Dagur - 05.08.1954, Side 4

Dagur - 05.08.1954, Side 4
4 D A G U R Fimmtudaginn 5. ágúst 1954 DAGUR Ritstjóri: HAUKUR SNORRASON. Afgreiðsla, auglýsingar, innheimta: Erlingur Davíðsson. Skrifstofa í Hafnarstræti 88. — Sími 1166. Blaðið kemur út á hverjum miðvikudegi. Árgangurinn kostar kr. 50.00. Gjalddagi er 1. júlí. Prentverli Odds Björnssonar h.f. f Vandi, sem verður að leysa SÚ VAR TÍÐIN, að bjartsýnir menn í landinu þóttust eygja flestra meina bót í atvinnulífi og fjármálum þjóðarinnar, ef keyptir yrðu hingað til lands sem flestir og stærstir nýir togarar á sem skemmstum tíma. Mundi þess þá skammt að bíða, að hinn nýi floti stórra og velbúinna veiðiskipa yrði þess megnugur að mala þjóðinni svo mikið gull, að óþarft væri fyrir hana að kvíða afkomunni eftir það. Hinir allra bjartsýnustu menn á þessum tímum hins gífurlega stríðsgróða voru þegar tekn- 'ir að ræða um það t. d. — og að því er virtist í íyllstu alvöru — að rétt og skynsamlegt væri að leggja íslenzkan landbúnað niður að mestu, nema þá helzt í hinum beztu sveitum í nánd við höfuð- staðinn, og kaupa landbúnaðarafurðir frá öðrum löndum. Ef einhver skyldi efast um, að hér sé rétt frá hermt, ætti að nægja að benda þeim á að kynna sér t. d. skrif skáldsins frá Laxnesi frá þessum árum og undirtektir fylgismanna hans og skoðanabræðra. I EKKI ER ÞESS að dyljast, að það var mikil höfuðnauðsyn að endurnýja og auka að mun tog- araflota landsmanna, sem var ærið fornfálegur orðinn og úr sér genginn í lok heimsstyrjaldar- innar. Um þetta voru og allir ábyrgif menn sam- mála, þótt skoðanir skiptust um það, hvernig að þessu nauðsynjamáli skyjdi staðið að öðru leyti. En hvað sem því líður, er nú svo komið, að allur togaraflotinn íslenzki að kalla hefur verið endur- nýjaður og stóraukinn á tiltölulega skömmum tíma. Hins vegar hefur reynslan ótvírætt leitt það í Ijós, að því fer harla fjarri, að allir hnútar hafi þar með verið leystir í sambandi við fjárhagsmál- in og atvinnuástandið, heldur er hitt sönnu nær, að ýmsum þyki sem hnútar þeir hafi nú um sinn sjaldan verið fastar né harðar riðnir en einmitt nú. Og vissulega er mikil vá fyrir dyrum, þegar svo er komið í þessum efrium, að verulegur hluti hins fríða og stórvirka veiðiskipaflota, sem þjóðin hefur lagt svo stórar fjárfúlgur út fyrir og bundið svo miklar vonir við, liggur tjóðraður og ónotaður við hafnarbakka bæjanna. )! EKKI KEMUR mönnum það á óvart, að talið er, að milliþinganefnd sú, sem haft hefur þessi :raál til athugunar að undanförnu, hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að kvartanir útgerðarmanna ym halla á rekstri skipanna nú um skeið, hafi yf- xrleitt verið á fullum rökum reistar, þótt nokkuð sé það misjafnt, hvemig útgerðin hafi gengið að þessu leyti, svo sem vitað var áður. T. d. er okkur : Akureyringum kur.nugt um það, að á sama tíma og togaraútgerðin hér í bænum hefur reynzt hin mesta lyftistöng fyrir allt athafnalíf og afkomu bæjarfélagsins, hefur hún verið rekin af svo mikl- um dugnaði, myndarskap og heppni — bæði á sjó og landi — að fjárhagslega hefur hún einnig staðið betur af sér áföllin, fram að þessu a. m. k., en víðast hefur til tekizt annars staðar á sama f.ima. En ekki mun það ofmælt, þótt sagt sé, að þrátt fyrir þetta taki nú einnig hér að syrta mjög i álinn í þessum efnum. Alls staðar mun það því mjög aðkallandi að fundin séu ný úrræði, er : er koma megi togaraútgerðinni til hjálpar, svo að hún geti haldið starfsemi sinni áfram og eflt hana á eðlilegan hátt. TALIÐ ER, að áðurnefnd milli- þinganefnd hafi nú lokið rann- sókn sinni, og sé tillagna hennar að vænta innan tíðar. Að sjálf- sögðu mun svo ráð fyrir gert, að tillögur nefndarinnar muni eink- um beinast í þá átt, að gerðar verði allar þær ráðstafanir, sem tiltækilegar þykja að lækka út- gerðarkostnaðinn, og ennfremur reynt að tryggja útgerðinni sann- virði aflans. Ekki er ólíklegt, að fleiri leiðir komi hér einnig fylli- lega til athugunar, áður en lýkur, þegar fullreynt þykir, hvaða ár- angri muni liægt að ná með þeim aðferðum, sem þegar hafa verið nefndar. Ábyrgum mönnum mun þó koma saman um, að nýtt geng- isfall — hvort heldur það kæmi fram í beinni eða óbeinni mynd — sé hrein neyðarráðstöfun, sem ekki megi grípa til, fyrr en öll önnur hugsanleg úrræði hafi ver- ið reynd til þrautar. Sú ráðstöfun hefur áður verið gerð á neyðar- stund, og var þá ekkert annað en sjálfsögð og óumflýjanleg játn- ing og afleiðing þess ástands, sem þá þegar hafði skapazt, og þeir, sem í tæka tíð og fyrstir manna höfðu varað við og krafizt ráðstafana gegn voða dýrtíðar- skrúfunnar og verðþenslunnar, áttu enga sök á, þótt þeir, eftir að út í ógöngurnar var komið, tækju þátt í björgunarstarfinu með þeim aðgerðum, sem til greina komu, eftir að slysið var þegar skeð. Þær neyðarráðstafanir komu á sínum tíma í veg fyrir það, að hjól atvinnulífsiris stöðv- aðist og fjárhagsgrundvöllurinn hryndi algerlega í rústir. En það var harla alvarleg og.áhættusöm læknisaðgerð, sem þá var framin, og vonandi, að til hennar þurfi ekki að grípa á nýjan leik. EF TIL VILL fær það mönnum mestrar áhyggju í þessu sam- bandi, að vitað er, að enda þótt ríkisstjórninni tækist að finna viðhlítandi fjárhagsgrundvöll fyrir útgerðina, að óbreyttu því ástandi, sem nú er, er það þó engan veginn víst, að togaraflot- inn kæmist þrátt fyrir það yfir- leitt út á veiðar. Tvennt getur einkum borið til þess: Fyrst það, að það hefur legið í loftinu að undanförnu, að togarasjómenn hygðust gera nýjar kröfur um hækkað- kaup og bætt kjör. En í annan stað, er þó enginn trygging fýrir því fengin, að nægilegur mannafli fengist á flotann, enda þótt hægt væri að verða við hin- um nýju og sívaxandi kröfum, meðan sama eftirspurn og nú er helzt eftir vinnuafli til velborg- aðra starfa í landi. Um hið fyrra atriðið er það annars að segja, að furðuleg er sú kenning, sem hald- ið hefur verið fram af ráðamönn- um í þessum efnum, að ekki sé rétt að lýsa þessum nýju kröfum fyrr en gengið hefur verið frá samkomulagi og ráðstöfunum í þessu sambandi að öðru leyti. Ábyrgir menn hefðu þó haldið, að það væri öldungis bráðnauð- synlegt að vita gjörla, hvers kraf- izt verður að þessu leyti, áður en nokkrar heildarráðstafanir verði gerðir i þessu máli. Annars væri hætt við, að grundvelli björgun- arstarfsins væri raskað svo mjög, að óhjákvæmilegt reyndist að vinna verkið upp aftur með til- lits til hins breytta ástands, og tefja þannig tímann enn um skör fram með nýju samningaþófi. í DAG kemur saman í Reykja- vík ráðstefna sú, er Alþýðusam- band íslands hefur boðað til í því skyni að ræða kröfur togara- sjómánna. Munu flestir mæla, að ekki sé vonum fyrr efnt til slíks þings. Óskandi erf að eftir þennan fund verði það ljóst, hvers er að vænta úr þessari átt, og verði þá unnt að ganga að því með oddi og egg að leysa þetta þýðingarmikla mál í heild. Víst er það orða sannast, að þegar hefur verið set- ið, meðan sætt var, og ekki megi dragast mikið.lengur en þegar er orðið, að gera allar þær ráðstaf- anir, sem framast er unnt til þess að koma öllum togaraflotanum úr höfn og út á veiðar nú um há- b j ar græðis tímann. Útlendir skemmtiferðamenn á fslandi. SUNNANBLÖÐIN hafa, af gefnu tilefni, verið að ræða nokk- uð þann möguleika, hvort ísland geti orðið eftirsótt ferðamanna- land, og þó einkum það atriðið, hvort gistihúsarekstur hér á landi sé í því standi, að hann sé ferðamönnum bjóðandi. — Ensk- ur sérfræðingur um máiefni ferðalanga, sem kvaddur hefur verið til ráða í þessum efnum, hefur látið hafa eftir sér ummæli, sem benda til að hér séu ekki til nokkur þau hótel, sem kallazt geti fyrsta flokks á alþjóðlegan mælikvarða, og hafa sum blað- anna tekið undir þá skoðun hans, en önnur mælt á móti, eins og gengur. — Enginn dómur skal hér felldur í þessari deilu, en hitt er víst, að enda þótt fáein gisti- hús íslenzk kunni að standast þær kröfur, sem eðlilegt er, að er- lendir gestir geri að þessu leyti, eru hin þó miklu fleiri, sem ekki standast þann snúning og engan veginn geta talizt þjóðinni til sóma. Hvergi mim þó ástandið verra að tiltölu en einmitt á þeim staðnum, þar sem ferðamanna- straumurinn hlýtur að mæða fastast á, þegar hann kemur, en það er auðvitað í höfuðborginni sjálfri, enda getur það nú varla dregizt mikið lengur en orðið er, þjóðinni að vansalausu, að bæta úr því ástandi, sem þar er að þessu leyti. Fleiri Þrándar í Götu. ÝMIS býsna furðuleg dæmi hafa verið dregin fram í þessu sam- bandi, sem benda til þess, að þjóðin sé enn þá lítt við því búin að taka við auknum straumi er- lends ferðafólks, hvað sem gisti- húsakostinum annars líður. Sæmileg fararstjórn hefur brugð- izt á hinum ólíklegustu stöðum, og margt annað hefur farið af- skeiðis. Allt þetta eru þó atriði, (Framhald á 7. síðu). | VAI.D. V. SNÆVARR: | f % | Þegar þysinn hljóðnar. | I I T Minnstu þess, að lialda hvíldardaginn heiiag- ® an. Sex daga skalt þú eríiða og vinna allt í W" þitt verk; en .sjöundi dagurinn er hvíiclar- £ 0 dagur, heigaður Drottni, Guði þínum. — I XI. Mós. 20, 9-10. ^ „Hvíldardaginn nota eg eins og mér sýnist sjálf- ,t um,“ segja margir. Það mun satt vera. Það gjöra ■f vist flestir. Svo virðist sem margir gleymi fyrirmtvl j- um Guðs um notkun hans. Sumir gjöra hann að Á að degi svefnsins. Hafa vakað aðfaranótt sunnudags- ^ itis við skemmtanir, oft gildisrfrar og vafasamar. ¥ Natturvökuna verða Jieir svo aS brela sér uj>p með & dagssvefni. Þeir gjöra hvildardaginn að degi svefns- % ins. I.átum J>að svo vera. — Aðrir gjöra hann að ® vinnudegi ag er J>að stundum afsakanlegt. En það t. verður að segjast eins og er, að illt er að afsaka ónauðsynlega heigidagavinnu. — Enn gjöra margir f helgidaginn að funda- og íþróttadegi, og cru rnáske ý aldrei J>reyttari en að kveldi hvildardagsins. l[>rótt- y. ir, iðkaðar af skynsemd en ekki ofurkaþpi, geta 'T haft gildi. Ungu fólki, sem starfbundið er alla ® vikuna, er J>vi nokkur vorkunn, en „hóf er bezt í -ri hverjum hlut". — Sárast af öllu er j>að J>ó, að & helgidagurinn virðist stundum gjörður að degi synd- % arinnar öðrum dögum fremur... . Hvað segir hvild- g, ardagsboðorðið sjálft? „Minnstu þess, að hakla hvíld- £ ardaginn lteilagan". Hvað þýðir það? í fyrsta lagi það, að Guð œtlast til, að dagurinn verði oss hvíld- ardagur. — Þegar vél hefir lengi verið notuð, þá þarf að gefa sér tima til að lita eftir, hvort stöðug, £ látlaus notkun hennar kunni ekki að vera henni of- -S raun. Að minnsta kosti verður að smyrja vélina og 1 k<rla við og við. Sannarlega er þessu líkt háttað með f manninn. Eftir sex daga erfiði þarfnast likaminn og ? sálin hvildar og hressingar. Kröftum þarf að safna rk til nastu viku og nrcði þarf að gefast til að sinna 0 andlegum hugðarefnum i helgifriði hvildardagsins. ^ Eins og likaminn þarf að safna kröftum til viku- ^ erfiðisins, sem framundan er, eins verður að sjá sálunni fyrir þróttarauka við sitt hafi. Oss er J>vj ^ lika i öðru lagi boðið að halda ImiFdardagifíii heilag- f an. Sálirt sakir þrótt sinn i Guðs'/orð <og helgá.r X iðkanir. Að halda hvíldardaginn heilagan er,J>xi J>að, $ að nota liann til helgifara. Kirhjuganga virðist þvi j 0 alpeg sjálfsögð, þar sem hennar er kostur. Kirkju- $ ga,,Sa’ lestur og hugleiðing heilags' ofðs 'eétti að stand.it efst á skrá helgidagsins samkv. boðorðinu. — Helgidagurinn er gjöf Guðs. Verjum honum J>vi samkvœmt vilja gefandans. Verum þcss minnugir, f Sunnudagur Droltins er ? ^ dagur Guðs til hvildar mönnuin, y ¥ lifsins orð hann blessuð her; .......... <3 « boðin Jesú vinum sönnum. * Ji Drottins kirkja’ um veröld viða vill þann dag með lofsöng þrýða. X £ I ^ Sakjum kirltju. Tökum þátt i lofsöngnum. — Er 4- það eklti nokkuð margt, sem vér höfum ástreðu til f j. að lofa Guð fyrir, ag er ekki gjöf helgidagsins þar y 5 á meðal? ¥ ¥ ,MINNSTU ÞESS, AÐ HALDA HVÍLDARDAG- § © INN HEILAGAN." ^ 6 Árbók Landsbankans: „Verzlunarhallinn 1953 að fullu greiddur með duldum gjaldeyris- tekjum“ Aðstaða bankanna gagnvart útltindum batnaði um 25,4 millj. króna. Um gjaldeyrisviðskipti við útlönd á árinu, sem leið, segir svo í nýútkominni Árbók Landsbankans: „Þó að hinn óhagstæði verzlunarjöfnuður næmi 405 millj. kr., batnaði aðstaða bankanna gagnvart út- löndum um 25,4 millj. kr. — Verzlunarhallinn var að fullu greiddur með duldum gjaldeyristekjum, en helztu liðirnir þar voru tekjur vegna varnarliðsins 213 millj. kr., og óafturkræft framlög vegna efna- hagsaðstoðar að upphæð 104 millj. kr. Lán erlendis námu alls 48 millj. kr.“ — Þess má líka geta, að í verzlunarskýrslum eru bæði erlendar vörur reikn- aðar á því verði, sem á þeim er í höfn á íslandi, en í því verði eru farmgjöld íslenzkra skipa, að því leyti, sem þau annast flutninginn. Hins vegar geng- ur til þessara skipa allmikið af „duldum“ gjaldeyr- isgreiðslum vegna kostnaðar erlendis.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.