara-
útgerðarinnar ráðinn
með bílaskatti ríkra
manna?
Rétt í því, að blaðið er að
fara í pressuna, foerast þær
fregnir úr höfuðstaðnum, að
ríkisstjórnin hyggist reyna að
bjarga fjárhagsvanda togara-
útgerðarinnar — sem annars er
ræddur nokkuð í forustugrein
blaðsins í dag — fyrst í stað
með því að leggja aukaaðflutn-
ingsgjöld á bíla, enda talið, að
aukagjaldið verði jafnvel jafn-
hátt og innkaupsverð bílanna!
— Ekki mun of fast að orði
kveðið, þótt sagt sé, að almenn-
ingi muni þykja þessi ráðstöfun
allvafasöm. Of snemmt er þó
að freista þess að leggja á þetta
mál noltkum úrslitadóm, með-
an málavextir eru ekki nánar
skýrðir en með fyrstu blaða-
. fregnum, sem eru ærið óljósar,
og ekki víst, að þær styðjist við
áreiðanlegar heimildir. —
Sjálfsagt munu stjómarvöldin
gera nánari grein fyrir þessari
ráðstöfun innan tíðar, og á
meðan bíða menn rólegir
átekta. — Annars verða þessi
mál væntanlega rædd nánar í
næsta blaði, þar eð ekki gefst
tóm til þess að sinni.
Versnandi veður
á síldarmiðunum
í gærkveldi, þegar bláðið var
að fara í pressuna, var veður
versnandi á síldarmiðunum. 40—
50 skip hafa fengið nokkra veiði í
gær og fyrrinótt. Á Raufarhöfn
var mikið að gera í gær og síldar-
söltun í fullum gangi á öllum
plönunum.
Um veiði einstakra skipa er
blaðinu ekki kunnugt, en frétzt
hefur þó, að Jörundur hafi fengið
allmikla síld, og Snæfellið var á
leið til lands, líka með góða veiði.
ar. Heyrzt hefur, að stúlkunum
líki svo vel sjósóknin, að þær vilji
ekki breyta til og hefja söltun í
landi, þótt í boði væri. — Ekki er
Degi nákvæmlega kunnugt um
aflabrögð skipsins, en síðast þeg-
ar fréttist, hafði það fengið á ann-
að þús. mál og tunnur.
Fjöldi gesta skoðar kirkjxma
daglega að kalla.
Kristján kvað mikinn fjölda
ferðamanna hafa komið í kirkj-
una í sumar. Liggur þar gestabók
frammi, svo sem að undanförnu,
og hafa nokkuð á annað þúsund
manns þegar skráð nöfn sín í
bókina, það sem af er þessu
sumri, og munu þó sjálfsagt ýms-
ir gesta þeirra, sem þarna koma,
gleyma bókinni, og koma þeir
þannig ekki fram í áðurgreindri
tölu. Og messugestir munu yfir-
leitt ekki skrá þar nöfn sín. Flesta
daga bætast þetta 40—60 nýir
gestir við í hópinn.
Hrifnir af kirkjunni, en síður
af baklóðinni.
Ferðamönnum þeim, er þarna
koma, ber yfirleitt saman um það,
að kirkjan sé hið veglegasta
musteri og líklega fegursta guðs-
hús á öllu Iandinu. Einkum hafa
erlendir ferðamenn — en þeir
koma þarna fjölmargir — kveðið
sterkt að orði um þetta, ekki sízt
um hinn hreina stíl kirkjunnar
innanhúss og um hina smekklegu
og veglegu kirkjugripi, sem þar
eni til prýði. Verður þeim t. d.
mörgum harla starsýnt á skírnar-
laugina fögru, sem þau Ryels-
hjónin gáfu kirkjunni af svo mik-
illi rausn, svo sem alkunnugt er,
enda er það tvímælalaust einn
fegursti og veglegasti kirkjugrip-
ur á íslandi. — Þá dást og flestir
mjög að framhlið kirkjunnar,
turnunum tveim ,sem haldið er í
svo sérkennilegum stuðlabergs-
stÖ, hlaði kirkjunnar og kirkju-
tröppunum miklu, sem vera
munu einstæðar í sinni röð hér á
landi, og þótt víðar sé leitað.
Kirkjuhvollinn bezti sjónarhóll-
inn yfir Akureyri og umhverfi.
Brekkan umhverfis tröppurnar
og kirkjuhlaðið hafa nú verið
gerð upp á hinn prýðilegasta hátt
og skreytt trjágróðri og blóma-
beðum, sem eru hreinasta augna-
yndi að sumarlagi. — Kristján
kveðst þó kvíða því, að nauðsyn-
legt muni reynast að girða tröpp-
urnar og hlaðið tryggilega til
varnar því, að menn komist það-
an út á hina upphlöðnu, grónu
stalla, því að öðrum kosti muni
óhjákvæmilegt, samkvæmt þegar
fenginni, illri reynslu, að þekja
og jafnvel hlaða> upp að nýju á
hverju vori, ef allt á að vera
þarna með felldu yfir sumarið.
Því að það er segin saga, að strax
og hallar að hausti, og þó einkum,
er skólar byrja þarna í nágrenn-
inu, tekur fjöldi fólks að rása yfir
gróðurblettina og renna sér fót-
skriðu eða klifra á annan hátt
upp og niður stallana í því skyni
að stytta sér leið — nennir blátt
áfram ekki að leggja á sig þann
örlitla krók, sem til þarf að kom-
ast á hlaðið og rétta boðleið um
tröppumar. Er þess þá skammt
að bíða, að, slóðir — sem vissu-
lega má með sanni kalla sauða-
götur, þótt ekki sé í algengustu
merkingu þess orðs — myndist
og skáskeri stallana og gróður-
blettina báðu megin við tröpp-
urnar.
(Framhald á 7. síðu).
Kviknar í „Þórshamri“
Sl. þriðjudag, kl. 10,38 um
morguninn, var brunaliðið kallað
á vettvang, vegna þess að eldur
var laus í aðal-vinnusal bifreiða-
verkstæðisins Þórshamars hér í
bæ. Margt er um eldfima hluti á
slíkum stöðum, svo sem kunnugt
er, svo að hæglega gat þarna orð-
ið mikið bál á skammri stundu,
enda mun það enn í fersku minni,
er fyrirtæki þetta brann til
grunna að kalla, og olli sá bruni
miklu tjóni og truflunum á starf-
semi vinnustofunnar. En í þetta
sinn tókst betur til, því að
slökkviliðinu tókst að ráða niður-
lögum eldsins á skömmum tíma
og áður en mikið tjón hafði af
honum hlotizt. Þó mun ein bif-
reiða þeirra, er þarna voi'u til
viðgerðar, hafa skemmst allveru-
lega af eldinum.
(Framhald á 2. síðu).
Fyrsta útisöttunarskip í íslenzka
síldveiðiflotðnum?
„Akraborgin“ hefur 3-4 síldarsöltunar-
stúlkur um borð